„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Við ættum bara ekkert líf ef við hefðum ekki upplifað áföll“

Leik­ar­arnir Edda Björg­vins­dóttir og Þór­hallur Sig­urðs­son, eða Laddi, hafa verið þjóð­ar­eign í ára­tugi, sem er hreint ótrú­legt að segja af því að það eru tvö eld­hress unglömb sem sitja á móti blaða­manni á Mokka á Skóla­vörðu­stíg einn eft­ir­mið­dag í lok júní.

„Við ættum bara ekkert líf ef við hefðum ekki upplifað áföll“

Samkvæmt lögum eru þau bæði orðin eldri borg­arar, eða heldri borg­arar ættum við kannski frekar að segja, en það hefur lík­lega aldrei verið jafn­mikið að gera hjá þeim og núna þrátt fyrir ald­ur­inn og for­dæma­lausa tíma það sem af er árinu, sem sáu þó til þess að dró úr verk­efnum hjá þeim að ein­hverju leyti. Nú á föstu­dag lítur nýjasta verk­efni þeirra ljós á stóra tjald­inu, kvik­myndin Amma Hófí, og þau segj­ast bæði vera bæði spennt og kvíðin fyrir útkom­unni. „Gunnar Björn hringdi í mig fyrir þónokkrum árum síðan, þá var þetta nú bara á hug­mynda­stigi. Svo dróst þetta á lang­inn, það náð­ist ekki í pen­ing og svona, en svo hafð­ist myndin fyrir rest,“ segir Laddi og brosir, aðspurður um aðkomu hans að mynd­inni. En er hún skrifuð með þau í huga?

„Já, mig grunar það,“ svarar Laddi.

„Já, ég gæti alveg trúað því vegna þess að það eru líka mörg ár síðan við sátum saman og fórum yfir,“ segir Edda. „Þá var Gunnar Björn að kynna fyrir  mér hug­mynd­ina og mér fannst hún alveg svaka­lega skemmti­leg og ég vissi að hann lang­aði að fá okkur saman í mynd­ina. En þá var þetta allt á hug­mynda­stigi.“

„En hann var alveg örugg­lega með okkur í huga,“ ítrekar Laddi.

Gunnar Björn sem þau vísa til er Gunnar Björn Guð­munds­son, sem bæði leik­stýrir og skrifar hand­ritið að Ömmu Hófí. Hann á að baki myndir eins og Astrópíu og Gaura­gang.

Tengdu við afa og ömmu í hlutverkunum

Í Amma Hófí leika þau eldri borg­ar­ana Hófí og Pétur, sem eru orðin oln­boga­börn kerf­is­ins, þau búa á hjúkr­un­ar­heim­ili í Hafn­ar­firði og eru bæði orðin dauð­þreytt á þeim aðbún­aði sem boðið er upp á. Þau ákveða því að ræna banka til að geta keypt eigin íbúð.

Edda og Laddi eru bæði þaul­vön í leik, en það má samt sem áður spyrja hvort þau hafi átt erfitt með að setja sig í karakter í hlut­verkum sínum.

„Nei, nei, þetta var nú tekið upp í Hafn­ar­firði þannig að ég lék bara einn Hafn­firð­ing, afa minn,“ segir Laddi og hlær. „Mjög fyndið að þú skulir segja þetta,“ segir Edda, „af því að ég var í mjög góðri teng­ingu við ömmu mína sem var alltaf kölluð Amma á Hóli. Það var svo­lítið skemmti­legt að þegar fjöl­skyldan sá nafnið Amma Hófí þá lásu allir Amma á Hóli. Og ég fékk bara að heyra: „Guð minn góður, er gengið svona langt, er hún bara að leika ömmu okkar?“ segir Edda, og segir ömmu sína hafa verið ljós­lif­andi fyrir henni meðan á tökum stóð.

Eins og áður sagði eru sögu­per­són­urnar eldri borg­arar á hjúkr­un­ar­heim­ili, og það er því lag að spyrja hvort í mynd­inni felist ádeila á aðbúnað eldri borg­ara hér á landi. „Ég veit það nú ekki, kannski að ein­hverju leyti,“ svarar Laddi. Edda sem þekkir jafn­vel betur til en Laddi, segir að kannski sé ekki um raun­veru­lega ádeilu að ræða, þar sem fjöl­mörg og sífellt fleiri dval­ar­heim­ili séu eins og lítil heim­ili. Dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilið Lundur er eitt af þessum dásam­legu heim­ilum fyrir eldri borg­ara þar sem feg­urð og kær­leikur umlykja allt.

„Það er liðin tíð að það að fara á elli­heim­ili þýði að maður sé lok­aður inni ein­hvers staðar og allir hætti að bera virð­ingu fyrir manni. En auð­vitað er und­ir­liggj­andi að eldri borg­urum er ekki gert kleift að lifa eins og þeim sýn­ist,“ segir Edda, sem skráði sig sem bak­vörð í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og hefur unnið á Lundi á Hellu. Þar er faðir hennar, Björgvin Magn­ús­son, heim­il­is­maður, og dóttir hennar, Margrét Ýrr Sig­ur­geirs­dóttir, hjúkr­un­ar­for­stjóri.

„Fólk ruglar oft saman dval­ar­heim­ili og hjúkr­un­ar­heim­ili. Á dval­ar­heim­ili ertu sjálf­stæð mann­eskja í sjálfs­stæðri búsetu sem getur nýtt þér alla þá þjón­ustu sem er í boði. Hjúkr­un­ar­heim­ili er hins vegar umönn­un­ar­heim­ili fyrir veika ein­stak­linga,“ segir Edda.

„Og það er það fyndna hjá Ömmu Hófi, hún heldur að hún sé að fara á eitt­hvað huggu­legt dval­ar­heim­ili, þar sem hún getur farið í mat og látið dekra við sig eða eldað sjálf þegar hún vill.“

„Svo eru þau sett saman í her­bergi, hún og Pétur, karl og kona,“ skýtur Laddi inn í.  „Og það er ekk­ert verið að pæla í því að það sé eitt­hvað óhent­ugt, „það er ekk­ert annað her­bergi til, hvað er þetta, setjum bara skil­rúm hér,““ segir Laddi með leik­rænum til­þrifum.

Edda bætir við að dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ili sem hún þekki til séu mörg hver, sér­stak­lega þau sem nýrri eru, ævin­týra­lega fal­leg híbýli, „þar er fólk í ofboðs­legu öryggi, umhyggju og kær­leika. En þeir sem vilja búa einir og sjálfir og ekki inni á stofnun, guð hjálpi þeim að lifa á því opin­bera, og elli­líf­eyri og svo meira að segja þó að fólkið hafi borgað í líf­eyr­i­s­jóð allt sitt líf. Hvaða for­kast­an­lega glæpa­mennska er það að þú getir ekki fengið mann­sæm­andi til baka það sem þú ert búin að borga þar? Ég skil þetta ekki,“ segir Edda.

„Nei, það er óskilj­an­legt,“ tekur Laddi undir. Og það er alveg ljóst að þeim finnst stjórn­völd ekki hugsa nógu vel um hag eldri borg­ara lands­ins.

„Þeir sem kjósa að búa sjálfir hafa kannski bara ekki efni á því. Við sjáum að þjóð­fé­lagið sér ekki til þess að eldra fólkið sem byggði undir ríki­dæmi þeirra sem eru ríkir, fái að halda reisn, til dæmis bara með því að fá mann­sæm­andi greiðslur úr sínum líf­eyr­is­sjóði svo ekki sé nú annað nefnt. Elli­líf­eyrir á að vera þannig að þú getir haft í þig og á, og kannski veitt þér syk­ur­mola með kaff­inu, en þar klikkar kerfið og það er til skammar,“ segir Edda með mik­illi áherslu.

Það er ljóst að Edda hefur sterkar og ákveðnar skoð­anir á hlut­unum og því vert að spyrja hvort svo hafi alltaf verið eða hvort það sé bara eitt­hvað sem er til­komið með árunum, svona með auknum aldri og þroska. „Ég er nátt­úr­lega gam­all hippi og „rebel“, ég er upp­reisn­ar­kona í eðli mínu, var í öllum upp­reisn­ar­hópum og ein af þeim sem stofn­uðu Kvenna­fram­boðið [árið 1982]. Ég hef alltaf verið í rót­tæka lið­inu af því að það er svo margt sem þarf að breyta,“ segir Edda.

Edda Björg­vins­dóttir Þór­hallur Sig­urðs­son Mynd / Hallur Karlsson

Skoðanir hennar á skipu­lagi mið­bæj­ar­ins og færslur hennar á Facebook þar að lút­andi hafa vakið mikla athygli, en Edda sem býr í mið­bænum, vill að hann verði og þá sér í lagi Lauga­veg­ur­inn verði sem mest mið­aður að gang­andi veg­far­endum, en ekki bif­reiðum.

„Ég hef búið meira og minna í mið­bænum frá því ég byrj­aði að búa, og búið á ótal stöðum í mið­bænum. Það brennur á mér að hér skuli vera framin skemmd­ar­verk, sem ætla að eyði­leggja þessa þróun að einka­bíll­inn sé þar sem hann á að vera, ein­hvers staðar til hliðar og ekki í mið­bænum. Það eru ein­hverjir sem berj­ast gegn því og með bull að vopni eins og það að traffíkin í mið­bæ­inn hafi minnkað. Skoðið bara rann­sóknir og tölur, verslun hefur auk­ist, mann­lífið er fal­legra og það er verið að fegra mið­bæ­inn,“ segir Edda, sem seg­ist alltaf hafa verið með sterkar skoð­anir á umhverfi sínu. „Það hefur stundum komið sér illa, en það verður bara að hafa það.“

Hún seg­ist sjaldn­ast nota Facebook til að vekja athygli á því sem hún er að gera í frí­stundum eða til að berj­ast póli­tískri bar­áttu. „En það eru ein­staka mál sem brenna á mér eins og mið­bær­inn. Ég þoli þetta ekki og þess vegna linni ég ekki látum en það sem ég er að berj­ast fyrir … leyfið mér að búa hér áfram í auk­inni feg­urð og friði fyrir mengun.“

Laddi seg­ist vera mjög passívur og láta Eddu um bar­áttu­málin. „Ég er bara þannig gerður, vissu­lega hef ég skoð­anir á mörgum hlutum, en ég er bara mjög lítið í því að bera þær á torg og ræði þær ekk­ert á net­inu,“ segir Laddi, en bætir við að hann sé á önd­verðum meiði við Eddu um mið­bæ­inn. „Ég sakna þess að geta ekki keyrt niður Lauga­veg­inn, ég fer sjaldan núna því að það er búið að loka öllu. Einu sinni fór maður viku­lega, keyrði niður Lauga­veg­inn og tók rúnt­inn.“

Finna ekki fyrir neinni aldursmánun

Edda og Laddi eru bæði eldri borg­arar; Edda varð 67 ára síð­asta haust og Laddi 73 ára nú í jan­úar. Leikarar í Hollywood hafa margoft rætt um að hlut­verk­unum fækki eftir því sem árunum fjölgi, hafið þið orðið vör við það?

„Nei, alls ekki. Hjá kon­unum sér­stak­lega er oft talað um að hlut­verkin verði færri eftir fer­tugt. Það var kannski þannig áður fyrr, en er það ekki í dag,“ segir Edda. Laddi seg­ist ekk­ert hafa fundið fyrir slíku, og þau eru bæði sam­mála um að þetta hafi breyst með nýrri og yngri kyn­slóðum, nú séu skrifuð hlut­verk t.d. í kvik­myndum með allan aldur í huga.

Grínið erfiðara en dramað

Þau eru bæði fyrst og fremst þekkt fyrir gam­an­leik, í sjón­varps­þáttum, kvik­myndum og á sviði, Laddi sem skemmti­kraftur til margra ára og bæði fyrir þær ótal­mörgu per­sónur sem þau hafa skapað í hlut­verkum sínum á löngum ferli. Bæði hafa þó nýlega lagt drama­leik­inn fyrir sig og hlotið mikið lof fyrir, bæði áhorf­enda og gagn­rýnenda, Edda í kvik­mynd­inni Undir trénu árið 2017, og Laddi í sjón­varps­þátt­unum Jarð­ar­förin mín nú í ár.

„Allir leik­arar vilja láta reyna á allar hliðar á sér, það er eng­inn leik­ari sem vill vera öruggur og fest­ast ein­hvers staðar í hlut­verki. Þeir sem stjórna og biðja leik­ara að leika, það eru þeir sem draga mann út úr þæg­inda­hringnum sem aðrir, og sam­fé­lagið, eru búnir að ákveða að við séum í,“ segja þau, og bæta við að það hafi alls ekki verið stressandi að reyna við drama­leik.

„Einn gagn­rýn­andi spurði mig hvernig stæði á því að mér hefði aldrei verið boðið að leika drama­hlut­verk áður. Ég sagði við hann að ég hefði nú gert nokkra hluti mjög dramat­íska, en hann hefði bara ekk­ert séð þá,“ segir Edda. „Ég skor­aði á hann að spyrja drama­leik­ar­ana af hverju þeim hafi ekki verið boðið að leika gam­an­hlut­verk, af því að þar reynir fyrst á, hann varð svo hissa á spurn­ing­unni að ég skildi hann bara eftir orð­lausan.“

Edda Björg­vins­dóttir Þór­hallur Sig­urðs­son Mynd / Hallur Karlsson

Ætluðuð þið alltaf að verða leik­arar eða var plan B?

„Ég ætl­aði aldrei að verða leik­ari. Ég byrj­aði nú sem tón­list­ar­maður og það var mein­ingin að vera tón­list­ar­maður og mynd­list­ar­maður, það var svona það sem ég ætl­aði að verða,“ segir Laddi, og seg­ist hafa verið tón­list­ar­maður í stuttan tíma. „Mynd­listin varð að bíða og ég hugs­aði að ég myndi geyma hana til elli­ár­anna og hún er komin til sög­unnar núna og er mjög skemmti­leg, þetta er allt að ger­ast,“ segir hann og hlær, en fimm ár eru síðan Laddi sýndi mynd­irnar sínar fyrst opin­ber­lega.

„Ég myndi nú alveg kalla þig tón­list­ar­mann, þú átt ógrynni af lögum, Laddi. Svo kemur mynd­listin mér á óvart, ég hafði ekk­ert séð hana,“ segir Edda. „Þú ert flottur mynd­list­ar­maður og það er rosa­lega gaman þegar gamlir draumar ræt­ast.“

Sjálf segir Edda að hún hafi séð fyrir sér að fara í sál­fræði, eða jafn­vel í kennslu þar sem faðir hennar var skóla­stjóri. „Ég sá fyrir mér að ég hefði farið að vinna við eitt­hvað í sam­bandi við mann­leg sam­skipti. En þegar ég var krakki ætl­aði ég alltaf að verða leik­kona og það var mjög merki­leg aust­ur­rísk leik­kona sem sá það fyrir og þegar ég var sjö ára gömul spáði hún því að ég yrði ein­hvern tím­ann „fræg leik­kona á Íslandi“. En á hippa­tíma­bil­inu þótti það mjög ósmart, leik­arar voru taldir til­gerð­ar­legir og heimskir,“ segir Edda og þau hlæja bæði.

Aðspurð um hvort for­eldrum þeirra hafi þótt það alger vit­leysa hjá þeim á sínum tíma að feta leik­list­ar­braut­ina segja þau að svo hafi ekki verið. „Þegar ég sagði pabba og mömmu frá þessum draumum mínum sagði pabbi bara við mig: „Fínt, elskan mín, en klár­aðu stúd­ents­prófið fyrst,“ segir Edda, „af því að það opn­aði svona ýmsar leiðir á þessum tíma.“

„Mamma hélt að ég yrði frægur dans­ari og hún var alveg klár á að ég yrði frægur, en bara sem dans­ari,“ segir Laddi, sem seg­ist hafa haldið margar dans­sýn­ingar fyrir móður sína þegar hann var barn. „Ég var með fífla­dans, og hún hló að mér á hverju kvöldi. Þegar ég var 13 ára var mér hent í Dans­skóla Heiðars Ástvalds og átti að læra cha-cha-cha. Ég held ég hafi mætt í tvö skipti, svo gekk ég út, þetta var ekk­ert fyrir mig.“

Edda hefur í gegnum árin haldið bæði fyr­ir­lesta og nám­skeið, meðal ann­ars um húmor hjá End­ur­menntun Háskóla Íslands. „En ég hef sinnt því frekar lítið und­an­farið, ég er fast­ráðin hjá Þjóð­leik­hús­inu og sem betur fer bara ofboðs­lega mikið að gera í því, svo eru kvik­myndir og sjón­varps­s­er­íur á teikni­borð­inu. Ég er nýbúin að leika í tveimur kvik­myndum, við Laddi erum allt í einu orðin aðal­hitt­ar­inn!“

Tvær kynslóðir komnar í bransann

Núna eruð þið orðin elsta kyn­slóðin og börn ykkar beggja hafa fetað í fót­spor ykkar, var það eitt­hvað sem þið hvöttuð þau til, eða vilduð þið frekar að þau hefðu valið annað ævi­starf?

„Maður dró frekar úr en hitt, en ég lét hann bara um þetta sjálfan. Þór­hallur vildi fara í uppi­stand og vera í því. Þannig að ég sagði við hann: „Já, gjörðu svo vel, þú verður þá bara að gera það vel, og ef þig vantar ein­hverjar leið­bein­ingar þá talarðu við mig,“ segir Laddi, „en hann hefur ekk­ert gert það.“

Þór­hallur, sonur Ladda, hefur getið sér gott orð fyrir uppi­stand, hann vann keppn­ina Fyndn­asti maður Íslands árið 2007, hefur troðið upp í Secret Cellar í Lækj­ar­götu og kvik­myndin Mentor með hann í öðru aðal­hlut­verk­inu er nú sýnd í kvik­mynda­húsum.

„Hann hefur ekk­ert þurft á leið­bein­ingum að halda,“ botnar Edda. Báðir synir hennar, Björgvin Franz og Róbert Óliver Gísla­synir, hafa lært leik­list. Sá fyrri starfar sem leik­ari, en sá yngri sneri sér, að sögn Eddu, alfarið að tón­list, eftir að leik­list­ar­nám­inu lauk.

„Ég von­aði svo­lítið að börnin mín færu í annað en leik­list­ina, bara vegna þess að það eru tvær hliðar á þessu starfi og miklar sveiflur á milli. Maður hittir stór­kost­leg­asta fólk í heimi, lista­menn, og vinnur með þeim og það er ofsa­lega gaman. Og maður hittir líka ofsa­lega krump­aðar sálir og það er auð­velt að verða ann­að­hvort eða, vera litlu ljós­geisl­arnir eða krump­uðu sál­irnar. Og það er bara karakt­er­styrkur hvers og eins sem ræður hvernig þró­unin verður,“ segir Edda.

„Það er svo margt sem maður þarf að eiga við, vill maður að börnin sveiflist til og frá, gleðj­ist og þjá­ist til skiptis? Helst vildi maður að þau veldu þægi­legri braut, við­skipta­fræði til dæmis, það eru ekki sömu sveifl­urnar þar.“

Bæði nefna þau að leik­list­ar­brans­inn geti einnig verið óút­reikn­an­legur og óstöð­ugur bransi, bæði verk­efna­lega og fjár­hags­lega séð. „En ef börnin þrá eitt­hvað, Laddi er ofsa­lega góður pabbi og ég er ofsa­lega góð mamma, þá stendur maður með þeim alla leið og styður þau og hjálpar þeim,“ segir Edda, en í hennar til­viki þá er þriðja kyn­slóðin byrjuð að reyna fyrir sér á leik­svið­inu. „Það var nú eig­in­lega óvart, hann Bjarni Gabríel, ömmu­barnið mitt sem er 11 ára, er beð­inn um svo margt af því að hann er ein­stak­lega hæfi­leik­a­ríkur, hann dansar, syngur og leikur svaka­lega vel og verður með skemmti­legt hlut­verk í Kar­dimommu­bænum í vetur,“ segir Edda. „Hann er mjög lukku­legur með þetta, en ég held hann ætli frekar að vera fót­bolta­kall, ég held að honum finn­ist það meira spenn­andi. Þetta byrj­aði allt með því að hann lang­aði að vera með í Jóla­gestum Björg­vins Hall­dórs­sonar, og það vissi eng­inn af því, hann bara sótti sjálfur um að vera með því að honum finnst gaman að syngja. Hann sendi inn mynd­band og var val­inn til að taka þátt. En ég yrði samt ekk­ert hissa þótt hann end­aði í fót­bolt­anum.“

Samstarfið Gísla Rúnari að þakka

Það er Gísla Rúnari Jónssyni, leik­ara með meiru og fyrrum eig­in­manni Eddu, að þakka að leiðir Eddu og Ladda lágu saman. Og Haraldi bróður Ladda að þakka að hann kynnt­ist Gísla Rúnari. „Halli bróðir var að vinna í sjón­varp­inu hjá RÚV og kom mér þar inn í vinnu. Þar kynnt­ist ég Gísla Rúnari, og þar byrj­aði þetta allt, þetta rugl,“ segir Laddi. „Þetta var mest­megnis Gísli Rúnar sem dró mig inn í þessa vit­leysu.“

Þau segj­ast bæði slæm í ártölum aðspurð um hvort kvik­myndin Stella í orlofi hafi verið þeirra fyrsta verk­efni saman. „Nei, nei, það voru ein­hverjir sjón­varps­þættir. Hvenær var Heilsu­bælið?“ segir Laddi. „Ég er voða­lega slæm í ártölum,“ svarar Edda. „Ég man engin ártöl,“ bætir Laddi við.

Blaða­maður getur skotið inn að Stella í orlofi hafi verið frum­sýnd 1986, enda enn í grunn­skóla það ár. „Heilsu­bælið var 1989 en svo vorum við í ára­mótaskaupum og svona á undan því,“ segir Laddi. „Stella var fyrsta kvik­myndin sem við vorum í saman og svo bara öðl­uð­umst við eilíft líf sem dúóið Stella og Salómon.“

Líklega þekkir hvert manns­barn kvik­mynd­ina Stellu í orlofi og sögu þeirra Stellu og hins sænska Salómons sem kemur hingað til lands í áfeng­is­með­ferð. Örlögin haga því hins vegar svo til að Stella tekur hann upp á sína arma og með­ferðin í fjöl­skyldu­ferða­lag­inu er allt önnur en hann átti von á. „Myndin er ótrú­lega lífseig milli kyn­slóða og nú er maður bara spenntur að vita hvort kom­andi kyn­slóðir haldi áfram að horfa. Allavega börnin í dag horfa og þekkja mann, hvort börnin þeirra muni horfa er ómögu­legt að segja,“ segir Edda. „Mig langar hins vegar að stinga upp á því að ein­hver leik­stjóri velji okkur Ladda saman í hádramat­ískan harm­leik!“

„Ég sam­þykki það,“ segir Laddi.

„Mér datt þetta í hug bara núna,“ bætir Edda við, en rifjar þó upp að kvik­mynda­maður sem er í rokk­hljóm­sveit hafi haft á orði við hana að hann vildi skrifa hand­rit fyrir þau. „Alveg hreint djúpan harm­leik, ég ætla að minna hann á þessi orð hans.

Ég er pínustressuð yfir að fólk muni bera mynd­ina saman við hina sígildu mynd Stellu í orlofi, svo ótt­ast maður jafn­vel að fólki muni ekk­ert finn­ast Amma Hófí fyndin, að það muni eng­inn hlæja jafn­vel, og gam­an­mynd sem ekki er hlegið að hlýtur dauða­dóm!“ segir Edda. Stressið þarf að vera í nokkra daga til við­bótar, en á föstu­dag kemur í ljós hvort myndin fellur í kramið hjá kvik­mynda­húsa­gestum eða ekki. En von­andi heppn­ast hún glimr­andi vel.

Edda Björg­vins­dóttir Þór­hallur Sig­urðs­son Mynd / Hallur Karlsson

COVID-19 hafði áhrif

Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur komið illa við sam­fé­lagið, og fjöl­margar starfs­stéttir. Skemmt­ana­iðn­að­ur­inn þar sem margir lista­menn eru verk­takar eða ein­yrkjar hefur farið sér­lega illa út úr ástand­inu. Hefur far­ald­ur­inn haft áhrif á ykkar vinnu og afkomu, hvernig finnst ykkur stjórn­völd hafa staðið sig gagn­vart lista­mönnum? „Ég hef aldrei á ævinni verið eins grát­klökk af þakk­læti yfir því að vera fast­ráðin hjá opin­berri lista­stofnun,“ segir Edda, sem er leik­ari hjá Þjóð­leik­hús­inu.

„Það er í raun og veru alltaf verið að bæta við lausnum fyrir þennan freelance-hóp, þannig að það er ekki útséð um hvernig það kemur út fyrir lista­menn, fyrr en kannski um ára­mótin. En allir mínir nán­ustu og bestu vinir og ætt­ingjar lepja nán­ast bara dauð­ann úr skel eða hafa verið að því,“ segir Edda.

„Þetta virð­ist ganga eitt­hvað voða­lega hægt hjá stjórn­völdum að koma með úrlausn fyrir þennan hóp, af því það eru svo margir sem hafa farið illa út úr far­aldr­inum,“ segir Laddi. „Hann hefur ekki komið svo illa við mig. Ég hef notað tím­ann til að mála og safna myndum fyrir sýn­ingu. Ég gat nýtt tím­ann til að tala inn á teikni­myndir, eina sem ég missti af voru árs­há­tíðir og skemmt­anir, sem var búið að bóka mig í. Sem var reyndar tölu­vert af, og kom sér mjög illa.”

Edda Björg­vins­dóttir Þór­hallur Sig­urðs­son Mynd / Hallur Karlsson

Ekki alltaf skemmtileg

Edda og Laddi eru með skemmti­leg­ustu gam­an­leik­urum þjóð­ar­innar, en eru þau alltaf skemmti­leg, er ekki erfitt að vera alltaf undir pressu að vera skemmti­leg?

„Jú, jú, maður hefur alveg fundið fyrir því að maður eigi alltaf að vera hress og með grín. Svo er maður það ekki neitt og fær að heyra að um mann hafi verið sagt: „Djöfull var hann fúll, maður,“ segir Laddi, en bætir þó við að þetta hafi skánað, eftir því sem hann varð eldri.

„Krakk­arnir hætta að þekkja mann. Þetta var verra áður fyrr, þegar maður lenti til dæmis í ung­ling­hópi, og maður átti að vera með grín. „Vertu Eiríkur Fjalar,“ svo gerði maður það ekki, og þá þótti maður bara ofboðs­lega leið­in­legur, hund­fúll bara. En þetta er bara ofboðs­lega þægi­legt í dag,“ segir hann og brosir.

„Núna ertu nýbú­inn að leika í þátt­unum Jarð­ar­förin mín,“ skýtur blaða­maður inn í, „og það vita allir að þú ert bara gam­all og leið­in­legur karl!“

„Ég er að segja það,“ segir Laddi og Edda skelli­hlær að okkur. „Bara nákvæm­lega eins og ég er, ég tengdi strax við hlut­verkið,“ segir Laddi, en eitt­hvað er nú erfitt að trúa þeim orðum hans.

„Ég var aldrei eins vin­sæll skemmti­kraftur og Laddi, hann hefur verið það lengi og á marga ódauð­lega karakt­era,“ segir Edda. „Mér hefur aldrei fund­ist nein krafa á mig að vera sér­stak­lega skemmti­leg utan vinn­unnar, að halda uppi stemn­ingu í partíum eða hópum, aldrei nokkurn tíma. Aftur á móti lendir maður stundum í leið­inda­púkum sem hreyta í mann: „Þú getur nú ekki alltaf verið svona kát, er þetta ekki ein­hver yfir­boðs­mennska.“ Sem er bara bull af því ég er nátt­úr­lega bara vit­leys­ingur, síflissandi, finnst allt skemmti­legt og ef ég lendi í ein­hverjum áföllum, sem allir lenda í, þá á ég fólk að sem vinnur úr þeim með mér, en ég er ekk­ert að bera þau fyrir almenn­ing.“

Þið hljótið að hafa upp­lifað áföll í líf­inu eins og allir aðrir?

„Við ættum bara ekk­ert líf ef við hefðum ekki upp­lifað áföll,“ segir Edda. „Sem betur fer af því að áföllin gera mann að þeirri mann­eskju sem maður er. Þroski manns felst í því hvernig maður tekst á við áföll. Það er mjög áhuga­vert að fylgj­ast með sjálfum sér í því ferli.“

„Sem betur fer hefur maður ekki lent í stór­kost­legum áföllum, heldur bara svona þeim sem allir lenda í, að missa for­eldra sína og systk­ini sem er alltaf sorg­legt, en sem betur hefur maður ekki misst börnin sín,“ segir Laddi. „Maður vill nú helst fara á undan, ég held að það væri mesta áfallið sem maður gæti lent í að sjá á eftir barn­inu sínu.“

For­eldrar Ladda lét­ust bæði rétt fyrir átt­ræð­is­ald­ur­inn og hann hefur misst tvo bræður sína. „Þeir voru ungir, annar bara rétt um sex­tugt þegar hann fékk alzheimer sem er mjög sér­stakt, svona ungur maður, og svo hinn bróðir minn er frekar nýfar­inn, 75 ára, og það var svipað með hann. Hann fékk Park­in­sons-veiki og út frá henni heila­bilun. Þetta var mjög sorg­legt og erfitt að horfa á bræður mína vesl­ast upp og fara frá sjálfum sér og verða ein­hverjir allt aðrir, vera svona inni­lok­aðir í sjálfum sér. Missa málið, annar bróðir minn missti alveg málið. Þetta er hræði­legt og mjög sorg­legt. Það var svo vont að fara svona, báðir alveg frá­bærir drengir.“

Edda seg­ist ekki geta annað en verið á hnjánum full þakk­lætis. „Ég á pabba sem er fjör­gam­all, hann er að verða 97 ára og hann er svo stór­kost­leg mann­eskja með heil­ann í lagi og ofboðs­lega skemmti­legur og kær­leiks­ríkur. Svo á ég fjögur börn og ég á barna­börn og þetta er allt fólk sem er á lífi, er hraust og heil­brigt og ég er óend­an­lega þakk­lát fyrir það.“

Áhugamálin golf og fjölskyldan

„Já, ég er alltaf í golf­inu og nýti á sumrin hvern ein­asta tíma sem ég get,“ segir Laddi aðspurður um hvort þau hafi ein­hvern tíma fyrir sig eða eigi sér áhuga­mál. Þeir sem hafa séð þætt­ina Jarð­ar­förin mín muna að per­sóna Ladda var mikil golf­mann­eskja, og því er ljóst að Laddi þurfti ekki að þjálfa sveifl­una mikið fyrir hlut­verkið.

„Nei, ég smellpass­aði þar inn í golfar­ann. Ég spila og keppi mikið á sumrin,“ segir Laddi, sem er í lands­liði öld­unga og hefur verið síð­ast­liðin fimm ár. „Ég reyni nú að halda mig í lands­lið­inu, ég átti að fara út að spila núna í byrjun júní en það var hætt við allt saman.“

„Út af sottlu,“ skýtur Edda inn í.

„Þannig að núna er ég í LEK-móta­röð­inni til að reyna að spila mig aftur inn í lands­liðið og keppa úti næsta sumar,“ segir Laddi.

„Ég á engin áhuga­mál, það er svo­lítið trist,“ segir Edda. „En ég er farin að segja það óhikað að þegar ég á frí þá finnst mér skemmti­leg­ast af öllu að fara á kaffi­hús og hitta vini mína. Og vera sem mest með fjöl­skyld­unni sem er dreifð í sveitum lands­ins. Ég kalla það hik­laust áhuga­mál mitt að vera með fjöl­skyldu minni og vin­konum mínum.“

Fortíðin verður ekki ritskoðuð

Sam­fé­lagið þró­ast og grínið með, hverju má gera grín að og hverju ekki. Breski gam­an­leik­ar­inn John Cleese gagn­rýndi nýlega BBC fyrir að ætla að rit­skoða Monty Python-hóp­inn sem Cleese var hluti af, þar sem grín þeirra væri ekki við­eig­andi í dag. Hvað finnst ykkur, má gera grín að öllu?

„Nei, ekki í dag,“ segir Laddi ákveð­inn og Edda sam­sinnir því. Einu sinni mátti gera grín að öllu nema for­set­anum, svo er þetta alltaf að þró­ast og breyt­ast, nefnir blaða­maður. „Já, svo mátti gera grín að for­set­anum. Mínum karakt­erum hefur í dag fækkað um tvo, þeir eru bara komnir inn í skáp og eru bann­aðir í dag,“ segir Laddi. „Færeyska konan mun aldrei lifna við aftur,“ bætir Edda við.

En hvað finnst ykkur um rit­skoðun á eldra gríni, líkt og BBC vill gera?

„Ég spring í loft upp af hneykslan. Þú tekur ekki gam­alt efni og breytir því … sög­una, hvað ætlarðu að gera, end­ur­rita sög­una?“ segir Edda ákveðin. „Hvað með alla kúg­un­ina og við­bjóð­inn, morðin, hvernig konum og fötl­uðum hefur verið haldið niðri, ætlarðu að end­ur­rita þetta allt saman af því það er óþægi­legt? Sama er með grín, þú getur ekki end­ur­skrifað grínið og ýtt því öllu til hliðar, það heitir rit­skoðun og er ömur­legt athæfi, þangað megum við aldrei fara. Við megum ekki end­ur­skrifa for­tíð­ina. Aftur á móti skulum við diskút­era gamla grínið, hvort það á við í dag eða ekki. Þetta er alveg for­kast­an­legt,“ segir Edda. Og Laddi er sam­mála. „Þetta gerir maður bara ekki. Okkar karakt­erar eru saga og við myndum ekki bjóða upp á þá í dag, en við strikum ekki yfir þá og látum sem þeir hafi aldrei verið til.“

Af öllu ykkar efni, er eitt­hvað sem er upp­á­halds hjá ykkur?

„Já, hjá mér er það Heilsu­bælið, sem mér þykir ofboðs­lega vænt um og vænst um á undan Stellu. Af því að við unnum í því saman alveg frá grunni bara hérna við hlið­ina, á Óðins­göt­unni. Það var gíf­ur­leg vinna lögð í það, maður lagði allt í þetta og ég er mjög stoltur af því verk­efni. Heilsu­bælið er svona barnið manns,“ segir Laddi.

„Nákvæm­lega. Og svo Stella auð­vitað, sem færir manni svo mikið af vænt­um­þykju og svo margt fólk sem á mann og mætir manni með kær­leika og ég er alltaf að upp­götva það betur,“ segir Edda. „Svo er annað upp­á­hald hjá mér, ein­leikur sem ég var með í alveg þrjú leikár sem heitir Alveg brilj­ant skiln­aður. Mér þykir ofboðs­lega vænt um það verk, af því að það snerti hjarta mitt mjög djúpt og svo margra ann­arra. Verkið var blanda af trega og sorg, en rosa­lega fyndið engu að síður.“

„Ég má ekki gleyma sýn­ing­unni minni, Laddi sex­tugur. Ég var sex­tugur í þrjú ár og 130 sýn­ingar,“ segir Laddi. „Þannig að mér þykir ofsa­lega vænt um það.“

Ertu byrj­aður að und­ir­búa Laddi átt­ræður? spyr blaða­maður og upp­sker hlátur frá Eddu.

„Nei,“ brosir Laddi, „Laddi 75 ára, ég ætla að koma með það og er byrj­aður að hugsa um það og búinn að panta hús, en ég segi ekk­ert meira,“ segir hann leynd­ar­dóms­fullur um hvar sýn­ingin verður. „Ég er byrj­aður að hugsa sýn­ing­una alveg á fullu. Laddi sex­tugur átti bara að vera ein helgi, 2-3 sýn­ingar, ég ætl­aði að halda upp á afmælið mitt og fá svona kunn­ingja með mér, en svo voru aðrir sem tóku sig til, sögðu að þetta yrði að vera stærra og meira. Ég missti þetta út úr hönd­unum á mér þannig að ég ætla ekki að láta neinn þvæl­ast í þessu aftur, ég ætla bara að hafa þetta fjórar sýn­ingar,“ segir Laddi.

„Laddi er nátt­úr­lega svo miklu eldri en ég,“ segir Edda glettin á svip­inn, „þannig að eftir svona fimm ár fer ég að hugsa um næstu hátíð. Ég var með sýn­ing­una Eddan fyrir nokkrum árum sem var ógeðs­lega gaman og eitt­hvað geri ég seinna, en ég fylgi alltaf Ladda bara.“

„Já, hún er aðeins á eftir, ég ryð veg­inn,“ botnar Laddi.

Ætlið þið að vera enda­laust í þessum bransa?

„Einhvern tíma sagði ég sjálfum mér og kon­unni minni að ég ætl­aði að segja síð­asta brandar­ann þegar ég yrði 100 ára. Ég ætla ekk­ert að hætta fyrr, en það verður kannski síð­asta „show-ið“ mitt, það verður kannski stutt eða bara upp­rifjun. Ég sit kannski bara á stól og fylgist með fólk­inu, svo er allt sýnt á tjald­inu,“ segir Laddi.

„Ég ætla líka að vera hund­rað ára að sprikla og dansa á leik­sviði,“ segir Edda.

„Ef maður hættir því þá deyr maður, þá fyrst deyr maður,“ bætir Laddi við.

„Við verðum mjög lang­líf, við Laddi,“ segir Edda.

„Þannig að ég sit uppi með ykkur alveg í 20-30 ár í við­bót?“ spyr blaða­maður.

„Ég held það. Þú tekur annað við­tal við okkur eftir 30 ár,“ segir Laddi, sem hljómar alls ekki slæm hug­mynd, um leið og við ljúkum spjalli okkar og höldum út í sól­ina og mann­lífið í mið­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakkaskraut, ég er þurrskreyting.“
Innlentviðtöl

Sigrún hans Kibba í Baulu: „Ég er ekki hnakka­skraut, ég er þurr­skreyt­ing.“

Krist­berg Jónsson, betur þekktur sem Kibbi í Baulu, og Sigrún kona hans, ráku lengi vel áning­ar­stað­inn Baulu í Borg­ar­firði og en Kibbi ræddi meðal ann­ars þá reynslu sína í við­tali við Sjóarann á dög­unum. Kibbi er bæði yfir­lýstur sós­í­alisti og mik­ill vél­hjóla­maður. Sagan segir að hann hafi eitt sinn hafi hann eign­ast blátt mót­or­hjól en verið snöggur til að sprauta...
Elísabet Jökulsdóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.
Innlentviðtöl

Elísabet Jök­uls­dóttir er alsæl með nýtt nýra: „Ég geng hérna í keng“.

Elísabet Jök­uls­dóttir, skáld­kona og rit­höf­undur, fékk ígrætt nýtt nýra á laug­ar­dag­inn en hún var með nýrna­bilun á loka­stigi. Systir Elísa­betar, Unnur Þóra, birti færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún sagði frá þeim gleði­tíð­indum að Elísabet hafi fengið nýtt nýra í Svíþjóð og að allt hafi gengið eftir óskum. Elísabet var önnum kafin þegar blaða­maður náði á hana, enda...
Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkjugarðinum“
Innlentviðtöl

Séra Jóna Hrönn: „Ég man eftir mér fara til að standa við litla gröf í kirkju­garð­inum“

Þessi grein er brot úr við­tali Svövu Jóns­dóttur við séra Jónu Hrönn Bolla­dóttur. Viðtalið má í heild sinni lesa hér. Jóna Hrönn Bolla­dóttir fædd­ist í Hrísey 21. júlí árið 1964 og er dóttir hjón­anna Bolla Þóris Gúst­avs­sonar, fyrrum vígslu­bisk­ups að Hólum í Hjalta­dal, og Matt­hildar Jóns­dóttur hár­greiðslu­meist­ara og hús­móður. Jóna Hrönn er ein af sex systk­inum og þegar hún var...
Innlent

Simbi var á kafi í und­ir­heimunum en sneri við blað­inu: „Það er leið út úr þessu“

Þetta er brot úr við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs. Sig­mundur Geir Helgason, sem ávallt er kall­aður Simbi, var í harðri neyslu um ára­bil og lifði og hrærð­ist í und­ir­heimunum. Hann fram­fleytti sér með glæpum, lenti í fang­elsi og missti tengslin við það sem gæti talist eðli­legt líf. Simbi var djúpt sokk­inn í neyslu; fyrstu árin var það amfetamín,...
Ómar segir miðla og heilara oft verða fyrir fordómum: „Erum jafn misjöfn eins og við erum mörg“
Innlentviðtöl

Ómar segir miðla og heil­ara oft verða fyrir for­dómum: „Erum jafn mis­jöfn eins og við erum mörg“

Ómar Pét­urs­son starfar sem heil­ari og mið­ill. Hann seg­ist vera í sam­bandi við leið­bein­endur að handan og hjálpar fólki til að líða betur og aðstoðar fólk sem heyrir, sér eða skynjar eitt­hvað óeðli­legt á heim­ilum sínum. Í helg­ar­við­tali Mannlífs við Ómar segir hann frá því sem hann fæst við á ein­lægan og opinn hátt. Ómar segir að fólk sem vinni...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins