„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

17 ára og full af örvæntingu

17 ára og full af örvæntingu

Þegar ég loks­ins náði að koma mér af stað, sá ég að strætó­inn var við stoppi­stöð­ina mína.

Fyrir utan strætó­hurð­ina stóð maður sem horfði á mig og tók fast í hönd­ina á mér. Mér fannst það svo­lítið skrítið, en ég hugs­aði svo ekk­ert meira um það. Ég gekk inn og kom mér fyrir aft­ast. Þegar strætó­inn fór af stað horfði ég á mann­inn út um bak­glugg­ann. Hann virt­ist líta út fyrir að vera örlítið hærri þar sem hann stóð þarna einn á blautri gang­stétt­inni.

Hann leit út fyrir að vera nið­ur­dreg­inn. Var hann að gráta? Ég gat ekki lengur greint and­lit hans. Strætó­inn fór af stað og beygði svo fyrir horn og ég missti sjónar á honum. Ég sá hins vegar í hvaða hús hann var að fara. Við keyrðum í burtu og hann hvarf með öllu. Ég sett­ist aftur niður, en eng­inn tók eftir því að ég var að horfa á hann. Það lygndi og ég fór að sjá hraun­víð­átt­una eins langt og augað eygði. Rign­ingin hafði breytt lands­lag­inu og gert allt dekkra yfir­litum. Ég lok­aði aug­unum.

Við fengum alltaf greitt út í vinn­unni hvern föstu­dag. Þennan föstu­dag ákvað ég að fara í bæinn og kaupa mér eitt­hvað fal­legt. Áður en ég vissi, var ég nán­ast búin að eyða öllum pen­ingnum. Eftir bæj­ar­ferð­ina ákvað ég að fara með kvöld­strætónum þangað sem mað­ur­inn átti heima. Ég dingl­aði bjöll­unni og móðir hans kom til dyra. Hún spjall­aði við mig örstutt og vís­aði mér svo til hans upp í her­bergi. Í tvo daga var lífið bjart.

Einn morgun í vinn­unni tók ég eftir því að hann hefði sent mér tölvu­póst. Í póst­inum stóð ein­fald­lega að hann gæti ekki hitt mig næstu helgi. Hann sagð­ist ekki geta útskýrt af hverju, en hann myndi láta mig vita nokkuð fljót­lega.

Margar vikur liðu þar sem ég reyndi að ná sam­bandi við hann, en ég heyrði ekk­ert meira í honum. Svo loks­ins eitt föstu­dags­kvöld ákvað ég að fara að strætó­stöð­inni þar sem ég hafði séð hann fyrst. Ég beið og von­aði að ég myndi sjá hann, en aldrei kom hann.

Um kvöld eitt var bréfi rennt undir hurð­ina hjá mér. Í því stóð: „Ég á von á þér næsta laug­ar­dag. Ég elska þig.“ Það var allt og sumt.

Á föstu­deg­inum hljóp ég að stoppi­stöð­inni. Ég var mjög spennt, hann var búinn að biðja mig um að koma til sín. En hann kom ekki. Ég gat ekki beðið enda­laust, ég varð að fá að vita hvað hann vildi mér.

Þegar ég kom inn í húsið sat móðir hans í stof­unni og horfði á mig döpur. Hún bað mig um að setj­ast niður og rétti mér svo umslag. Bréfið var frá spít­al­anum, en hann hafði svipt sig lífi nokkrum dögum eftir að við hitt­umst síð­ast.

Grátur ómaði í her­berg­inu, en ekk­ert skipti máli lengur. Hann var graf­inn í lík­ama móður sinnar og grét.

Ég stóð upp og hélt niður göt­una ringluð, þegar ég fann að það er tekið í hönd­ina á mér. Við gengum þegj­andi í átt að strætó­stöð­inni. Við vorum 17 ára, full af örvænt­ingu, ófær um að elska okkur sjálf og hvort annað og lifa líf­inu.

Þegar ég opn­aði augun runnu regn­drop­arnir niður rúð­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynslusaga Mannlífs

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína
Menning

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sam­bandi við dóttur sína

Ég kynnt­ist Ósk þegar dætur okkar urðu góðar vin­konur í leik­skóla. Þótt hún flytti úr hverf­inu héldu dæt­urnar áfram að vilja hitt­ast og smám saman jókst vin­átta okkar mæðr­anna. Þegar stelp­urnar voru orðnar full­orðnar og vin­átta þeirra orðin að kunn­ings­skap, vorum við Ósk enn góðar vin­konur. Hún gat verið dásam­leg en lífið fór ekki mildum höndum um hana og smám...
Lífsreynslusaga Mannlífs – Fullkominn dagur fyrir sambandsslit: „Einmitt, já, hún er sæt“
InnlentLífsreynslusaga Mannlífs

Lífs­reynslu­saga Mannlífs – Full­kom­inn dagur fyrir sam­bands­slit: „Einmitt, já, hún er sæt“

„En hver á að fá múmín­boll­ana?“ Henni datt ekki neitt annað í hug til þess að segja, á þessum heita og sól­ríka júlídegi. Þau sátu hvort á sínum sól­bekknum með birt­una í and­litið og sól­gler­augu á nef­brodd­unum. Í loft­inu var dauf angan af rósarunna og fugl­arnir keppt­ust um að yfir­gnæfa hver annan með skrúð­ugum lag­línum. Tveir loðnir kettir lædd­ust um...
„Kjökrandi kjagaði ég með kúkinn minn heim“
InnlentLífsreynslusaga Mannlífs

„Kjökrandi kjag­aði ég með kúk­inn minn heim“

Sal­ern­is­að­staða á vinnu­stöðum er víða bág­borin. Glugga­laus rými í horni opinnar skrif­stofu. Þar sem hljóðin marg­fald­ast og magn­ast í dauða­þögn­inni. Lyktin á sér enga und­an­komu­leið nema að læð­ast inn í vit vinnu­fé­laga – sem lítt þurfa að geta sér til um hvaðan hún kemur. Eigin skíta­lyktin ku vera sæt en að deila henni og/eða búk­hljóð­unum forð­ast ég í lengstu lög...
Þegar ég neita mér um mat – Þá hungrar mig í meira sjálfsmat
Skoðun

Aðsend grein

Þegar ég neita mér um mat – Þá hungrar mig í meira sjálfs­mat

Að böggl­ast um með sjálfan sig í þessu lífi getur verið æði þungur burður. Lágt sjálfs­mat og brengluð sjálfsí­mynd eiga það til að skekkja. Upplifun og líðan helst ekki alltaf í hendur við raun­veru­leik­ann. Þegar ég mæti sjálfri mér fram­lágri suma morgna og bursta í mér tenn­urnar sýnir speg­il­myndin hvernig kinn­arnar á mér tútna út og augun sökkva undir þær....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins