„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sáttur með sjúkrarúm en ferðaþjónustan lömuð

Sáttur með sjúkrarúm en ferðaþjónustan lömuð

Góð vika: Pétur Einarsson

Pétur Ein­ars­son, fyrr­ver­andi hót­el­stjóri og flug­mála­stjóri, sem glímir við ólækn­andi krabba­mein átti góða viku þrátt fyrir sjúk­dóm­inn. Í síð­ustu viku kvænt­ist hann sam­býl­is­konu sinni til margra ára, Svan­fríði Ingva­dóttur, og þessi vika bauð einnig upp á gleði­legar upp­á­komur. „Þetta er búinn að vera ógnar góður dagur,“ segir Pétur á blogg­síðu sinni. „Hér kom Dóra frá heim­il­is­u­m­önnun Akur­eyrar. Hún er bæði hlý og hjálp­söm. Svo kom hér glæ­nýtt sjúkra­rúm handa Gamla hró­inu, greitt af Sjúkra­trygg­ingum Íslands.“

Pétur þakkar heil­brigð­is­kerf­inu hjart­an­lega fyrir þjón­ust­una. „Ég er aldeilis dol­fall­inn yfir okkar góða heil­brigð­is­kerfi. Ég á varla til orð yfir því hvað ég er þakk­látur og auð­mjúkur. Þökk og aftur þökk sé okkar frá­bæra heil­brigð­is­kerfi.“ Þegar deg­inum lauk síðan með bæj­ar­ferð og útrétt­ingum eftir langa inni­veru var gleði­bikar Péturs fullur. „Ég er eins og nýr maður, því ég hef ekki farið út úr húsi um hríð – ég er alveg búinn að gleyma því að ég sé hel­sjúkur,“ segir hann í blogg­inu.

Slæm vika: Aðilar í ferða­þjón­ustu

Ferða­bann og heims­far­aldur hefur lagst þungt á aðila í ferða­þjón­ustu og biðu þeir því spenntir eftir öðrum aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar í von um að eitt­hvað yrði gert til að létta þeim róð­ur­inn. Sú von brást ef marka má skrif ferða­þjón­ustu­að­ila í Facebook-grúpp­unni Bakland ferða­þjón­ust­unnar. Þá lét einn eig­enda ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Pink Iceland heyra í sér á Facebook vegna máls­ins. „Nið­ur­staðan er sú að við megum taka 6 milljón króna lán á ágætis vöxtum,“ segir hann og bendir á að það þýði aðeins eitt, fyr­ir­tækið muni þurfa að segja upp öllu starfs­fólk­inu og missa þá um leið rétt á þátt­töku í hluta­bóta­leið sem muni ganga að fyr­ir­tæk­inu dauðu.

Fleiri aðilar ferða­þjón­ustu boða upp­sagnir og skipu­lags­breyt­ingar til að bregð­ast við tapi, til að mynda hefur Icelandair boðað miklar upp­sagnir um mán­aða­mótin. Það er því óhætt að segja að vikan hafi ekki bein­línis verið drauma­vika í ferða­þjón­ust­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins