„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hanna Katrín Friðriksson: „Þegar ég var krakki þurftu foreldrar mínir að safna réttum á borðið“

Hanna Katrín Friðriksson: „Þegar ég var krakki þurftu foreldrar mínir að safna réttum á borðið“
Hanna Katrín Frið­riks­son mat­væla­ráð­herra

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er hin stór­snjalla Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, en hún ætlar að deila með okkur sínum mat­ar­hefðum og upp­á­halds­réttum.

„Pabbi minn var danskur og mat­ar­hefðir á æsku­heim­ili mínu í Breið­holti tóku mið af því. Ég ólst til dæmis upp við jóla­hlað­borð með fjöl­skyld­unni löngu áður en það varð alsiða í íslensku jóla­haldi. Ég held enn í þann sið að á annan í jólum er jóla­hlað­borð með fjöl­skyld­unni. Þegar ég var krakki þurftu for­eldrar mínir að safna réttum á borðið svo vikum og jafn­vel mán­uðum skipti þar sem vinir og ætt­ingjar sem áttu leið til Dan­merkur voru beðnir að kippa ein­hverju góðu með sér á jóla­hlað­borðið. Stundum lög­lega, oftar samt ekki. Svo var þetta geymt eins og gull þar til kom að jólum. Nú orðið fæst þetta meira og minna hér heima, en það er samt sitt­hvað sem ég reyni að sækja sér­stak­lega til föð­ur­lands­ins.“

Hrifnari af for­réttum
Hönnu þykir ferskur og léttur matur bestur og er til dæmis hrifn­ari af for­réttum en aðal­réttum og pantar gjarnan tvo slíka á veit­inga­stöðum. Hún seg­ist hins vegar ekki geta borðað mjúkan mat eins og til dæmis búð­inga eða grauta. „Ég ræð varla við kart­öflumús ef það eru ekki kart­öflu­bitar í henni.“

Hanna Katrín á sér marga góða rétti, en flestir eiga það sam­eig­in­legt að vera ein­hvers konar fisk­meti. Hörpu­skel á stein­selju­beði er hennar allra mesta upp­á­hald.

„Ég bragð­aði rétt­inn fyrst fyrir mörgum árum í Moggamat­ar­klúbbnum mínum, en hann skipar vina­hópur sem kynnt­ist á rit­stjórn Morg­un­blaðs­ins fyrir lif­andi löngu. Einn úr klúbbnum, Stein­grímur Sig­ur­geirs­son, hafði þá fengið rétt­inn á veit­inga­staðnum Lameloise í Búrgúnd­ar­hér­aði í Frakk­landi. Upp­skrift­ina fengu þau hjón, Stein­grímur og María, svo í upp­skrifta­bók stað­ar­ins. Þau reka Vinotek.is og þaðan er upp­skriftin fengin, þó ég kunni hana reyndar utan að enda er hún mikið notuð á mínu heim­ili. Gald­ur­inn er að nota heilan hell­ing af stein­selju til að búa til maukið. Svo mælir Stein­grímur með góðu Chardonnay-víni, helst Búrg­und­ar­víni, með rétt­inum. Ég hlýði því alltaf!“

Konan mín er frá­bær kokkur
Hanna Katrín seg­ist vera ágætis kokkur þó svo að hún eldi samt eig­in­lega aldrei. Ástæðan er fyrst og fremst sú að Ragn­hildur, konan hennar, er bæði frá­bær kokkur og hefur mjög gaman af því að elda. Ragn­hildi finnst gott að slappa af við matseld­ina eftir langan og jafn­vel erf­iðan dag, en Hanna Katrín kýs frekar að fara út að hlaupa.

Þegar kemur að veisl­unum seg­ist Hanna Katrín vera: „mjög lík­leg til að leggja á borðið blini með sil­unga­hrognum, söx­uðum rauð­lauk og sýrðum rjóma. Ef ég hef tíma geri ég blini-ið sjálf, ann­ars kaupi ég það til­búið. Og svo er auð­vitað allra best að hafa gott freyði­vín eða kampa­vín með.“

Týpískur dagur í lífi Hönnu byrjar á því að hún fær sér gott og sterkt kaffi um leið og hún fer á fætur. „Hrökk­brauð með osti fylgir með ef ég hef tíma. Í hádeg­inu finnst mér best að borða eitt­hvað mjög létt og svo legg ég meira upp úr kvöld­matnum. En það er engin regla á þessu hjá mér og ég er langt frá því að vera vana­föst þegar kemur að mat.“

Hörpuskel á steinseljubeði

Upp­skrift:

  • hörpu­skel, stór og væn
  • 6 bréf af stein­selju
  • 1 dl rjómi
  • 100 g smjör
  • salt og pipar

Aðferð:

Hitið vatn í stórum potti. Bætið 1-2 teskeiðum af salti í vatnið. Þegar það bull­sýður er stein­selj­unni allri bætt út í pott­inn. Sjóðið í 4-5 mín­útur. Síið vatnið frá og skellið stein­selj­unni strax í kalt vatns­bað. Síið kalda vatnið frá og maukið stein­selj­una í mat­vinnslu­vél.

Hitið rjómann í potti. Þegar hann byrjar að sjóða er hit­inn lækk­aður og smjör­inu hrært saman við. Þegar smjörið hefur bráðnað í rjóm­anum er stein­selju­m­auk­inu hrært saman við. Bragðið til með salti og pipar.

Steikið hörpu­skel­ina í 2-3 mín­útur á hvorri hlið á pönnu. Saltið og piprið.

Setjið stein­selju­m­aukið á diska og hörpu­skel­ina ofan á. Ég set 3-4 á hvern disk, fer eftir stærð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Matgæðingur Mannlífs

Matgæðingur Mannlífs: „Aldrei að vita nema eldri fjölskyldumeðlimir eigi Raclette-grill“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Mat­gæð­ingur Mannlífs: „Aldrei að vita nema eldri fjöl­skyldu­með­limir eigi Raclette-grill“

Íris Ellen­berger er þekkt sem bæði bar­áttu­kona og fræði­kona, sem er jákvætt því það er ekk­ert verra en þegar ófróðir taka slag­inn. Íris er fædd og upp­alin á Íslandi, en faðir hennar og ætt­ar­nafnið eiga rætur sínar að rekja til Sviss sem rómað er fyrir horn­rétt fólk og ofur­skipu­lagt, en þaðan kemur líka Raclette sem er svo­lítið mót­sagna­kennt, því þar...
Líf Magneudóttir: Ég er liðtækur aðstoðarkokkur og held manninum mínum félagsskap með masi“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Líf Magneu­dóttir: Ég er lið­tækur aðstoð­ar­kokkur og held mann­inum mínum félags­skap með masi“

„Þegar ég var hjá ömmu minni Íbí sem krakki þá tók hún á það ráð að koma ofan í mig fiski með því að búa til rétt­inn Surtsey! Þá stapp­aði hún saman fisk, kart­öflur og smjör og bjó til fjall úr því. Síðan bjó hún til holu í mitt fjallið og lét leka tómatsósu niður „hlíð­arnar“. Þetta kall­aði hún Surtsey...
Kolbrún, eigandi Jurtaapóteksins: „Matur sem leikur við öll skynfærin“
ViðtalMatgæðingur Mannlífs

Kolbrún, eig­andi Jurta­apó­teks­ins: „Matur sem leikur við öll skyn­færin“

Kolbrún Björns­dóttir, eig­andi Jurta­apó­teks­ins, hefur starfað við grasa­lækn­ingar í 22 ár eða frá því að hún útskrif­að­ist úr grasa­lækna­skól­anum í Bret­landi árið 1993. Kolbrún er Mat­gæð­ingur Mannlífs, þessa vik­una. Við spurðum Kolbrúnu hvort hún ætti sinn upp­á­halds­rétt. „Upp­á­halds­réttur minn, vá, það er ekk­ert auð­velt að finna einn sér­stakan. Ég hugsa að ann­að­hvort sé það matur sem minnir mig á æsk­una...
Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar uppskriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferðast“
ViðtalMatgæðingur Mannlífs

Júlía – Lifðu til fulls: „Nýjar upp­skriftir spretta upp í hvert skipti sem ég ferð­ast“

Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una er Júlía Magn­ús­dóttir, hjá Lifðu til fulls – heilsu­m­ark­þjálfun. Lifðu til fulls hjálpar konum að öðl­ast breyttan lífs­stíl og finna hvað lík­am­inn getur verið orku­mik­ill þegar hann er laus við óþarfa syk­ur­þörf allan sól­ar­hring­inn. Þér á að líða vel í eigin skinni og er útkoman fyrir marga þyngd­ar­tap, en það er alls ekki alltaf aðal­mark­miðið. Góðar...
Ásdís fasteignasali: „Elskar litríkan og hollan mat“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Ásdís fast­eigna­sali: „Elskar lit­ríkan og hollan mat“

Ásdís Ósk Vals­dóttir, fast­eigna­sali og lífs­stíls­gúrú, gjör­breytti mat­ar­venjum sínum og borðar nú 90% „clean“. Ásdís er mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una og fengum við að skyggn­ast aðeins inn í hennar dag­lega líf. „Ég set reglu­lega mat­seð­il­inn minn inn á Instagram-síð­una mína til að gefa fólki hug­myndir að dags­plan­inu. Ég átt­aði mig á því að ef ég setti ekki upp mat­seðil fyrir...
Vigdís Erla: „Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti“
InnlentMatgæðingur Mannlífs

Vigdís Erla: „Ég festi mig ekki í rútínu og finnst gaman að breyta til og prófa nýja hluti“

Mannlíf heyrði í Vigdísi Erlu Rafns­dóttur sem er mik­ill mat­gæð­ingur og hefur í raun verið það síðan að hún man eftir sér, hún er Mat­gæð­ingur Mannlífs þessa vik­una. „Litla ég, end­aði oftar en ekki í eld­hús­inu sem gestur star­andi á mat­ar­gerð heim­il­is­manna, enda get ég gleymt mér í youtube glápi ef ég dett inn á ein­hverja skemmti­lega mat­ar­rás.“ „Ég á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins