„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þessir áttu góða og slæma viku…

Þessir áttu góða og slæma viku…
Myndin er sam­sett

Góð vika

Guð­mundur Felix Grét­ars­son hand­hafi átti ekki aðeins góða viku, heldur frá­bæra. Hann hélt ótrú­legu bata­ferli sínu áfram í Frakk­landi á dög­unum þegar hann náði að hreyfa fingur hægri handar. Það er áfangi sem læknar bjugg­ust við að hann næði eftir tvö ár en nú eru aðeins liðnir um 9 mán­uðir frá því að hann fékk tvo hand­leggi grædda á sig, fyrstur manna. Einnig er hann far­inn að finna fyrir snert­ingu og kulda í hægri hand­leggnum sem verður að telj­ast frá­bær þróun.

Ísak Bergmann Jóhann­es­son átti einnig mjög góða viku en hann varð yngsti marka­skor­ari í sögu íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu þegar hann skor­aði mark í jafn­tefli Íslands og Armeníu. Að auki sýndi hann mik­inn lið­sanda þegar hann bað um að fá að vera áfram á hót­el­inu með lands­lið­inu fyrir leik liðs­ins gegn Liechtenstein en hann fékk gult spjald á móti Armeníu og var því í leik­banni. Hann hefði sem sagt getað farið heim til fjöl­skyld­unnar en kaus að vera með lið­inu. Lofar sann­ar­lega góðu um fram­haldið.

Slæm vika

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins þar til í síð­ustu viku, hefur ekki átt sér­stak­lega góða viku. Hann sagði sig úr Mið­flokknum og gekk í raðir Sjálf­stæð­is­manna við litla hrifn­ingu flestra.

Sótt var að Birgi úr flestum áttum þótt hann hafi fundið faðm hjá Bjarna Bene­dikts­syni, for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem fagn­aði komu hans. Ekki voru allir Sjálf­stæð­is­menn ánægðir með nýj­ustu við­bót­ina og Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari og Sjálf­stæð­is­maður, sagði nýverið að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri sið­laus.

Vara­þing­maður Birgis, Erna Bjarna­dóttir, hefur gefið út að hún muni ekki fylgja Birgi inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn, fari svo að hún þurfi að leysa hann af.
Þá skrif­aði Björn Birg­is­son harð­orðan pistil í vik­unni þar sem hann kall­aði Birgi skammar­legan skíta­blett á lýð­ræð­inu í land­inu.

Morg­un­blaðið átti ekki heldur góða viku en það kom í ljós að lestur blaðs­ins er kom­inn niður fyrir lestur Stund­ar­innar eða í 9,5 pró­senta lestur í hópi Reyk­vík­inga á aldr­inum 20 til 50 ára, eins mik­il­væg­asta mark­aðs­hóps­ins, en Stundin er með 10,5 pró­senta lestur. Kom þetta fram í nýrri könnun frá Gallup. Morg­un­blaðið hefur hrapað í lestri um 3,3 pró­sentu­stig á milli kann­ana.

Þá fékk Morg­un­blaðið á bauk­inn í vik­unni frá engri annarri en for­seta­frúnni, Elizu Reid. Mogginn hafði birt ljós­mynd og frétt um heim­sókn krón­prins Dan­merkur á Bessa­staði en láð­ist að nefna Elizu Reid á nafn, þrátt fyrir að hún hafi í raun stolið sen­unni á ljós­mynd­inni. Það var eins og for­seta­frúin hefði ekki verið á staðnum.

Smelltu hér til að lesa brak­andi og feskt helg­ar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins