„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lífsreynslusaga: Systir mín þarf alltaf að vera meiri en ég

Lífsreynslusaga: Systir mín þarf alltaf að vera meiri en ég

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni:

Ég er næstelst í systk­ina­hópnum, á tvo bræður og eina systur, nokkrum árum yngri. Við systk­inin vorum ágæt­lega sam­rýnd en á ung­lings­ár­unum fann ég að systir mín virt­ist vera komin í ein­hvers konar sam­keppni við mig.

Vera systir þoldi ekki að ég fengi að fara út á kvöldin en hún ekki, að ég væri farin að mála mig en henni bannað það því hún var barn, og fleira í þeim dúr. Ég man þó eftir að hafa farið í bíó með vin­konum mínum og verið neydd til af mömmu að taka Veru með, þá bara 12 ára, þrátt fyrir að myndin væri bönnuð innan 16. Vera hafði grátið í klukku­tíma og mamma gef­ist upp á end­anum. Hún var þó frekar ströng við okkur og leyfði Veru yfir­leitt ekki að kom­ast upp með neina vit­leysu.

Það gladdi mig þegar Vera valdi sér sömu náms­grein og ég í háskóla og örfáum árum eftir útskrift hafði hún unnið sig upp í yfir­manns­stöðu. Ég var hreykin af henni og sagði henni það en hún hló og sagð­ist vera viss um að ég væri að far­ast úr öfund­sýki. Hún setti þetta fram eins og grín og við hlógum báðar.

Við systur giftum okkur með ársmilli­bili og eigum tvö börn hvor. Hjóna­band mitt varði í tólf ár en þá fór mað­ur­inn minn frá mér fyrir aðra konu. Það var eins og Vera hlakk­aði yfir því þótt hún segði það ekki beint út, hún hefur alltaf notað óbein skila­boð og ef ég reyni að spyrja hvað hún meini, verður hún ann­að­hvort reið eða þyk­ist ekk­ert skilja.

„Hún hafði búið til kaffi, fengið sér, skolað könn­una og slökkt á henni, ásamt því að ganga vand­lega frá brauði og áleggi inn í ísskáp þótt hún vissi vel að örstutt væri í að ég kæmi fram. Það átti aldeilis ekki að stjana við stóru­systur.“

Ef ég keypti eitt­hvað fal­legt til heim­il­is­ins hér áður fyrr brást ekki að Vera keypti eitt­hvað sem var enn fínna og dýr­ara. Þótt heim­ili okkar væru ólík, ég meira fyrir þæg­indi en útlit, fann ég alltaf þörf hennar fyrir sam­an­burð við mig og heim­ili hennar hafði svo sann­ar­lega vinn­ing­inn. Ég var ánægð með mitt svo sam­keppnin var alveg ein­hliða.

Sumarbústaðaferð

Eitt sinn buðu Vera og maður hennar mér að koma með í sum­ar­bú­stað í viku. Börnin okkar voru þá orðin upp­komin og flutt að heiman og ég bjó í ágætri íbúð í næstu götu við mömmu.

Þetta var skemmti­leg vika en þegar mágur minn skrapp óvænt í bæinn einn seinni­part­inn og fram á næsta dag vegna vinnu, varð Vera þegj­anda­leg og vildi bara liggja í sóf­anum og lesa. Mér var sama og fór ein í göngu­ferð­ina sem við höfðum ætlað saman í. Ég hit­aði síðan upp afganga handa okkur og kvöldið var rólegt. Þegar ég vakn­aði næsta morgun heyrði ég að hún var sýsla í eld­hús­inu, hita kaffi og annað. Ég bauð góðan dag og dreif mig í snögga sturtu. Þegar ég kom fram sat hún við borðið með kaffi­bolla og ristað brauð og var að lesa. Hún hafði búið til kaffi, fengið sér, skolað könn­una og slökkt á henni, ásamt því að ganga vand­lega frá brauði og áleggi inn í ísskáp þótt hún vissi vel að örstutt væri í að ég kæmi fram. Það átti aldeilis ekki að stjana við stóru­systur. Ég fékk mér að borða og hellti upp á – en áður en ég gekk frá gat ég ekki stillt mig um að spyrja hana hvort hún vildi meira kaffi eða brauð, svona eins og eðli­legt fólk gerir. Hún þáði ábót á kaffið og hélt áfram að lesa. Þegar mað­ur­inn hennar kom breytt­ist hún og lék á als oddi.

Einhvern tíma fór ég með hjón­unum í helg­ar­ferð til London. Þetta var fín ferð, systir mín var óvenju­mild í fram­komu við mig. En þegar við vorum á heim­leið og ókum inn í hverfið okkar mömmu, sagði Vera sem sat undir stýri að þau hjónin ætl­uðu beint til mömmu í heim­sókn. Ég kæmi bara með þangað og færi þaðan gang­andi heim til mín til að ná í bíl­inn minn svo ég gæti sótt far­ang­ur­inn. „Ekkert mál,“ sagði ég hissa. En þá sagði mað­ur­inn hennar stór­hneyksl­aður: „Auðvitað keyrum við hana heim með tösk­urnar og förum svo í heim­sókn til mömmu þinnar. Hvaða vit­leysa er þetta?“ Vera herpti saman var­irnar og þagði, og ók sem leið lá heim til mín. Hún kvaddi varla.

Breytingar

Nokkru eftir lát mömmu flutti ég út á land. Ég elti ást­ina, má segja, en mað­ur­inn reynd­ist annar en hann virt­ist fyrst, svo sam­bandið stóð ekki lengi. Þá var ég orðin yfir mig hrifin af þessum bæ, fólk­inu þar og vinnu­staðnum svo ég fann mér góða íbúð þar á leigu.

Annað slagið skrapp ég til Reykja­víkur yfir helgi og í eitt skipti bað ég um gist­ingu hjá Veru systur sem þá bjó í Vest­ur­bænum, í göngu­færi við mið­bæ­inn.

Ég nýtti þessar helgar vel, heim­sótti börnin mín, fór í leik­hús, bíó, út að borða, á tón­leika. Vinkona mín sagði eitt sinn að ég gerði meira á einni helgi en hún á mörgum mán­uðum.

Systir mín er gest­risin en ég naut ekki sama við­móts og aðrir gestir hennar. Þegar ég gisti hjá henni hafði ég verið á síð­ustu stundu, færðin var slæm og ég hafði rétt tíma til að henda inn tösk­unni minni og snyrta mig örlítið áður en ég rauk út að borða og síðan út á lífið. Vera rétti mér úti­dyra­lykil áður en ég fór.

„Vera hafði sagt að ég ætti að sofa í sjón­varps­her­berg­inu svo ég paufað­ist þangað og kveikti á lampa.“

Við vin­kon­urnar skemmtum okkur vel og ég var ekki komin heim til Veru fyrr en rúm­lega þrjú um nótt­ina. Allt var dimmt og ég lædd­ist inn. Vera hafði sagt að ég ætti að sofa í sjón­varps­her­berg­inu svo ég paufað­ist þangað og kveikti á lampa. Ég átti von á að finna sæng og kodda á sóf­anum en þarna var bara þunnt teppi og nokkrir skraut­púðar. Ég lagði ekki í að læð­ast upp á efri hæð­ina í leit að rúm­fötum og vekja óvart heim­il­is­fólkið svo ég reyndi að koma mér fyrir með þetta.

Mér var ískalt þegar ég vakn­aði en náði að brjóta saman teppið og setja fínu púð­ana á sinn stað áður en aðrir komu á fætur. Vera spurði mig ekki einu sinni hvernig ég hefði sofið. Ég þakk­aði bara fyrir mig og dreif mig út.

Það hafði margt rifj­ast upp fyrir mér þennan morgun, eins og upp­á­búin rúm fyrir aðra gesti, t.d. bróður okkar sem bjó fyrir norðan. Ekki að ég hefði ætl­ast til þess að hún byggi um mig, það hefði bara verið sjálf­sagt að skilja eftir sæng og kodda ásamt sæng­ur­fötum. Þegar ég bjó fyrir norðan gistu hún og mað­ur­inn hennar hjá mér og ég bjó að sjálf­sögðu um þau í fína rúm­inu mínu, svaf á meðan í stof­unni sem mér fannst alveg sjálf­sagt.

Hæðnisbros eða geispi

Í gegnum tíð­ina hef ég auð­vitað sagt við Veru: „Af hverju læt­urðu svona?“ eða „Þetta var and­styggi­lega sagt!“ en þá er ég búin að missa húmor­inn, að hennar sögn. „Húmor“ sem hún notar sjaldn­ast þegar aðrir heyra til. Ef ég reyndi að telja allt upp sem hún hefur sagt eða gert, myndi það eflaust kosta leið­indi af hennar hálfu. Auk þess leyfir stolt mitt það ekki, ég vil ekki að hún viti að þetta snertir mig, ekki eftir öll þessi ár. Ég gæti sagt allt við vin­konur mínar, bara alla aðra, hreinsað and­rúms­loftið ef þyrfti, en það á alls ekki við um Veru. Hún vill á ein­hvern hátt smækka mig, eins og sanna fyrir mér að hún sé miklu klár­ari, flott­ari, sæt­ari og dug­legri en ég … sem hún eflaust er. Hvort hún er ein­fald­lega and­styggi­leg að upp­lagi eða með svona mikla minni­mátt­ar­kennd gagn­vart mér, veit ég ekki. Hún getur verið mjög kald­hæðin en aldrei á eigin kostnað, bara ann­arra.

Á yfir­borð­inu virð­umst við vera í góðu sam­bandi. Það er erfitt fyrir aðra að sjá nokkuð, hún gætir þess vel, og börnin mín dýrka hana. Hæðn­is­bros eða þreytu­legur geispi þegar ég er í miðri frá­sögn er alvana­legt. Þetta slær mig þó minna út af lag­inu en áður, ég hef alltaf haft ágætt sjálfs­traust og er orðin vön kvik­ind­is­legri fram­komu hennar. En sama hvort ég reyni að vera góð við hana eða svara henni fullum hálsi, virkar hvor­ugt. Svo er hún auð­vitað ekki alltaf leið­in­leg.

Ég hef frá­bært fólk í kringum mig, góða vini og ynd­is­lega ætt­ingja, og þyrfti ekki að svekkja mig á þessu. Ég geri það samt, þetta er systir mín og mig langar til að við séum vin­konur.

Líf­reynslu­saga úr Vikunni. Í hverri viku birt­ast spenn­andi lífs­reynslu­sögur. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í áskrift.

Fylgstu með Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Facebook. Lífs­reynslu­sögur er hlað­varp þar sem blaða­konan Guðrún Óla Jóns­dóttir les áhuga­verðar lífs­reynslu­sögur úr Vikunni. Í hverjum þætti eru fimm sögur lesnar. Þætt­irnir koma inn á Spotify og Storytel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vikan

Lífsreynslusaga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heilahimnubólgu og var hætt að þekkja mig
Fólkvikan

Lífs­reynslu­saga Mannlífs: Litla dóttir mín fékk heila­himnu­bólgu og var hætt að þekkja mig

Eftir að for­eldrar mínir skildu ákvað mamma að flytja með okkur systur út á land. Í kaup­staðnum bjó einnig æsku­vin­kona hennar sem átti tvær dætur. Þá eldri átti að gera að vin­konu minni og yngri að vin­konu systur minnar. Ég skynj­aði þó fljótt að eitt­hvað illt leynd­ist í þeirri systur sem mér var ætluð og við urðum aldrei vin­konur. Mörgum...
Heilinn gefur frá sér ástarhormón þegar við eldumst: „Gerir fólk sáttara við lífið og tilveruna“
Fólkvikan

Heilinn gefur frá sér ást­ar­hormón þegar við eld­umst: „Gerir fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una“

Við þekkjum hugs­an­lega gamlan mann eða konu sem réttir ætíð fram hjálp­ar­hönd með bros á vör. Þetta kann að tengj­ast því að heil­inn losar meira af efn­inu oxýtósíni í takt við hækk­andi aldur, ef marka má nýlega rann­sókn. Efni þetta sem gjarnan er kallað „ást­ar­horm­ónið“, virð­ist gera fólk sátt­ara við lífið og til­ver­una, auk þess að reyn­ast öðrum hjálp­legra. Ást­ar­hormón...
Tengsl mataræðis og þunglyndis – Leið til að hjálpa einstaklingum að styðja við geðheilsu sína
Fólkvikan

Tengsl matar­æðis og þung­lyndis – Leið til að hjálpa ein­stak­lingum að styðja við geð­heilsu sína

Óþarfi er að fjöl­yrða um mik­il­vægi heil­brigðs matar­æðis á heilsu og lík­am­legt atgervi fólks. Fyrir því liggur fjöldi rann­sókna. Rann­sóknir MooDFOOD-verk­efn­is­ins, sem Heil­brigð­is­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands er hluti af, benda hins vegar til að heilsu­sam­legt mat­ar­ræði hafi einnig mikið að segja um and­lega líðan okkar. Þung­lyndi er ein helsta orsök örorku í Evrópu. Þar til nú hafa nær­ing­ar­fræð­ingar haft tak­mark­aða getu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu