„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ríkisstjórnin undirbýr enn stærri björgunarpakka

Rík­is­stjórnin og Seðla­banki Íslands munu í vik­unni kynna nýjar björg­un­ar­að­gerðir vegna þess skaða sem COVID-19 er að valda atvinnu­líf­inu. Aðgerð­irnar miða að því að styðja enn frekar við íslenskt atvinnu­líf og þá sér­stak­lega fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu og minni og milli­stór fyr­ir­tæki. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er talið að umræddar aðgerðir snú­ist um millj­arða, jafn­vel tugi millj­arða.

Á meðal þeirra aðgerða sem horft er til er að ráð­ast í er að tryggja enn frekar lausafé í fjár­mála­kerf­inu, m.a. með slökun á eig­in­fjár­kröfu bank­anna, eins og Mannlíf hefur áður fjallað um. Þá er horft til þess mögu­leika að styðja enn frekar við lán­veit­ingar fjár­mála­stofn­anna til fyr­ir­tækja með ábyrgðum rík­is­ins, kaupum á skulda­bréfum fyr­ir­tækja og tíma­bund­ins lækk­unar trygg­inga­gjalds. Einnig er til skoð­unar að ráð­ast í sér­tækar aðgerðir sér­sniðna að fyr­ir­tækjum í ferða­þjón­ustu en ekki hefur feng­ist stað­fest hvernig slíkar aðgerðir kunni að vera útfærðar.

Sam­komu­bann tók gildi á Íslandi á mið­nætti og landa­mærum víðs vegar um heim hefur verið lokað. Ljóst er að fjöl­mörg fyr­ir­tæki verða á kom­andi vikum og jafn­vel mán­uðum fyrir veru­legum búsifjum vegna þess ástands sem kór­óna­veiran hefur haft í för með sér. Hvergi verða áhrifin eins áber­andi og í ferða­þjón­ustu en lokun Banda­ríkj­anna fyrir flug frá Evrópu spilar þar stórt hlut­verk en Bretar og Banda­ríkja­menn eru lang­fjöl­menn­astir þeirra þjóða sem heim­sækja Ísland.

Mannlíf greindi fyrst fjöl­miðla frá fyrsta aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar, á sunnu­degi fyrir rúmri viku. Stjórn­völd kynntu svo um miðja vik­una þær áætl­anir á þriðju­dag­inn síð­asta. Þar kom meðal ann­ars fram að for­sendur fjár­mála­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar væru brostnar. Tilkynnt var um mögu­leika á frestun á skilum opin­berra gjalda og tíma­bundna nið­ur­fell­ingu gistin­átta­skatts. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra boð­aði stórt mark­aðsá­tak þegar veiran er um garð gengin og að gripið verði til ráð­staf­ana til að örva einka­neyslu, til dæmis með skatta- eða stuðn­ings­kerfum. Þá hefur rík­is­stjórnin boðað að auk­inn kraftur verði settur í fram­kvæmdir á vegum opin­berra aðila.

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á föstu­dag frum­varp að auka atvinnu­leys­is­bóta­rétt til 1. júlí. Í frum­varp­inu felst að þegar atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli, vegna tíma­bund­ins ástands í starf­semi fyr­ir­tækis, koma föst launa ekki sjálf­krafa til skerð­ingar á fjár­hæð bót­unum, enda hafi starfs­hlut­fallið verið lækkað hlut­falls­lega um á bil­inu 20 til 50 pró­sent. Aðrar þjóðir hafa farið svip­aðar leiðir, svo sem Norðmenn, en hlut­föllin eru mis­jöfn á milli landa.

Allar fyrri áætl­anir rík­is­stjórn­ar­innar tókum mið af því ástandi sem þótti fyr­ir­séð á þeim tíma, fyrir um viku síðan. Þær runnu út um þúfur þegar Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti um 30 daga bann við flugi frá Evrópu. Til­raunir Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra til að funda með full­trúum Banda­ríkja­stjórnar, og mót­mæla bann­inu fyrir hönd Íslands, báru engan árangur. Fyrir vikið þarf rík­is­stjórnin nú að grípa til mun umfangs­meiri aðgerða en áður var talin þörf á.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs verður til­kynnt um þessar aðgerðir innan fárra daga. Mark­miðið er að til­kynna aðgerðir sem komið geta stórum hluta fyr­ir­tækja, sem fyr­ir­séð er að lendi í vanda, í gegn um kom­andi vikur. Hluti af þeim aðgerðum sem rík­is­stjórnin hefur í píp­unum eru almenns eðlis. Sömu heim­ildir herma jafn­framt að í skoðun sé að veita við­kvæmum hópum fyr­ir­tækja eins ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sér­stakan stuðn­ing en ekk­ert hefur þó verið end­an­lega ákveðið í þeim efnum. Við því má þó búast að aðgerð­irnar verði hvoru tveggja sér­tækar og almennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
Innlentatvinnulíf

Ragnari gjör­sam­lega mis­boðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja. Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar
Innlentatvinnulíf

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí. „Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins