„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spyrja hvenær dómsmálaráðherra fór síðast í spilakassa til að styrkja gott málefni

Spyrja hvenær dómsmálaráðherra fór síðast í spilakassa til að styrkja gott málefni

Alma Haf­steins­dóttir, Kristján Jónasson og Örn Sverr­is­son birta opið bréf í Morg­un­blað­inu í dag til Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra. Alma, Kristján og Örn skrifa bréfið fyrir hönd Samtaka áhuga­fólks um spilafíkn. Í bréfi sínum varpa þau fram nokkrum spurn­ingum til Áslaugar.

Spila­kassar á Íslandi eru reknir af Íslands­spilum og Happ­drætti Háskóla Íslands. Rauði kross­inn er stærsti eig­andi Íslands­spila með 64 pró­senta eign­ar­hlut. Slysa­varn­ar­fé­lagið Lands­björg á 26,5 pró­sent og SÁÁ 9,5 pró­sent. Í bréf­inu benda þau á að dóms­mála­ráð­herra gefur út leyfi til rekst­urs þessa spila­kassa eða „söfn­in­ar­kassa“.

Í pistl­inum skrifa þau um þær fjár­hæðir sem Íslend­ingar settu í spila­kassa árið 2018. „Árið 2018 settu Íslend­ingar 12,3 millj­arða í spila­kassa – fyrir utan vinn­inga sem ekki voru greiddir út heldur lagðir aftur undir. Tæpa 8 millj­arða í sér­stakar happ­drætt­is­vélar Happ­drættis Háskóla Íslands og tæpa 4,3 millj­arða í söfn­un­ar­kassa hjá Íslands­spilum. Greiddir voru út 5,6 millj­arðar af vinn­ingum úr sér­stöku happ­drætt­is­vél­unum en 2,9 millj­arðar úr söfn­un­ar­köss­unum.“ Í bréf­inu er svo bent á að hlut­fall vinn­inga í spila­kössum skal sam­kvæmt reglu­gerð vera 89%, en er hins vegar aðeins í kringum 70%.

Þau benda svo á það er fólk á bak við töl­fræð­ina. „Á bak við þessar tölur er raun­veru­legt fólk. Fólk eins og við og þú, fólk sem á fjöl­skyldur, börn, vini og vinnu­fé­laga sem verða fyrir
skaða þegar ást­vinur missir stjórn á „frjálsum fram­lögum“ sínum til góð­gerð­ar­mála.
Í ljósi þes­arar sam­an­tektar viljum við spyrja dóms­mála­ráð­herra nokk­urra spurn­inga.“

„Á bak við þessar tölur er raun­veru­legt fólk.“

Þau varpa fram nokkrum spurn­ingum: „Söfn­un­ar­kassar og sér­stakar happ­drætt­is­vélar eru í raun ekk­ert annað en spila­kassar eða „slot machines“. Er dóms­mála­ráð­herra með­vituð um að sömu spila­kassar eru not­aðir í spila­vítum erlendis,“ er m.a. ann­ars spurt.

Þau spyrja dóms­mála­ráð­herra einnig hvort hún geri sér grein fyrir að „bróð­ur­part­ur­inn af
veltu spila­kassa er að koma frá spilafíklum sem ekki eru að leggja fram frjáls fram­lög“.

Alma, Kristján og Örn spyrja einnig hvort spila­kassar séu mögu­lega tíma­skekkja.

„Hversu lengi ætlar dóms­mála­ráð­herra að láta þetta við­gang­ast? Eitt að lokum. Eins og allir vita eru spila­kassar í dag mark­aðs­settir sem skemmti­legir leikir og fjár­öfl­un­ar­leið þar sem fólki gefst tæki­færi til að styrkja góð mál­efni. Kæra Áslaug, hvenær fórst þú síð­ast í spila­kassa til að styrkja gott mál­efni,“ spyrja þau að lokum.

Sjá einnig: Spilaði fyrir 20 millj­ónir á tveimur árum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómsmálaráðherra

„Hjalteyrarmálið þaggað niður þar sem um þjóðþekktan einstakling hafi verið að ræða“
Innlent

„Hjalt­eyr­ar­málið þaggað niður þar sem um þjóð­þekktan ein­stak­ling hafi verið að ræða“

Nýjar upp­lýs­ingar bár­ust Steinari Immanúel Sör­ens­syni í gær en er hann eitt Hjalt­eyr­ar­barn­anna. Upp­lýs­ing­arnar koma frá lög­manni og segir Steinar þær slá­andi en um leið varpa ljósi á hvers vegna málið var þaggað niður. Hafi ein­stak­lingur borið að nokkru leyti ábyrgð á því að málið hafi ekki verið upp­lýst á sínum tíma og sé um þjóð­þekktan ein­stak­ling að ræða. Segir...
Innlent

„Málið er ekki nýtt og ekki til­komið vegna Covid-19 veirunnar“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra sá sig knúna til að leið­rétta þann mis­skiln­ing að frum­varps henn­ar um áfeng­is­versl­un á net­inu sé nýtt og til­komið vegna útbreiðslu COVID-19. Áslaug birti langa færslu um málið á sam­fé­lags­miðlum. Áslaug Arna ssagði í síð­ustu viku að á tímum COVID-19 og sam­komu­banns væri sér­stak­lega þörf á lög­legri net­verslun með áfengi. „Ef ein­hvern­tíman væri þörf fyrir lög­lega...
Innlent

Íslend­ingar senda börnin í „hrein­asta hel­víti“ í næstu viku

„Að minnsta kosti fimm barna­fjöl­skyldur bíða þess nú að verða end­ur­sendar til Grikk­lands,“ segir Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris. Helgi Hrafn Gunn­ars­son Pírati segir óboð­legt að senda fólkið aftur til Grikk­lands. Engu máli skipti þó að þau hafi þar stöðu flótta­manna. Til stóð að senda unga sex manna írakska fjöl­skyldu til Grikk­lands á fimmtu­dag, þar sem hún hefur stöðu...
„Ráðherra hefur ekki heimild til að grípa inn í einstök mál umsækjenda“
Innlentdómsmálaráðherra

„Ráðherra hefur ekki heim­ild til að grípa inn í ein­stök mál umsækj­enda“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, birtir yfir­lýs­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins þar sem hún segir henni að Íslandi hafi und­an­farin ár þurft að takast á við nýja stöðu í mál­efnum útlend­inga, sér­stak­lega hvað varðar umsóknir um alþjóð­lega vernd. Áslaug segir slíkar umsóknir vera rúm­lega þrjá­tíu sinni fleiri en fyrir tíu árum. Hún segir að þessi mikla aukn­ing hafi kallað á nýtt skipu­lag...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins