„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Giggari eitthvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnumarkaði“

„Giggari eitthvað sem hefur verið til lengi en höfum kallað það annað – Ný staða á vinnumarkaði“
Harpa Magn­ús­dóttir, eig­andi Hoobla.is

Árið 2020 var 33% vöxtur á svoköll­uðum „gigg­störfum“ á heims­vísu og sam­kvæmt rann­sókn McKinsey myndi einn af hverjum sex starfs­mönnum í hefð­bundnu starfi helst vilja starfa sjálf­stætt.

Spár gera ráð fyrir gíf­ur­lega hröðum vexti gigg-hag­kerf­is­ins á næstu árum.

„Það má segja að það sé komin upp ný staða á vinnu­mark­aði,“ segir Harpa Magn­ús­dóttir sem er stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Hoobla klas­ans, sam­fé­lag gigg­ara á Íslandi og bætir við:

„Við heyrum í fréttum að það sé mikil hreyf­ing á vinnu­mark­aði um þessar mundir og fólk er að skipta um störf, mögu­lega vegna þess að fjar­vinnan í Covid hefur skapað betra jafn­vægi milli vinnu og einka­lífs og það finnur að það vill í auknum mæli stjórna tíma sínum sjálft.“

Þá var rætt var við Árelíu Eydísi og Herdísi Pálu í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 um sama efni.

Árelía Eydís Guð­munds­dóttir dós­ent við Háskóla Íslands og Herdís Pála Páls­dóttir fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs- og mannauðs­stjóri hjá Deloitte á Íslandi Völ­und­ar­hús.is

Árelía Eydís Guð­munds­dóttir dós­ent við Háskóla Íslands og Herdís Pála Páls­dóttir fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs- og mannauðs­stjóri hjá Deloitte á Íslandi sendu nýverið frá sér bók­ina Völ­und­ar­hús tæki­fær­anna.

Þar fjalla þær um bylt­ingu svo­nefndra gigg­ara á vinnu­mark­aði. Þær segja þjóð­ina standa á áhuga­verðum og ögrandi tíma­mótum á vinnu­mark­aði og að tæknin hafi sjaldan stutt ein­stak­linga jafn vel í að selja þjón­ustu sína og þekk­ingu.

„Fyr­ir­tæki taka æ stærri skref í staf­rænni bylt­ingu til að bæta þjón­ustu, auka hraða, minnka sóun og fleira. Það eru þessir gigg­arar sem við erum að ræða um, fólk sem kemur inn í fyr­ir­tæki og tekur að sér ákveðin verk­efni.“

Spennandi fyrir bæði launþega og fyrirtæki

Herdís og Árelía hafa haldið nám­skeið þar sem mark­miðið er að end­ur­for­rita huga fólks og hrista upp í því. Þar er farið yfir það til dæmis hvernig á að koma sér á fram­færi, hvernig á að halda utan um verk­efni og ýmis­legt í þeim dúr:

„Árelía nefndi áðan orðið hug­rekki og það er gott orð.

Ef við snúum þessu við og horfum á fyr­ir­tækin og stjórn­endur held ég að þetta sé líka gott því það getur þurft hug­rekki til að vera stjórn­andi á vinnu­stað og þurfa að breyta um stjórn­un­ar­að­ferðir,“ segir Herdís.

„Það er oft talað um að þetta sé spenn­andi fyrir ein­stak­ling­ana en þetta er líka fyrir fyr­ir­tæki. Við vitum að verk­efna­á­lag er mis­mikið eftir árs­tíma á mörgum vinnu­stöðum og það er mik­il­vægt að hafa aðgengi að öfl­ugum hópi gigg­ara til að kalla inn þegar það er mikið álag, án þess að fara í lang­tíma­ráðn­ing­ar­sam­band.“

Hoobla.is/Skjáskot/VÍSIR

Sífellt fleiri möguleikar

Í skrif­unum byggja þær á rann­sóknum sem hafa verið gerðar erlendis líka:

„Rann­sóknin sem við gerðum hér heima tók svo sem ekki mörg ár, en við gerðum rann­sókn meðal þeirra sem eru að gigga og og töl­uðum líka við stjórn­endur í stórum íslenskum fyr­ir­tækjum og for­ystu­menn stétt­ar­fé­laga,“ segir Árelía.

Herdís segir að orðið gigg­arar virð­ist strjúka sumum öfugt og ein­hverjir eigi erfitt með að skilja hvað í því felist.

„Við höfum verið að nota verk­taki og sjálf­stætt starf­andi, en nú er komið orðið gigg­ari,“ segir hún og lýsir giggi sem afmörk­uðu tíma­settu verk­efni.

„Það er vel skil­greint og hefur upp­haf og endi, þannig að gigg­ari er kannski eitt­hvað sem hefur verið til mjög lengi en við höfum kallað það annað.“

Sífellt eru að opn­ast fleiri mögu­leikar fyrir gigg­ara og vinnu­veit­endur að þiggja þjón­ustu þeirra.

Það er allt í lagi að taka allskonar u-beygjur

„Það er mestur vöxtur í þessum störfum. Einn þriðji af japönskum vinnu­mark­aði eru gigg­arar og þeir eru orðnir fleiri en opin­berir starfs­menn í Bret­landi,“ bendir Herdís á.

Einnig sé mik­ill vöxtur í Banda­ríkj­unum og rúm­lega 15 pró­sent af erlendum vinnu­mark­aði þar í landi séu sjálf­stætt starf­andi gigg­arar.

Titill bók­ar­innar er sem fyrr segir Völ­und­ar­hús tæki­fær­anna og í því er hægt að fara bæði fram og til baka sam­kvæmt höf­undum.

„Þú ert ekk­ert alla ævi laun­þegi eða gigg­ari, þú getur blandað þessu saman eða verið tíma­bundið laun­þegi og svo gigg­ari og fram og til baka,“ segir Herdís.

„Þetta er ekki þannig að þú menntar þig, ferð í ákveðið starf og svo á eft­ir­laun. Það er allt í lagi að taka alls­konar u-beygjur og krúsídúllur, það er skemmti­legt. Við getum nýtt reynslu úr einu fagi í allt annað fag, með því bara að finna hvaða elem­ent það eru í fyrri störfum eða námi sem hægt er að nýta ann­ars staðar.“

Að þeirra sögn á þetta þó mis­vel við eftir greinum, en þó mun víðar en margir halda.

Enginn getur sagt þeim upp

Sum ótt­ast að fara úr öryggi „stabílu“ 9 til 5 vinn­unnar í gigga­starf þar sem þau sjá fyrir sér að verða í lausu lofti.

Árelía segir að þetta krefj­ist ákveð­innar hæfni og jafn­vel hug­rekki sem ekki sé kennd í skólum, en líka þess að fólk sé skipu­lagt.

„Giggari þarf að kaupa af öðrum gigg­urum alls­konar þjón­ustu, mark­aðs­setn­ingu, end­ur­skoð­anda, tækni­leg úrvinnslu­efni. Þú þarft að verða eins og semí fyr­ir­tæki utan um sjálfan þig, en líka hafa hæfni til að tengj­ast fólki og skipu­leggja þig þannig að þú sért ekki bara einn úti í horni og skríðir svo úr hell­inum þínum,“ segir hún.

Það fær­ist í auk­ana að fólk vinni ólík störf í sam­eig­in­legum vinnu­rýmum þar sem það hefur félags­skap frá öðrum:

„Við þurfum öll á því að halda að fá að kasta hug­myndum á hvert annað því þannig í raun erum við meira skap­andi.“

Herdís tekur undir og bendir á að sumir þátt­tak­endur í þeirra rann­sókn hafi bent á að þeir hafi aldrei upp­lifað eins mikið öryggi og þegar þeir fóru að vinna hjá sjálfum sér:

„Því það gat eng­inn sagt þeim upp,“ segir hún.

Bætir við:

„En þetta er ekki ein­falt og hentar ekki öllum, en fyrir þá sem fara af stað og gera þetta vel og nýta allt sem Árelía segir, er það reynsla þeirra sem hafa verið að gigga, og jafn­vel gigga um ára­bil, að ánægjan var mikil. Menn voru búnir að ná að skapa sér öryggi og tekju­flæði og eins og einn sagði: Ég ræð hvar ég er hverja stund og hvað ég er að gera.“

Í völ­und­ar­húsi tæki­fær­anna fel­ast ýmis tæki­færi, margir geta til að mynda farið erlendis, unnið hvar sem er, hvenær sem er og með hverjum sem er á mark­aðs­torgi þekk­ingar að sögn Árelíu.

Hún bendir á mik­il­vægi þess að gigg­urum séu tryggð veik­inda­rétt­indi þrátt fyrir skamm­tíma­ráðn­ingu:

„Við þurfum að finna gagn­kvæman ávinn­ing í öllu þessu.“

Hoobla klasinn íslenskt fyrirtæki til að efla tengslamyndun giggara

Ljós­mynd­ari: Silla Páls

Harpa Magn­ús­dóttir stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Hoobla klas­ans segir fjölgun gigg­ara í heim­inum hrein­lega bylt­ing­ar­kennda. Giggarar er fólk sem starfar sjálf­stætt en nýleg rann­sókn McKinsey sýnir að einn af hverjum sex starfs­mönnum langar helst til að starfa sjálf­stætt frekar en sem hefð­bund­inn laun­þegi. Fjar­vinnan skapar ný tæki­færi en eins er sístækk­andi hópur sem vill geta stjórnað sínum tíma betur sjálfur.

Hoobla ehf. var stofnað 17. júní 2021. Það þótti við hæfi að stofna fyr­ir­tækið á þeim degi þar sem Hoobla er sam­fé­lag sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem taka að sér verk­efni til skemmri eða lengri tíma. Hoobla aðstoðar fyr­ir­tæki og stofn­anir við að finna rétta aðil­ann í verk­efnið og er á sama tíma stuðn­ings­net fyrir sjálf­stætt starf­andi ein­stak­linga og fyr­ir­tæki.

Verkefnin eru að breytast – verkefni leggjast af og önnur verða til

Stefnan er að innan Hoobla sam­fé­lags­ins megi finna reynslu­bolta í bland við fólk með minni reynslu sem á það sam­eig­in­legt að brenna fyrir sér­kunn­áttu sinni. Þá geta þeir reynslu­minni unnið ýmist saman með þeim reynslu­meiri eða tekið að sér minni verk­efni og öðl­ast þá smátt og smátt reynslu. Því geta fyr­ir­tæki og stofn­anir fundið það sem þau leita að.

„Þegar ég fór að skoða þá þróun sem er að eiga sér stað á heims­vísu sá ég að störf gigg­ara eru í miklum vexti og þá taldi ég víst að störf gigg­ara yrðu næsta bylt­ing sem verður á vinnu­mark­aði. Ísland er ekk­ert öðru­vísi en önnur lönd, við viljum vera sam­keppn­is­fær á mark­aði og á meðan bæði fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar búa yfir þeirri þörf að vera í stöð­ugum vexti þá þró­ast mark­að­ur­inn áfram. Þróunin er í þessa átt. Verk­efnin eru að breyt­ast, sum verk­efni leggj­ast af og önnur verða til.“

Harpa segir Hoobla gagn­ast öllum teg­undum vinnu­staða, en þó sér­stak­lega smærri og milli stórum fyr­ir­tækjum og fyr­ir­tækjum í vexti.

„Þessir aðilar geta leitað til Hoobla, sér að kostn­að­ar­lausu, og Hoobla aðstoðar við að finna rétta aðil­ann í verk­efnið. Hoobla leit­ast við að bjóða fram fyrsta flokks sér­fræð­inga og tekur ávallt við­töl við þá sér­fræð­inga sem sækj­ast eftir að starfa með Hoobla og leitar með­mæla eftir að verk­efnum þeirra er lokið,“ segir Harpa.

Hoobla vinnur þó ekkert síður að því að efla tengslamyndun giggara:

„Þegar ég var með Hoobla á hug­mynda­stigi hitti ég marga sér­fræð­inga, stjórn­endur og gigg­ara til að skoða hvort það væri jarð­vegur fyrir Hoobla, og til­finn­ingin var þannig að ég fann að þetta var bara eitt­hvað sem ég varð að gera. Hug­myndin þró­að­ist áfram eftir því sem ég hitti fleira fólk og lend­ingin var að búa til klasa fyrir gigg­ara. Klasinn væri þá styðj­andi fyrir gigg­ar­ana, styddi þá áfram við að fá verk­efni, styddi þá áfram fag­lega, félags­lega og mark­aðs­lega.“

Harpa segir líka mik­il­vægt að Ísland fylgi með í þeirri þróun sem nú er í gangi á heims­vísu.

„Það má alveg segja að það sé bylt­ing í gangi á alþjóð­legum vinnu­mark­aði og gigg-senan og Hoobla eru partur af þeirri veg­ferð.“

Heimild:

Hulda G. Geirs­dóttir, Júlía Margrét, Ein­ars­dóttir, Rúnar Róberts­son. 2021, 16. sept­em­ber. Giggarar upp­lifa starfs­á­nægju og öryggi. Morg­un­út­varpið á Rás 2.

Rakel Sveins­dóttir. 2021, 16. des­em­ber. „Á heims­vísu fjölgar gigg­urum stór­kost­lega.“ Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Kvenleiðtogar hafa forskot í fjarvinnunni
Fólk

Kven­leið­togar hafa for­skot í fjar­vinn­unni

Eftir Ingrid Kuhlman Nú er ár liðið síðan stjórn­völd um allan heim hvöttu starfs­menn að vinna heima. Hvaða áhrif hefur heima­vinnan haft á starfs­menn? Dr. Mark van Vugt, pró­fessor í vinnu­sál­fræði við VU háskól­ann í Amster­dam, kann­aði það ásamt 30 alþjóð­legum kol­legum í fag­inu. Árs fjár­vinna ekki fagn­að­ar­efni „Fæstir líta á árs fjar­vinnu sem fagn­að­ar­efni. Flestir starfs­menn hafa upp­lifað bæði...
Póstdreifing segir upp 304 manns
Innlentatvinnumál

Póst­dreif­ing segir upp 304 manns

Póst­dreif­ing hefur sagt upp öllum 304 blað­berum sínum, og taka upp­sagn­irnar gildi 1. ágúst. Fyr­ir­tækið er í eigu Árvakurs, útgef­anda Morg­un­blaðs­ins og Torgs, sem gefur út Frétta­blaðið. RÚV greinir frá. Kristín Björk Ein­ars­dóttir fram­kvæmda­stjóri Póst­dreif­ingar segir að um end­ur­skipu­lagn­ingu sé að ræða og flestir verði ráðnir aftur í breyttu vinnu­fyr­ir­komu­lagi. Blað­ber­arnir eru á aldr­inum 15 ára og til átt­ræð­is­ald­urs, og...
Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tækifærið
Innlentatvinnumál

Viltu vinna með Þórólfi? – Hér er tæki­færið

Þórólfur Guðnason, sótt­varna­læknir, er einn umtal­að­asti maður árs­ins og það af góðu einu. Þórólfur hefur ásamt Víði Reyn­is­syni yfir­lög­reglu­þjóni hjá Rík­is­lög­reglu­stjóra og Ölmu Möller land­lækni staðið vakt­ina í COVID-19 heims­far­aldr­inum. Þau hafa áminnt þjóð­ina um reglur og hátt­semi í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og staðið sig að lang­flestra mati með góðum hætti. Fyrst í stað hélt þrí­eykið dag­lega upp­lýs­inga­fundi, sem síðan fækk­aði í...
Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt
Innlent

Sólveig Anna segir Hörð segja ósatt

Sólveig Anna, for­maður Eflingar, segir Hörð Ægisson, rit­stjóra Mark­að­ar­ins, segja ósatt í leið­ara hans í Frétta­blað­inu í dag. Í leið­ar­anum skrifar Hörður um mál Icelandair og þátt­töku líf­eyr­is­sjóð­anna í end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins. „Í árásar-leið­ara dags­ins í Frétta­blað­inu segir Hörður Ægisson í mik­illi van­still­ingu sinni ósatt,“ segir Sólveig Anna og segir eft­ir­far­andi full­yrð­ingu hans ranga. „Ákvörðun líf­eyr­is­sjóð­anna, sem komu síð­ast að end­ur­reisn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins