„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dúndurdagar Daða Freys vs. Daprir Dagsdagar

Dúndurdagar Daða Freys vs. Daprir Dagsdagar

Góð vika – Daði Freyr og félagar

„Ókei ég get dáið ham­ingju­söm. Russell Crowe horfði á mynd­band sem ég gerði.“ Já, Guðný Rós Þór­halls­dóttir, leik­stjóri víd­eós­ins við lagið Thinking About Things, sem er fram­lag tón­list­ar­manns­ins Daða Freys og Gagna­magns­ins til Söngvakeppn­innar, átti erfitt með að hemja til­finn­ing­arnar þegar í ljós kom að sjálfur Russell Crowe hafði deilt mynd­band­inu á Twitter. Crowe er eins og kunn­ugt er mik­ill Íslands­vinur eftir að hafa dvalið hér við tökur á stór­mynd­inni Noah um árið en það sem færri vita er að leik­ar­inn hefur líka dálæti á Eurovision og svo virð­ist sem íslenska lagið og mynd­bandið við það hafi hitt í mark. Daði sjálfur virt­ist varla trúa því að Ósk­arsverð­launa­haf­inn hafi sett víd­eóið á sam­fé­lags­miðla: „Var Russell Crowe að deila mynd­band­inu?“ skrif­aði hann á Twitter. Fyrir utan þetta hafa ýmsar erlendar stjörnur keppst við að lofa lagið, sem er komið með yfir 44 þús­und áhorf á YouTube, og hafa Daði og félagar því fulla ástæðu til að gleðj­ast, enda ekki oft sem lögin í Söngvakeppn­inni vekja jafn­mikil við­brögð utan land­stein­anna.

Slæm vika – Dagur B. Eggertsson

Borg­ar­stjóri Reykja­víkur hefur ekki átt sjö dag­ana sæla und­an­farið og svo virð­ist sem sótt sé að honum úr öllum áttum. Athafna­mað­ur­inn Bolli Krist­ins­son er einn þeirra sem hefur beint spjótum sínum að Degi og segir til­raun hans og borg­ar­yf­ir­valda með lokun gatna í mið­bænum ekki aðeins hafa mis­heppn­ast heldur hafi hún valdið fjölda fyr­ir­tækja gíf­ur­legu tjóni. Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, vandar borg­ar­stjóra heldur ekki kveðj­urnar vegna skýrslu borg­ar­skjala­varðar um Bragga­málið og einn virt­asti arki­tekt lands­ins, Rut Kára­dóttir, skilur ekk­ert í borg­ar­yf­ir­völdum að ætla „að fórna ein­hverju verð­mætasta græna landi borg­ar­innar og ófyr­ir­séðum fjár­munum vegna skamm­sýni og hug­mynda­leysis“, með vísan í áformin um að byggja um 4.500 fer­metra hvelf­ingu í Elliða­ár­dal. Og þá er óupp­talin for­ystu­sveit Eflingar sem sakar borg­ina um að hafa slegið á útrétta sátt­ar­hönd lág­launa­fólks í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum. Nei, það er svo sann­ar­lega ekki öfunds­vert hlut­skipti að vera borg­ar­stjóri um þessar mundir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins