„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir marga myndlistarmenn lenda á milli skips og bryggju í kerfinu – „Staðan er almennt mjög vond“

Segir marga myndlistarmenn lenda á milli skips og bryggju í kerfinu – „Staðan er almennt mjög vond“

Bandalag íslenskra lista­manna stendur nú fyrir könnun meðal félags­manna aðild­ar­fé­laga sinna um hvernig lista­mönnum hefur gengið að fá lausn mála sinna í úrræðum Vinnu­mála­stofn­unar vegna tekju­missis sem þeir hafa orðið fyrir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­ur­ins.

Hlynur Helgason mynd­list­ar­maður situr í stjórn Sambands íslenskra mynd­list­ar­manna (SÍM) og er í mats­nefnd úthlut­unar hjá Mynd­list­ar­sjóði. Hann segir vís­bend­ingar benda til þess að margir sjálf­stætt starf­andi lista­menn séu í vondri stöðu og lendi á milli skips og bryggju í kerf­inu þegar kemur að því að sækja um bætur á móti tekju­missi hjá Vinnu­mála­stofnun.

„Staðan er almennt mjög vond,“ segir Hlynur. Hann segir stöð­una vissu­lega vera breyti­lega á milli stétta innan lista­heims­ins en almennt blasi mikil óvissa við lista­mönnum.

„Við vitum ekki hvernig þró­unin verður í þess­ari kreppu en ef við miðum við síð­ustu kreppu þá þorn­aði sala á mynd­list alveg upp. Það tók fimm til sex ár að ná ein­hverri sölu upp aftur,“ segir hann og bætir við að aðgerðir stjórn­valda við að koma til móts við lista­menn muni vissu­lega laga stöð­una hjá ein­hverjum lista­mönnum en þau úrræði dugi skammt.

Mynd­list­ar­sjóður fékk til að mynda 57 millj­ónir auka­lega til að veita í styrki til sjálf­stætt starf­andi lista­manna til að sporna gegn efna­hags­á­hrifum COVID-19 innan stétt­ar­innar.

„Fólk er farið að finna fyrir áhrif­unum.“

Hlynur segir rúm­lega 300 lista­menn hafa sótt um styrk úr þeim sjóði og rúm­lega 100 fá styrk. „Þannig að þetta lagar stöð­una að ein­hverju leyti hjá ein­hverjum lista­mönnum.“

Hann segir marga lista­menn ná að dekka fastan kostnað, svo sem efn­is­kostnað og leigu á vinnu­stofu, með lista­verka­sölu. En þegar kreppa blasir við dregst lista­verka­salan saman og lista­menn sjá ekki fram á að ná endum saman með þessu áfram­haldi. „Fólk er farið að finna fyrir áhrif­unum,“ segir Hlynur.

Lenda á milli skips og bryggju í kerfinu

Könnun á úrræðum Vinnu­mála­stofn­unar fyrir sjálf­stætt starf­andi lista­menn stendur yfir. Nið­ur­stöður liggja ekki fyrir en Hlynur segir umræð­una innan mynd­lista­heims­ins benda til þess að margir lista­menn lendi á milli skips og bryggju í kef­inu þegar komi að því að sækja um bætur í tíma­bundnum sam­drætti vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

„Þetta fer auð­vitað eftir lista­mönnum. Sumir hafa verið mjög skipu­lagðir og alltaf greitt trygg­ing­ar­gjald en aðrir hafa ekki haft nógu miklar tekjur til að ráða við það. Svo eru enn aðrir sem hafa greitt ein­hvern hluta en ekki nóg til að geta sótt um bætur á móti skertum tekjum. Þeir sem hafa svo ekki greitt trygg­ing­ar­gjald eru í vondum málum,“ segir Hlynur.

Hann tekur fram að það sé hugur í mönnum og að margt fólk bíði nú og voni að ástandið muni batna sem fyrst.

Listasnautt umhverfi leiðin að þunglyndi

Umræðan um mik­il­vægi listar og menn­ingar er oftar en ekki fylgi­fiskur umfjöll­unar um kjör og starfs­um­hverfi lista­manna. Spurður út í gagn­rýn­is­raddir sem heyr­ast gjarnan þegar mál­efni lista­manna eru til umfjöll­unar, þar sem lista­mönnum er sagt að fá sér „alvöru­vinnu“ segir Hlynur: „Við getum sagt að listin hefur verið ein­kenni mann­legs sam­fé­lags áður en menn fóru að tala. Þessi hug­mynd um að menn þurfi bara að borða, drekka og hafa húsa­skjól til að lifa af, það er búið að afsanna hana.“

Hann segir lista­snautt umhverfi leið­ina að þung­lyndi. „Það er nauð­syn­legt að byggja upp fjöl­breytt umhverfi. Listin leiðir af sér mikla nýsköpun og þróun og skapar fjöl­breytt sam­fé­lag. Það er sér­stak­lega mik­il­vægt að hlúa að list­greinum í litlum sam­fé­lögum og fámennum löndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
Innlentatvinnulíf

Ragnari gjör­sam­lega mis­boðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja. Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar
Innlentatvinnulíf

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí. „Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins