„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hárgreiðslufólk hrósar happi meðan listamenn lepja ekkert úr skel

Vikulega tekur rit­stjórn Mannlífs saman hverjir hafi átt góða og slæma viku. Þessi lentu á lista að þessu sinni.

Hárgreiðslufólk hrósar happi meðan listamenn lepja ekkert úr skel
Braga er skemmt við að rifja upp þessa klikk­uðu jóla­minn­ingu.
Mynd / Unsplash

Góð vika: Hárgreiðslufólk og rakarar

Það var heldur betur handa­gangur í öskj­unni þann 4. maí þegar hár­greiðslu- og rak­ara­stofur fengu leyfi til að taka á móti við­skipta­vinum eftir sam­komu­bannið. Allir, og ömmur þeirra, flykkt­ust í klipp­ingu og komust færri að en vildu. Vefsíður birtu myndir af alls kyns frægu fólki í stólum hár­greiðslu­stof­anna um allt land og alls staðar var gleðin ríkj­andi. Enda hreint út sagt orðin hörm­ung að sjá ýmsa eftir margra vikna klipp­ing­ar­leysi. Meðal þeirra sem mættu í stól­inn voru sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herr­ann, Sigurður Ingi Jóhanns­son, og ást­mögur þjóð­ar­innar þessar vik­urnar, Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn. Korta­vélar hár­greiðslu­stof­anna höfðu vart undan og óhætt að segja að hár­greiðslu­fólk og rak­arar hafi átt sína bestu viku langa­lengi.

Sigurður Ingi Jóhans­son sam­göngu­ráð­herra.
Bragi Valdimar Skúlason Mynd / Unnur Magna

Slæm vika: Íslenskir tónlistarmenn

Íslenskir tón­list­ar­menn fengu áfall í vik­unni þegar upp­lýst var að tveggja metra reglan yrði vænt­an­lega í gildi út þetta ár. Það þýðir auð­vitað að ekki verður hægt að halda tón­leika og sjá tón­list­ar­menn fram á að verða meira og minna tekju­lausir það sem eftir er árs­ins. Fjöldi lands­þekktra tón­list­ar­manna tjáði sig um málið á Facebook og Twitter og var þungt í þeim hljóðið. Bragi Valdimar Skúlason sagði að dag­ur­inn væri „kol­bika­svartur fyrir lista­fólk“, Bubbi Morthens lýsti því yfir að hann yrði nán­ast atvinnu­laus ef ekk­ert tón­leika­hald yrði og Bó sjálfur, Björgvin Hall­dórs­son, sagði að þetta þýddi „ekk­ert smá­vegis tjón,“ og bætti við: „Við verðum að fá ein­hverja hjálp með að minnka það. Nú er ekki hægt að kenna neinum um nema þess­ari and­skot­ans veiru.“ Heldur betur svört vika fyrir lista­fólkið okkar.

Björgvin Hall­dórs­son
Bubbi Morthens Mynd / Hallur Karlsson
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins