Grillaðar perusneiðar með myntu
fyrir 4
2 msk. púðursykur
safi úr ½ sítrónu
2 perur
hnefafylli fersk mynta, söxuð
Blandið saman púðursykri og sítrónusafa. Skerið perurnar í þykkar sneiðar og veltið þeim upp úr sykurleginum. Grillið sneiðarnar, snúið þeim reglulega og penslið með sykurleginum þar til þær hafa tekið fallegan lit og eru hæfilega mjúkar. Þetta tekur u.þ.b. 5-10 mín.
Stráið ferskri myntu yfir og berið fram með góðum ís eða þeyttum rjóma.
Umsjón / Kristín Dröfn Einarsdóttir
Mynd / Heiða Helgadóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir





















Athugasemdir