„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir SA biðja fólk um að velja á milli þess að ýta undir útbreiðslu veirunnar eða verða fyrir tekjumissi

Segir SA biðja fólk um að velja á milli þess að ýta undir útbreiðslu veirunnar eða verða fyrir tekjumissi
Ragnar Þór Ing­ólfs­son

Verka­lýðs­fé­lögin og Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) eru ekki á sama máli um hvort vinnu­veit­endum beri skilda til að greiða starfs­fólki sínu sem þarf að sæta sótt­kví vegna COVID-19 laun á meðan á sótt­kví stendur. Um 300 manns eru í sótt­kví hér á landi.

Davíð Þor­láks­son, for­stöðu­maður sam­keppn­is­hæfn­is­sviðs hjá SA, sagði í við­tali við Reykja­vík síð­degis að ein­ungis þeir sem væru sýktir af veirunni ættu veik­inda­rétt sam­kvæmt lögum og kjara­samn­ingum. Davíð sagði ekki það sama gilda um þá sem eru í sótt­kví en ekki veikir.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir yfir­lýs­ingar SA vera glóru­lausar. Hann skrifar færslu um málið á Facebook.

„Ég for­dæmi glóru­lausar og van­hugs­aðar yfir­lýs­ingar SA og til­mæli þeirra til aðild­ar­fé­laga sinna að fyr­ir­tækjum beri ekki skylda að greiða fólki laun ef það er sett í sótt­kví. Einnig fyrir þá túlkun að bera stöð­una saman við að fólk sé frá vinnu vegna ófærðar,” skrifar Ragnar. Hann segir yfir­lýs­ingar SA vera óábyrgar og segir þær geta skapað hættu og óvissu.

Ragnar telur SA vera með þessu að segja fólki að velja á milli þess að ýta undir útbreiðslu veirunnar eða tekju­missi.

„Með þessu eru SA að segja fólki að velja á milli mögu­leika á útbreiðslu hættu­legrar veiru eða tekju­missi. Sem aftur getur sett sam­fé­lagið í enn meiri óvissu en orðið er og í enn meiri hættu, sem og stöðu fyr­ir­tækja sem hljóta að eiga mikið undir eins og sam­fé­lagið allt að útbreiðsla sé heft eins og kostur er,“ skrifar hann meðal ann­ars.

Ragnar vill að SA dragi yfir­lýs­ingu sína til baka.

Í lok færsl­unnar segir Ragnar að lög­menn VR og ASÍ hafi farið vand­lega yfir rétt­ar­stöðu þeirra sem eru í sótt­kví vegna COVID-19 veirunnar.

„Nið­ur­staðan er eft­ir­far­andi. Launa­fólk sem sett er í sótt­kví eða sem gert er að lækn­is­ráði að halda sig heima við og umgang­ast ekki vinnu­fé­laga eða annað fólk í umhverfi sínu vegna þess það sé annað af tvennu sýkt af COVID-19 eða sé hugs­an­legir smit­berar hans, er að mati VR og ASÍ óvinnu­fært vegna sjúk­dóms eða vegna hættu á því að verða óvinnu­fært vegna hans. Þau for­föll eru greiðslu­skyld skv. ákvæðum kjara­samn­inga og laga.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnulíf

Fólk

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún...
Ragnari gjörsamlega misboðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“
Innlentatvinnulíf

Ragnari gjör­sam­lega mis­boðið: „Ég veit satt að segja ekki hvar ég á að byrja“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, spyr lands­menn hvernig Halldór Benjamín Þor­bergssson, for­maður Samtaka atvinnu­lífs­ins, getir verið svona sam­visku­laus og ósann­gjarn gagn­vart almenn­ingi. Honum er gjör­sam­lega mis­boðið yfir sjúk­legum við­horfum Halldórs sem til­heyri sér­trú­ar­söfn­uði íslenskra arð­ræn­ingja. Þetta kemur fram í færslu Ragnars á Facebook þar sem hann fer yfir mál­flutn­ing Halldórs í við­tali Víg­lín­unnar á Stöð 2 í gær þar sem...
Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæpirnir finna sér annan farveg, eins og vatnið“
Innlentatvinnulíf

Ragnar segir ekki sama hvernig stolið er: „Glæp­irnir finna sér annan far­veg, eins og vatnið“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir það skipta sköpum í íslensku sam­fé­lagi hverju er stolið og hvernig því er stolið. Hann segir skattaund­an­skot, mútu­greiðslur, umhverf­is­glæpi og pen­inga­þvætti því miður sett í lit­ríka bún­inga eðli­legra hvers­dags­við­skipta. Ragnar gerir launa­þjófnað á íslenskum vinnu­mark­aði að umtals­efni í nýrri færslu sinni á Facebook. Þar segir hann íslenska elítu vilja við­halda þjófn­aði svo ekki fari...
Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar
Innlentatvinnulíf

Ásta Sig­ríð­ur ráðin fram­kvæmd­a­stjór­i Krón­unn­ar

Ásta Sigríður Fjeld­sted hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar, en Ásta Sigríður hefur verið fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs frá árinu 2017. Ásta Sigríður hefur störf 1. októ­ber, eins og segir í til­kynn­ingu, en hún tekur við starf­inu af Grétu Maríu Grét­ars­dóttur sem óskaði eftir að láta af störfum sem fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar í maí. „Ég tek með mik­illi til­hlökkun við starfi fram­kvæmda­stjóra þessa stóra...
Telur aldursfordóma þrífast á íslenskum vinnumarkaði – 170 umsóknir, sex atvinnuviðtöl en engin atvinna
Innlentatvinnulíf

Telur ald­urs­for­dóma þríf­ast á íslenskum vinnu­mark­aði – 170 umsóknir, sex atvinnu­við­töl en engin atvinna

Pistill Bjarna Jóns­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra, sem birt­ist á Kjarn­anum í gær hefur vakið mikla athygli. Í pistl­inum skrifar hann um atvinnu­leysi en hann hefur verið atvinnu­laus í rúmt ár, 367 daga nánar til­tekið. „Heilt ár án þess að vakna á morgn­ana, fara í rækt­ina eða sund, fengið mér morg­un­mat og farið síðan til vinnu. Komið heim seinnipart dags­ins, sest niður...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins