„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ítalskar matarhefðir – Ekki háma í þig matinn, engin salatsósa og farðu rólega í parmesanostinn

Ítalir eru hrifnir af hefðum og mat­ar­menn­ingin er þar engin und­an­tekn­ing. Hér eru nokkrar góðar mat­ar­reglur til að hafa í huga ef heim­sækja á Ítalíu.

Ítalskar matarhefðir – Ekki háma í þig matinn, engin salatsósa og farðu rólega í parmesanostinn
Mynd / Unsplash
  • Morg­un­verður á Ítalíu sam­anstendur oft­ast af sætum bita svo sem cornetto sem er eins konar ítölsk teg­und af hinu franska crossaint, og cappuccino eða sterkum espressó.
  • Ef morg­un­matur er ekki borð­aður heima er algengt að koma við á espressóbar á leið til vinnu og drekka þar kaffi­bolla. Það þykir ekki fínt að panta kaffi­boll­ann í ferða­máli heldur er hans notið á staðnum.
  • Cappuccino er ekki pant­aður eftir klukkan 11. Kaffi með mjólk er ekki við­eig­andi nema á
    morgn­ana þar sem það er ann­ars talið trufla melt­ing­una.
  • Ekki nota hníf til að borða pasta, meira að segja lasagne. Þá ertu að gefa í skyn að pastað sé ekki nægi­lega soðið.
  • Spagettí er ein­ungis borðað með gaffli, skeiðar eru fyrir börn.
  • Með mat er drukkið vatn eða vín. Ítalir vilja njóta bragðs­ins af matnum og ekki skemma
    það með drykkjum sem passa ekki við mat­inn. Eina und­an­tekn­ingin er pítsa en með henni er við­ur­kennt að panta kók eða bjór en ekki meira en eitt glas, ekki biðja um áfyll­ingu!
  • Ekki reyna að biðja um sal­atsósu á sal­atið þitt. Ítalir setja ólífu­olíu og bals­amedik á sal­atið sitt enda er ólífu­olía algeng­asta með­lætið með mat á Ítalíu.
  • Ekki háma í þig mat­inn. Það er algengt að elda­mennskan taki langan tíma og borð­haldið
    getur staðið yfir í margar klukku­stundir. Þegar borðað er á veit­inga­stað má gera ráð fyrir því að þjón­ustan sé hæg, rétt­irnir margir og mjög ólík­legt að þjónn­inn vilji fá borðið fyrir aðra gesti eftir ákveð­inn tíma.
  • Brauð sem kemur á borðið á veit­inga­stöðum er ekki hugsað til að borða fyrir mat­inn heldur frekar sem verk­færi til að taka upp sós­una sem verður eftir á disknum eftir að mat­ur­inn hefur verið klár­aður. Ítalir eiga orð yfir þetta „Fare la scarpetta“. Það þykir þó ekki fínt að gera það í form­legum boðum eða á fínni veit­inga­stöðum, þar er betra að nota gaff­al­inn til að skafa upp rest­ina af sós­unni á disknum.
  • Löngunin til að setja parmesa­nost á allt getur verið sterk en þar gilda ákveðnar reglur og
    hefðir eins og með svo margt á Ítalíu. Ekki setja parmesa­nost yfir aðal­rétt­inn þinn eða secondi og þá sér­stak­lega ekki ef hann inni­heldur sjáv­ar­fang. Parmesa­nostur er settur yfir pasta eða risotto, þó með und­an­tekn­ingu ef það inni­heldur sjáv­ar­fang.
  • Þó að ítalskur skyndi­biti þekk­ist alveg þá er hann borð­aður stand­andi eða sitj­andi en það þykir ekki fínt að ganga á meðan mat­ur­inn er borð­aður. Með einni und­an­tekn­ingu sem er gelato og er hann oft borð­aður í kvöld­göng­unni.

Þó að ítalskt borð­hald geti staðið yfir í margar klukku­stundir borða flestir Ítalir frekar ein­falt á virkum dögum. Þegar haldið er mat­ar­boð eða borðað er á veit­ing­ar­stöðum má búast við þess­ari röð rétta:

Aperitivi

Þessi drykkur er drukk­inn áður en borð­haldið hefst. Hann þarf ekki að vera áfengur en ætti að vera ferskur og örlítið beiskur eins og Campari eða freyð­andi eins og prosecco til að ýta undir mat­ar­lyst­ina.

Antipasti

Eins konar for­réttir eða smá­réttir sem sam­an­standa af blönd­uðum heitum eða köldum litlum réttum sem breyt­ast eftir árs­tíðum og er oft lögð áhersla á það sem er búið til í nágrenn­inu. Oft er boðið upp á antipasti með aperitivi.

Primi

Heitur milli­réttur sem sam­anstendur til dæmis af súpu, risotto, pasta eða gnocchi.

Secondi

Þetta er aðal­rétt­ur­inn og er algengt að hann sé fiskur, kjöt eða villi­bráð. Það fylgir oft ekki mikið með­læti með secondi, því er ráð­lagt að panta með honum contorni.

Contorni

Hér er verið að tala um með­læti með aðal­rétt­inum þar sem grunn­ur­inn er alltaf græn­meti.
Algengt contorni er til dæmis ver­dure alla griglia/grillað græn­meti, patate fritte/steiktar kart­öflur, melanzane parmigi­ana/ bakað eggaldin með tómötum og parmesan-osti, fagi­oli/baunir og insal­ata/salat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matarfróðleikur

Smjer sósur um páskana
Mannlífið

Smjer sósur um pásk­ana

Mat­reiðslu­mað­ur­inn Guðjón Þór Guð­munds­son og Hrafn­kell Guðnason við­skipta­fræð­ingur standa að baki Smjer en fyr­ir­tækið var stofnað á síð­asta ári. Sósurnar eru full­komnar á páska­borðið í ár. Með sós­unum frá Smjer losnar þú við til­standið sem fylgir því að gera góða sósu frá grunni en þrátt fyrir það er útkoman sú sama. Ljúffeng, heima­til­búin sósa! Mörgum vex í augum að laga...
Notuðu rúmlega 800 kíló af smjöri í stærsta piparkökuhús heims
Mannlífið

Notuðu rúm­lega 800 kíló af smjöri í stærsta pip­ar­köku­hús heims

Pip­ar­köku­húsin – Hvaðan koma þau? Það hefur lengi verið hefð að skreyta pip­ar­kökur þegar nálg­ast fer jólin. Sumir setja saman pip­ar­köku­hús og víða um heim er blásið til sam­keppna þar sem stærstu og best skreyttu húsin fá verð­laun. Hefðin fyrir skreyttum pip­ar­köku­húsum hófst í Þýska­landi í byrjun 18. aldar og á rætur sínar að rekja til vin­sælu sög­unnar Hans og...
Borðar þú avocado? Hér eru fimm góðar ástæður til þess að byrja á því
Mannlífið

Borðar þú avocado? Hér eru fimm góðar ástæður til þess að byrja á því

Avókadó getur haft marg­vís­legan heilsu­fars­legan ávinn­ing, þar á meðal að bæta melt­ingu, draga úr hættu á þung­lyndi og minnka hættu á krabba­meini. Einnig þekktur sem krókó­díla pera eða lárpera, er avókadó í raun teg­und af berjum sem vaxa í heitu lofts­lagi. Avókadó veita umtals­vert magn af ein­ó­mett­uðum fitu­sýrum og eru rík af mörgum vítamínum og stein­efnum. Með því að fella...
Borðar þú ofurfæðu?
Mannlífið

Borðar þú ofur­fæðu?

Hvað er ofur­fæða? Nær­ing­ar­lega séð er ekk­ert til sem heitir ofur­fæða. Hugtakið var búið til í mark­aðs­legum til­gangi til að hafa áhrif á mat­ar­þróun og selja vörur. Mat­væla­iðn­að­ur­inn gefur nær­ing­ar­ríkum mat­vælum ofur­fæðu­merkið en það eru mat­vælin sem geta haft jákvæð áhrif á heils­una. Þó að hægt sé að lýsa mörgum mat­vælum sem frá­bærum, þá er mik­il­vægt að gera sér grein...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður