„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Samherjabörn skutu tappa úr flösku en Suðurnesjamenn eru sárir VG

Samherjabörn skutu tappa úr flösku en Suðurnesjamenn eru sárir VG

Vikulega tekur rit­stjórn Mannlífs saman hverjir hafi átt góða og slæma viku. Þessi lentu á lista að þessu sinni.

Góð vika – Samherjabörnin

Óhætt er að segja að Sam­herja­börnin svoköll­uðu, þ.e. börn aðal­eig­enda Samherja, hafi kom­ist í feitt í vik­unni þegar feður þeirra, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Kristinn Vil­helms­son, fram­seldu nán­ast allan hlut sinn í félag­inu til þeirra. Fengu börn Þor­steins Más 43% hlut og börn Kristins 41,5% hlut í félag­inu og urðu þar með lík­leg­ast rík­ustu „börn“ lands­ins. Á meðan Sam­herja­börnin skutu vafa­laust tappa úr flösku, hefur gjörn­ing­ur­inn vakið blendin við­brögð í sam­fé­lag­inu og finnst mörgum ömur­legt að hægt sé að fram­selja afla­heim­ildir á milli kyn­slóða eins og eig­endur Samherja hafa gert. „Sum­ar­gjafir eru góður og þjóð­legur siður, að gefa börnum sínum sum­ar­gjafir en sum­ar­gjafir Sam­herja­eig­enda til barn­anna sinna eru kannski í stærri kant­inum,“ benti Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, á, á meðan fyrr­ver­andi flokks­bróðir hennar, utan­flokks­þing­mað­ur­inn Andrés Ingi Jónsson, sagði risa­vaxnar eigna­til­færslur milli kyn­slóða „við­halda ójöfn­uði og stétta­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu“.

Slæm vika – Suðurnesjamenn

Suð­ur­nesja­menn hafa verið í áfalli og öðrum hefur verið heitt í hamsi síðan Morg­un­blaðið sagð­ist hafa heim­ildir fyrir því að Vinstri græn hefðu lagst gegn því að ráð­ist yrði í allt að 18 millj­arða fram­kvæmdir á vegum NATÓ í Helguvík. Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, lýsti yfir von­brigðum sínum með þessar fréttir og benti á að fram­kvæmd­irnar gætu skapað fjölda starfa á Suð­ur­nesjum, þar sem atvinnu­leysi mæld­ist nýlega 28% í Reykja­nesbæ. „Því miður einnig enn eitt dæmið um eyði­merk­ur­göngu Sjálf­stæð­is­flokks­ins undir núver­andi gervi­gras­rót­ar­for­ystu hans og sem gólf­mottu­dreg­ill undir gamla vinstripóli­tíska rusla­tunnu­söngnum sem sung­inn hefur verið alla tíð frá upp­risu vest­rænnar menn­ingar,“ skrif­aði Gunnar Rögn­valds­son, blogg­ari og yfir­lýstur þjóðar­í­halds­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum. Hafa Vinstri græn verið sökuð um að vilja ekki minnka atvinnu­leysi á Suð­ur­nesjum og jafn­vel föð­ur­lands­svik og land­ráð og sumir spyrja hvort ekki sé hrein­lega orðið tíma­bært að leysa flokk­inn frá störfum í núver­andi rík­is­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins