„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum

Bláa lónið segir upp 403 starfsmönnum
Bláa lónið – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

Bláa lónið til­kynnti í dag að 403 starfs­mönnum verður sagt upp störfum frá og með næstu mán­aða­mótum. Grímur Sæmund­sen for­stjóri til­kynnti starfs­fólki um upp­sagn­irnar á starfs­manna­fundi í dag, en stjórn­endur og og starfs­menn sem ekki fá upp­sögn í dag taka á sig launa­lækkun.

Til stendur að opna Bláa Lónið um miðjan júní, en lónið og hótel hafa verið lokuð vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. 27. mars fengu 164 starfs­mönnum upp­sögn, þannig að starfs­menn sem eftir eru um 200 tals­ins.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Bláa lón­inu segir:

Bláa Lónið hefur gripið til aðgerða til að bregð­ast við miklum sam­drætti og óvissu í ferða­þjón­ustu næstu miss­eri. Nú er orðið ljóst að áhrifin af COVID-19 eru miklu umfangs­meiri og lang­vinn­ari en vænt­ingar voru um.

403 starfs­mönnum verður sagt upp störfum frá og með næstu mán­aða­mótum, en Bláa Lónið von­ast til að geta ráðið það starfs­fólk sem sagt verður upp aftur til starfa þegar ytri aðstæður breyt­ast til hins betra.  Laun þeirra starfs­manna sem ekki fá upp­sögn verða skert, mest hjá for­stjóra og stjórn um 30%, 25% hjá fram­kvæmda­stjórn og minna hjá öðrum.

Þrátt fyrir mikla óvissu hefur verið ákveðið að opna allar starfs­stöðvar Bláa Lónsins á ný þann 19. júní næst­kom­andi, eftir tæp­lega þriggja mán­aða lokun en á því tíma­bili hefur fyr­ir­tækið verið nær tekju­laust.

Markmið þeirra aðgerða sem Bláa Lónið hefur nú gripið til er að gera fyr­ir­tæk­inu kleift að kom­ast í gegnum þá óvissu­tíma sem framundan eru.  Bláa Lónið, sem leið­andi fyr­ir­tæki í íslenskri ferða­þjón­ustu, ætlar sér að taka þátt í við­spyrnu grein­ar­innar af fullum krafti þegar birta tekur að nýju.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveira

Segir aukna eftirspurn eftir geðheilbrigðisþjónustu vegna COVID-19
Innlent

Segir aukna eft­ir­spurn eftir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu vegna COVID-19

Fram­kvæmda­stjóri fjar­geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unn­ar Minn­ar líð­anar seg­ist finna fyrir veru­lega auk­inni eft­ir­spurn eft­ir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hér­lend­is í mars­ á þessu ári. Í sam­tali við mbl.is seg­ist fram­kvæmda­stjór­inn, Tanja Dögg Björns­dótt­ir, reikna með auknu álagi þegar líða tek­ur á haustið. Segir Tanja Dögg að and­leg van­líðan geri oft vart við sig nokkrum mán­uðum eftir áföll og nefnir sem dæmi fjár­mála­hrunið 2008....
Tveggja metra regl­an skylda og samkomu­mörk í 100
Innlent

Tveggja metra regl­an skylda og sam­komu­mörk í 100

Tveggja metra reglan er aftur skylda vegna kór­ónu­veirunn­ar og fjölda­tak­mörkun mið­ast nú við 100 ein­stak­linga. Þetta kom fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir skemmstu. Breyt­ing­arn­ar taka gildi frá og með há­degi á morg­un. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá þessu á fundi rík­is­stjórn­ar­innar áðan. 39 stað­fest smit eru á Íslandi. 215 manns eru í sótt­kví.
Þór um COVID-19: „Af hverju er enginn að ræða þetta?“
Innlent

Þór um COVID-19: „Af hverju er eng­inn að ræða þetta?“

Þór Jóhann­essyni jóga­kenn­ara finnst glæp­sam­legt að skikka ekki alla sem koma til lands­ins í sótt­kví. Hann segir afstöðu yfir­valda í mál­inu vera hroka­fulla og ótt­ast að hún muni hafa dýr­keyptar afleið­ingar í för með sér fyrir íslensku þjóð­ina. „Hvernig áttar þetta fólk sig ekki á því að allt annað en að krefj­ast sótt­kvíar fyrir alla – sem koma til lands­ins...
Skjólið felst í frelsinu
Skoðun

Aðsend skoðun

Skjólið felst í frels­inu

Eftir / Hönnu Katrínu Frið­riks­son Það er skjól í hvers­dags­leik­anum, í þessu venju­lega. Ekki síst á átaka­tímum. Þá er þægi­legt að falla inn í hóp­inn, ekki kalla á athygli, ekki vera til vand­ræða. Í þessum ein­falda sann­leika fel­ast ýmsar hættur. Fyrir ein­stak­linga, fyrir hópa og fyrir sam­fé­lög. Jafnvel fyrir lýð­ræðið. Heims­byggðin hefur tek­ist á við fjöl­margar áskor­anir í tengslum við...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins