„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“

Jón Ingi: „Þjónusta við bæjarbúa er bensínið sem keyrir mann áfram“
Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði

Stjórn­mála­mað­ur­inn og leik­ar­inn Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði og Mannlíf átti við hann við­tal um lífið og til­ver­una og ýmis­legt fleira.

Segðu mér, hvaðan ertu?

Ég bjó í Norð­ur­bænum fram til tíu ára, þá varð fjöl­skyldan að flytja úr Hafn­ar­firði til Reykja­víkur því að ekki var hægt að fá banka­fyr­ir­greiðslu í Spari­sjóðnum þar sem for­eldrar mínir voru hvorki inn­fæddir Hafn­firð­ingar og ekki voru þau í Flokknum. Konan mín er aftur á móti inn­fæddur Hafn­firð­ingur, fædd á Sólvangi á þriðju hæð og setn­ing sem ég hef oft heyrt frá henni er “ég fædd­ist á Sólvangi þriðju hæð, ég vann á Sólvangi á þriðju hæð og ég ætla að enda á Sólvangi á þriðju hæð.”

En við fluttum í vest­ur­bæ­inn en ég sór þess dýran eið að koma aftur og við það stóð ég. Ég átti góða æsku, var í fót­bolta og hand­bolta og eign­að­ist marga góða vini á þeim vett­vangi. Þegar ég hugsa til baka þá var ég hepp­inn með félags­skap og er ákaf­lega þakk­látur fyrir það, því slíkt er ekki sjálf­sagt.

Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir stór?

Ég ætl­aði lengi vel að verða strætó­bíl­stjóri og kunni nöfnin á öllum strætó­leið­unum í gamla daga, ég elskaði að vera í strætó. Þessi draumur dó þegar ég varð aðeins eldri. En þegar ég var í menntó þá hafði ég mik­inn áhuga á því að verða hag­fræð­ingur, en hætti í hag­fræð­inni þegar ég kynnt­ist leik­list­inni í Stúd­enta­leik­hús­inu. Þá átti leik­listin mig allan.

Örlögin hög­uðu því að ég fór á æfingu í Stúd­enta­leik­hús­inu á sínum tíma og Benedikt Erlings­son var með nám­skeið og það var svo skemmti­legt að ég ákvað að leggja þetta fyrir mig og fór til London og lærði leik­list. Frábær ákvörðun, fátt holl­ara ungum manni en að standa á eign fótum í öðru landi, læra nýja siði og menn­ingu. Dásam­legur tími og kynnt­ist sjálfum mér upp á nýtt.

Leik­listin – þið eruð leik­ara­hjón þú og Laufey Brá. Býr hún alltaf í þér, kannski ykkur báðum, leik­listin?

Ég kynnt­ist nátt­úru­lega Laufeyju minni á leik­svið­inu þannig auð­vitað sam­einar leik­listin okkur.

Fátt ef ekk­ert hefur mótað mig meira en leik­listin, hún hefur gefið mér svo margt, hvernig ég hugsa og hvernig ég nálg­ast við­fangs­efnin.

Í leik­list­inni er bara eitt bann­orð sem er orðið NEI.

Agi list­ar­innar, sköp­un­ar­kraft­ur­inn, sam­vinnan og að vera stöðugt fyrir utan þæg­ind­ara­mmann er eitt­hvað sem ég bý að og hjálpar mér í póli­tík­inni. Leik­listin býr í mér og mun búa í mér þar til yfir lýkur, ég er leik­ari þó ég sé ekki að leika. 

Ég fékk á sínum tíma nóg af sjálfum mér sem leik­ara, var orð­inn hroka­fullur og sjálf­um­glaður. Égáttaði míg á því eitt kvöldið þar sem ég var í upp­klapp­inu að ég var ekki ánægður með mig, þó að ég væri að leika í frá­bærri sýn­ingu, í drauma­hlut­verki og með stór­skota­liði sam­leik­ara. Ég man að ég fór heim og tók þá ákvörðun að gera eitt­hvað annað. Mér fannst það óvirð­ing við leik­list­ina að vera ekki 100% glaður og þakk­látur því ég var að lifa draum­inn. Ég fór í MBA nám í HR og í Madrid, auk meist­ara­náms í mark­aðs­fræði. Mér finnst þessi kok­teill af skap­andi hugsun og við­skipta­fræði vera það sem ég á að vera að nota.

Áhugamál þín og fjöl­skyld­unnar?

Mér finnst fátt eins skemmti­legt og nær­andi og að fara í leik­hús eða tón­leika, mætti gera meira af því. En ég er mik­ill íþrótta­á­huga­maður, stunda lík­ams­rækt og golf. Svo er æðis­legt að ferð­ast með henni Laufeyju minni sem er fjöl­skyldan mín, þar sem við gátum ekki eign­ast börn. Þess vegna skiptir það mig miklu máli að skapa hér sam­fé­lag þar sem fólk getur verið sjálf­stætt eins lengi og mögu­legt er. Við munum ekki geta reitt okkur á stuðn­ing afkom­enda okkar því er það mitt hjart­ans mál að eldra fólk fái þá þjón­ustu sem þörf er á. Það eru ekki allir jafn heppnir að geta reitt sig á stuðn­ing afkom­enda sinna.

Stjórn­mál, hvernig kom það til? Af hverju Viðreisn?

Ég hef alltaf verið mjög póli­tískur, fylgst með frá því ég var barn og ung­lingur. Fyrsti flokk­ur­inn sem ég studdi að ein­hverju ráði var Alþýðu­flokk­ur­inn, en ég missti svo póli­tískt heim­ili þegar Sam­fylk­ing­ing var stofnuð. Ég tengdi ekki við hana og varð þá partur af hinu fljót­andi fylgi en skil­aði ansi oft auðu í kosn­ingum. Þegar Benedikt Jóhann­es­son og félagar hófu und­ir­bún­ing að stofnun nýs stjórn­mála­flokks varð ég for­vit­inn og fór að mæta á fundi og leist vel á það sem ég heyrði og kunni vel við fólkið. Mér fannst líka mjög spenn­andi að taka þátt í starfi flokks alveg frá stofnun hans. Ég er í eðli mínu Krati með sterkan hægri fót og ég fann þessu eðli mínu ágætis heim­ili í Viðreisn.

Sérðu fyrir þér stjórn­mál sem aðal­starf þitt næstu árin eða ára­tug­ina?

Mér hefur fund­ist alveg ein­stak­lega gaman og gef­andi að fá að vera í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Þetta starf á vel við mig þar sem ég er nokkuð góður í að koma mér inn í mörg ólík mál, setja mig inn í flókin mál og skýra þau út á ein­faldan hátt. Ég hef svo breitt áhuga­svið og hef svo mikla ánægju af því að vinna með ólíku fólki og vera stöðugt að læra nýja hluti. Eins og staðan er þá gæti ég alveg séð það fyrir mér að taka að mér fleiri verk­efni í póli­tík.

Hvað bjóðið þið í Viðreisn upp á fram yfir aðra flokkar? Hvers vegna ætti fólk að kjósa þig og ykkur en ekki aðra flokka?

Ég myndi aldrei leyfa mér að segja að við bjóðum upp á eitt­hvað sem er betra, við erum ein­fald­lega val­kostur, við erum öðru­vísi en aðrir flokkar.

Svo er það kjós­enda að meta hvort það sé betra eða verra. En í mínum huga þá erum við val­kostur í þessum kosn­ingum fyrir þá sem vilja aukna fag­mennsku í stjórnun bæj­ar­ins og sjá tæki­færin út frá lang­tíma­sýn en ekki út frá stund­ar­hags­munum. Það sem mér líkar best við Viðreisn er að við tökum stöðu með neyt­endum og not­endum kerf­anna.

Annað sem fellur vel að mínu gild­is­mati er að lífs­gæði og val­frelsi eru sitt­hvor hliðin á sama pen­ingi. Ég vil til að myndaa auka raun­veru­legt val­frelsi í skóla­málum og félags­þjón­ustu. Fólk á að fá að blómstra á eigin for­sendum, en stundum vilja kerfin okkar steypa okkur í sama mót. Það fer í taug­arnar á mér. Sér­stak­lega þegar fólkið er farið að þjóna kerf­inu í stað þess að kerfin þjóni fólk­inu.

Jón Ingi, ertu ekki bara einn af þeim sem segir fal­lega hluti kortér í kosn­ingar og svo ekk­ert meir þangað til það stytt­ist í næstu kosn­ingar á nýjan leik? 

Þú ert ekk­ert að skafa utan af því, það er gott.

Það er bara ein leið til að kom­ast að því hvort að ég sé froðu­snakkur eða heil­steyptur ein­stak­lingur sem vill gera vel og það er gefa mér tæki­færi til að sýna úr hverju ég er.

En ég vona að mál­flutn­ingur minn síð­ustu fjögur ár gefi fólki ein­hverja til­finn­ingu fyrir því hver ég er og hverju ég stend fyrir.

Eitt af því sem ég hef kom­ist að á kjör­tíma­bil­inu og er þakk­látur fyrir er sú stað­reynd að ég skulda engum neitt. Það á eng­inn neitt inni hjá mér. Það er mikið frelsi fólgið í því og það frelsi vil ég ekki missa.

Ég vona að þetta svar sé ekki út í hött, en ég er alveg hund­rað pró­sent viss um það að ekki eru allir ánægðir með mín störf og munu kalla mig froðu­snakk og popúlista. En ég veit líka að það eru ein­hverjir þarna úti sem líkar vel við það sem ég hef staðið fyrir. Ég hef að minnsta kosti reynt eftir bestu getu að standa fyrir máli mínu og rök­styðja mitt mál.

Ég hef líka hlaupið á mig og dregið rangar álykt­anir, en ég hef þá líka beðist vel­virð­ingar og afsök­unar þegar það hefur gerst. En í raun er þessi spurn­ing erfið vegna þess að það er í raun kjós­enda að meta það hvort ég sé pappa­kassi eða eitt­hvað annað.

Ef þið haldið ykkur inni, hvað bæti þið við, er ein­hver flokkur eða flokkar sem eru efstir á óska­list­anum varð­andi sam­starf?

Það er ljóst að það hafa verið átök um mörg mál á þessu kjör­tíma­bili og minni­hlut­inn hefur náð að vinna vel saman. Þar hefur ríkt traust á milli okkar og gagn­kvæm virð­ing þrátt fyrir ólíkar skoð­anir.

Aftur á móti er ljóst að nokkrir bæj­ar­full­trúar úr minni­hlut­anum munu ekki setj­ast aftur í bæj­ar­stjórn þannig að það flækir aðeins málin. Ég vil aftur á móti snúa spurn­ing­unni við og spyrja hverjir séu til­búnir að vinna með okkur í Viðreisn því við gerum kröfur um fag­mennsku, gagn­sæi og fag­lega ráð­inn bæj­ar­stjóra.

Útilokið þið í Viðreisn samstarf með einhverjum flokki eða flokkum?

Nei, en það er ljóst að minni­hlut­inn hefur unnið vel saman og þar ríkir gott traust.

Er ein­hvern tím­ann hægt að stimpla sig út eftir erf­iðan dag eða góðan í stjórn­málum?

Ég átti stundum í erf­ið­leikum með það fyrstu tvö árin en svo tók ég með­vit­aða ákvörðun um að stimpla mig út á kvöldin.

En ég neita því ekki að þegar þung og erfið mál eru til umfjöll­unar þá er það mjög erfitt. Erfiðast hefur þó verið að vinna í málum þar sem fólk hefur per­sónu­gert ágrein­ing­inn og vænt mann um eitt­hvað mis­jafnt. En ég tók líka með­vit­aða ákvörðun um að brynja mig gagn­vart því.

En þessi þjón­usta við bæj­ar­búa er svo gef­andi og mik­il­væg að það er bens­ínið sem keyrir mann áfram.

Jón Ingi Hákon­ar­son er odd­viti Við­reisnar í Hafn­ar­firði
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Einkaviðtal

MeToo: „Oft er þetta bara ákveðin PR-starfsemi; að þykjast hafa lært sína lexíu“
Innlent#Einkaviðtal

MeToo: „Oft er þetta bara ákveðin PR-starf­semi; að þykj­ast hafa lært sína lexíu“

„Það er í mjög fáum til­vikum sem ger­end­uraxla ábyrgð. Í þeim til­vikum sem ég man eftir í þess­ari MeToo-bylgju þá hefur það samt yfir­leitt verið klaufa­lega gert. Það hefur til dæmis ekki verið gert í sam­ráði við þolend­urna og það hefur ekki verið öxluð full áabyrgð,“ segir Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, sál­fræð­ingur og for­maður bar­áttu­hóps­ins Líf án ofbeldis. „Oft er þetta...
Sigríður Eyþórsdóttir hefur unnið marga sigra í lífinu: „Við erum að lifa draum sem nú hefur ræst“
Innlent#Einkaviðtal

Sigríður Eyþórs­dóttir hefur unnið marga sigra í líf­inu: „Við erum að lifa draum sem nú hefur ræst“

Mannlíf ræddi við Sigríði Eyþórs­dóttur í byrjun apríl og birt­ist við­talið í kjöl­farið í blað­inu. Í til­efni dags­ins verður við­talið birt hér á vefnum í heild sinni. „Við viljum standa okkur fyrir Ísland. Okkur þykir svo vænt um landið okkar. Við finnum fyrir svo mik­illi sam­stöðu og ég er svo stolt af tungu­mál­inu okkar. Það er eins konar „leynitungu­mál“. Þess...
Arnór: „Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“
Innlent#Einkaviðtal

Arnór: „Þar upp­hófst und­ar­leg atburða­rás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“

Arnór býr í nota­legu húsi við Hafra­vatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Hann tekur á móti blaða­manni við afleggjar­ann að hús­inu og við skutl­umst yfir snjó­breið­urnar, fyrst á jeppa og svo á snjó­sleða síð­asta spöl­inn. Hann býr í ekki nema 20 mín­útna akst­urs­fjar­lægð frá Reykja­vík, en upp­lifunin er eins og vera komin langt út á land. Þegar inn er komið tekur...
Logi vill ræða umsókn um aðild Íslands að ESB að alvöru: „Leyfum þjóðinni að segja sína skoðun“
Innlent#Einkaviðtal

Logi vill ræða umsókn um aðild Íslands að ESB að alvöru: „Leyfum þjóð­inni að segja sína skoðun“

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni, þar sem hann ræðir umsókn um aðild Íslands að ESB. „Það í raun­inni liggur til grund­vallar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn leggja fram um að það verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að taka upp þráð­inn og halda áfram. Bjarni hefur vissu­lega talað um þennan póli­tíska ómögu­leika sem hann kokk­aði upp heima hjá...
Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“
Innlent#Einkaviðtal

Tolli Morthens og Qing: „Vertu ljós og það lýsir“

Góður ilmur af ilmol­íum og tei tekur á móti blaða­konu Mannlífs í húsi Heilsu­drek­ans í Skeif­unni þar sem við höfðum mælt okkur mót. Róandi kín­versk tón­list ómar og við blasir lista­gall­er­íið, fullt af kín­versku postu­líni. Gest­gjafar eru Tolli Morthens, einn af nem­endum Drekans, og Dong Qing Guan, oft­ast kölluð Qing, eig­andi Heilsu­drek­ans. Qing er yfir­veguð í fasi þar sem hún...
Rakel: „Ég á langa og erfiða fjölskyldusögu í tengslum við krabbamein og tek ekki þessa áhættu“
Viðtal#Einkaviðtal

Rakel: „Ég á langa og erf­iða fjöl­skyldu­sögu í tengslum við krabba­mein og tek ekki þessa áhættu“

„Ég er sér­leg áhuga­mann­eskja um breyt­inga­skeiðið og 45 ára var ég byrjuð að huga að því hvernig best væri að und­ir­búa sig fyrir það. Við förum allar, reyndar öll, í gegnum breyt­inga­skeiðið á ein­hverjum tíma­punkti en það er mis­mun­andi hvernig það hittir okkur,“ segir Rakel Fleckenstein Björns­dóttir, jóga- og qigongkennari, sem ætlar að fræða okkur aðeins um nálgun horm­óna­jóga á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins