„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Röntgen opnar aftur í dag með breyttu sniði – Grilluð samloka til bjargar

Ásgeir Guð­munds­son, einn eig­enda bars­ins Röntgen, segir að með breyttu sniði verði hægt að opna Röntgen aftur í dag, mið­viku­dag, en stað­ur­inn hefur verið lok­aður síðan 23. mars, frá því að hert sam­komu­bann tók gildi og eig­endum kráa og skemmti­staða var gert að loka þeim.

Þetta breytta fyr­ir­komu­lag felur í sér að nú verður boðið upp á grill­aðar sam­lokur á Röntgen og þannig verður hægt að hefja rekstur á nýjan leik. „Með því að breyta starf­sem­inni og setja upp popup-veit­inga­stað með ein­földum mat­seðli þá getum við opnað aftur“. Hann segir mat­seð­il­inn vera ein­faldan en „geggj­aðan“ en á honum er grilluð sam­loka.

Hann segir að það sjái varla fyrir end­ann á ástand­inu og því hafi góð ráð verið dýr. Þess vegna hafi verið ráð­ist í breyt­ingar á rekstr­inum. „Yfir­leitt er ekki hollt fyrir svona ungan stað að ráð­ast í breyt­ingar en núna eru góð ráð dýr.“

Hann tekur fram að Röntgen er með veit­inga­húsa­leyfi en stað­ur­inn hefur verið rek­inn sem bar hingað til.

Sjóður og samvinnuþýðir birgjar komið sér vel

Ásgeir segir að Röntgen hafi notið mik­illa vin­sælda síðan hann var opn­aður í nóv­em­ber í fyrra og að rekst­ur­inn hafi gengið vel frá fyrsta degi. „Við áttum smá­sjóð til að lifa þetta sam­komu­bann af en núna þurfum við að vera krea­tífir,“ segir Ásgeir. Hann tekur fram að þegar Röntgen verður opn­aður aftur með breyttu sniði þá verður áhersla lögð á að fram­fylgja öllum sótt­varn­ar­reglum.

Ásgeir segir birgja og sam­starfs­að­ila Röntgen hafa sýnt ástand­inu skiln­ing og það hafi komið sér vel. „Flestallir hafa verið sam­vinnu­þýðir, örugg­lega af því að þeir sjá bjarta fram­tíð fyrir þennan stað og við höfum vandað til verka.”

Róleg stemning fyrir miðnætti

Nokkrir rekstr­ar­að­ilar skemmti­staða og kráa hafa gagn­rýnt það að í sam­komu­banni fái veit­inga­hús að halda starf­semi sinni áfram með ákveðnum tak­mörk­unum en það sama á ekki við um staði sem eru skil­greindir sem krár eða skemmti­staðir.

Sjá einnig: „Fólk er ekk­ert örugg­ara á veit­inga­stöðum en á skemmti­stöðum og krám“

„Ég hef fulla samúð með þeim sem sjá ekki fram á að opna rekst­ur­inn sinn á næst­unni. Ég við­ur­kenni að það er erfitt að skilja rökin fyrir að skemmti­staðir eru teknir út fyrir sviga. Ég skil mark­miðið og hætt­una við að það sé erf­ið­ara að fram­fylgja sótt­varn­ar­lögum þegar ölv­un­ar­stigið er orðið meira. En maður sér ekki mun­inn á því að drekka bjór á krá eða veit­inga­stað. Það er líka jafnan lengri við­vera fólks á veit­inga­stöðum heldur en á börum, fólk fær sér kannski for­drykk, vín með matnum og svo kok­teil í eft­ir­rétt á veit­inga­stöðum,“ segir Ásgeir.

„Það byrjar nefni­lega eng­inn að dansa fyrir mið­nætti.”

„Svo hef ég heyrt út undan mér að fólk sé hrætt um að smit­hætta auk­ist þegar fólk fer að stíga dans á skemmti­stöðum, en ef krár og skemmti­staðir myndi verða lokað klukkan 23.00 líkt og veit­inga­stöðum þá er engin hætta á að þetta verði vanda­mál. Það byrjar nefni­lega eng­inn að dansa fyrir mið­nætti,” segir Ásgeir og hlær.

Hann segir stemn­ing­una á Röntgen alla jafna vera rólega fyrir mið­nætti. „Fólk situr yfir­leitt í mak­indum sínum fyrir mið­nætti og gæðir sér á kampa­víni, fal­legum kok­teil eða ísköldum bjór. Það er ekki fyrr en eftir mið­nætti sem það mynd­ast meiri skemmti­staða­stemn­ing og svo­lítið dans­gólf.“

Sjá einnig: „Óskilj­an­legt“ að fólk fái að drekka bjór á veit­inga­stöðum en ekki á krám

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

veitingastaðir

Alþjóðlegur afþreyingarstaður opnar í Kringlunni: „Þetta verður háþróaðasti pílustaður landsins“
Innlent

Alþjóð­legur afþrey­ing­ar­staður opnar í Kringl­unni: „Þetta verður háþró­að­asti pílu­staður lands­ins“

Stjörnu­torg Kringl­unnar fær loks nýtt hlut­verk í sumar en þá mun þar opna alþjóð­leg veit­inga- og afþrey­inga­keðja. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu að Alþjóð­lega veit­inga­staða- og afþrey­inga­keðjan Oche muni taka yfir pláss hins gamla Stjörnu­torgs Kringl­unnar frá og með sum­ar­byrjun. Verður Ísland þar með níunda landið sem getur boðið lands­mönnum sínum upp á stað þar sem gestir geta notið ljúf­fengra veit­inga,...
Þakbar og Michelin stjörnu kokkur, glæsihótelið Reykjavík EDITION opnar dyr sínar
Mannlífið

Þakbar og Michelin stjörnu kokkur, glæsi­hót­elið Reykja­vík EDITION opnar dyr sínar

Lúxus hót­elið Reykja­vik EDITION, sem nú er opið til for­skoð­unar, er glæsi­leg við­bót í höf­uð­borg­ina með ein­stökum veit­inga­stöðum og börum. Veit­inga­svæði EDITION eru nokkur t.d. opinn bar í and­dyr­inu, kaffi­húsið Tides og sér­rétta­veit­inga­staður. Þá verður glæsi­legur kok­teil­bar opn­aður á nýju ári. Um er að næða næt­ur­klúbb og þak­bar sem hefur ekki sést áður hér á landi. Því má með sanni...
Heiðar ánægður með KFC í Kópavogi – „Gamlir þurrir bitar afhentir, rándýr skyndibitabúlla“
Innlentveitingastaðir

Heiðar ánægður með KFC í Kópavogi – „Gamlir þurrir bitar afhentir, rán­dýr skyndi­bita­búlla“

Heiðar Aust­mann­var svo sann­ar­lega sáttur eftir ferð með fjöl­skyld­una á KFC í Kópavogi í gær. Um það tjáði hann sig í hópnum Mat­ar­tips á Faceook. „Fór og sótti mat fyrir fjöl­skyld­una á KFC í Kópavogi í gær og keypti í gegnum bíla­lúg­una. Skemmst er frá því að segja að þetta stóðst allt hjá þeim 100%. Allt sem var pantað var...
Eastwood er kominn á Stælinn!
Kynning

Eastwood er kom­inn á Stælinn!

Do you feel lucky punk? Ham­borg­ara­lista­verk eftir meist­ara­kokk­ana Viktor Örn og Hinrik Lárusson American Style aldrei betri eftir gæða- og vöru­þró­un­ar­vinnu Gleðip­inna Eastwood er ham­borg­ara­lista­verk Eastwood er glæ­nýr ham­borg­ari sem ögrar bragð­lauk­unum. Þeir Viktor Örn Andr­és­son og Hinrik Lárusson, sem und­an­farið hafa leitt gæða- og vöru­þró­un­ar­vinnu á American Style og Saffran, voru í ess­inu sínu þegar þeir settu þennan ham­borg­ara...
Veitingastaðir áfram undir smásjá lögreglu
Innlent

Veit­inga­staðir áfram undir smá­sjá lög­reglu

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hélt áfram að heim­sækja veit­inga­hús í mið­borg Reykja­víkur í gær­kvöldi til að kanna hvort reglum um sótt­varnir væri fram­fylgt. Fjórtan stað­iir voru heim­sóttir og af þeim reynd­ust átta þeirra með sótt­varnir í full­komnu lagi sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unnar. Aftur á móti þurftu fimm staðið að gera úrbætur og bæta skipu­lag hjá sér til að mæta reglum um tveggja...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins