„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Uppáhaldsgrillmatur kokkanna

Í nýjasta tölu­blaði Gest­gjafans, 5. tbl. 2020, fengum við nokkra mat­reiðslu­menn til að grilla og gefa okkur upp­skriftir að grill­réttum. Þau voru öll sam­mála um að stemn­ingin í kringum grillið sé ein­stök og bragðið, úti­veran og félag­s­kap­ur­inn. En hver er upp­á­halds­grill­matur þeirra?

Uppáhaldsgrillmatur kokkanna

Ísak Darri Þor­steins­son er mat­reiðslu­maður hjá Lux veit­ingum og liðs­maður í kokka­lands­liði Íslands. „Ef veður leyfir reyni ég að vera dug­legur að grilla en grillað nauta-ribeye með alls konar með­læti og það besta sem ég fæ. Þá sjaldan sem ég fer upp í bústað með félög­unum þá grillum við naut, þegar ég segi „við“ þá meina ég að „ég“ grilli,“ segir Ísak Darri og hlær. „Helsta ráðið sem ég get gefið les­endum varð­andi grill er að hugsa vel um það, þrífa það alltaf strax eftir notkun. Ég ber alltaf olíu á grind­urnar áður en ég kveiki á grill­inu, það kemur í veg fyrir að hrá­efnið fest­ist við þær.“

Agnes Bára Ara­dóttir er mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Sjálandi og henni finnst stemn­ingin í kringum grill­mat alltaf skemmti­leg. Í upp­á­haldi er fiskur af öllu tagi en oft verður samt ein­hvers konar kjöt fyrir val­inu þegar hún grillar. „Fátt jafn­ast á við að grilla góðan mat í góðra vina hópi. Maturinn þarf ekki að vera flók­inn til að vera góður, ein­falt er oft­ast best, og munið bara að hafa grillið nógu and­skoti heitt.“

Grilluð sjáv­ar­rétta­spjót og græn­meti eftir Agnesi Báru Ara­dóttur. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Valtýr Svanur Ragn­ars­son er yfir­mat­reiðslu­maður á Mat­ar­kjall­ar­anum og kennir sjón­varps­kon­unni Evu Ruzu að elda í þátt­unum Mannlíf sem nýlega hófu göngu sína á Sjón­varpi Símans. „Flestir Íslend­ingar eru fljótir að kveikja á grill­inu um leið og styttir upp á vorin, ein­hvern veg­inn er alveg sama hvað maður setur á grillið, það elska það bara allir. Á mínu heim­ili er grill­matur mjög mik­ill svona feel good-matur og mér finnst alltaf sér­stak­lega góð til­finn­ing að kveikja á grill­inu vit­andi að ég er að fara að borða eitt­hvað djúsí. Nauta-ribeye er í algjöru upp­á­haldi, sama í hvaða formi, með grill­uðum aspas og hollanda­ise-sósu, algjört nammi.“

Sigurþór Jóhanns­son er mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Skál! og segir að bragðið sé mest heill­andi við grill­mat, kóti­lettur séu í upp­á­haldi og lyk­il­at­riði að borða þær með hönd­unum. „Rétt eins og hver annar Íslend­ingur reyni ég að nýta hvert tæki­færi sem ég fæ til að grilla. Mik­il­vægt er að við­halda grill­inu vel, en við búum á Íslandi og hér er oft skíta­veður, og hafa alltaf við hönd­ina góðar tangir, grill­bursta og ískaldan bjór.“

Ítar­legri við­töl við mat­reiðslu­menn­ina og upp­skrift­irnar að grill­rétt­unum er að finna í 5. tbl. Gest­gjafans, 2020.

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun

5. tbl. Gest­gjafans, 2020.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vín og Matur

Blackbox – „Furðulega áhugavert, ég get ekki lýst því öðruvísi“
Mannlífið

Blackbox – „Furðu­lega áhuga­vert, ég get ekki lýst því öðru­vísi“

Í nýjum hlað­varps­þætti af Sósa Fylgir Með var veit­inga­stað­ur­inn Blackbox tek­inn fyrir en stað­ur­inn sér­hæfir sig í pít­sa­gerð. „Stað­ur­inn var að selja á því að það væri hægt að velja álegg sjálfur eins og er hægt á öllum pít­sa­stöðum nema þú gast horft á starfs­fólkið setja áleggið á pít­s­una eins og á Subway. Afsakið en mér finnst það glatað dæmi...
Diddú finnst erfiðast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreifanleg“
Mannlífið

Diddú finnst erf­ið­ast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreif­an­leg“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Diddú var örugglega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mikilli matarást“
Mannlífið

Diddú var örugg­lega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mik­illi mat­ar­ást“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Blómkálshrísgrjón – Ljúffengt lágkolvetnameðlæti
Mannlífið

Blóm­káls­hrís­grjón – Ljúf­fengt lág­kol­vetna­með­læti

Þegar skipt er yfir í lág­kol­vetna­matar­æði getur reynst höf­uð­verkur að finna heitt með­læti sem arf­taka. Blóm­káls­hrís­grjón eru sað­söm, lág í kol­vetnum og frá­bær leið til að auka við græn­met­is­inn­tök­una. Kart­öflur, rót­ar­græn­meti og hrís­grjón eru rík í kol­vetnum og hafa tals­verð áhrif á blóð­sykur lík­am­ans. Blóm­káls­hrís­grjón eru ein­fald­ari í eldun en venju­leg hrís­grjón. Fljót­leg­asta leiðin er að steikja þau á pönnu,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður