„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Marokkóskur kjúklingaréttur með þurrkuðum apríkósum og kúskúsi

Marokkóskur kjúklingaréttur með þurrkuðum apríkósum og kúskúsi
09. tbl. 2018, GE1808278728, kjúklinga­réttur, kjúklingur, lamba­kjöt, lamba­pott­réttur, pott­réttir, pott­réttur, stílisti_Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir, umsjón_Nanna Teits­dóttir

Ferskur og flottur réttur sem við mælum með. Bestur bor­inn fram með rist­uðum möndlu­flögum, ferskum kórí­and­er­laufum og grófu sjáv­ar­salti.

Marokkóskur kjúklingaréttur með þurrkuðum apríkósum og kúskúsi
fyrir 4

6 kjúklinga­læri, með beini
2½ tsk. salt
1 tsk. pipar
2 msk. ólífu­olía
1 stór laukur, saxaður
2 hvít­lauks­geirar, saxaðir
1 msk. rifið engi­fer
1 msk. kummin
1 tsk. kórí­and­er­duft
1 tsk. kanil­duft
¼ tsk. cayenne-pipar
1 msk. tómat­mauk (tom­ato paste)
1 dl saxaðir apríkósur, eða rús­ínur
1 dós hakk­aðir tómatar
1 dós kjúklinga­baunir
5 dl vatn
2 dl kúskús
möndlu­flögur, ristaðar, til skrauts
kórí­ander eða stein­selja, söxuð, til skrauts

Þerrið kjúklinga­lærin með eld­hús­pappír og kryddið með 1 tsk. af salti og 1 tsk. pipar, látið standa í hálf­tíma ef tími gefst til. Hitið ólífu­olíu í stórum potti og steikið kjúkling­inn
á báðum hliðum þar til hann gyll­list, u.þ.b. 5 mín. á hvorri hlið. Fjar­lægið kjúkling­inn og setjið til hliðar. Steikið lauk­inn þar til hann verður mjúkur og glær, bætið hvít­lauk út í pott­inn og steikið í 1-2 mín. Bætið 1 ½ tsk. salti, engi­feri, kummin, kórí­ander, kanil­duft, cayenne-pipar og tómat­mauki saman við og hrærið rösk­lega til að blanda krydd­unum saman við lauk­inn. Eldið þar til kryddið fer að ilma, í u.þ.b. 1 mín.

Bætið apríkósum, tómötum og kjúklinga­baunum saman við og hellið 3 dl af vatni saman við. Náið upp hægri suðu og setjið þá kjúkling­inn í pott­inn. Setjið lok á pott­inn og eldið í u.þ.b. 15 mín., gætið að því að það sé hæg suða í þann tíma svo kjúkling­ur­inn nái að eld­ast í gegn.

Hrærið kúskúsi í pott­inn og bætið við 2 dl af vatni eða meira þannig að það fljóti 2 cm yfir hrá­efnið. Smakkið og saltið og piprið ef þarf. Setjið lokið aftur á og eldið þar til kjúkling­ur­inn og kúskúsið hafa eld­ast í gegn, u.þ.b. 10-15 mín. Bragð­bætið með salti og pipar ef þarf og berið fram með rist­uðum möndlu­flögum, ferskum kórí­and­er­laufum og grófu sjáv­ar­salti.

Umsjón / Nanna Teits­dóttir og Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Gest­gjaf­inn er vandað fag­tíma­rit um mat, vín og ferða­lög. Allar upp­skriftir í mat­ar­þáttum blaðs­ins eru þró­aðar, eld­aðar og próf­aðar í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans. Blaðið fæst í öllum helstu mat­vöru­versl­unum og bóka­búðum en einnig er hægt að ger­ast áskrif­andi í vef­verslun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjúklingur

Indverskur kjúklingur á naan-brauði – Frábær og einfaldur réttur á grillið í góðviðrinu
Mannlífið

Ind­verskur kjúklingur á naan-brauði – Frábær og ein­faldur réttur á grillið í góð­viðr­inu

Ef ekki er tími til að draga fram grillið í dag þá hvenær? Hér er snið­ugur og ein­faldur réttur sem hentar vel að henda á grillið með litlum fyrir vara og til­valið er að borða út á palli, kannski með ull­ar­teppið vafið um sig. Rétt­ur­inn er í eins­konar götu­mat­ar­stíl þar sem hægt er að borða hann með hönd­unum. Með þessum rétti passar vel að drekka góðan bjór eða bara engi­feröl. Fyrir þá sem hafa aðeins meiri tíma má líka skella í lít­inn fljót­legan eft­ir­rétt eins þessa tiramísú sem tekur bara 15 mín­útur að laga og þá er mál­tíðin full­komnuð.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður