„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Góð vika/slæm vika

Góð vika/slæm vika
Eyþór og Páll. Myndin er sam­sett

Góð vika

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og með­limur Tod­mobile, átti góða viku. Hann var í við­tali í Frétta­blað­inu þar sem hann tal­aði meðal ann­ars nýju ást­ina sína. Segja má að hann svífi um á bleiku skýi þessa dag­ana.

„Það er dásam­legt að finna ást­ina og kannski er hún lífið, það er að segja að elska aðra mann­eskju og allt sem maður gerir. Ég held að það sé ákveðið hreyfi­afl. Ég var hepp­inn að kynn­ast Ástríði,“ segir Eyþór í við­tal­inu.

Er hann þá spurður hvort 20 ára ald­urs­munur þeirra trufli þau ekk­ert, segir hann svo ekki vera. „Það er vissu­lega ald­urs­munur á okkur en það dregur okkur saman að við deilum sömu gildum og áhuga­málum og brennum bæði sér­stak­lega fyrir list­inni og klass­ískri tón­list. Við erum mjög sam­huga,“ sagði stima­mjúkur Eyþór meðal ann­ars í við­tal­inu.

Mynd / Hallur Karlsson|

Vinirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðv­ars­son áttu ljúfa viku en þau eign­uð­ust nýlega son saman. Það sem er óvenju­legt við þessa nýju fjöl­skyldu er sú stað­reynd að þau Þórdís og Sigurjón eru ekki par, heldur góðir vinir sem áttu bæði þann draum að eign­ast barn. „Þvílík for­rétt­indi, orð­laus, yfir­þyrm­andi ást, þakk­læti, ham­ingja og lífið breytt­ist á einum degi,“ skrif­aði Þórdís í Facebook-færslu.

Vinirnir með barnið sitt

„Drauma­prins­inn fædd­ist 23. okt. kl. 15:59, 16 merkur og 53 cm, heil­brigður, með dökk­blá augu, gyllt hár, engla­rödd og full­kom­inn í alla staði,“ skrifar hún og bætir við:

„Takk fyrir allan stuðn­ing­inn og ham­ingju­ósk­irnar. Við svífum um á bleiku skýi og tímum varla að blikka aug­unum og dáumst að hverju hljóði, svip­brigðum, búk­hljóðum, lykt­inni, gull­hár­inu og litlu fingr­unum sem grípa í mann.“

Slæm vika

Öll spjót hafa staðið á Páli Vil­hjálms­syni, sögu­kenn­ara í Fjöl­brauta­skól­anum í Garðabæ, und­an­farið. Öll spjót nema kannski spjót Davíðs Odds­sonar sem heldur mikið upp á blogg­færslur Páls ef marka má Stak­steina Moggans. Það spjót mætti að vísu kalla Grásíðu, svo veikt er það.

Ástæðan fyrir reiði fólks í garð Páls eru umdeildar blogg­færslur kenn­ar­ans þar sem hann veltir sér upp úr and­legum veik­indum Helga Seljan og fleiri starfs­manna Rík­is­út­varps­ins. Þar segir meðal ann­ars: „geð­veikur Helgi skipu­leggur í ára­vís skandal hægri vinstri, skáldar ef ekki vill betur til. Sá geð­veiki fær fullt umboð yfir­stjórnar RÚV til að flytja áróður klæddan í bún­ing frétta.“

Páll Vil­hjálms­son

Páll var tek­inn á teppið hjá skóla­meist­ara Fjöl­brauta­skól­ans í Garðabæ, Kristni Þor­steins­syni, en fékk þó að halda starf­inu enda erfitt að reka kenn­ara fyrir skoð­anir.

Sjálfur sér Páll ekk­ert að skrifum sínum en í kvöld­við­tali við Mannlíf segir hann: „Ég hef nokkrum sinnum skrifað texta sem mér hefur þótt vera erf­ið­ara að standa við heldur en þennan texta. Ég get ekk­ert gert að því hvernig fólk tekur þessu. Við búum enn í frjálsu landi og fólk má bæði túlka og rang­túlka mín orð og ann­arra.“

Rík­is­út­varpið hefur einnig átt nokkuð slæma viku en bæði hefur verið sótt að RÚV frá áður­nefndum Páli og frá stjörnu­blaða­mann­inum og Káta pilt­inum fyrr­ver­andi, Jakobi Bjarnari Grét­ars­syni.

Eins og fram kemur hér að framan pönk­að­ist Páll á Helga Seljan á blogg­síðu sinni, svo mikið að flestum þótti nóg um. En hann lét ekki nægja að ráð­ast að geð­heilsu Helga heldur skrif­aði hann einnig færslu þar sem hann ýjaði að því að fleiri starfs­menn RÚV ættu við and­leg veik­indi að stríða. „Meintir glæpir norð­lensku útgerð­ar­innar voru skáld­skapur, upp­spuni RÚV-Helga og Jóa. RÚV þegir um þessar nýj­ustu vend­ingar í Namib­íu­mál­inu. Senni­lega pant­aði Efsta­leiti hóp­með­ferð á geð­deild,“ skrifar Páll.

Jakob Bjarnar Grét­ars­son.

Jakob Bjarnar sak­aði hins vegar RÚV um hags­muna­gæslu.

„Fæstum þætti eðli­legt ef ég starf­rækti veit­inga­stað á kvöldin en fjall­aði sem blaða­maður um veit­inga­geir­ann vítt og breitt á dag­inn. Og gæfi mig út fyrir að vera fag­legur í því. En þetta er nákvæm­lega sam­bæri­legt við það sem er að ger­ast hjá Rík­is­út­varp­inu og hefur tíðkast lengi. Þar eru ýmsir dag­skrár­gerð­ar­menn sem sam­hliða starfa sem tón­list­ar­menn á kvöldin. Þarna eru auð­vitað sam­ansúrruð hags­muna­tengsl,“ skrifar Jakob Bjarnar.

Lestu nýjasta vef­blað Mannlífs hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins