„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þetta lítur helvíti illa út“

„Þetta lítur helvíti illa út“

Veiði­rétt­ar­hafar eru á meðal þeirra aðila í ferða­þjón­ustu sem horfa upp á algjört hrun vegna COVID-19. Tjónið hleypur hjá einum þeirra á tugum millj­óna.

„Þetta lítur hel­víti illa út,“ segir veiði­leyfasal­inn og leið­sögu­mað­ur­inn þaul­reyndi Árni Bald­urs­son. Hann á fyr­ir­tækið Lax-á, sem hefur um ára­bil leigt veiði­svæði og selt veiði­leyfi auk þess að bjóða upp á veiði­ferðir til landa eins og Rúss­lands og Noregs. Árni sér fram á tug millj­óna tjón vegna kór­ónu­veirunnar.

Venjan er sú að erlendur veiði­maður sem kaupir veiði­leyfi greiðir helm­ing­inn við bókun en seinni helm­ing­inn þegar nær dregur. Árni segir að allt fjár­streymi til fyr­ir­tæk­is­ins sé í frosti. Enginn greiði seinni helm­ing greiðsl­unnar og allir þeir sem ekki höfðu greitt helm­ing­inn hafi afbókað. Hann seg­ist hafa gert eina til­raun til að rukka fastakúnna síð­ustu dag­anna. „Are you out of your mind?“ var svarið sem hann fékk til baka, sem þýða mætti „Ertu viti þínu fjær?“ „Þar með lauk inn­heimtu minni í mars,“ segir Árni og hlær, þrátt fyrir allt.

Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.

Margir veiði­rétt­ar­hafar greiða helm­ing rent­unnar til land­eig­enda í apríl, á grund­velli samn­ings. Árni er einn þeirra. Hann á von á því að vor­greiðslan geti reynst mörgum fyr­ir­tækjum á þessum mark­aði erfið. „Það verður mik­ill hrist­ingur ef það kemur ekk­ert í kass­ann,“ útskýrir hann.

Eldri menn kaupa dýrustu ferðirnar

Árni segir að flestir þeir við­skipta­vinir sem mestu eyði í veiði­ferðir hjá Lax-á séu eldri menn sem eru vel stæðir. Þeir eru jafn­framt í áhættu­hópi vegna kór­ónu­veirunnar, fyrir ald­urs sakir. Ekki bæti úr skák að bresk stjórn­völd hafi sagt eldra fólki að ferð­ast ekk­ert næstu sex mán­uð­ina en Bretar eru nokkuð áber­andi við íslenskar veiðiár á sumrin. Einnig sé búið að ákveða að loka Rúss­landi fyrir veiði allt næsta sumar og að í Skotlandi, þar sem Lax-á er með árs­væði á leigu, sé bannað að veiða.

Árni Bald­urs­son hjá Lax-á segir að tjóni hlaupi á tugum millj­óna.

„Það er búið að hætta við allt í sumar,“ segir hann um þessi svæði en utan­lands­ferðir með veiði­menn hafa verið ein stærsta tekju­lind fyr­ir­tæk­is­ins. „Þetta lítur þess vegna hörmu­lega út,“ segir Árni. Hann er von­lít­ill um að júlí, ágúst og sept­em­ber verði í lagi. „Það þýðir ekki alveg að úti­loka það, en það yrði svaka­leg heppni. Ég held að þeir komi bara ekki. Heim­ur­inn verður ekki kom­inn á lapp­irnar svona fljótt.“

Færa menn á milli ára

Árni segir að helsta úrræði veiði­leyfa­sala sé að færa menn á milli ára, sem greitt hafi helm­ing veiði­leyf­anna. Flestir kúnnar sum­ars­ins verði senni­lega færðir til næsta sum­ars. Það muni hins vegar skerða söl­una næsta sumar, svo tjónið sé mikið. „Við getum ekki borgað þeim til baka því við erum búnir að borga land­eig­endum aðra greiðsl­una. Pen­ing­ur­inn er far­inn frá okkur.“ Hann segir að tjónið hjá fyr­ir­tæk­inu hlaupi á tugum millj­óna króna og hann eigi von á því að fyr­ir­tækið nýti sér úrræði stjórn­valda um hluta­bætur. Fjórir starfs­menn vinna á skrif­stofu fyr­ir­tæk­is­ins. Þar hafi fólk ekk­ert að gera nema taka á móti afbók­unum. „Það eru allir í að slökkva elda. Þetta er algjör hryll­ingur.“

Árni á von á því að setj­ast niður með land­eig­endum og reyna að semja um málið. Það séu allir á sama báti. Hann segir að finna verði út úr því hvort ákvæði samn­inga um óvið­ráð­an­legar ytri ástæður gildi nú. „Menn verða að standa í lapp­irnar og greiða úr þessu. Þetta má ekki verða til þess að mark­aðs­starf til margra ára­tuga sé fyrir bý.“

„Það er bara allt farið“

Kristján Páll Rafnsson er eig­andi Fish partner, sem er einn stærsti ferða­skipu­leggj­and­inn á Íslandi þegar kemur að veiði­ferðum. Fish partner gerir að stórum hluta út á urriða­svæðin á Þing­völlum á vorin. Þar eru bestu mán­uð­irnir apríl, maí og inn í júní. „Það er bara allt farið,“ segir hann um bók­anir erlendra veiði­manna yfir það tíma­bil.

Kristján segir að flestir þeir sem eru komnir yfir sex­tugt hafi afbókað ferðir allt fram í ágúst. Það séu oft veiði­menn sem kaupa fulla þjón­ustu. Yngri veiði­menn­irnir gætu komið með skömmum fyr­ir­vara.

Aðspurður seg­ist Kristján eiga í góðum sam­skiptum við land­eig­endur og að allir skilji hvað við er að eiga. „Ef allt fer á versta veg þá verða allir að taka á þessu saman. Það eru allir á sömu blað­síðu.“

Kristján Páll segir að Fish partner eigi mikið undir vor­veið­inni í urrið­anum. Þar hefur nán­ast allt verið afbókað.

Kristján á von á því að reyna að herja betur á inn­a­lands­markað í vor og sumar, en Fish partner hefur síð­ustu daga verið að aug­lýsa veiði­leyfi á sam­fé­lags­miðlum með miklum afslætti. Hann segir raunar að aðsóknin hafi verið slík að vefur fyr­ir­tæk­is­ins hafi hrunið. „Við erum vík­ingar og munum standa okkur,“ segir hann spurður hvernig hann meti fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins.

Málið í hnotskurn

Stang­veiði velti árið 2013 um 20 millj­örðum á Íslandi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Veiði­mála­stofnun. Frá árinu 2013 til 2018 lét nærri að ferða­manna­fjöldi á Íslandi hafi þre­fald­ast svo óhætt er að gera ráð fyrir umtals­vert meiri veltu. Vegna kór­ónu­veirunnar og þeirra hamla sem settar hafa verið á ferða­lög fólks sjá veiði­rétt­ar­hafar fram á erfitt sumar. Þeir sem áttu bókuð veiði­leyfi í sumar hafa flestir afboðað komu sína eða verið færðir til næsta árs. Veiði­rétt­ar­hafar eru bundnir af samn­ingum við veiði­fé­lög land­eig­enda og ber að greiða rentu vegna veiði­rétt­ar­ins. Ef sum­arið fer á versta veg er ólík­legt að veiði­rétt­ar­hafar geti staðið við sínar skuld­bind­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveira

Segir aukna eftirspurn eftir geðheilbrigðisþjónustu vegna COVID-19
Innlent

Segir aukna eft­ir­spurn eftir geð­heil­brigð­is­þjón­ustu vegna COVID-19

Fram­kvæmda­stjóri fjar­geð­heil­brigð­is­þjón­ust­unn­ar Minn­ar líð­anar seg­ist finna fyrir veru­lega auk­inni eft­ir­spurn eft­ir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hér­lend­is í mars­ á þessu ári. Í sam­tali við mbl.is seg­ist fram­kvæmda­stjór­inn, Tanja Dögg Björns­dótt­ir, reikna með auknu álagi þegar líða tek­ur á haustið. Segir Tanja Dögg að and­leg van­líðan geri oft vart við sig nokkrum mán­uðum eftir áföll og nefnir sem dæmi fjár­mála­hrunið 2008....
Tveggja metra regl­an skylda og samkomu­mörk í 100
Innlent

Tveggja metra regl­an skylda og sam­komu­mörk í 100

Tveggja metra reglan er aftur skylda vegna kór­ónu­veirunn­ar og fjölda­tak­mörkun mið­ast nú við 100 ein­stak­linga. Þetta kom fram á fundi rík­is­stjórn­ar­innar fyrir skemmstu. Breyt­ing­arn­ar taka gildi frá og með há­degi á morg­un. Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra greindi frá þessu á fundi rík­is­stjórn­ar­innar áðan. 39 stað­fest smit eru á Íslandi. 215 manns eru í sótt­kví.
Þór um COVID-19: „Af hverju er enginn að ræða þetta?“
Innlent

Þór um COVID-19: „Af hverju er eng­inn að ræða þetta?“

Þór Jóhann­essyni jóga­kenn­ara finnst glæp­sam­legt að skikka ekki alla sem koma til lands­ins í sótt­kví. Hann segir afstöðu yfir­valda í mál­inu vera hroka­fulla og ótt­ast að hún muni hafa dýr­keyptar afleið­ingar í för með sér fyrir íslensku þjóð­ina. „Hvernig áttar þetta fólk sig ekki á því að allt annað en að krefj­ast sótt­kvíar fyrir alla – sem koma til lands­ins...
Skjólið felst í frelsinu
Skoðun

Aðsend skoðun

Skjólið felst í frels­inu

Eftir / Hönnu Katrínu Frið­riks­son Það er skjól í hvers­dags­leik­anum, í þessu venju­lega. Ekki síst á átaka­tímum. Þá er þægi­legt að falla inn í hóp­inn, ekki kalla á athygli, ekki vera til vand­ræða. Í þessum ein­falda sann­leika fel­ast ýmsar hættur. Fyrir ein­stak­linga, fyrir hópa og fyrir sam­fé­lög. Jafnvel fyrir lýð­ræðið. Heims­byggðin hefur tek­ist á við fjöl­margar áskor­anir í tengslum við...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins