„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Hvað er það þegar tvær manneskjur stunda kynlíf og önnur hefur ekki áhuga?“ – „Nauðgun.“ MYNDBAND

„Hvað er það þegar tvær manneskjur stunda kynlíf og önnur hefur ekki áhuga?“ – „Nauðgun.“ MYNDBAND
Óskar túlkar „Fanney“ eftir Ingó.

Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson birti afar slá­andi mynd­band á TikTok; sveipað ákveðnum létt­leika og galsa, en und­ir­tónn­inn er þó kol­svartur og alvar­legur enda við­fangs­efnið ekk­ert grín: Nauðg­anir. Hann túlkar í mynd­band­inu – sem tvær per­sónur – text­ann við lagið „Fanney“ eftir Ingó Veðurguð. Eftir þá túlkun er lagið hreint ekki það „sama“ og áður. Óskar opnar texta lags­ins upp á gátt og kemst að kjarna þess.

Óskar starf­aði sem Ritari Sam­fylk­ing­ar­innar á árunum 2016 til 2018 og einnig sem leið­bein­andi hjá leik­skól­anum Hvammi í Hafn­ar­firði, en hann er Hafn­firð­ingur.

Óskar Steinn.

Í dag stundar hann nám í Stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands og ef hann ákveður að gera stjórn­mál að sínu aðal­starfi mun án alls vafa heyr­ast í honum svo eftir verður tekið; enda þekktur fyrir að hafa munn­inn fyrir neðan nefið og hefur á sínum póli­tíska ferli verið óhræddur að standa upp og gagn­rýna af hörku og með rökum ef honum mis­líkar eitt­hvað.

Svo gæti hann alveg lagt leik­list eða kvik­mynda­leik­stjórn fyrir sig – það sannar mynd­bandið; túlk­unin og leik­ur­inn: Upp á tíu.

Sjá einnig: Rakel var lengi kærasta Ingós Veð­urguðs: „Mér líður eins og ég hafi verið kýld í mag­ann“

Í mynd­band­inu leikur Óskar Steinn tvö hlut­verk – tvær per­sónur, (grein­ar­höf­undur gerir mun á þeim með töl­unum 1 og 2) – þann sem hlustar á lag eftir Ingó Veðurguð sem heitir Fanney og túlkar það sem hrein og klár skila­boð um að nauðg­anir séu í lagi, ef þær eru bara svona í „léttum“ dúr.

Í hinu hlut­verk­inu er Óskar í gervi manns sem er ekki að tengja við und­ir­tón­inn í texta Ingós alveg strax; þeir ræða saman og kom­ast síðan í raun og veru að einu eðli­legu útkom­unni; lagið vísar í nauðgun í þessum „létta“ dúr sem ein­fald­lega ekk­ert „létt“ er við – algjör­lega þvert á móti.

Sjá einnig: Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

Titill mynd­bands­ins, eða bara hrein og klár nið­ur­staða eftir túlkun á texta lags­ins, er svohljóð­andi:

„Vís­bend­ing­arnar voru þarna í lög­unum hans allan tím­ann… nei þýðir ekki „sann­færðu mig” btw“

Svo er hér bútur úr sam­tali Óskars 1 og Óskars 2 þegar þeir pæla í text­anum og túlka hann, en mynd­bandið fylgir með grein­inni:

Óskar 2: „Skemmti­legt lag.

Óskar 1: „Já, geggjað lag.

Óskar 2: „Hvernig er ann­ars aftur þessi texti? Ef þú hefur engan áhuga á mér máttu alveg þykj­ast fyrir mig.“

Óskar 1: „Hvað heitir það aftur þegar tvær mann­eskjur stunda kyn­líf og önnur hefur engan áhuga á því?“

Óskar 2: „Það er ekki það sem það þýðir.“

Óskar 1: „Hvað heitir það þegar önnur mann­eskjan vill ekki ríða en hin mann­eskjan þrýstir á hana með skila­boðum um að þykj­ast vilja það!?“

Óskar 2: „Nauðgun, það heitir nauðgun.“

Óskar 1: „Já, það heitir nauðgun.“

En sýn er texta rík­ari og mynd­bandið er hörð for­dæm­ing á kyn­ferð­is­áreiti og nauðg­unum.

Í lokin er hér texti lags­ins „Fanney“ eftir Ingó Veðurguð:

ég skal segja ykkur frá

stelpu sem ég sá í gær

það var inn á bar

við vorum nokkur þar í gær

okkur fannst það gott

að hún var svona flott í gær

ég var glaður að ég skyldi

finna hana í gær

hún bað mig um að semja lag

og syngja fyrir sig í dag

og núna er ég búinn að því

og hún veit hvað mig langar í

fanney -ey -ey

ekki segja nei, nei, nei,

því þú ert alltof heit, heit, heit.

fanney – fanney

lagið fjallar ekki um neitt

en samt er það jafn heitt og hún

mig dreymdi að í nótt

við læddumst niðrá miklatún

þú manst að segja já   

ef ég reyni að ná í þig       

en ef þú hefur engan áhuga

máttu alveg þykj­ast fyrir mig    

 hún bað mig um að semja lag  

og syngja fyrir sig í dag

og núna er ég búinn að því

og hún veit hvað mig langar í

fanney -ey -ey

ekki segja nei, nei, nei,

því þú ert alltof heit, heit, heit.

fanney – fanney!

 fanney -ey -ey

ekki segja nei, nei, nei,

því þú ert alltof heit, heit, heit.

fanney – fanney!

allt sem ég sagði þar

skiptir ekki máli í dag,

sannleikurinn er

ég sé þig als­staðar.

 fanney -ey -ey

ekki segja nei, nei, nei,

því þú ert alltof heit, heit, heit.

fanney – fanney!

 fanney -ey -ey

ekki segja nei, nei, nei,

því þú ert alltof heit, heit, heit.

Lag og texti: Ingó veðurguð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#METOO2

Þetta eru viðbrögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veðurguð er búinn að kæra mig“
Innlent#METOO2

Þetta eru við­brögð þeirra sem Ingó kærði: „Vaknaði bara við að Ingó veð­urguð er búinn að kæra mig“

Fyrr í dag var greint frá nöfnum þeirra fimm sem Ingólfur veð­urguð fékk lög­mann sinn, Vilhjálm H. Vil­hjálms­son, til að senda kröfu­bréf. Í þeim er farið á leit að við­kom­andi biðji Veð­urguð­inn afsök­unar á æru­meið­andi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miska­bætur og lög­fræði­kostnað. En það voru Edda Falak áhrifa­valdur, Sindri Þór Sig­ríð­ar­son Hilm­ars­son við­skipta­fræð­ingur,...
Vilhjálmur rís upp Ingó til varnar – Blaðamenn og áhrifavaldar verða kærðir
Innlent#METOO2

Vil­hjálmur rís upp Ingó til varnar – Blaða­menn og áhrifa­valdar verða kærðir

Blaða­menn, áhrifa­valdar og fólk sem hefur ásakað Ingó Veðurguð um refsi­verða hátt­semi mega eiga von á kæru eftir að lög­fræð­ing­urin Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son gekk til liðs við Veð­urguð­inn. Rík­is­út­varpið greindi frá þessu. Fimm verða að biðj­ast afsök­unar Kæran kemur í kjöl­far þess að Aðgerða­hóp­ur­inn Öfgar birti 32 nafn­lausar sögur sem fjöll­uðu um meint brot Ingó gegn fjölda kvenna. Sam­fé­lags­miðlar hafa...
Ólöf afhjúpar skelfilega tölfræði: „Feðraveldið notar þetta hinsvegar sér til rökstuðnings“
Innlent#METOO2

Ólöf afhjúpar skelfi­lega tölfræði: „Feðra­veldið notar þetta hins­vegar sér til rökstuðn­ings“

Ólöf Tara Harð­ar­dóttir, einka­þjálf­ari, hefur verið áber­andi í seinni bylgju MeToo bylt­ing­ar­innar hér á landi, þar sem hún hefur barist ötul­lega gegn ofbeldi á konum. Nú á dög­unum birti Ólöf færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún fer meðal ann­ars yfir tölur til­kynntra nauð­gana, hve margar þeirra fari að jafn­aði fyrir dóm og hlut­fall sak­fell­inga. Tara segir að talið...
Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reðurguðinn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”
Innlent#METOO2

Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt”

Mikið hefur verið bent á það að þolendur komi ekki fram undir nafni í tengslum við hina svo köll­uðu Meetoo bylt­ingu og virð­ist fólk alls ekki skilja af hverju þolendur eða meintir þolendur kjósi nafn­leynd. Á þessu er engin breyt­ing ef horft er til fjölda mála sem upp hafa komið í tengslum við þekktan tón­list­ar­mann, Ingó Veðurguð. Nú hefur Andrea...
Anna og Elísa fullyrða að Ingó Veðurguð hafi verið bannaður í félagsmiðstöðvum – Sjáðu svar Samfés
Innlent#METOO2

Anna og Elísa full­yrða að Ingó Veðurguð hafi verið bann­aður í félags­mið­stöðvum – Sjáðu svar Samfés

Tvær konur hafa stigið fram í opnum færslum á Facebook og tjáð sig um meint brot Ingólfs Þór­ar­ins­sonar eða Ingós Veð­urguðs. Í færslum kvenn­anna kalla þær meðal ann­ars eftir því að Samfés stígi fram og stað­festi það sem þær og fleiri eru að segja, að Ingó hafi verið bann­aður á skemmt­unum á þeirra vegum vegna ósæmi­legrar hegð­unar í garð ungra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins