„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Minnimáttarkenndin drífur mig áfram“

Sigmar Vil­hjálms­son varð fyrst lands­þekktur fyrir að drekka ógeðs­drykki og stunda síma­hrekki í sjón­varps­þætt­inum 70 mín­útur. Mörgum árum síðar er hann orð­inn þekktur við­skipta­maður og er að opna tvo nýja staði í miðjum heims­far­aldri. Í við­tali við Mannlíf ræðir hann æsku­árin, föð­ur­hlut­verkið, fram­ann, fyr­ir­tækin og síð­ast en ekki síst, sjálfan sig.

„Minnimáttarkenndin drífur mig áfram“
Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

„Ég hef stundum lýst því þannig að „drive-ið“ mitt sé minni­mátt­ar­kenndin, sem ég í raun fædd­ist með, mér finnst ég alltaf þurfa að sanna mig meira en sá næsti. Til dæmis á jóla­skák­mótum okkar bræðra þar sem maður var yngstur og vit­lausastur og ég tap­aði stöðugt. Allt árið fór í að vera betri á næsta ári og fá að vera með,“ segir Sigmar, alltaf kall­aður Simmi, ein­læg­lega um hvað það er sem drífur hann áfram.

„Pabbi var skóla­meist­ari og ég kláraði ekki stúd­ent­inn, sem var lengi eldur á minni­mátt­ar­kennd­ina. Þessi krafa er þó að minnka, en ég er oft með­vit­aður um hana. Spurn­ing­una „hvað ertu mennt­aður“ sem ég var spurður að fram undir þrí­tugt, er ég eig­in­lega hættur að heyra, menn ganga meira að því vísu í dag að ég hafi menntað mig, sem er ákveðið hrós. Núna er ég frekar spurður „í hvaða háskóla varstu?“ og þá finnst mér gaman að svara að ég sé ekki einu sinni stúd­ent. Pabbi gamli sagði: „menntun er ekki bara fengin úr bók.“ Hann ýtti aldrei á að ég kláraði stúd­ents­prófið, sem sýnir að mörgu leyti hvað hann var klár því þetta er rétt hjá honum. Það er margt fólk sem þrælar sér í gegnum eitt­hvert nám og er með hæfi­leika á allt öðru sviði.“

Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

Opnar tvo staði í heimsfaraldri

Þrátt fyrir að hafa ekki gengið mennta­veg­inn hefur Simmi gert ansi margt, jafn­vel meira en flestir, og hefur fjöl­mörg störf og verk­efni á fer­il­skránni. Nú í júní bæt­ast tvö verk­efni við, Barion Bryggjan á Granda og Mini­garð­ur­inn.

„Ég fékk ábend­ingu um að Bryggjan væri orðin þrotabú, sem kom mér á óvart því ég hélt að stað­ur­inn gengi vel. Ég mundi að þar var ansi gróft og fal­legt innbú og kom í þeim til­gangi að skoða inn­an­stokks­muni með það í huga að kaupa og nýta á mínum stöðum. Ég féll fyrir staðnum og ákvað að kaupa allt. Ástæðan fyrir því að ég hræð­ist það ekki er að við eigum fyrir Barion í Mos­fellsbæ sem hefur gengið vel og fengið góða dóma, þannig að þetta er minna til­hlaup en að opna nýjan veit­inga­stað frá grunni,“ segir Simmi um Barion Bryggj­una og bætir við að það sem geri verk­efnið mjög spenn­andi sé að þar eru tæki til bjór­fram­leiðslu.

„Er það ekki innst inni draumur allra veit­inga­manna að gera sinn eigin bjór? Kannski það verði einn svona kastan­íu­brúnn bjór í boði,“ svarar Simmi aðspurður hvort von sé á Barion-bjór eða Simma-bjór.

Hug­mynd­ina að Mini­garð­inum hefur Simmi verið með í koll­inum í mjög langan tíma, en fram­kvæmdir hófust í byrjun árs. „Ég er þriggja barna faðir og maður þekkir það að vilja gera sér daga­mun með börn­unum og mér fannst alltaf fátt vera í boði fyrir okkur til að njóta saman. Mini­garð­ur­inn mun bjóða upp á sam­veru­stund fyrir fjöl­skyld­una, og mun einnig ná til breiðs hóps, hann er mjög góður vett­vangur fyrir hópefli og fólk í fyr­ir­tækjum til að koma og spila saman, keppa, drekka og borða og svo getur þetta líka verið skemmti­leg byrjun á kvöldi sem partí­staður. Ég held að þetta geti orðið mjög skemmti­legt stórt verk­efni,“ segir Simmi, en ástæðan fyrir langri með­göngu hug­mynd­ar­innar er meðal ann­ars leit að hent­ugu hús­næði fyrir starf­sem­ina. „Það eru ekki margir 2.000 fm staðir mið­svæðis í boði, við ætl­uðum fyrst að gera þetta í Holta­görðum með Reitum, þar eru ansi margir fer­metrar ónýttir af gömlu Hagkaups- og Bónus­plássi. Reginn sá hins vegar ljósið með okkur hinum megin við göt­una og stað­setn­ingin er frá­bær.“

Opnun tveggja nýrra staða veldur því að ráða þarf margt starfs­fólk, eða um 130 manns. Hvernig er sú til­finn­ing á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, á meðan mörg önnur fyr­ir­tæki eru að segja upp sínu starfs­fólki? „Það er ótrú­lega gaman. Mér finnst alltaf gaman að gera eitt­hvað nýtt, hvort sem það er COVID eða ekki COVID, en það að geta gert það á þessum tímum gefur því meiri ánægju, ég við­ur­kenni það. Það er rosa­lega gaman að geta ráðið fólk til starfa sem var farið að sjá fram á það að hafa ekk­ert að gera,“ segir Simmi.

„Þetta er efna­hags­lega gott fyrir sam­fé­lagið. Fólkið fer frá því að vera kostn­aður fyrir sam­fé­lagið, í formi atvinnu­leys­is­bóta, í það að verða skatt­greið­endur og virkir neyt­endur þannig að marg­feld­is­á­hrif hvers starfs eru mjög verð­mæt fyrir sam­fé­lagið. Þetta er gef­andi ferli og rekur mann áfram í að vilja flýta því og ég hef reynt að ýta við hlutum alls staðar til að geta opnað Barion Bryggj­una um sjó­manna­dags­helg­ina. Mini­garð­ur­inn verður opn­aður 19. júní.“

„Fólk gefur sig á tal við mig og ég hef aldrei pirrað mig á því. Það veitir mér ákveðið aðhald og rit­skoðun, því það er oft stutt í vit­leys­ing­inn í mér.“ Mynd / Hallur Karlsson

Kórónuveirufaraldurinn kennir okkur að standa vörð um okkur sjálf

Simmi hefur ákveðnar skoð­anir á flestu. Heims­far­ald­ur­inn og hvernig við komumst best undan honum er ekki und­an­skilið. „Ég tel að við höfum fundið það á eigin skinni núna að þegar við leitum til ann­arra landa um aðstoð þá hugsar hver um sig. Við ættum að hafa það svo­lítið hug­fast þegar við erum búin að jafna okkur eftir kór­ónu­veiruna að standa áfram vörð um íslenska fram­leiðslu og iðnað.“

Samhliða rekstri eigin fyr­ir­tækja er Simmi tals­maður FESK, félags í eigu svína-, eggja- og kjúklinga­bænda, en honum var boðið starfið á sínum tíma þar sem hann var opinn með skoð­anir sínar, sem fóru saman við hags­muni félags­ins. „Ég gaf kost á mér í starfið í eitt ár, og ég mun efna það, en þótt ég muni ekki sinna starf­inu lengur en árið sem ég réð mig til, þá verð ég alltaf tals­maður hags­muna þess­ara bænda,“ segir Simmi. „Eggja-, kjúklinga- og svína­bændur njóta ekki rík­is­styrkja, á sama tíma hefur inn­flutn­ingur á þessum vörum auk­ist tölu­vert. Mér fynd­ist ekki óeðli­legt að hið opin­bera myndi standa vörð um end­ur­fjár­fest­ingar þess­ara greina, veita þeim ein­hverjar til­slak­anir eða nið­ur­fell­ingu í gjöldum og sköttum, ein­hvers konar fyr­ir­greiðslu í því að bændur fjár­festi, slík end­ur­upp­bygg­ing kallar á iðn­að­ar­menn og marg­feld­is­á­hrifa slíkra fram­kvæmda gætir mjög víða og örvar atvinnu­lífið,“ segir Simmi.

„Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur sýnt það að ef við værum með öllu háð inn­flutn­ingi á mat­vælum hefðum við bara lent í veru­legum vand­ræðum“

„Við verðum að flytja inn mat­væli, við getum ekki séð um okkur 100 pró­sent sjálf frekar en aðrar þjóðir. En við þurfum hins vegar að setja reglur um það hvað má flytja inn toll­frjálst, en sem dæmi er nú bara talað um ákveðið mikið magn af svína­kjöti, þetta þarf að skil­greina betur líkt og gert er með útflutn­ing. Þar skil­greinum við sem dæmi mjólk, smjör, skyr, en ekki bara kúa­af­urðir,“ segir Simmi.

Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

„Þú getur aldrei tapað á því að velja íslensku afurð­ina og kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur sýnt það að ef við værum með öllu háð inn­flutn­ingi á mat­vælum hefðum við bara lent í veru­legum vand­ræðum. Bæði hvað varðar flutn­ings­leiðir og það að hvert ein­asta land fór að horfa inn á við og brauð­fæða fyrst eigin þegna, áður en vörur voru fluttar út. Vöru­verð­inu hefði þá einnig verið stýrt og við algjör­lega undir því komin. Við höfum ekk­ert að segja um olíu­verð, við erum með öllu háð inn­flutn­ingi á henni þannig að olíu­ríkin geta leikið sér með þetta eins og Matador og ég myndi ekki vilja sjá okkur í sömu stöðu gagn­vart mat­vælum,“ segir Simmi, sem telur að núna sé einnig tími til að fjár­festa í end­ur­bótum á inn­viða­kerfi ferða­þjón­ust­unnar, svo að landið sé betur í stakk búið til að taka á móti ferða­mönnum þegar þeir fara að heim­sækja landið aftur.

„Ég er að tala um vega­kerfið okkar og aðbúnað á þessum góðu og fal­legu stöðum sem við viljum að ferða­menn sæki. Við stækk­uðum flug­stöð­ina og höfðum ekki undan, fók­us­inn fór allur þangað, svo hleyptum við öllum út í vega­kerfið og allir keyra á hol­óttum vegum. Við ættum að nota núna tæki­færið og fjár­festa í end­ur­bótum á inn­viða­kerf­inu, það örvar atvinnu­sköpun og hag­vöxt, og þannig erum við frekar undir það búin þegar fólk verður til­búið að ferð­ast til okkar, sem gæti tekið tvö ár.“

Egilsstaðir heimahagarnir

Simmi er lands­byggð­ar­strákur, fæddur 3. jan­úar 1977 í Reyk­holti, sjötti sonur Vil­hjálms Ein­ars­sonar, frjáls­í­þrótta­manns og skóla­meist­ara, og Gerðar Unn­dórs­dóttur. „Ég er sjötta mislukk­aða til­raun for­eldra minna til að eign­ast dóttur, eða að pabbi kunni að hætta á toppnum, ég hef svona notað þetta sem rök fyrir því að vera yngstur,“ segir Simmi og hlær.

Þegar Simmi var þriggja ára flutti fjöl­skyldan til Egils­staða og síðan til Sví­þjóðar í þrjú ár, þegar hann var 13 ára, þar sem faðir hans fór í nám. „Við vorum bara fjögur þá, stóru bræður mínir voru fluttir að heiman, það er það langt á milli okkar. Næstelsti bróðir minn varð sex­tugur í gær sem dæmi [1. júní]. Árin í Svíþjóð voru mín lær­dóms­rík­ustu ár, 13-16 ára, og svo flutti ég til Egils­staða aftur og var með annan fót­inn í Reykja­vík þangað til ég flutti þangað end­an­lega 19 ára. Egils­staðir eru mínir heima­hagar en ég hef verið hátt í 13 ár í Mos­fellsbæ, sem er orðið mitt annað „heima“, það er svona sveit í borg og ég kann virki­lega vel við mig þar. Það er mjög stutt í sveita­mann­inn í mér,“ segir Simmi, sem segir upp­vaxt­ar­árin á Egils­stöðum hafa verið frá­bær og hann hafi verið allt í öllu, sér­stak­lega þegar kom að íþróttum.

„Ég æfði frjálsar, hand­bolta, fót­bolta, fim­leika, inni­bandí, bad­minton og blak. Ég var land­liðs­maður í frjálsum og á silf­ur­verð­laun á Ólymp­íu­leikum smá­þjóða og ætl­aði að feta í fót­spor pabba. Rúmlega tví­tugur tók ég þá ákvörðun að hætta í spjót­kasti en þá var ég kom­inn með fullan háskóla­styrk til að læra aug­lýs­inga­sál­fræði við háskóla í Banda­ríkj­unum. Í Svíþjóð var ég í ung­linga­lands­liði Svía í hand­bolta, þannig að hand­bolti og spjót voru íþróttir sem ég tók lengra. Á hverju ólymp­íu­ári fæ ég fiðr­ing, ég var upp­haf­lega í hópnum með Völu Flosa sem fór til Sydney í Ástralíu og það er eft­ir­sjá að hafa ekki tekið það alla leið, þó ekki væri nema til að prófa að ganga inn á völl­inn á Ólymp­íu­leikum og hafa það í lífs­reynslu­bank­anum.“

„Ég lærði snemma að frægð og frami er ekki það sama og vellyst­ingar, glans­myndin er ekki endi­lega raun­veru­leiki“

Hvernig var að eiga þjóð­þekktan föður? „Ég þekkti hann ekki sem íþrótta­mann, heldur sem skóla­meist­ar­ann. Einar bróðir minn, sem er 17 árum eldri en ég, var á sínum tíma rosa­stór í spjót­kasti og ég kynnt­ist þessum frægð­ar­á­hrifum meira í gegnum hann og það var mik­ill skóli. Ég lærði snemma að frægð og frami er ekki það sama og vellyst­ingar, glans­myndin er ekki endi­lega raun­veru­leik­inn og þá er ég ekki að segja að bróður mínum hafi liðið neitt illa,“ segir Simmi. „En ég man til dæmis eftir að hafa farið með honum í Kaup­fé­lag Reykja­víkur og nágrennis að árita plaköt og það voru þús­undir manna og stjörnu­fans. Svo fórum við upp í Fiat-inn hans og hann kom honum ekki í gang og við þurftum að ýta og sjarm­inn af frægð­inni fór svo­lítið. Þannig að maður átt­aði sig ungur á að það eru þessar öfga­hliðar á frægð­inni og sér­stak­lega á Íslandi, þetta var góður skóli á sínum tíma.“

Fjölmiðlarnir alltaf hlutastarf

Ferill Simma sem fjöl­miðla­manns byrj­aði þegar hann var í Mennta­skól­anum á Egils­stöðum og fór að vera með þætti í svæðis­út­varpi Rásar 2. Þegar svæðis­út­varpið var lagt niður ákvað hann að fylgja eftir fjöl­miðla­á­hug­anum og fara til Reykja­víkur. „Ég leigði her­bergi með aðgangi að sal­erni, í kjall­ara hjá vina­fólki, skúraði 11-11 versl­an­irnar á næt­urnar og var í skóla með. Ég fékk síðan tæki­færi til að vera með morg­un­þátt á laug­ar­dags- og sunnu­dags­morgnum frá 9-12 á útvarps­stöð sem hét Mono og eng­inn hlust­aði á,“ segir Simmi og hlær.

Á Mono kynnt­ust hann góð­vini sínum og síðar við­skipta­fé­laga, Jóhann­esi Ásbjörns­syni (Jóa) og byrj­uðu þeir með morg­un­þátt saman sem seinna varð að sjón­varps­þætt­inum 70 mín­útur. Síðan tóku við fleiri störf eins og kynnir í Idol stjörnu­leit og fleira.

„Þetta er tröppu­gang­ur­inn og fer­ill­inn í fjöl­miðla­mennsk­unni sem var þó alltaf hluta­starf,“ segir Simmi, sem á þessum tíma var sölu­maður aug­lýs­inga á útvarps­sviði.

Fabrikkuævintýrið verður til

Árið 2009 starf­aði Simmi sem for­stöðu­maður sölu- og mark­aðs­sviðs hjá Tali og átt­aði sig á að hann mætti frekar í vinn­una til að fá greitt, þar sem hann hafði góð laun, frekar en að hafa gaman af því sem hann gerði. „Ég fann fyrir breyt­ingu á gild­is­mati hjá sjálfum mér og tók því frekar afstöðu með geð­heils­unni en vesk­inu og árið 2009 sagði ég upp og var ekki með neitt annað í hendi. Á þeim tíma var þáver­andi eig­in­kona mín ófrísk að þriðja syni okkar þannig að ég fæ stundum kaldan svita yfir til­hugs­un­inni um hvað maður var fífl­djarfur að gera þetta en ég var sann­færður um að ég þyrfti að vera upp við vegg til að finna hvað ég vildi gera.“

Ham­borg­arafa­brikkan fór á teikni­borðið hjá honum og Jóa árið 2010 og upp­runa­lega hug­myndin var að taka Gauk á Stöng í gegn og opna lít­inn krútt­legan stað þar. „Við ætl­uðum bara að vera þar sjálfir að steikja borg­ar­ana en hug­myndin vatt upp á sig og varð fljót­lega mun stærri en við réðum tveir við,“ segir Simmi og tekur fram að árferðið hafi verið svipað og núna, í kjöl­far krepp­unnar þegar öll úrræði vegna hennar voru að líða undir lok.

„Úr varð að við stofn­uðum fyr­ir­tæki sem var byggt á því að hafa gaman og ég trúi því að ef þú getur unnið við það sem þér finnst gaman þá er það ekki lengur bara ein­hver vinna heldur verk­efni og áhuga­mál. Og ef þú getur það þá sinnir þú því vel, verður góður í því og ég held að á end­anum að þá náir þú í gegn. Þetta er ein­föld heim­speki en ég hef fundið það að hún virkar.“

Simmi og Jói áttu 75 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu og Skúli Gunnar Sig­fús­son, ávallt kenndur við Subway, átti 25 pró­sent. Deilumál Simma og Skúla vegna lóða­mála á Hvols­velli höfðu þau áhrif, að sögn Simma, að honum var að hluta haldið frá félag­inu. „Og þegar þú færð ekki að sinna verk­efn­inu þínu þá hægt og rólega missir þú fók­us­inn, en Skúli er ekki ástæða þess að ég fór úr félag­inu,“ segir Simmi, sem fór í félagið Gleðip­inna, ásamt Jóa og Guðmundi Auð­uns­syni, sem rak Keilu­höll­ina í Egils­höll. Eftir breyt­ingar á eign­ar­haldi, þar sem Gleðip­innar keyptu hlut Simma og Jóa í Ham­borg­arafa­brikkunni, kom í ljós að eig­endur deildu ekki sömu fram­tíð­ar­sýn hvað fyr­ir­tækið varð­aði. „Við vorum sáttir með að ég myndi víkja úr sæti í félag­inu og í dag er það fyr­ir­tæki orðið mun stærra, þeir höfðu ákveðna fram­tíð­ar­sýn og ég var ekki endi­lega sam­mála þeim um hana. Jói var hrifn­ari af henni en ég og því skildu leiðir okkar við­skipta­lega séð, en við erum og verðum alltaf mjög góðir vinir.“

Aðspurður um deilu­mál þeirra Skúla segir Simmi ekki rétt að hann tjái sig mikið um það, þar sem fyr­ir­taka sé á mál­inu í Hæsta­rétti í sömu viku og við­talið er tekið. Simmi vann málið að hluta fyrir Lands­rétti, en báðir áfrýj­uðu þeir mál­inu til Hæsta­réttar. „Málið er á réttum stað hjá dóm­stólum. En þetta mál er harm­leikur af því að upp­runa­lega þurfti þetta ekki að verða að stóru máli,“ segir Simmi og segir málið for­dæm­is­gef­andi, þar sem ekki hafi oft reynt á vernd minni­hluta­eignar félaga fyrir dóm­stólum. „Mála­rekst­ur­inn hefur kostað mig um 20 millj­ónir. Laga­hvoll hefur unnið málið vel fyrir mig og lagt mikið upp úr dreng­skapnum í mál­inu, það er auð­velt að fara ofan í skot­grafir og alls konar flækju­stig, þeir hafa hins vegar haldið reisn og dreng­skap og ég kann mjög vel að meta það.“

Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

Á hlaupum í áratug í viðbót

Auk þess að eiga stað­ina þrjá sem áður eru nefndir á fyr­ir­tæki Simma 50 pró­senta hlut í Hlölla­bátum. „Hlölla­bátar er alveg dásam­legt alís­lenskt fyr­ir­tæki og elsti skyndi­bita­staður lands­ins, sem hefur ekki mikið breyst frá árinu 1986 og mér líður svo­lítið eins og hlut­verkið þar sé að standa vörð um að það breyt­ist of mikið. Ég taldi vöru­merkið eiga mjög mikið inni, sem hefur verið raunin. Við sjáum aukn­ingu í sölu og frek­ari tæki­færi eins og að selja sós­urnar og önnur hrá­efni í versl­unum,“ segir Simmi.

„Hægt og rólega lærir maður að slaka á kröf­unum en ég á alveg til að gera miklar kröfur, bæði til mín og þeirra sem vinna með mér“

„Ég sé fyrir mér að ég eigi eftir svona tíu ár í því sem ég er að gera, þá er ég að tala um að vera á gólf­inu. Síðan sé ég mig fyrir mér í þeirri stöðu að geta stutt aðra sem eru með hug­myndir, hvort sem það er með fjár­magni eða hug­myndum eða vinnu; hug­mynda­vinnan og útfærslan er oft mest van­metin því þú getur verið með frá­bæra hug­mynd en lélega útfærslu og þá þarftu oft bæði reynsl­una og hug­mynda­flugið til að útfæra hana öðru­vísi. Í draum­heim­inum verð ég ein­hvers staðar með skrif­stofu þar sem dyrnar verða opnar og maður bara miðlar reynslu og hug­myndum til þeirra sem koma með nýjar hug­myndir. Ég held að þetta geti verið mjög gef­andi,“ segir Simmi.

„Orðinn þetta gam­all og eftir svona mörg verk­efni get ég lík­lega ekki logið því að ég sé ekki leið­togi,“ svarar Simmi aðspurður um hvort hann sé yfir­maður eða leið­togi. „Ég er „hands on“-maður, það hefur aldrei vantað upp á að ég geng sjálfur í verkin,“ segir Simmi sem seg­ist vera metn­að­ar­gjarn og honum finn­ist mik­il­vægt að gera hlut­ina vel.

„Hægt og rólega lærir maður að slaka á kröf­unum en ég á alveg til að gera miklar kröfur, bæði til mín og þeirra sem vinna með mér, en ég held samt að ég sé sann­gjarn í því og ég er ekki að biðja fólk um að gera meira en það sem ég geri. Ég get ekki heldur ætl­ast til þess að fólk sé ástríðu­fullt eins og ég er fyrir mínum verk­efnum.“

Kitlar það þig að starfa aftur sem fjöl­miðla­maður?

„Ég gæti hugsað mér að vera með einn sjón­varps­þátt, sem mér finnst ég eiga eftir að gera ein­hvern tíma, en ég sé ekki færi á því í dag. Ég fór nátt­úr­lega mjög langt, átti fram­leiðslu­fyr­ir­tæki, þar sem við fram­leiddum sjón­varps­þætti og við settum í gang tvær sjón­varps­stöðvar sem voru skamm­lífar,“ segir Simmi, en greint hefur verið frá því að það fyr­ir­tæki hafi farið í gjald­þrot. „Skúli [eig­andi Subway], hefur sagt í fjöl­miðlum að þær hafi farið í gjald­þrot, sem sýnir orð­ræðu hans gagn­vart mér og hvernig hann reynir að lít­il­lækka mig í umræð­unni. Hið rétta er að 365 keypti þær stöðvar eftir mjög stuttan tíma í loft­inu og svo gerðu þeir ekk­ert með þær, sem er kannski ástæðan fyrir kaup­unum að þeir vildu bara að þær logn­uð­ust út af. Það töp­uð­ust engir fjár­munir í þessu máli.“

Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

Nærist á gagnrýninni

Sem þekktur maður ratar Simmi oft í fjöl­miðla, þá hinum megin við borðið, sem umfjöll­un­ar­efnið en ekki fjöl­miðla­mað­ur­inn, en hann seg­ist ekki vera við­kvæmur fyrir umfjöllun um sig eða nei­kvæðum ummælum.

„Ég er við­kvæmur fyrir hönd þeirra sem standa mér næst frekar, börnin mín eru númer eitt, tvö og þrjú í því. Ég er ósáttur ef þeim er blandað inn í umræð­una, en ég er ekki við­kvæmur fyrir henni og í sjálfu sér nær­ist ég á gagn­rýni. Ég tek gagn­rýni ekki illa og er alltaf til í að hafa rangt fyrir mér og sanna að ég fari með rangt mál, ég er ekki við­kvæmur fyrir því. Ég er búinn að brynja mig fyrir skít­kasti og lygum og megnið af því er bara ekki svara­vert. Hins vegar hef ég alveg leyft mér að svara þegar ein­hverju er haldið við og ég hef þá bara stigið fram og svarað því, en ég er ekk­ert í kommenta­kerf­unum,“ segir Simmi og seg­ist vera fyrstur manna til að biðj­ast afsök­unar þegar við á.

„Ef ég hef sært ein­hvern þá er ég fyrsti mað­ur­inn til að taka upp sím­ann og hringja og biðj­ast afsök­unar og ég þoli alveg þau sam­skipti. Auðvitað fylgir því ákveðin rit­skoðun að vera þekktur og ég átta mig á því, bara dags dag­lega, og það er líka bara hollt að ákveðnu leyti. Og meðan mér er ekki heilsað að sjó­mannasið þá er það betra en ekki og hefur frekar hjálpað mér í líf­inu en hitt. Fólk gefur sig á tal við mig og ég hef aldrei pirrað mig á því. Það veitir mér ákveðið aðhald og rit­skoðun, því það er oft stutt í vit­leys­ing­inn í mér. Ég hef oft gaman af því að gera hluti sem kannski aðrir gera ekki.“

Af því að þú opn­aðir inn á það, ertu enn svo­lítið í dag vit­leys­ing­ur­inn sem þú varst í 70 mín­útum?

„Algjör­lega, það er ekk­ert langt í hann. Mér finnst gaman að gera skrýtna hluti sko, það er stutt í strák­inn í mér,“ segir Simmi og skelli­hlær. „Mér finnst líka gaman hvað ég hef kom­ist upp með að fá að vera bara ég sjálfur. Ég segi hluti sem skipta máli og er tek­inn alvar­lega í umræð­unni og svo næsta dag er ég að gera símaat með strák­unum í útvarps­þætti. Mér þykir vænt um að fá að vera bara svo­lítið ég sjálfur og ég held að fólk eigi almennt ekki bara ein­hverja eina hlið. Við höfum séð stjórn­mála­menn sem sýna á sér nýja hlið og það verða allir svo undr­andi eins og stjórn­mála­menn séu bara stjórn­mála­menn, fólk á sér svo margar hliðar.

Ég held að sam­fé­lagið sé orðið svo opið, líka vegna sam­fé­lags­miðla, ég er með opinn sam­fé­lags­miðil og leyfi mér bara að vera svo­lítið ég sjálfur þar. Mér finnst þetta bara fínt. Í versta falli hættir fólk að fylgj­ast með mér ef það fílar mig ekki. Ég bað engan um að fylgj­ast með mér. Ég hef aldrei þurft að bæla eitt eða neitt niður af því sem mér finnst gaman að gera.“

Sigmar Vil­hjálms­son Mynd / Hallur Karlsson

Lánsamur að hafa áhuga á vinnunni

Simmi seg­ist reyna að skapa sér frí­tíma, enda með áhuga á mörgu öðru en vinn­unni. Á sumrin eru það golf og veiði, en á vet­urna skíði og ferða­lög. „Þetta er það sem ég flokka sem áhuga­mál mín. Ég er hins vegar lélegur áhuga­maður, ég kann þetta allt en ég er ekk­ert sér­stak­lega góður af því ég gef þessu ekki tíma. Þannig að maður paufast eitt­hvað í von um að muna þetta allt, kunna þetta og halda þessu við þannig að þegar maður er orð­inn eldri og getur farið að stunda þetta þá er maður fljótur aftur að ná árangri,“ segir Simmi.

„Svo er ég bara svo lán­samur að hafa áhuga á því sem ég er að gera, veit­inga­rekstur, matur, er það áhuga­mál? Er það ekki bara sjálfs­bjarg­ar­við­leitni að kunna að elda?“

Alltaf verið barnakall

Simmi var orð­inn föð­ur­bróðir tíu ára gam­all og byrj­aður að passa börn bræðra sinna. Sjálfur hafði hann alltaf áhuga á eign­ast börn og fjöl­skyldu. „Ég eign­að­ist helm­ingi færri börn en for­eldrar mínir, ég á þrjá stráka. Ég hef alltaf verið mik­ill barna­kall, hef mjög gaman af börnum og hlakka bara til að verða afi, ég held að það sé besta hlut­verkið af þeim öllum. Svo getur bara vel verið, nú þegar maður er ein­hleypur, að maður finni ein­hverja og eign­ist fleiri börn,“ segir Simmi og hlær, en dregur síðan örlítið í land. „Ég er ekki að opna á það samt en mig hefur aldrei hryllt við börnum eða for­eldra­hlut­verk­inu.“

„Ég hef alltaf verið mik­ill barna­kall, hef mjög gaman af börnum og hlakka bara til að verða afi, ég held að það sé besta hlut­verkið af þeim öllum.“

Ertu góður pabbi?

„Ég held það já, ég alla vega reyni að leggja áherslu á það og að við gerum hluti saman. Ég leyfi þeim líka að eiga frum­kvæðið, en ég hef tekið mjög virkan þátt í því sem þeir gera, ég er liðs­stjór­inn á fót­bolta­mót­unum, sef í skóla­stof­unni með strák­unum, segi sögur og tek þann pakka. Ég hef gaman af því og að kynn­ast um leið strák­unum sem eru sam­ferða­menn sona minna og sjá hvernig karakt­erar þeir eru og munu verða,“ segir Simmi.

Að hans mati felst skil­grein­ing á góðu for­eldri þó ekki í hversu góður skemmt­ana­stjóri það er, heldur hvaða gildum það er hægt að koma að, og stundum felist sam­vera í að gera ekk­ert saman. „Ég finn mun á mínum elsta, sem er 17 ára, og mínum yngsta, sem er 10 ára, að tím­inn sem við höfum sem for­eldrar til að hafa áhrif á börnin okkar hefur styst. Áhrifa­vald­arnir í upp­lýs­ingum sem flæða yfir börnin okkar eru það sterkir. Maður taldi sig hafa 14 ár til að ala upp barnið sitt og kenna því ákveðin gildi, en hann hefur styst alveg um fjögur ár milli þeirra tveggja þannig að ég held að ég sé bara að horfa á það að ég, á loka­sprett­inum með þann yngsta, er að koma gildum inn hjá honum til fram­búðar. Ég held að það mik­il­væg­asta í dag sé að kunna að velja og hafna, vita mun­inn á hvað er rétt og hvað er rangt. Mér hefur lán­ast það til þessa, synir mínir hafa verið mjög heil­brigðir í afstöðu sinni til hóp­þrýst­ings til slæmra verka, það er stutt hins vegar í það að þeir séu fjörugir og hrekkj­óttir og ég verð víst að bera ein­hverja ábyrgð á því,“ segir Simmi og brosir prakk­ara­lega og svarar aðspurður að syn­irnir verði að ákveða hvort þeir feti í fót­spor hans í ógeðs­drykkjum og hrekkjum. „Ég hef ekki teiknað upp neina stjörnu­mynd af því.“

„Ég sagði ein­hvern tíma í gríni að ég væri að leita að hluta­starfskær­ustu, en það er í gríni sagt.“ Mynd / Hallur Karlsson

Er tími fyrir ást­ina?

„Það er erfitt, hún þarf tíma og það þarf að rækta hana eins og annað. Ég sagði ein­hvern tíma í gríni að ég væri að leita að hluta­starfskær­ustu, en það er í gríni sagt,“ ítrekar Simmi. „Er þetta ekki bara þannig að hún kemur þegar hún kemur; ein­hvers staðar las ég að þegar maður leitar sem minnst þá dettur þetta í fangið á manni. Ég er alla vega ekki á Tinder og hef ekki hug á að fara þangað, ég held að það sé ekki vett­vang­ur­inn fyrir þessi mál. Kannski ger­ist þetta á ein­hverju balli hér á Bryggj­unni að maður dettur í vanga­dans­inn, hver veit?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins