„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigríður Eyþórsdóttir hefur unnið marga sigra í lífinu: „Við erum að lifa draum sem nú hefur ræst“

Sigríður Eyþórsdóttir hefur unnið marga sigra í lífinu: „Við erum að lifa draum sem nú hefur ræst“
Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Mannlíf ræddi við Sigríði Eyþórs­dóttur í byrjun apríl og birt­ist við­talið í kjöl­farið í blað­inu. Í til­efni dags­ins verður við­talið birt hér á vefnum í heild sinni.

„Við viljum standa okkur fyrir Ísland. Okkur þykir svo vænt um landið okkar. Við finnum fyrir svo mik­illi sam­stöðu og ég er svo stolt af tungu­mál­inu okkar. Það er eins konar „leynitungu­mál“. Þess vegna er svo gaman að fá að syngja þennan gull­fal­lega texta við lagið sem Lovísa samdi.“

Sigríður Eyþórs­dóttir sigr­aði í Söngvakeppni sjón­varps­ins árið 2022 ásamt systrum sínum, Elínu og Betu, og Eyþóri, bróður þeirra á trommum, með flutn­ingi sínum á lag­inu Með hækk­andi sól.

Sigríður Eyþórðs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck Stílisti: Íris Tanja Flygenring Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir Gleraugu frá Optical studio Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði

Á borð­inu er rjúk­andi kaffi og heitt súkkulaði og blaða­maður hlakkar til að hitta þessa áhuga­verðu konu og kynn­ast henni betur. Sigga hefur frá mörgu að segja og er til­búin til að deila með okkur sögum af helstu áskor­unum og sigrum hennar í líf­inu um leið og við ræðum söngvakeppn­ina og und­ir­bún­ing­inn fyrir Eurovision.

Við erum ótrú­lega spenntar. Þetta verður mikil vinna, en ég elska að vinna svona mikið

Síðustu dagar hafa verið ótrú­legir í lífi systr­anna: „Þessi keppni er stærra en allt sem við höfum gert áður. Ég hef alltaf horft á Eurovision, en ég hef aldrei kynnst heim­inum á bak við tjöldin. Við kapp­kost­uðum auð­vitað að koma þessu vel frá okkur. En okkur þótti líka vænt um að fá að kynn­ast öllu þessu fólki, bæði hinum kepp­end­unum og starfs­fólki RÚV. Það fór örugg­lega ekki fram hjá neinum að sig­ur­inn kom okkur á óvart. Núna tekur við mikil vinna og skemmti­legur und­ir­bún­ingur fyrir keppn­ina á Ítalíu. Svo er ótrú­lega gaman að lesa allar jákvæðu athuga­semd­irnar, flestar jákvæðar, en ekki allar, en gagn­rýnin á lagið okkar er sett fram á smekk­legan hátt á erlendum miðlum og Youtube. Þannig að við erum ótrú­lega spenntar. Þetta verður mikil vinna, en ég elska að fá að vinna svona mikið.“

Frá vinstri: Elín, Beta, Eyþór og Sigga. Aðsend mynd.

Það eru níu ár á milli Siggu og Elínar og fimm ár á milli hennar og Betu. „Elín er svo voða róleg. Ég er orku­meiri og með mikla ábyrgð­ar­til­finn­ingu, of mikla eig­in­lega, kannski af því að ég er elst. Beta er voða ljúf og oft­ast ofur jákvæð. Öll börn elska hana, en hún er einmitt að vinna í Hjalla­stefn­unni. Það á svo vel við hana. Auk þess erum við svo heppnar að hafa Eyþór litla bróður með okkur, hann er ótrú­lega klár söngv­ari og tón­list­ar­maður (á tromm­unum), en hann er sá yngsti í systk­ina­hópnum.

For­eldrar okkar ólu okkur upp við rétt­sýni í hugsun. Mamma er alltaf til­búin að berj­ast fyrir mál­stað minni­hluta­hópa. Ég er svo þakk­lát fyrir upp­eldið okkar. Þau hafa aldrei sett sig á neinn stall. Við erum bara partur af heild­inni og það breyt­ist ekki núna, þrátt fyrir þennan sigur. Við erum frekar jarð­bundnar oft­ast, en erum líka miklir sveim­hugar.

Þetta er minni­hluta­hópur sem er okkur mjög kær

Við til­einkum flutn­ing okkar mann­rétt­indum, sér í lagi trans-börnum. Ef við getum notað rödd okkar til þess að styðja við og vera rödd fyrir minni­hluta­hópa þá er ein­hverju náð. Við viljum vekja athygli á þörf fyrir bætta þjón­ustu við trans-börn, en það er há tíðni sjálfs­vígstil­rauna eða allt að 40%.

Snerti streng hjá mér

Sigga ólst upp í Miðbænum en flutti til Englands þegar hún var tveggja ára. Á þeim tíma var Eyþór, pabbi hennar, að gera það gott með Mezzoforte. „Við bjuggum þar í sirka tvö ár og komum svo aftur heim. For­eldrar mínir sögðu mér að ég hafi sungið frá því að ég var nokk­urra mán­aða gömul og spilað á píanó frá því að ég var sirka 5 eða 6 ára.

Við bjuggum í Miðbænum þangað til ég varð 10 ára, en þá fluttum við í Vest­ur­bæ­inn þar sem ég gekk í Haga­skóla. Þegar for­eldrar mínir fluttu síðan í Graf­ar­vog­inn varð ég eftir og fór að búa með þáver­andi kærasta mínum. Þegar ég var 16 ára fór ég út til Kaup­manna­hafnar sem au pair hjá Kikku (rit­höf­und­inum Krist­laugu Maríu Sig­urð­ar­dóttur) á meðan hún var að skrifa Ávaxta­körf­una. Það var ein­stök reynsla.“

Ég átti svo tvö börn í milli­tíð­inni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára

Nokkrum árum síðar eign­að­ist Sigga sitt fyrsta barn með æsku­ást­inni. „Ég fór í sjúkra­liða­nám þegar fyrsta barnið mitt var eins árs. Bókleg fög hafa aldrei höfðað mikið til mín svo að ég fór ekki í mennta­skóla. Ég hef alltaf haft mjög mik­inn áhuga á heil­brigð­is­vís­indum. En ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara í sjúkra­lið­ann var að ég hafði hugsað um ömmu mína sem var með krabba­mein. Hjúkr­un­ar­kon­urnar sem sáu um hana sögðu við mig: „Þú ert svo góð í þessu, þú ættir bara að fara að læra þetta.“ Það snerti ein­hvern streng hjá mér. Ég átti svo tvö börn í milli­tíð­inni og var því orðin þriggja barna móðir 25 ára þegar ég kláraði sjúkra­lið­ann og stúd­ents­prófið.“

Sigga gift­ist Þor­steini Ein­ars­syni, söngv­ara og gít­ar­leik­ara í Hjálmum. „Við eigum tvö ynd­is­leg börn saman. Þegar leiðir okkar skildu eftir langt sam­band var ég ein­stæð um tíma, þangað til ég kynnt­ist ynd­is­legum manni árið 2017. Hann er frá Banda­ríkj­unum og núna búum við hér á Íslandi og eigum eitt lítið örverpi saman.“

Sigga ásamt þremur sonum, dóttur og mann­inum sínum. Aðsend mynd.

Mikilvægt að rækta vitundarsamband við líkama sinn

„Eftir sjúkra­lið­ann fór ég í Lista­há­skól­ann og kláraði nám í tón­smíðum. Samhliða því stofn­aði ég hljóm­sveit­ina Sísý Ey með systrum mínum og vann að hinum ýmsu tón­list­ar­verk­efnum. Fyrir utan tón­list­ina hafa heil­brigð­is­mál alltaf verið mér hug­leikin, sem varð til þess að ég bætti við mig námi í einka­þjálfun. Það var frá­bært nám. En mig lang­aði að kafa dýpra og bæta and­lega þætt­inum inn í æfinga­kerfið. Ég er ekki ein­ungis að þjálfa fólk til þess að styrkja sig lík­am­lega, heldur finnst mér ekki síður mik­il­vægt að rækta vit­und­ar­sam­band og bera virð­ingu fyrir lík­ama sínum.

Það þýðir ekki að fara bara í megrun og refsa sjálfum sér stans­laust og vera bara: ég ætla að fara með þennan ógeðs­lega lík­ama sem ég hata í rækt­ina og þræla honum út.

Þannig að þegar ég kláraði námið í einka­þjálf­ar­anum fannst mér jóga vera rök­rétt næsta skref hjá mér. Ég fann mér jóga­kenn­ara og hef upp frá því stundað jóga næstum dag­lega. Andleg mál­efni hafa alltaf verið mik­il­vægur hluti af mínu dag­lega lífi.“

Sigga tók sér tíma­bundið hlé frá tón­list­inni þegar hún eign­að­ist sitt yngsta barn. Þegar Covid skall á ákvað hún svo að bæta við sig námi í hjúkrun. „Mig langar að auka þekk­ingu mína á heil­brigði til að geta hjálpað fólki að huga vel að sér. Ég hef í gegnum tíð­ina átt erfitt með sam­an­burð­inn sem fylgdi mér við að vera tón­list­ar­kona. Það var ekki alltaf upp­byggi­legt. Það getur verið erfitt að lesa gagn­rýni um sjálfan sig. Þú opin­berar þig svo rosa­lega í list­inni, þannig að það er auð­velt að taka nei­kvæðri gagn­rýni mjög per­sónu­lega.“

Ég við­ur­kenni alveg að mér sárn­aði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sig­ur­inn í Söngvakeppn­inni

Núna er Sigga aftur komin af stað með systrum sínum í tón­list­inni. Hún finnur fyrir miklum styrk og er til­búin til að helga sig alfarið þessu nýja verk­efni. „Það er vissu­lega erfitt að lesa óbil­gjarna gagn­rýni, sem manni finnst ekki sett fram af virð­ingu. Ég held að margir tón­list­ar­menn fái illt í hjartað og hætti jafn­vel í tón­list, því það getur verið svo erfitt að finna sjálfs­traustið þegar búið er að segja ósann­gjarna hluti. Auðvitað hefur fólk mis­mun­andi skoð­anir á því sem maður gerir, en sé gagn­rýnin ekki sett fram af virð­ingu þá getur það verið sárt. Ég við­ur­kenni alveg að mér sárn­aði þegar ég sá sumar athuga­semdir sem komu eftir sig­ur­inn í Söngvakeppn­inni. Ég staldr­aði hins vegar ekk­ert við það. Við erum sterkar saman syst­urnar og við erum með góðan hóp í kringum okkur sem heldur vel utan um okkur.“

Kvíði og áfengi er ekki góður kokteill

„Ég greind­ist seint með ADHD, rétt fyrir þrí­tugt, en hafði vitað lengi að ég væri lík­leg­ast með ADHD. Þegar ég hugsa til baka þá hefur þetta senni­lega verið fyrsta alvöru áskor­unin. Það hefur haft mikil áhrif á allt mitt líf. Maður er með hug­ann úti um allt og upp­lifir sig alltaf að vera að trufla. Sér­stak­lega í skóla­kerfi þar sem ætl­ast er til þess að maður haldi sig innan ákveð­ins ramma. Margir kenn­arar höfðu litla trú á mér og voru nei­kvæðir í minn garð.

Næsta stóra áskor­unin var að takast á við átröskun sem ég þró­aði með mér eftir að ég átti fyrsta barnið mitt. Ég fór í með­ferð við átröskun hjá Hvíta band­inu og vann mig út úr henni og verið í bata síðan 2015. Það var mjög stórt verk­efni fyrir mig, jafn­vel eitt það erf­ið­asta.“

Því næst tók við tíma­bil þar sem Sigga komst að því að hún átti ekki sam­leið með áfengi.  „Ég er oft að kljást við kvíða og þegar maður notar alkó­hól til að deyfa sig þá verður það fljótt víta­hringur. Kvíði og áfengi er ekki góður kok­teill. Kvíðinn bara eykst. Ég er því búin að vera edrú í tíu ár, fyrir utan nokkra mán­uði. Á þeim tíma hafa lífs­gæði mín auk­ist mikið. Hug­leiðslan og heil­brigt líf­erni hefur gjör­breytt öllu hjá mér. Ég gæti ekki hugsað eins vel um börnin mín og ég geri í dag ef ég hefði ekki látið af þess­ari sjálf­hverfu sem fylgir því oft að lifa óábyrgum og óheil­brigðum lífs­stíl að fara illa með áfengi.

Hjá mér sner­ist þetta um að átta mig á því að ég væri ekki upp­haf og endir á þessu öllu. Þó svo að ég muni kannski aldrei kom­ast að til­gang­inum með jarð­vist minni, þá þarf ég samt að trúa á það góða. Við erum öll bara sálir á ferða­lagi með mis­mun­andi ramma.“

Sigga segir: „Rask­an­irnar voru á end­anum mér í hag. Það truflar mig óneit­an­lega oft að vera með ADHD, en oft er það mér í hag.

Ég er líka mjög glöð að vera með ADHD, það er ekki bara áskorun, heldur hef ég áhuga á mörgu og vil alltaf læra meira. For­vitnin mín gerir það að verkum að ég hef mik­inn áhuga á öðru fólki. Ég hef enda­lausan áhuga á því að fræð­ast um nýja hluti. Ég get verið algjör­lega filt­ers-laus, sem getur oft verið fyndið og öðrum til skemmt­unar. Ofvirknin getur líka komið sér vel og hjálpað mér að vinna vel og vera dug­leg.

Ég hef alltaf upp­lifað mig vera verri en ég er og hef óskaði þess að vera ein­hvern veg­inn betri. Nú er ég bara þannig að ég næ að sam­gleðj­ast sjálfri mér og öðrum og vera með, í stað þess að bera mig alltaf saman við aðra.“

Ég er örugglega að koma úr erfiðu fyrra lífi

Frá vinstri: Eyþór Gunn­ars­son, Sigga Ey og Ellen Krist­jáns­dóttir. Aðsend mynd.

Sigga og syst­urnar eiga sér greini­lega marga aðdá­endur. Að borð­inu okkar á kaffi­hús­inu kemur fólk og óskar henni til ham­ingju með sig­ur­inn. Sigga þakkar fyrir sig af hóg­værð og ein­lægni og fjörugar sam­ræður fara af stað um flutn­ing­inn, lagið, Eurovision og stuðn­ing þeirra við trans-börn. Það er ljóst að til­hlökk­unin eftir keppn­inni í vor er mikil. Eftir áhuga­vert sam­tal um keppn­ina horfum við hvor á aðra og drögum and­ann djúpt. Svo tökum við upp þráð­inn að nýju og ræðum aðeins betur um kvíð­ann, sem Sigga segir að hafi hrjáð hana alla tíð.

„Ég held að ég hafi örugg­lega fæðst með kvíða. Ef ég tek þetta út frá jóga­heim­spek­inni þá er ég örugg­lega að koma úr erf­iðu fyrra lífi. Mamma og pabbi hafa alltaf talað um að ég hafi verið svo vör um mig þegar ég var barn. Svo gat ég líka verið svo hvat­vís, sem er kannski skrítið þegar maður er kvíð­inn. Ég fór bara í heim­sókn til fólks og treysti bara. Ég labb­aði bara inn. Ég trúði því að allir væru góðir, en svo var brot­ist inn til mín og öllu rænt.

Mér finnst góður eig­in­leiki að trúa því að allir séu góðir og ég vil ekki breyta því. Fyrst var ég svo­lítið hrædd eftir inn­brotið, því ég var ein heima með dóttur mína og ein­hver hefði getað gengið inn á okkur. En svo hugs­aði ég; þetta er bara fólk sem er að ströggla í líf­inu. Þetta er ekki minn sárs­auki, þetta er meira þeirra. Ég hafði líka hugsað fyrir inn­brotið að ég þyrfti að fara að losa mig við jakka og alls kyns föt, svo þau sáu bara um það fyrir mig. Ég vil ekki fest­ast í reið­inni og ég er ekki lang­rækin. Ég held að reiði sem til­finn­ing sé stundum nauð­syn­leg til þess að koma manni í gegnum erfið áföll svo maður gef­ist ekki upp. En svo þarf að gera hana upp, svo hún verði ekki að and­legu meini.

Ein stærsta áskor­unin sem ég hef lent í var þegar ég missti íbúð­ina mína eftir banka­hrunið og þurfti að flytja heim til mömmu og pabba og búa hjá þeim í þrjá mán­uði. Það var mjög mikið högg fyrir sjálfs­mynd­ina og ótt­inn við að geta ekki skapað börn­unum mínum betra líf var mik­ill. Ég trúði ekki að ég myndi missa heim­ili mitt. Ég er samt svo heppin að eiga ótrú­lega góða fjöl­skyldu sem stendur við bakið á mér og ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að eiga ekki í mig og á.

Hins vegar ýfði þetta áfall mjög upp kvíð­ann hjá mér. Að finna að ég væri ekki örugg sem ein­stæð móðir. Með tíð og tíma, og með hjálp alls þessa ynd­is­lega fólks sem ég hef í kringum mig, komumst við út úr þessu. Sem betur fer. Kvíðinn yfir því að hafa ekki nóg fyrir mig og börnin mín tók stundum yfir, en ég hef verk­færi til að takast á við það sem veldur mér kvíða.“

Þegar maður hefur mis­þyrmt lík­am­anum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni

Sigga átti sitt fyrsta barn tví­tug. Hún var hins vegar að nálg­ast 37 ára ald­ur­inn þegar hún átti fjórða barnið. „Munurinn á að eiga barn núna er sá að ég er ekki eins sjálf­hverf og þegar ég var tví­tug. Mér finnst ég ekki alltaf vera að missa af ein­hverju. Núna er ég við­kvæm fyrir því að missa svefn hahaha … Ég læt það ekki stoppa mig, en ég þarf að vera rosa­lega með­vituð um það. Það kemur líka út frá átrösk­un­inni, það er viss afteng­ing við lík­amann og virð­ing­ar­leysi. Þegar maður hefur mis­þyrmt lík­am­anum þá þarf maður að byggja sig aftur upp frá grunni með virð­ingu að leið­ar­ljósi.

Ég þakka sam­fé­lags­legum breyt­ingum hversu góðum bata ég hef náð. Og ég sé líka hvernig hug­ar­far mitt er orðið miklu betra. Mér finnst fjöl­breyti­leik­inn vera þannig að allir lík­amar eru fal­legir. Ég fagna því að fitu­for­dómar séu á und­an­haldi. Af því að ég er svo grönn þá fæ ég meira línur í and­litið. Ég get ekki einu sinni breytt neinu og húð­lækn­ir­inn minn sagði að það eina sem ég gæti gert til þess að fylla í hrukkur væri að bæta aðeins á mig,“ segir Sigga í gríni en seg­ist ekki vilja fara út í umræð­una um ald­urs­for­dóma. „Það er fal­legt að eld­ast og það er fal­legt að það sjá­ist að þú hafir lifað.

Mér finnst svo gaman að börnin mín fái að sjá mig fer­tuga að vinna Söngvakeppn­ina. Það sýnir þeim að maður getur allt sem maður vill. Þau eru búin að vera með mér ein­stæðri og sjá mig harka svo mikið. Það er því ekki síður per­sónu­legur sigur að ná þessum árangri.“

Helstu sigrarnir

Við höldum áfram að tala um sigr­ana hjá Siggu. Hún færir sig til í stólnum og það kemur viss værð yfir hana þegar hún útskýrir stolt að hennar helstu sigrar séu börnin hennar.

„Þau eru stór­kost­legar mann­eskjur, kurt­eisar og fal­legar. Mér er alveg sama hvað þau fá í ein­kunn í skól­anum, bara að þau séu góðar mann­eskjur. Það er helsta afrekið. Mér þykir líka svo vænt um sam­band mitt við fjöl­skyld­una, því það er ekki sjálf­gefið að maður eigi það.“

Við höfum lifað og hrærst í tón­list­ar­heim­inum alla tíð og það hefur gagn­ast okkur hell­ing

Sigga ólst upp við tón­list. For­eldrar hennar eru tón­list­ar­menn, en auk þess voru afi hennar, Jón Múli Árnason, og amma hennar, Ragn­heiður Ásta Pét­urs­dóttir, bæði þjóð­þekkt og dag­legir gestir á íslenskum heim­ilum gegnum Rík­is­út­varpið. „Það kom alveg stundum fyrir að ég óskaði þess að fjöl­skylda mín væri hefð­bundn­ari, að allir væru í dag­vinnu og við hefðum getað verið meira heima á kvöldin og um helgar. En svo öfund­uðu aðrir mig af því að fá að upp­lifa þennan heim, gista á hót­elum og vera á tón­leikum og eiga þekkta for­eldra. Við höfum lifað og hrærst í  tón­list­ar­heim­inum alla tíð og það hefur gagn­ast okkur hell­ing.

Eyþór Gunn­ars­son og Sigga Ey að spila á píanó. Eyþór er þekktur djas­spí­anisti. Aðsend mynd.

For­eldrar mínir hafa alltaf stutt okkur svo mikið. Og amma Sísý á meðan hún lifði. Hún var mér svo mikil fyr­ir­mynd. Hún hafði svo óbilandi trú á mér. Hún sá mig alltaf sem ein­hverja súper­stjörnu þó að ég hefði aldrei trú á því. Mamma og pabbi sjá líka alltaf meira í okkur en við sjálfar. Ég hef átt alls konar fyr­ir­myndir í mínu lífi. Þar á meðal eru hinn and­legi kenn­ari Ram Dass, sem ég er rosa­lega hrifin af, og Alan Watts heim­spek­ingur og fleiri. Þeir hafa kennt mér mikið um lífið. Ég lít til þeirra, því þeir boða kær­leika, jöfnuð og frið, að allir fái að vera þeir sjálfir. Með þeim skoða ég hvernig ég virkja frið­inn innan frá mér. Ég lað­ast að öllum sem breiða út þann boð­skap.“

Ekki flott að vera hipp hoppari og hlusta á metal

Við ræðum um tón­list­ina. Sigga orðar það svo að þær syst­urnar séu allar frekar „genre-fluid“ á tón­list. „Ég fíla alla tón­list. Ég hlust­aði mikið á rapptón­list þegar ég var ung­lingur en á sama tíma fíl­aði ég Metallica, sem ég þorði varla að við­ur­kenna þá. Það þótti ekki flott að vera hipp hopp­ari og hlusta á metal­rokk. Ég elskaði t.d. Nirvana og Led Zeppelin og ég hef alltaf elskað kán­trítón­list. Ég var bara um tví­tugt þegar KK frændi kynnti mér tón­list kán­trí­söng­konu sem heitir Gillian Welch. Hún er alveg geggjuð og mik­ill áhrifa­valdur minn og svo elska ég líka raf­tón­list­ar­menn eins og t.d. James Blake. Það er engin tón­list sem ég get ekki gefið séns á ein­hvern hátt. Ef svo er þá er það algjör und­an­tekn­ing. Það er við­horfið sem skiptir mig máli. Ég hugsa það þannig, að allir séu að gera sitt besta þó svo að ég setji það kannski ekki á Spotify-list­ann minn.

„Heyrðu! Ég er ennþá með kven­manns­rödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“

Tón­list­arsmekkur okkar systr­anna er svo­lítið kán­trí- og þjóð­laga­skot­inn. Við ólumst upp við það að radda mikið og það er gjöf sem við fengum. Þessi tón­list er til­valin til þess, þ.e. þjóð­lagatón­list. Ég er oft­ast neðri röddin. Þó að ég geti sungið alls konar raddir þá funkera ég oft­ast best í neðstu rödd­inni. Elín er í miðj­unni og Beta í efstu rödd­inni. Pabbi setur mig stundum í óþarf­lega lágar raddir og þá er ég er bara: „Heyrðu! Ég er ennþá með kven­manns­rödd, þú getur ekki sett mig í svona djúpa rödd.“ Mér finnst samt visst „power“ í því að syngja neðstu rödd­ina og það á mjög vel við mig.“

Við áttum ekki von á þessu

Sigríður Eyþórs­dóttir Ljós­mynd­ari: Cat Gundry-Beck. Stílisti: Íris Tanja Flygenring. Förð­un­ar­fræð­ingur: Helen Dögg Snorra­dóttir. Gleraugu frá Optical studio. Myndir teknar í hljóð­ver­inu Hljóð­rita í Hafn­ar­firði.

Talið berst að ann­rík­inu sein­ustu daga – keppn­inni og nið­ur­stöðu hennar. Sigga er enn svo­lítið hissa. „Sér­stak­lega af því að við áttum ekki von á þessu. Ekki af því að við hefðum ekki trú á lag­inu, sem Lay Low samdi, eða að við séum að gera lítið úr okkur sjálfum. Það var meira út af því að lagið okkar er ekki dæmi­gert júró­visjón-lag.

Það er alltaf gott að koma á óvart, en við fundum síð­ustu dag­ana fyrir úrslitin að hjólin voru byrjuð að snú­ast aðeins með okkur. Við sögðum við Unni, leik­stjór­ann okkar, þegar við vorum að setja atriðið saman, að við yrðum að vera við sjálfar á svið­inu. Það er partur af því að vera með ADHD. Ég get ekki leikið og ég get alls ekki dansað og sungið á sama tíma. Eina sem Unnur, okkar frá­bæri leik­stjóri, vildi láta okkur gera var að tengj­ast mynda­vél­inni og vera ekki svona mikið inni í okkar í eigin heimi.

Lovísa er líka svo stór­kost­legur laga­höf­undur og mann­eskja. Það er svo mikil feg­urð og útgeislun frá henni. Hvort tveggja lagið og text­inn höfð­aði svo sterkt til okkar. Við fundum svo mikla kven­orku í því. Textinn er um konu sem er í vist­ar­bandi og er að velta fyrir sér aðstæðum sínum. Vist­ar­band var notað yfir það þegar fólk átti ekki jarðir eða hús­næði og neydd­ist til að búa og vinna á bæjum hjá öðrum. Bóndinn réð allri vinnu hjúa sinna og fékk af henni allan arð, hvort sem vinnan var unnin á heim­ili hans eða utan þess. Ef vinnu­maður fór til dæmis á ver­tíð, þá fékk bónd­inn sem hann til­heyrði allan afla sem vinnu­mað­ur­inn dró úr sjó. Á móti bar bóndi ábyrgð á því að hjú hans fengju fæði, klæði og húsa­skjól á ráðn­ing­ar­tíma þeirra.

Við eigum lausn­ar­bréfið hennar

Langafi okkar tal­aði mikið um þetta við okkur. Langa­langa­langamma okkar var í vist­ar­bandi. Við erum öll svo ung í okkar fjöl­skyldu þegar við eign­umst börn, þannig að ég var svo heppin að eiga langömmu og langafa og langa­langa­langömmu, langt fram eftir aldri. Við eigum lausn­ar­bréfið hennar, þar sem hún bað um að losna úr vist­ar­band­inu. Hún fékk lausn frá vist­ar­band­inu, en þurfti skilja barnið sitt, sem hún átti með bónd­anum, eftir á bænum. Það var vegna þess að hún gat ekki séð fyrir því og taldi það geta átt betra líf þar. Bóndinn átti sína konu og fjöl­skyldu og þau ólu fram­hjá­halds-barnið upp saman.“

Elskar að lagið sé „love/hate“-lag keppninnar

Þegar Sigga er spurð um hin lögin sem komust áfram í keppn­inni, þá tekur hún það fram að hún elski það, að þeirra lag sé það sem kalla má „love/hate-lagið“ og að fólk sé yfir­höfuð að hlusta á það og mynda sér sterka skoðun á því – við­brögðin séu oft­ast samt jákvæð. „Annars elska ég portú­galska lagið með henni Maro. Ég hlakka svo til að hitta hana. Ég mun halda áfram að hlusta á lagið hennar þegar Eurovision er búið. Og svo finnst mér hol­lenska lagið mjög flott, svona Lana Del Rey fíl­ingur í því. Ég held að keppnin verði lituð af átök­unum í Úkraínu. Það er mik­il­vægt að boða frið með öllu sem við gerum.

Það er líka svo geggjað að sjá fólk á öllum aldri vera að hlusta á okkur. Og ég verð að segja að ein athuga­semd á Twitter fékk mig til að brosa. Þá sagði ein að hún hefði grátið sig í svefn yfir úrslitum keppn­innar. Hún hafi svo sótt sjö ára son sinn í pössun dag­inn eftir og hann sagt henni að hann hefði kosið syst­urnar átta sinnum. Við erum greini­lega ekki með sama tón­list­arsmekk, sagði konan.

Annars elskar dóttir mín, sem er þriggja ára, Reykja­vík­ur­dætur og biður mig reglu­lega um að hlusta á lagið sem og öll hin lögin líka. Í gær byrj­aði t.d. dag­ur­inn okkar á því að hlusta þrisvar sinnum á öll lögin í keppn­inni og svo vildi hún færa sig yfir í sjón­varpið og horfa á þau öll þar aftur.“

Mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst

Áður en við klárum úr boll­unum og ljúkum spjalli okkar vill Sigga minn­ast á eitt. Hún talar um hvað hún hafi verið ánægð með RÚV og kven­ork­una, sem þar er nóg af. „Það er mik­ill við­snún­ingur á RÚV. Pródúsent­inn, hún Salóme, er brjál­æð­is­lega klár og sama á við um Ragn­hildi, sem er mesta „boss lady“ sem ég hef kynnst. Hún er rosa­lega dug­leg og hefur fal­lega sýn á allt sem hún gerir. Hún er svo mikið á bak við allt. Annars var hver ein­asta mann­eskja frá­bær í RÚV-teym­inu. Ég hef aldrei kynnst öðru eins. Partur af því að mig lang­aði til þess að sigra var til þess að fá að halda áfram að vinna með þessu frá­bæra fólki.

Við erum stað­ráðnar í að ná eins langt og við mögu­lega getum í keppn­inni. Við viljum nýta okkur hana sem stökk­pall til að vekja athygli á tón­list­inni sem við elskum. En hvað sem ger­ist á þessu ferða­lagi, þá erum við að lifa draum sem nú hefur ræst, umkringdar dásam­legu fólki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Einkaviðtal

MeToo: „Oft er þetta bara ákveðin PR-starfsemi; að þykjast hafa lært sína lexíu“
Innlent#Einkaviðtal

MeToo: „Oft er þetta bara ákveðin PR-starf­semi; að þykj­ast hafa lært sína lexíu“

„Það er í mjög fáum til­vikum sem ger­end­uraxla ábyrgð. Í þeim til­vikum sem ég man eftir í þess­ari MeToo-bylgju þá hefur það samt yfir­leitt verið klaufa­lega gert. Það hefur til dæmis ekki verið gert í sam­ráði við þolend­urna og það hefur ekki verið öxluð full áabyrgð,“ segir Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, sál­fræð­ingur og for­maður bar­áttu­hóps­ins Líf án ofbeldis. „Oft er þetta...
Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“
Innlent#Einkaviðtal

Jón Ingi: „Þjónusta við bæj­ar­búa er bens­ínið sem keyrir mann áfram“

Stjórn­mála­mað­ur­inn og leik­ar­inn Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði og Mannlíf átti við hann við­tal um lífið og til­ver­una og ýmis­legt fleira. Segðu mér, hvaðan ertu? Ég bjó í Norð­ur­bænum fram til tíu ára, þá varð fjöl­skyldan að flytja úr Hafn­ar­firði til Reykja­víkur því að ekki var hægt að fá banka­fyr­ir­greiðslu í Spari­sjóðnum þar sem for­eldrar mínir voru...
Arnór: „Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“
Innlent#Einkaviðtal

Arnór: „Þar upp­hófst und­ar­leg atburða­rás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“

Arnór býr í nota­legu húsi við Hafra­vatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Hann tekur á móti blaða­manni við afleggjar­ann að hús­inu og við skutl­umst yfir snjó­breið­urnar, fyrst á jeppa og svo á snjó­sleða síð­asta spöl­inn. Hann býr í ekki nema 20 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Reykja­vík, en upp­lifunin er eins og vera komin langt út á land. Þegar inn er komið tekur...
Logi vill ræða umsókn um aðild Íslands að ESB að alvöru: „Leyfum þjóðinni að segja sína skoðun“
Innlent#Einkaviðtal

Logi vill ræða umsókn um aðild Íslands að ESB að alvöru: „Leyfum þjóð­inni að segja sína skoðun“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni, þar sem hann ræðir umsókn um aðild Íslands að ESB. „Það í raun­inni liggur til grund­vallar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn leggja fram um að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að taka upp þráð­inn og halda áfram. Bjarni hefur vissu­lega talað um þennan póli­tíska ómögu­leika sem hann kokk­aði upp heima hjá...
Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“
Innlent#Einkaviðtal

Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“

Góður ilmur af ilmol­íum og tei tekur á móti blaða­konu Mannlífs í húsi Heilsu­drek­ans í Skeif­unni þar sem við höfðum mælt okkur mót. Róandi kín­versk tón­list ómar og við blasir lista­gall­er­íið, fullt af kín­versku postu­líni. Gest­gjafar eru Tolli Morthens, einn af nem­endum Drekans, og Dong Qing Guan, oft­ast kölluð Qing, eig­andi Heilsu­drek­ans. Qing er yfir­veguð í fasi þar sem hún...
Rakel: „Ég á langa og erfiða fjölskyldusögu í tengslum við krabbamein og tek ekki þessa áhættu“
Viðtal#Einkaviðtal

Rakel: „Ég á langa og erf­iða fjöl­skyldu­sögu í tengslum við krabba­mein og tek ekki þessa áhættu“

„Ég er sér­leg áhuga­mann­eskja um breyt­inga­skeiðið og 45 ára var ég byrjuð að huga að því hvernig best væri að und­ir­búa sig fyrir það. Við förum allar, reyndar öll, í gegnum breyt­inga­skeiðið á ein­hverjum tíma­punkti en það er mis­mun­andi hvernig það hittir okkur,“ segir Rakel Fleckenstein Björns­dóttir, jóga- og qigongkennari, sem ætlar að fræða okkur aðeins um nálgun horm­óna­jóga á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins