„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Ég fyrirgaf sjálfum mér, þetta var ekki mér að kenna“

„Ég fyrirgaf sjálfum mér, þetta var ekki mér að kenna“
Helgi faðir Gísla

Gísli Már Helgason var 12 ára gam­all þegar faðir hans lést af slys­förum. Bugaður af sorg full­orðn­að­ist hann hratt, og fimm árum seinna þegar mið­ill sagð­ist vera með skila­boð frá föður hans að handan ákvað ung­ling­ur­inn að treysta því. Í stað þess að bera skila­boð frá látnum föður segir Gísli mið­il­inn hafa brotið á sér, og það hafi markað líf hans. Mörgum árum síðar reyndi hann sjálfs­víg og í margar vikur var honum vart hugað líf. Í við­tali við Mannlíf segir Gísli frá föð­ur­miss­inum, dómi yfir ger­anda, sjálfs­vígstil­raun­inni, og sál­ar­friðnum og ást­inni sem hann býr að í dag.

„Ég verð að segja eins og er, það var léttir. Mér leið bara rosa­lega vel, get best lýst því sem gleði,“ segir Gísli aðspurður um hvernig til­finn­ing það hafi verið þegar dómur var kveð­inn upp yfir Þórhalli Guð­munds­syni miðli vegna kyn­ferð­is­brots. Föstu­dag­inn 5. júní stað­festi Lands­réttur 18 mán­aða fang­els­is­dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Þórhalli, fyrir að hafa brotið á rúm­lega tví­tugum dreng árið 2010. Árið 2013 ákvað Gísli að kæra Þórhall, og mættu báðir og gáfu skýrslu hjá lög­reglu, en málið fór ekki lengra, þar sem brotið var fyrnt.

Árið 1993, þegar Gísli var 17 ára gam­all, kynnt­ist hann Þórhalli á Siglu­firði. Mynd / Aðsend

Árið 1993, þegar Gísli var 17 ára gam­all, kynnt­ist hann Þórhalli á Siglu­firði. Síðar þegar Gísli var fluttur til Reykja­víkur hitti hann Þórhall aftur, sem sagð­ist vera með skila­boð frá látnum föður hans. Gísli fór á fund hjá Þórhalli og segir að þar hafi Þór­hallur brotið á honum með því að fróa honum án hans sam­þykkis. Það var sam­bæri­legt brot og Þór­hallur fékk dóm fyrir nú í júní. Gísli segir að dóm­ur­inn hafi verið opin­ber við­ur­kenn­ing á að Þór­hallur hafi einnig brotið gegn honum. „Mér finnst það. Þegar ég sagði mömmu frá því á sínum tíma að Þór­hallur hefði brotið gegn mér, þá nafn­greindi hún hann í færslu á Facebook og fékk rosa­lega mik­inn skít fyrir það, veit ég. Af því að hann var ekki dæmdur og ég var ekki búinn að kæra hann þegar ég sagði henni frá. En hún trúði mér strax og stóð með mér, hún missti vini vegna þessa máls,“ segir Gísli, sem hringdi í móður sína strax og hann sá fréttir um dóm­inn á föstu­dag. „Mér heyrð­ist hún bara fara að gráta, hún var svo glöð.“

Helgi faðir Gísla Mynd / Aðsend

„Pabbi er alltaf með mér“

Gísli er fæddur árið 1976, og þegar hann var átta ára skildu for­eldrar hans. Gísli flutti með föður sínum til Siglu­fjarðar, en móðir hans flutti til Reýkja­víkur. „Ég fékk að ráða hvar ég vildi búa, og ég er nátt­úr­lega strákur og valdi pabba,“ segir Gísli. „Hann er alltaf með mér,“ bætir hann við og bendir blaða­manni á mynd af föður sínum sem hangir á veggnum fyrir ofan stofu­sófann [Viðtalið við Gísla er tekið í gegnum Facetime, þar sem hann er búsettur í Svíþjóð].

Þann 26. júlí árið 1988 drukkn­aði Sigurjón Helgi Ást­valds­son, faðir Gísla, við Siglunes í óveðri, hann var 31 árs að aldri. Gísli var bug­aður af sorg eftir frá­fall föður síns, en aðspurður seg­ist hann enga aðstoð hafa fengið vegna sorg­ar­innar.

„Andlát pabba var það erf­ið­asta sem hefur komið fyrir mig og ég átti mjög erfitt með að fyr­ir­gefa honum, mér fannst hann hafa svikið mig. Áfallið mót­aði mig og gerði mig að þeim manni sem ég er í dag, ég náði aldrei aftur að verða krakki,“ segir Gísli. „Ég vildi bara vera eins og pabbi, hann var sterkastur og bestur og ég vildi vera hann ein­hvern veg­inn.“

Eftir föð­ur­miss­inn valdi Gísli að búa hjá móð­ur­ömmu sinni í stað þess að flytja til móður sinnar í Reykja­vík. „Ég vildi ekki fara suður með mömmu, ég vildi bara vera hjá ömmu. Mér fannst svo langt að fara á skíði í Reykja­vík, ég gat bara tekið skíðin á axl­irnar og gengið upp í fjall heima í Ólafs­firði. Ég hélt ég myndi verða áfram sami strákur og ég var, og ætl­aði að verða bestur á skíðum og þess háttar, en eins og ég segi þá breytt­ist ég.“

Hann seg­ist hafa brengl­ast eitt­hvað við frá­fall föður síns og sorg­ina, byrj­aði fljót­lega að drekka, en seg­ist aldrei hafa prófað annað en áfengi. „Þetta var svona konur og brenni­vín,“ segir Gísli og brosir. Þrátt fyrir drykkju, stund­aði hann skíði af miklum krafti og var góður, að eigin sögn.  „Ég stund­aði alltaf skíði á Ólafs­firði og var mjög góður þótt ég hafi verið aðeins að sulla. Ég keppti fyrir Ísland á Ólymp­íu­leikum Æskunnar árið 1992, og var ung­linga­meist­ari í svigi árið 1993.“

Gísli Már Helgason var 12 ára gam­all þegar faðir hans lést af slys­förum. Bugaður af sorg full­orðn­að­ist hann hratt, og fimm árum seinna þegar mið­ill sagð­ist vera með skila­boð frá föður hans að handan ákvað ung­ling­ur­inn að treysta því.

Lofaði skilaboðum frá látnum föður

Fyrstu kynni Gísla og Þórhalls voru á Siglu­firði fyrir til­stuðlan sam­eig­in­legrar vin­konu þeirra. „Ég þekkti hana frá Siglu­firði og hún þekkti Þórhall, og hann var eitt­hvað fyrir norðan á þessum tíma og hún spurði hvort ég vildi fara til hans,“ segir Gísli, sem ákvað að slá til.

„Ég sakn­aði pabba, ég náði aldrei að kom­ast yfir sorg­ina. Og mér fannst þetta rosa­lega spenn­andi. Þarna hitti ég Þórhall í fyrsta sinn og ekk­ert gerð­ist, en ég mynd­aði lík­lega eins konar trún­að­ar­sam­band við hann.“

Haustið 1993 flutti Gísli til móður sinnar í Reykja­vík, og eitt sinn þegar hann var staddur í víd­eó­leigu hitti hann Þórhall. „Þar sagði hann við mig að hann væri með skila­boð frá pabba.“

Gísli fór til fundar við Þórhall, og segir hann hafa brotið á sér á þeim fundi. Gísli sagði engum frá, og segir að skömm og ótt­inn við álit ann­arra hafi valdið því að hann þagði, auk þess sem hann vildi ekki særa móð­ur­ömmu sína. „Ég held að það sé skömmin sem veldur því að við þolendur segjum ekki frá. Minni­mátt­ar­kennd hjá mér og skömm, líka hræðslan við álit ann­arra. Margir vina minna á þessum tíma litu upp til mín og fannst ég vera aðaltöffar­inn. Ég skamm­að­ist mín, mér fannst þetta allt mér að kenna og skömmin óx bara hjá mér. Ef ég fékk mér í glas þá kom atvikið upp á yfir­borðið og ég vissi ekki hvernig ég átti að höndla sjálfan mig,“ segir Gísli. „Amma mín sem ég ólst upp hjá, elskaði Þórhall og hlust­aði á hann á kvöldin í útvarp­inu og ég vildi alls ekki segja henni frá þessu, af því mér fannst að ég myndi þá særa hana. Ég hélt þessu alveg leyndu fyrir henni, það var Inga frænka sem sagði henni frá þessu seinna.“ Gísli seg­ist hafa sagt góðum vini sínum frá mál­inu ári seinna, eftir að hann kom heim til hans eftir eitt­hvert fyllirí. „Hann trúði mér ekki og hélt að ég væri bara í algjöru rugli.“

Gísli flutti til Sví­þjóðar þegar hann var tví­tugur. „Ég flúði land hrein­lega og hef verið hérna í 23 ár, hér er mjög fínt að vera,“ segir Gísli. „Ef ég á að segja alveg eins og er, þá hef ég sjaldan heim­sótt Ísland, ég var alltaf hræddur um að hitta Þórhall og vissi ekki hvaða afleið­ingar það myndi hafa. Ég varð samt að fara stundum. Árið 2009 svipti vinur minn sig lífi og ég fór þá heim í tvær vikur. Og ég veit það, ég var þá alltaf að horfa í kringum mig eftir Þórhalli.“

Árið 2006 sagði Gísli föð­ur­systur sinni, Ingu Sæland, þing­manni og for­manni Flokks fólks­ins, frá mál­inu. „Hún varð óð yfir þessu, hún er svo­lítið góð í kjaft­inum eins og þú hefur kannski tekið eftir,“ segir Gísli Már bros­andi um föð­ur­systur sína. „Við ætl­uðum á fullu í málið, en svo treysti ég mér ekki til þess að gera neitt. Ég varð eitt­hvað lít­ill og ræf­ils­legur í mér. Árið 2013 fann ég hins vegar að það var komið nóg, og kærði Þórhall. Þá sagði ég góðum vini mínum frá nauðg­un­inni, og hann sagði við mig: „Veistu hvað, Gísli, ef þú hefðir sagt ein­hverjum frá þessu á þeim tíma sem þetta gerð­ist, hefði eng­inn trúað þér. Af því þú varst sterkastur og bestur í öllu.“

„Skömmin gjörsamlega að éta mig að innan“

Árið 2010, þremur árum áður en Gísli kærði Þórhall, ákvað hann að svipta sig lífi. Hann seg­ist áður hafa hringt í nágranna­konu sína og segir að hann hafi ekki vitað hvar hún væri, en hún, og önnur kona, Annika sem starfar í slökkvi­liði og með björg­un­ar­sveit, björg­uðu lífi Gísla þennan örlaga­ríka dag. „Konan býr hér nokkra kíló­metra frá mér, og ég vissi ekki að hún væri heima hjá sér. Hún heyrði sím­ann detta í gólfið hjá mér og byrj­aði á því að keyra fram hjá hús­inu mínu, til að ná í Anniku, sem tók minnst 5-6 mín­útur, svo þurfti hún að sækja exi til að brjót­ast inn til mín. Þegar þær komu inn sáu þær mig ekki fyrst, það var allt hljótt,“ segir Gísli.

Hann rekur næst hvernig kon­urnar komu að honum í eld­hús­inu, en Annika sagði honum frá því. „Þær sáu að ég hafði hengt mig í hundaól og hún hélt að ég hefði verið hang­andi þarna í 6-8 mín­útur. „Augun á þér voru komin út úr höfð­inu, þú varst búinn að pissa á þig og þú varst renn­andi blautur af því þú varst ábyggi­lega að remb­ast á móti,“ segir Gísli að Annika hafi sagt honum, „Annika sem bjarg­aði mér sagði að ég ætti ekki að vera lif­andi. Hún sagði við hina kon­una að þetta liti ekki vel út, ég væri ábyggi­lega dáinn.“

Annika hóf að hnoða Gísla, á meðan var hin konan með neyð­ar­lín­una í sím­anum. Samkvæmt frá­sögn Anniku liðu 5-6 mín­útur þar til hún heyrði smá­hljóð í Gísla, eins og hann drægi and­ann einu sinni. Eftir það dró hann and­ann á þrettán sek­úndna fresti. Annika fylgdi Gísla í sjúkra­bílnum, og þegar komið var með hann á spít­ala brugð­ust lækn­arnir hratt við þegar þeir heyrðu hversu langur tími var lið­inn. „Hún segir að þeir hafi kastað öllu öðru frá sér og sett mig í ísbað. Eig­in­lega ætti ég ekki að vera hér. Það er bara ótrú­legt að ég sé lif­andi í dag,“ segir Gísli, en honum var haldið sof­andi í margar vikur. Gísli seg­ist ekki alveg vita hvernig hann eigi að svara spurn­ingu blaða­manns um af hverju hann taldi sjálfs­víg einu leið­ina á þessum tíma. „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að svara þessu. Ég held að sjálfs­traustið og álit mitt á sjálfum mér hafi verið orðið svo lítið að ég var far­inn að ímynda mér að öllum væri nákvæm­lega sama hvað ég gerði. Ég átti tvö börn á þessum tíma, en ég hugs­aði bara að þetta væri kannski best fyrir allt og alla. Ég fann að skömmin var gjör­sam­lega að éta mig að innan, það var bara svo­leiðis, ég var með svo mikið hérna uppi sem ég hafði ekki náð að leysa til­finn­inga­lega,“ segir Gísli og tekur um höfuð sér.

Hann bætir við að hann og Anikka hafi rætt björgun hans í fyrsta sinn alls­gáð síð­ast­liðna helgi, áður hafi þau aðeins rætt lífs­björg­ina þegar þau hafi hist á djamm­inu.

Gísla var haldið sof­andi í önd­un­ar­vél vikum saman og var fjöl­skyldan und­ir­búin undir það versta.

Hetja og gangandi kraftaverk

Gísli var í marga mán­uði á sjúkra­húsi, sjálf­vígstil­raunin var í júní árið 2010 og hann kom heim aftur í byrjun októ­ber. Núna á mánu­dag­inn, 8. júní, birti Inga frænka hans færslu á Facebook með myndum af Gísla meðan hann barð­ist fyrir lífi sínu á sjúkra­hús­inu. „Ég hafði ekki hug­mynd um hvað ég var búinn að gera, ekki bleik­ustu hug­mynd,“ segir Gísli um hvað rann í gegnum huga hans þegar hann vakn­aði á spít­al­anum. „Verk­stjór­inn sem ég vann hjá og eig­in­maður kon­unnar sem bjarg­aði mér voru þarna og ég skildi ekki af hverju. Ég spurði þá hvort það væru ekki að byrja sum­ar­frí, hvað ég væri eig­in­lega að gera þarna,“ segir Gísli, sem fékk svarið:„Sum­ar­fríið er löngu búið, Gísli. Þú reyndir að hengja þig, þú ættir að vera dauður.“

Eftir að hann kom heim af spít­al­anum fór lífið fljótt í sama farið og áður. „Ég hélt eig­in­lega áfram eins og frá var horfið, ég sagði til dæmis að ég myndi aldrei drekka aftur en gerði það strax,“ segir Gísli.

„Svo hitti ég kon­una mína 2011, og hún er fyrsta konan sem ég hef elskað almenni­lega. Ég hef verið giftur áður og á fullt af börnum, en konan sem ég er giftur í dag, ég elska hana,“ segir Gísli og verður í fyrsta sinn í við­tal­inu nokkuð meyr. „Ég sagði henni frá mis­notk­un­inni, og hún sá að mér leið ekki vel og þá ákvað ég að nú myndi ég kæra. Ég hugs­aði að ég hlyti að geta losnað við þetta, og sagði sjálfum mér að það yrði erfitt akkúrat núna, en lífið hefði verið erfitt í 20 ár eða meira. Og þá yrði það bara erfitt í smá­tíma í við­bót,“ segir Gísli, sem fyrst þá sagði móður sinni frá, sem eins og fyrr segir nafn­greindi Þórhall í færslu á Facebook.

„Ég hef farið í gegnum þetta svo mörg þús­und sinnum öll þessi ár og reynt að velta fyrir mér hvað ég hefði getað gert. Hvað átti ég að gera?“

Gísli seg­ist hafa skrifað ítar­lega lög­reglu­skýrslu um brot Þórhalls, sem kall­aður var til yfir­heyrslu. „En hann ját­aði hvorki né neit­aði. Svo var málið álitið fyrnt. Eftir að ég kærði setti ég allt sem ég sagði við lög­regl­una á netið,“ segir Gísli og bætir við að margir hafi sett sig í sam­band við hann eftir það. „Einn karl­maður þorði að koma fram eftir að ég sagði mína sögu og kærði Þórhall, sá maður bað mig um að vera vitni ef til þess kæmi og ég sagði já við því. Síðan heyrði ég ekk­ert meira frá honum. Eftir að dóm­ur­inn féll á föstu­dag, fékk ég skila­boð frá honum á Facebook, en ég hélt að dóm­ur­inn væri hans mál. Svo var ekki, því hans mál var fyrnt, en vinur hans kærði Þórhall líka og hans mál er það sem dæmt var í núna. Maðurinn sem ég hafði verið í sam­skiptum við var vitni í því máli.“

Þú sem sagt þekkir fleiri sem segja Þórhall hafa brotið á sér?

„Já. Og ég veit um annan sem Þór­hallur var næstum búinn að ná til, það var syst­ur­sonur pabba, sem missti föður sinn tveimur árum eftir að ég missti pabba minn. Þór­hallur náði honum aldrei, hann var sterk­ari en ég, það er bara svo­leiðis. Ég er bara mjög glaður yfir því að loks­ins fékk Þór­hallur dóm, því það eru ábyggi­lega fleiri sem hafa lent í honum. Hann hefur verið starf­andi í hvað, 30 ár?“

Mynd / Skjáskot tima­rit.is Morg­un­blaðið 11.04.2015

Gísli og Annie Sara Maria Helgason, konan hans, giftu sig á Múla­kollu í Ólafs­firði 9. apríl árið 2015. „Og komum á for­síðu Moggans,“ segir Gísli Már og brosir út að eyrum. „Við eigum fullt af börnum og lífið er bara mjög gott, hefur bara aldrei verið svona fínt. Kominn tími til og ég get meira að segja talað um hvernig mér líður. Ég verð að segja eins og er, ég hef verið „leik­ari“ frá því ég var krakki, mér hefur liðið illa en engum dottið það í hug, engum datt í hug að ég myndi reyna að drepa mig.“

„Ég veit að það fór svo mikið í gegnum haus­inn á mér þegar ég var á þessum hel­vítis nudd­bekk hjá honum; Ég stend upp núna og ég drep hann.“

Aðspurður seg­ist hann ekki hafa leitað sér aðstoðar, og haldið að hann réði við þetta allt sjálfur. „Ég var Gísli og ég er Gísli, ég gat þetta allt sjálfur,“ segir hann. „Ég hef farið í gegnum þetta svo mörg þús­und sinnum öll þessi ár og reynt að velta fyrir mér hvað ég hefði getað gert. Hvað átti ég að gera? Ég veit að það fór svo mikið í gegnum haus­inn á mér þegar ég var á þessum hel­vítis nudd­bekk hjá honum; Ég stend upp núna og ég drep hann. Ef ég drep hann hvað á ég að segja, að ég hafi drepið hann?“

Gísli hefur verið edrú í þrjú ár og fékk loks þá hjálp sem hann þurfti í með­ferð­inni. „Ég fór mörgum sinnum til ráð­gjafa sem þekkti til svona áfalla og þurfti að end­ur­upp­lifa dag­inn með Þórhalli aftur og aftur og aftur. Ég átti að setja í orð hvernig mér leið þegar brotið var á mér og fyrst voru orð mín full af illsku og hatri. En svo fór þetta að koma meira yfir til mín, þetta var ekki mér að kenna og ég sá að ég gat ekk­ert gert á þessum tíma, þótt ég hafi margoft hugsað að ég hefði getað drepið hann eða eitt­hvað. Ég fyr­ir­gaf sjálfum mér, þetta var ekki mér að kenna. Það tók mig 25 ár að fyr­ir­gefa sjálfum mér.“

„Lífið er bara mjög gott, hefur bara aldrei verið svona fínt. Kominn tími til og ég get meira að segja talað um hvernig mér líður,“ segir Gísli, í við­tali við Mannlíf.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.
Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun.

Inga Sæland Mynd / Hallur Karlsson

„Gísli er Gísli og hann er gangandi kraftaverk“

Inga Sæland, þing­maður og for­maður Flokks fólks­ins, hefur komið fram og fjallað um mál Gísla, eftir að dómur féll yfir Þórhalli. Inga er föð­ur­systir Gísla og sú fyrsta sem hann trúði fyrir fundi þeirra Þórhalls.

„Hann er búinn að skila skömminni og vill koma fram og segja sögu sína,“ sagði Inga í við­tali við útvarps­þátt­inn Bítið á Bylgj­unni mið­viku­dag­inn 10. júní.

Inga rekur kynni og sam­skipti Gísla og Þórhalls, en hún segir hann hafa verið fjöl­skyld­unni mik­ill stuðn­ingur eftir að bróðir hennar, faðir Gísla, lést.

Hún segir aðferðir Þórhalls við að „koma skila­boð­unum áfram“ hafa verið und­ar­legar. „Það þurfti að nudda hann [Gísla] og strjúka voða mikið og opna allar rásir svo að pabbi ætti betra aðgengi að honum,“ segir Inga og bætir við að Þór­hallur hafi sagt frænda hennar að faðir hans stæði fyrir aftan hann. „Það þarf ekk­ert meira frá því að segja að hann hrein­lega fer niður á dreng­inn og fró­aði honum í ofaná­lag. Þetta var það mikil slökun sem hann þurfti á að halda til þess að pabbi hans kæm­ist til hans … Eftir það var þessi litli strákur bara flak. Við vissum nátt­úr­lega ekki neitt, fjöl­skyldan. Þögg­un­ar­taktíkin sem hér hefur ríkt alltaf var nátt­úr­lega algjör.“

Rauf þögnina 12 árum seinna

Inga segir að tólf árum seinna hafi Gísli hringt í hana hágrát­andi um miðja nótt og sagt henni frá. „Þá var hann til­bú­inn að tala og sagð­ist vilja kæra hann [Þórhall]. Ég sagð­ist geta hjálpað honum, sem ég og gerði, var komin með lög­mann og þetta var að fara í þetta ferli á þessum tíma. Þá brotn­aði hann alveg niður aftur og treysti sér ekki til að standa í þessu og bara vildi það ekki.“

Gísli reyndi síðan að svipta sig lífi nokkrum árum seinna. „Ég man ekki hvort þetta voru átta vikur, honum var haldið í önd­un­ar­vél og móðir hans kom frá Danmörku þarna strax. Þeir voru með hann í önd­un­ar­vél­inni bara til þess að halda honum gang­andi á meðan hún væri að kveðja hann. Það voru þau skila­boð sem við fengum. Við­bót­ar­skila­boðin voru þau að þegar virt­ist vera eitt­hvað líf með honum væri þetta ekk­ert hann. Í dag erum við þakk­lát fyrir að Gísli er Gísli og hann er gang­andi krafta­verk.“

Inga skrif­aði færslu á Facebook um Gísla, og birti myndir af honum berj­ast fyrir lífi sínu eftir sjálfs­vígstil­raun­ina. Inga seg­ist hafa skrifað færsl­una í kjöl­far dóms­ins yfir Þórhalli, en seg­ist ekki hafa haft geð í sér til þess að lesa dóm­inn. Hún segir Gísla og móður hans hafa fagnað nið­ur­stöð­unni meðal ann­ars með færslum á sam­fé­lags­miðlum.

„Vikum saman var honum haldið sof­andi í önd­un­ar­vél á milli heims og helju og fjösl­kyldan und­ir­búin undir það versta. Sam­m­fallin lungu og öll lík­ams­starfs­semi hætt og hann í raun dáinn það lengi að okkur var gefin engin von um að hann kæmi til baka. Þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum allar þessar raunir,orð­inn að beina­grind sem þurfti að gang­ast undir langa end­ur­hæf­ingu er Gísli hetja og gang­andi krafta­verk í dag. Loksins er Þór­hallur Guð­munds­son á leið bak við lást og slá þar sem okkur öllum í fjöl­skyld­unni finnst hann eiga heima og hvergi ann­ars staðar,“ segir Inga í færslu sinni.

Þakka fyrir stuðninginn

„Gísli þakkar þessum dreng, unga manni sem fór fram með málið. Hann þakkar honum hjart­an­lega fyrir og það eru mun fleiri ungir menn sem ég myndi nú bara hvetja til að stíga fram og segja sína sögu,“ segir Inga í við­tal­inu í Bítinu.

„Við erum á þeim tíma núna að við neitum því að búa við þessa þöggun, við neitum því að allir vett­vangar séu ekki leyfi­legir til að segja svona sögur, til að draga fram í raun­inni ger­end­urna og hætta að segja þolend­unum að þegja hrein­lega. Það er tími rétt­lætis gagn­vart þessu í dag. Þetta er tími sem við sem sam­fé­lag getum veitt ákveðið aðhald með því að segja frá í stað þess að þegja svona hluti í hel.

Það eru bara þrjú ár síðan Gísli fékk alvöru­með­ferð við þessu áfalli sem hann varð fyrir vegna þessa athæfis og þessa níð­ings­háttar sem var fram­inn á honum á þessum tíma.“

Inga seg­ist vilja tala um atvikið fyrst og fremst vegna þess að hún vilji gjarna „að allir þeir sem eru fórn­ar­lömb fái að vita það að það er ekki þeim að kenna og það er leið út, það er leiðin að tala, leiðin að segja frá og vera sáttur í hjart­anu, „það er ekki mér að kenna.“

Inga segir dóm­inn yfir Þórhalli vera áfanga sem Gísli hefði viljað sjá mun fyrr, en dóm­ur­inn sé þó fall­inn núna. „Þetta er áfangi sem Gísli hefði viljað sjá mun fyrr, en þetta er alla vega komið fram núna. Það eru margir fleiri sem eiga eftir að reyna að fara þá leið að sjá í raun ekk­ert annað út úr líf­inu en að bara reyna að flýja frá því,“ segir Inga.

Hún þakkar fyrir allan stuðn­ing sem hún hefur fengið vegna máls­ins og færslu sinnar. „Gísli fær líka gríð­ar­lega mik­inn stuðn­ing, hann hefur bak­land og stuðn­ing sem er líka ómet­an­legt.“

Hlusta má á við­talið í Bítinu í heild sinni hér.

Lands­réttur

Þórhallur dæmdur í 18 mánaða fangelsi

Föstu­dag­inn 5. júní stað­festi Lands­réttur átján mán­aða fang­els­is­dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Þórhalli Guð­munds­syni vegna kyn­ferð­is­brots gegn rúm­lega tví­tugum karl­manni.

Þór­hallur var sak­felldur fyrir nauðgun, eftir að hafa brotið gegn mann­inum árið 2010 með því að hafa fróað mann­inum án hans sam­þykkis. Maðurinn lá á nudd­bekk hjá Þórhalli sem var þá að með­höndla hann sem heil­ari vegna bak­verkja sem brota­þoli þjáð­ist af.

Maðurinn kærði Þórhall sex árum seinna. Þór­hallur neit­aði sök, en dóm­ara þótti það rýra trú­verð­ug­leika ákærða að mis­ræmi var í fram­burði hans hjá lög­reglu og fyrir dómi varð­andi máls­at­vik. Fram­burður brota­þola var hins vegar að mati dóm­ara mjög trú­verð­ugur, og studdur frá­sögnum vitna, bæði fjöl­skyldu­með­lima, vina og sér­fræð­inga.

Dómur var kveð­inn upp í Hér­aðs­dómi Reykja­ness 18. des­em­ber 2018 og stað­festur sem fyrr segir nú í Lands­rétti.

Við ákvörðun refs­ingar var horft til þess að Þór­hallur hafði ekki áður sætt refs­ingu. Einnig var tekið til­lit til tafar á máls­með­ferð­inni.

Þór­hallur var jafn­framt dæmdur til að greiða mann­inum eina og hálfa milljón króna í miska­bætur.

Þór­hallur Guð­munds­son mið­ill

Miðilshæfileikarnir meðfæddir

Þór­hallur Guð­munds­son fædd­ist 4. febr­úar 1961 í Reykja­vík og upp­al­inn í Laug­ar­nes­hverfi og Voga­hverfi. Þór­hallur vann í Versl­un­ar­bank­anum þar til hann var lagður niður árið 1990 og sneri sér þá alfarið að mið­ils­störfum. Í við­tölum hefur hann sagt mið­ils­hæfi­leik­ana með­fædda, en eftir setu á bæna­fundum og heim­sókn í Sál­ar­rann­sókna­fé­lag Íslands hafi mót­ast „ákveðnir hlutir og maður sá hvert för­inni var heitið,“ eins og hann sagði í við­tali við Feyki 14. júní árið 2017.

Þór­hallur starf­aði með Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Reykja­víkur og Sál­ar­rann­sókn­ar­fé­lagi Akur­eyrar. Þór­hallur starf­aði í útvarpi og sjón­varpi í nærri tvo ára­tugi. Á Bylgj­unni og Stöð 2 var hann með sjón­varps­þátt­inn Lífs­augað, sem flutti yfir á norð­lensku útvarps­stöð­ina VOICE í ágúst árið 2006, en hætti í maí 2008. Þætt­irnir voru end­ur­vaktir í sjón­varpi árið 2009 á Skjá­Einum, en í þeim ann­að­ist Þór­hallur svo­kall­aðar skyggni­lýs­ingar fyrir áhorf­endur í sal, og í því fólst meðal ann­ars að hafa sam­band við fram­liðna.

Í áður­nefndu við­tali í Feyki fyrir þremur árum voru loka­orð Þórhalls: „Þegar maður deyr er spurt hvað maður lætur mikið eftir sig, en englarnir munu spyrja: Hvað hefur hann sent mörg góð­verk á undan sér? Góð­verkin í þessu lífi eru upp­skeran í því næsta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins