„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Andrea varð fyrir einelti á vinnustað: Var hætt að þora á kaffistofuna

Andrea varð fyrir einelti á vinnustað: Var hætt að þora á kaffistofuna
Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig,“ segir Andrea Björk Sig­ur­vins­dóttir, sem var eina konan í slökkvi­liði Fjarða­byggðar þegar hún hóf störf þar sum­arið 2017. Hún hafði reynslu af sjúkra­flutn­ingum og brenn­andi áhuga á starf­inu, sótti sér aukna menntun í því og lagði sig alla fram. Fljót­lega fór þó að bera á því að ýmsir sam­starfs­menn hennar voru ekki hrifnir af því að fá konu sem starfs­fé­laga og Andrea upp­lifði síend­ur­tekið áreiti innan slökkvi­liðs­ins sem end­aði með því að hún brotn­aði saman og hætti sam­kvæmt lækn­is­ráði.

Hún hefur nú lagt fram form­lega kvörtun vegna kyn­bund­ins áreitis og ein­eltis eftir að hafa ítrekað verið hunsuð af yfir­mönnum slökkvi­liðs­ins þegar hún kvart­aði. Á end­anum hrökkl­að­ist hún úr bænum og flutti til Dalvíkur ásamt eig­in­manni og börnum, en hún er enn óvinnu­fær og treystir sér ekki ein út í búð, hvað þá meira, svo djúp­stæð áhrif hafði ein­eltið á hana.

„Það gekk eig­in­lega bara allt út á það hjá þessum aðilum að finna eitt­hvað á mig. Ég til dæmis óskaði eftir sál­gæslu eftir mjög erfitt útkall og það þótti afskap­lega fyndið og mik­ill aum­ingja­skapur.“

Var hætt að þora á kaffistofuna

Andrea lagði fram kvörtun til yfir­manns síns vegna kyn­bund­ins áreitis eftir að hafa reynt án árang­urs að vera metin að verð­leikum innan liðs­ins. „Ég var farin að heyra hvernig var talað um mig,“ útskýrir hún.

„Að ég gæti ekk­ert gert, væri ekki nógu sterk og svo fram­vegis. Ég lagði mig alla fram í starf­inu, reyndi að vera allra en það var ekki hægt. Ég varð því mjög ánægð þegar slökkvi­liðs­stjór­inn kall­aði mig inn á skrif­stofu og sagð­ist vera búinn að taka eftir áreit­inu og vildi heyra hvernig ég hefði það. Áreitið kom aðal­lega frá einum starfs­manni til að byrja með en það vatt upp á sig og ég ákvað að leggja fram form­lega kvörtun. Ég var þá byrjuð í atvinnu­námi slökkvi­liðs­manna sem er árslangt lotu­nám, til að fá lög­gild­ingu sem atvinnu­slökkvi­liðs­maður. Þá þurfti ég að vera alla daga á slökkvi­lið­stöð­inni og mæta á allar vaktir, ekki bara mína vakt en þar mætti ég alltaf fullum skiln­ingi og stuðn­ingi. Aðrar vaktir voru ekki á þeirri línu og ég mætti mjög leið­in­legri fram­komu frá þeim. Ég var hætt að fara inn í kaffi­stofu, fór heim í mat­ar­tím­anum og gerði allt til að forð­ast að vera í sam­skiptum við þá. Einn starfs­maður var far­inn að sýna mér ógn­andi fram­komu og mér leið sífellt verr. Lengi reyndi ég að rétt­læta þetta með því að þetta væri eðli­legt þar sem ég væri kona sem væri að ráð­ast inn í karla­veldi og þess vegna þyrfti ég bara að læra að höndla þetta áreiti sem eðli­legan hluta af því að vera í slökkvi­liði, sem var nátt­úr­lega fárán­leg hugsun. Auk þess að ég var hrein­lega farin að velta fyrir mér hvort þetta væri ímyndun í mér, staðan væri alls ekki svona slæm. Það er nefni­lega ótrú­legt hvað kvíði getur brenglað hugs­un­ina hjá manni.“

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Eftir að Andrea lagði fram kvörtun­ina kall­aði slökkvi­liðs­stjór­inn hana og þann sem atkvæða­mestur var í áreit­inu á sinn fund til að ræða málið og reyna að koma á sáttum.

„Það var nátt­úr­lega alls ekki þægi­legur fundur,“ segir Andrea. „Eig­in­lega bara mjög óþægi­legur. Hann við­ur­kenndi ekki að hann væri að gera neitt rangt, sagði að kannski þyrfti hann að venja sig á að vera aðeins blíð­legri í fram­komu við alla, hann væri bara svona. Slökkvi­liðs­stjór­inn vildi allt í einu ekk­ert kann­ast við að hann hefði áður rætt við mig um áreitið. Það var skrifuð fund­ar­gerð og við kvitt­uðum undir en sá aðili sem ég kvart­aði undan kvitt­aði undir með því skil­yrði að þessi fund­ar­gerð yrði ekki sýnd neinum öðrum en okkur og slökkvi­liðs­stjór­inn lof­aði því. Þannig að ég fékk ekk­ert út úr þessum fundi nema auk­inn kvíða. Ég var auð­vitað í enn verri stöðu eftir að hafa kvartað og fann vel fyrir því að menn lögðu sig fram um að hunsa leið­in­legu kell­ing­una sem kvart­aði við yfir­mann­inn.“

Lestu viðtalið í heild sinni í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins