„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Brynhildur Lára fékk óskina uppfyllta og Gísli Marteinn var í áfalli

Brynhildur Lára fékk óskina uppfyllta og Gísli Marteinn var í áfalli
Bryn­hildur Lára og Gísli Marteinn.

Gísli Marteinn er ekki samur maður eftir heim­sókn til Garða­bæjar. Bryn­hildur Lára er hins vegar him­in­lif­andi og skilar kveðju til allra vina sinna. Þau áttu nokkuð mis­jafna viku.

Góð vika – Bryn­hildur Lára
„Ég er svo heppin,“ voru þau orð sem Bryn­hildur Lára Hrafns­dóttir, ell­efu ára stúlka, lét falla í vik­unni þegar hún sá loks fram á að geta keypt sér­út­bú­inn bíl fyrir hjóla­stól sem hún notar. Á sam­fé­lags­miðlum hafði Lára óskað eftir 500 krónum „sem fólk væri hætt að nota“ til kaupanna og við­brögðin létu ekki á sér standa. Þegar Lára kom heim eftir helg­ar­dvöl á hvíld­ar­heim­ili fékk hún þau gleði­tíð­indi að 2.941 fimm hund­ruð krónu seðlar hefðu safn­ast á reikn­ingi hennar og gott betur, sem dygðu til að kaupa bíl­inn. Í sam­tali við Mannlíf sagði móðir Láru að dóttir hennar væri him­in­lif­andi. „Að sjá barnið sitt gleðj­ast, sér­lega þegar maður hefur allt of oft séð það þjást, er miklu miklu meira en ómet­an­legt,“ sagði hún, en Lára er með sjald­gæfan ólækn­andi erfða­sjúk­dóm sem veldur því að hún þarf að nota hjóla­stól og kemur bíll­inn til með að auð­velda henni lífið. Kom móð­irin á fram­færi djúp­stæðu þakk­læti dóttur sinnar: „Lára vil skila kveðju til allra sinna góðu vina og þakkar þeim þús­und-millj­óntrilljón­falt.“

Slæm vika – Gísli Marteinn
Fjöl­miðla­mað­ur­inn geð­þekki Gísli Marteinn Bald­urs­son rataði heldur betur í ógöngur í vik­unni þegar hann gerði sér ferð til Garða­bæjar. Gísli þurfti að fara með Tinna hund­inn sinn til dýra­læknis og varð fyrir menn­ing­ar­á­falli þegar í ljós kom að hann virt­ist hvergi geta fengið sér morg­u­mat og kaffi á meðan hann beið. Gísli greindi frá þessu á Twitter og fékk í kjöl­farið þó nokkrar ábend­ingar frá hjálp­sömum net­verjum og upp­á­stungur um staði sem hann gæti farið á, en þeir reynd­ust ýmist vera lok­aðir eða of langt í burtu að mati Gísla. Stungu net­verjar þá upp á Hafn­ar­firði, þangað væri stutt að fara, en sú hug­mynd virt­ist heldur ekki eiga upp á pall­borðið hjá borg­ar­skipu­lags­fræð­ingnum, sem féllst reyndar á að þar væru lík­lega ýmsir góðir kostir, en lélegar ákvarð­anir hefðu verið teknar í borg­ar­skipu­lagi bæj­ar­ins. Gísli, sem hefur oft grín­ast með að í Vest­ur­bænum sé borg­ar­lífið best, var aug­ljós­lega full alvara því hann greindi svo frá því að hann hafi endað á því að taka strætó aftur til Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins