„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sviðslistafólk uppskar ríkulega meðan Lilja fékk skömm í hattinn

Sviðslistafólk uppskar ríkulega meðan Lilja fékk skömm í hattinn
|

Góð vika
Sviðs­lista­fólk

Fjöldi sviðs­lista­manna átti góðan dag á mið­viku­dag þegar til­nefn­ingar til Grímunnar, íslensku sviðs­lista­verð­laun­anna, voru kynntar. Verð­launin eru veitt í júní ár hvert en það sem af er þessu ári hefur lítið verið um sýn­ingar og mann­fögn­uði hvers konar sökum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Það var því kær­komið til­efni fyrir lista­menn til að hitt­ast og fagna við­ur­kenn­ingum, ásamt von um bjart­ari tíð fyrir listir hvers konar, nú þegar sam­komu­banni vegna far­ald­urs­ins léttir í áföngum og lands­menn geta farið að njóta lista í mann­fögn­uði aftur.
Og ekki nóg með það heldur er sviðs­lista­fólk eins og það leggur sig til­nefnt til Grímu­verð­launa sem Sproti árs­ins fyrir sitt óeig­in­gjarna fram­lag á tímum COVID-19. Fyrir að standa vakt­ina þrátt fyrir allt, halda list­inni lif­andi og næra þjóð­ina þegar hún þurfti mest á því að halda. Það hefur margur glaðst af minna til­efni.

Slæm vika
Lilja Alfreðs­dóttir

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, átti slæma viku, kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála kvað upp þann úrskurð að ráð­herr­ann hefði brotið jafn­rétt­islög með ráðn­ingu flokks­bróður síns Páls Magn­ús­sonar í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra mennta­mála­ráðu­neyt­is­ins. Komst kæru­nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að Lilja hefði van­metið Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur í umsókn­ar­ferl­inu en hún var ekki í hópi þeirra fjög­urra sem þóttu hæfust og kærði síðan til jafn­réttis­nefndar, sem í vik­unni komst að fyrr­greindri nið­ur­stöðu.
Lilja hefur lengi verið einn vin­sæl­asti ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar og því vænt­an­lega mikið áfall að fá á sig þann úrskurð að hafa brotið lög. Í kjöl­farið hefur geisað mikil umræða um málið á sam­fé­lags­miðlum og ljóst að margir hafa orðið fyrir gríð­ar­legum von­brigðum með upp­á­halds­ráð­herr­ann sinn, enda fátt sem vekur meiri urg hjá góða fólk­inu en það að hygla flokks­bróður fram yfir kyn­systur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

góð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð. Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás...
Góð vika / Slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika / Slæm vika

Góð vika Seðla­banka­stjóri Íslands, Ásgeir Jónsson, hefur átt betri daga en und­an­farið – og þó. Hann gaf út bók­ina Eyjan hans Ingólfs nýverið en var fljót­lega vændur um rit­stuld. Var það rit­höf­und­ur­inn Berg­sveinn Birg­is­son sem sak­aði Ásgeir um rit­stuld, segir hann hafa tekið ófrjálsri hendi, efni úr bók­inni Leitin að svarta vík­ingnum og notað í nýju bók­ina sína, án þess...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Nátt­úru­vernd­ar­sinnar áttu ansi góða viku en nýlega birt­ust fréttir af frið­lýs­ingu Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, á jörð­inni Dröngum á Ströndum, síð­asta dag hans í emb­ætti umhverf­is­ráð­herra. Aðal­um­hverf­is­sinni Ísland um þessar mundir, Tómas Guð­bjarts­son hjarta­læknir, er einn af þeim sem fagna þessum fréttum. „Hvaða æsingur er þetta út af stað­fest­ingu ráð­herra á frið­lýs­ingu jarð­ar­innar Dranga á Ströndum? Þetta er ein­hver...
Góð vika/slæm vika
Innlentgóð vika-slæm vika

Góð vika/slæm vika

Góð vika Leik­skól­inn Aðalþing átti mjög góða viku en hann hlaut íslensku mennta­verð­launin fyrir fram­úr­skar­andi, fram­sækið, skap­andi skóla­starf og lýð­ræð­is­lega starfs­hætti. Íslensku mennta­verð­launin voru veitt við hátíð­lega athöfn á Bessa­stöðum í vik­unni. Þau voru upp­runa­lega stofnuð til að auka veg menntaum­bóta­starfs og vekja athygli á því góða og metn­að­ar­fulla starfi sem stundað er í skólum og frí­stunda­starfi. Leik­skól­inn Aðalþing tók...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins