„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eitt flottasta brugghús landsins – Hovdenak Distillery

Eitt flottasta brugghús landsins – Hovdenak Distillery

Hákon Freyr Freysson og Brynja Hjalta­lín eru fólkið á bak við eitt flottasta brugg­hús lands­ins, Hovdenak Distill­ery.


Fyr­ir­tækið var stofnað 11. októ­ber árið 2018.
Tæpu ári síðar, í apríl 2019, fengu þau hús­næði í Hafn­ar­firði og þar er verk­smiðjan nú.
Húsnæðið þurftu þau að taka í gegn, en það vafð­ist ekki fyrir Hákoni, sem er sann­kall­aður þús­und­þjala­smiður.

Þá segir Brynja frá því að Hákon hiki ein­fald­lega ekki þegar hann fær góðar hug­myndir. Hvað þá þegar þarf að laga eða hrinda ein­hverju í fram­kvæmd.

„Hann fær oft hug­mynd og svo sé ég hann bara nokkrum klukku­stundum síðar,“ segir Brynja og glottir.
Þá er Hákon oftar en ekki búin að fram­kvæma það sem hann ætl­aði að taka sér fyrir hendur og alltaf er vandað til verka.
Allar vélar, tæki og brugg­húsið í heild sinni er hannað og sett upp af eig­end­unum.
Hovdenak Distill­ery er með full­komn­ari brugg­húsum lands­ins og margir góðir vinir þeirra komu að verk­efn­inu.
Þá hefur Hákon fengið beiðnir um að smíða og hanna brugg­hús erlendis.


Fram­kvæmda­gleði Hákonar hefur heldur betur borgað sig því Hovdenak Distill­ery fær hver verð­launin á fætur öðrum, og það á stuttum tíma.

Eftir nokk­urra ára til­raunir kom fyrsta og hin full­komna vara í ljós, Stuðla­berg gin.

Prufuflaska af Stuðla­bergi var send til meist­ar­ans Henriks Hammer í Danmörku til smökk­unar, þar sem hún var fljót­lega sam­þykkt, og byrj­aði þá bolt­inn að rúlla.
Hákon Freyr hafði fram­tíð­ar­sýn og sá tæki­færi til að nýta þekk­ingu sína og reynslu í vín­fram­leiðslu og rekstri.
Því varð til sá draumur, að hanna eigin vöru og fram­leiða, að veru­leika og gott betur en það.

Í ágúst 2020 hlaut Stuðla­berg gin gull­verð­laun í World Gin Awards, sem er ein stærsta keppni sinnar teg­undar í heim­inum í dag. Stuðla­berg fékk einnig gull­verð­laun í Sviss og hlaut 94 stig af 100 mögu­legum í International Drinks Specialists. Þar með er Stuðla­berg gin mest verð­laun­aða gin sem fram­leitt er á Íslandi í dag.

Þá vann Loki vodka til gull­verð­launa í Sviss fyrr á árinu í keppn­inni International Drinks Specialists. Loki fékk frá­bæra umsögn og 95 stig af 100 mögu­legum.

Rökkvi er kaffi­líkjör­inn þeirra, sem unn­inn er úr hágæða kaffi­baunum frá Te og kaffi. Eins og þeim einum er lagið unnu þau til enn einna verð­laun­anna og hreppti Rökkvi gull­verð­laun í heims­meist­ara­keppni líkjöra fyrr á árinu.

Síðast en ekki síst fékk Hvít­serkur romm 94 stig af 100 mögu­legum frá International Drinks Specialists. Jafn­gilda 94 stig gull­verð­launum.
Dóm­nefnd­ina skipa sér­fræð­ingar víðs vegar að úr heim­inum.

Vörur Hovdenak Distill­ery hafa ekki bara vakið athygli vegna gæða og verð­launa.
Ljóst er að ekki síður hefur verið vandað til verka þegar kemur að hönnun, útliti og ramm­ís­lenskum heitum var­anna.


Vörurnar má nú finna víðs vegar um allan heim.
Rökkva kaffi­líkjör og Loka má til dæmis finna um borð í franska lúx­us­skemmti­ferða­skip­inu Ponant.
Þá hafa þau hjón fengið heim­sókn frá Frökk­unum oftar en einu sinni og hefur orðið til gott sam­starf þeirra á milli.

Vörurnar má einnig nota í bakstur.

Rökkvi var gríð­ar­lega vin­sæll fyrir síð­ustu jól, sér­stak­lega í bakstur. Þá þótti þeim gríð­ar­lega vænt um að fá fólk í heim­sókn í Hafn­ar­fjörð­inn.
„Þá komu sumir með sörur til okkar að leyfa okkur að smakka,“ segir Hákon og bætir við að Rökkvi hafi verið not­aður í allar mögu­legar upp­skriftir.

Þau Hákon og Brynja hafa frá ýmsu skemmti­legu að segja. Allt frá því hvernig hug­myndin að Hovdenak Distill­ery varð til og brugg­un­inni að fróð­leik ýmiss konar um þetta allt saman.
Þessi hlýju og skemmti­legu hjón hafa í nógu að snú­ast en einnig hafa þau tekið á móti litlum hópum til sín í bruggverk­smiðj­una. Þar fær fólk að smakka á fram­leiðsl­unni og, að sjálf­sögðu, heyra sögur.
Aðstaðan er hin glæsi­leg­asta og sjón er svo sann­ar­lega sögu rík­ari.

Hovdenak Distill­ery er nú í sam­starfi með þeim Erni Erlings­syni og Grétari Matth­í­assyni sem eru að hefja nýja mat­reiðslu­þætti á vef Mannlífs í dag. Bera þætt­irnir nafnið Þarf alltaf að vera vín ?
Þá hefur þeim tek­ist ein­stak­lega vel að breyta týpísku mat­reiðslu­þáttum sem allir þekkja í afslappað og nútíma­legt skemmti­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Matur og vín

Heimsfrumsýning á snjallvínkæli – Stóreldhússýning Bako Ísberg
Mannlífið

Heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæli – Stór­eld­hús­sýn­ing Bako Ísberg

Í til­efni af Stór­eld­hús­sýn­ingu Bako Ísberg sem fram fer dag­ana 4. -5. nóv­em­ber verður heims­frum­sýn­ing á snjallvínkæl­inum ECELLAR 185 frá La Sommeliére hér á Íslandi, en kælir­inn er fyrsti vín­kælir sinnar teg­undar sem hugsar fyrir þig og auð­veldar vín­a­huga­mönnum lífið. Eftir margra ára þróun varð hug­myndin af snjalla vín­kæl­inum ECELLAR loks­ins að veru­leika en hug­mynda­fræðin er þannig að hver hilla...
Hafrar með bönunum og hnetusmjöri
Mannlífið

Hafrar með bön­unum og hnetu­smjöri

Þessi morg­un­verður er algjör orku­bomba sem snið­ugt er að útbúa kvöld­inu áður. Fljót­legt, hollt og bragð­gott 1/2 með­al­stór ban­ani, stapp­aður 2 mat­skeiðar hnetu­smjör 1/4 bolli fitu­laus grísk jógúrt 3/4 bolli möndlu­mjólk 1 mat­skeið hun­ang 1 tsk vanillu­dropar (má nota stevíu) 1 bolli trölla hafrar 1 mat­skeið chia fræ 1 tsk kanill Aðferð Stappaðu fyrst 1/2 ban­ana og settu í skál....
Mjúkar súkkulaðibitakökur – forskot á aðventubaksturinn
Mannlífið

Mjúkar súkkulaði­bita­kökur – for­skot á aðventu­bakst­ur­inn

Upp­skriftin af hinum full­komnu mjúku súkkulaði­bita­kökum er fundin! 150 g mjúkt smjör 150 g púð­ur­sykur 1 egg 1 tsk vanillu­dropar 180-200 g hveiti ½ tsk lyfti­duft 200 g súkkulaði­bitar eða saxað súkkulaði Aðferð Þeytið saman smjör og sykur þar til það er orðið mjög létt og loft­kennt. Bætið við rest­inni af hrá­efnum og hrærið. Til að fá besta bragðið skaltu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður