„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Mamma, mig dreymdi svo hroðalegan draum“

„Mamma, mig dreymdi svo hroðalegan draum“
Mynd. Skjáskot/RÚV

Árla morg­uns mánu­dag­inn 16. jan­úar 1995 féll snjó­flóð á þorpið í Súðavík á meðan flestir voru í fasta­svefni. Í blind­byl og svarta­myrkri hófu heima­menn leit að sínum nán­ustu, ætt­ingjum og vinum við hrika­legar aðstæður.

Í bók Egils St. Fjeld­sted Þrek­virki er rætt við 40 manns sem annað hvort voru á heim­ilum sínum þegar flóðin skullu á þeim eða tóku þátt í björg­un­ar­störfum með ein­hverjum hætti. Í þessum spegli verður sögð saga þeirra sem bjuggu við Túngötu 4 í Súðavík á þeim tíma sem flóðið féll.

Túngata 4

Mynd / Skjáskot/RÚV

„Að Túngötu 4 bjó ungt par, Sigríður Rannveig Jóns­dóttir og Þor­steinn Örn Gestsson ásamt
tveimur dætrum; Lindu Rut (1989) og Hrafn­hildi Kristínu (1993–1995), sem var 15
mán­aða gömul. Parið keypti Túngötu 4 í des­em­ber 1994 og flutti inn um miðjan
mán­uð­inn. Nutu þau jóla og áramóta á nýja heim­il­inu þar sem syst­urnar fengu hvor
sitt her­bergið. Áður bjuggu þau í fjöl­býl­is­húsi á Aðalgötu 2 sem ekki varð fyrir
skemmdum í snjó­flóð­inu.

Sigríður Rannveig hafði búið í Súðavík frá sex mán­aða aldri. Þor­steinn Örn
flutti til Súða­víkur 1982 en móðir hans, Hrafn­hildur Kristín Þor­steins­dóttir
(1945–1995), lést í flóð­inu ásamt fóst­ur­föður hans, Sveini Gunnari Salómons­syni.

Fjöl­skyldan var heima að horfa á sjónvarpið laug­ar­dagskvöldið 14. jan­úar. Á
meðan naut Sigríður Rannveig þess að hafa Hrafn­hildi litlu í fang­inu og fá kossa frá
henni allt kvöldið. Síðar hugs­aði Sigríður Rannveig til þess að þær áttu aðeins eftir
að vera saman í einn og hálfan sól­ar­hring eftir þetta kvöld og því engu lík­ara en
dóttirin væri að kveðja hana. Þegar sunnu­dag­ur­inn rann upp fannst Sigríði
Rann­veigu hún þurfa að gera eitt­hvað skemmti­legt með fjöl­skyld­unni. Klæddust allir
sínum hlýj­ustu fötum, fóru út og gerðu snjó­hús í stóran skafl við hlið­ina á hús­inu. Eftir
dágóðan tíma voru allir orðnir eins og snjó­karlar og for­eldr­unum minn­is­stætt að löng
augn­hár Hrafn­hildar Krist­ínar voru þakin snjó og kinn­arnar rauðar eins og epli.

Um kvöldið var hringt í for­eldra barna í leik­skól­anum og þeim til­kynnt að
skóla­hald félli niður næsta dag vegna veð­urs. Af þeim sökum lá ekk­ert á að koma
stelp­unum í hátt­inn og bök­uðu mæðgurnar vöfflur rétt fyrir mið­nætti og fóru síðan
allar saman í bað. Syst­urnar hjúfr­uðu sig upp að móður sinni í hjóna­rúm­inu á meðan
hún söng fyrir þær. Þetta var í síð­asta skipið sem Sigríður Rannveig hafði þær báðar
í örmum sínum. Stuttu síðar færði Þor­steinn Örn þær sof­andi yfir í her­bergin sín án
þess að þær rumsk­uðu.

Allt frá því að veðrið tók að versna um kvöldið var Sigríður Rannveig óró­leg og
spurði Þorstein Örn end­ur­tekið hvort hætta væri á snjó­flóði. Svaraði hann því til að
engin hætta væri á ferð, ann­ars væri almanna­varna­nefndin á staðnum búin að láta
þau vita. Lét hún þar við sitja en fór margoft að svefn­her­berg­is­glugg­anum og horfði
upp í hlíð­ina þrátt fyrir ekk­ert skyggni.

Loftþrýstingur sprengdi þakið af húsinu

Mynd. Skjáskot/RÚV

Sigríður Rannveig sofn­aði loks um klukkan 05:00 en vakn­aði aftur tæpri einni
og hálfri klukku­stund síðar í verstu martröð sem hægt er að hugsa sér. Loft­þrýst­ingur
sprengdi þakið af hús­inu og um leið þeytt­ist hún upp í loft og heyrði spreng­ingu og
hávaða sem var ólíkur öllu sem hún hafði áður heyrt. Á meðan horfði hún á
svefn­her­bergið og rúð­urnar splundr­ast. Örskots­stund síðar æddi flóðið á húsið og
um leið sá hún stóra snjóköggla koma æðandi á móti sér.

Innra með sér öskr­aði hún: „Ég vissi að það kæmi snjó­flóð“. Nánast á sama augna­bliki tók hrammur flóðs­ins hana með sér. Á þeirri stundu fannst henni að hún væri að kafna og taldi víst að hún myndi deyja en náði strax að ýta þeirri hugsun frá sér og hugsa í stað­inn: „Ég verð að lifa!“ Byrjaði hún þá að reyna að klóra sig upp á yfir­borð flóðsins en kraft­arnir sem
tog­uðu í hana úr öllum áttum voru slíkir að hún gafst nán­ast upp.

Á meðan hún barst með flóð­inu fannst henni sem hún sæi ljós, sem trú­lega kom frá höfn­inni. Síðan varð allt svart þar til hún rank­aði við sér nærri póst­hús­inu. Hún horfði þá upp í loftið og sá bara snjókomu en um leið fann hún að fæturnir voru fastir undir þungu fargi. Sigríður Rannveig náði að losa sig með erf­ið­is­munum og tók þá eftir því að hún var ein­göngu klædd í rif­inn nátt­galla. Þegar henni tókst að standa upp sá hún bara snjó og brak allt í kringum sig. Snerist hún þá í hringi um sjálfa sig og hugs­aði: „Hvar á ég að leita?
Hvar eru stelp­urnar mínar?“

Berfætt og ísköld

Í námunda við sig heyrði hún í Þor­steini Erni, manni sínum, og án þess að
hugsa sér­stak­lega út í það tók hún því sem gefnu að hann væri einnig að leita að
börn­unum. Þegar hún hafði gengið ber­fætt og ísköld um næsta nágrenni í dágóðan
tíma kom hún auga á konu í hvítum nátt­kjól sem kom gang­andi í átt­ina að henni, reynd­ist það vera Wieslawa Vera Lupinska úr Túngötu 7.

Í fyrstu taldi hún víst að nágranni sinn væri kom­inn til að hjálpa sér að leita en þegar hún sá skelf­ing­ar­svip­inn í and­liti hennar gerði hún sér grein fyrir að húsið hennar og Bellu Vest­fjörð hafði einnig orðið fyrir snjó­flóð­inu.

Ákváðu þær að reyna í sam­ein­ingu að finna hjálp og gengu að síma­klefa sem
stóð fyrir neðan innra hornið á póst­hús­inu. Þegar þangað kom var kuld­inn far­inn að
segja veru­lega til sín þannig að Sigríður Rannveig átti í erf­ið­leikum með að standa
upp­rétt.

Harkaði hún af sér og burstaði snjó af sím­tæk­inu sem hún vissi að var búið
að vera fullt af smá­pen­ingum í langan tíma og því hægt að hringja frítt innan sama
svæð­is­núm­ers. Byrjaði hún á að hringja ítrekað í 4422, sem hún taldi vera
síma­núm­erið hjá lög­regl­unni á Ísafirði, án þess að fá svar. Daginn eftir fékk hún að
vita að rétt númer var 4222.

Á milli þess að hringja í rangt númer reyndi hún að ná sam­bandi við tengda­for­eldra sína og aðra sem hún taldi að gætu hjálpað sér. Seinna fékk hún að vita að teng­ingin við síma­klef­ann var farin í sundur.

Þegar eng­inn svar­aði ákvað Wieslawa Vera að fara og leita að hjálp en Sigríður Rannveig var þá orðin svo mátt­farin að hún treysti sér ekki til fylgja henni og skildu þá leiðir. Þegar hún var orðin ein hugs­aði hún hvort hún ætti að reyna kom­ast til for­eldra sinna sem bjuggu í um það bil 150 metra fjar­lægð, í Túngötu 11. Hún var með­vituð um að þangað kæm­ist hún ekki nema skríð­andi á fjórum fótum.

Fann til vanmáttar

Mynd. Skjáskot/RÚV

Á meðan hún hugs­aði þetta hneig hún niður. Fætur hennar voru þá orðnir svo dofnir úr kulda að hún fann ekki lengur fyrir þeim. Auk þess var and­litið og allur lík­am­inn mar­inn, skor­inn og alblóð­ugur. Í raun hlýddi lík­am­inn ekki lengur vilja hennar. Á meðan hún sat og hugs­aði næstu skref tók hún eftir bíl nálægt síma­klef­anum og reynd­ist hann vera ólæstur. Settist hún í bíl­stjóra­sætið og leit­aði að lyklunum til að koma honum í gang og fá hita, en fann þá hvergi.

Fannst henni eins og hún væri að missa stjórn á hugs­unum sínum og fann til van­máttar að geta ekki leitað að börn­unum. Á meðan hún barð­ist við hug­ann leit hún í kringum sig og tók eftir sjúkra­kassa sem í voru álteppi og sára­um­búðir. Klæddi hún sig úr blautum og
rifnum nátt­föt­unum og vafði tepp­inu utan um sig og setti umbúðir yfir stærstu skurð­ina.

Eftir það færð­ist yfir hana doða­kenndur svefn og vissi hún lítið af sér þegar hún lagði höf­uðið á bílflaut­una. Lá hún þannig í ótil­greindan tíma þar til Guðjón Marteinn frá Tröð bank­aði á hlið­ar­rúð­una og um leið og Sigríður Rannveig skrúf­aði niður rúð­una sagði hann: „Guð, þú ert að deyja“. Hún svar­aði: ,,Nei, ég er ekki að deyja!“ Treysti hann sér ekki til að fara einn með hana yfir göt­una í skjól í Shell­sjopp­una. Hljóp hann fyrst þangað og náði í annan mann til að aðstoða sig.

Sporin til hennar voru þung

Þrátt fyrir að vega­lengdin yfir göt­una væri aðeins 25–30 metrar fannst henni það taka
eilífð að kom­ast þann spöl. Þor­steinn Örn var þá kom­inn í sjopp­una ásamt fleira fólki
sem tók á móti henni, dúð­aði í öll til­tæk föt og nudd­aði hita í hana inni á skrif­stof­unni.

Einn þeirra sem kom í Shell­sjopp­una skömmu eftir að Sigríður Rannveig var borin þangað var faðir hennar, Jón Ragn­ars­son (1944–2016) sem bjó ásamt fjöl­skyldu sinni í Túngötu 11 sem stóð nálægt jaðri flóðs­ins. Þegar hann frétti af flóð­inu fór hann á snjó­sleða niður í hrað­frysti­hús þar sem hann frétti að flóðið hefði tekið hús dóttur hans.

Fór hann beina leið þangað, þar sem aðeins stóðu eftir tveir hús­gaflar, féll ráða­laus niður á hnén og grét. Þaðan fór hann aftur að heim­ili sínu og fór með fjöl­skyld­una niður í hrað­frysti­hús. Fljót­lega eftir það barst honum til eyrna að dóttir hans væri í sjopp­unni. Eins og gefur að skilja voru honum sporin til hennar þung, vit­andi um ang­ist hennar á meðan hún beið frétta af báðum börn­unum og tengda­for­eldrum sínum.

Ólíkt Sigríði Rann­veigu man Þor­steinn Örn ekki eftir þegar snjó­flóðið féll á heim­ili þeirra. Fyrsta minn­ing hans var að standa í hríð­ar­byl og myrkri við hlið­ina á ótil­greindum vegg, sem hann hélt að væri heim­ili sitt. Gekk hann líkt og í svefni nokkra hringi í kringum vegg­inn í leit að inn­gangi. Þegar hann átt­aði sig betur á aðstæðum leit hann niður eftir lík­ama sínum og sá að hann var nak­inn, blóð­ugur og með klaka­hröngl á lík­am­anum. Um leið fann hann hvernig kuld­inn nísti inn að beini.

Svo tók hann eftir ljósi og gekk í átt­ina að því en þegar hann nálg­að­ist heyrði hann konu hrópa. Þegar hann kom nær sá hann Berg­lindi Maríu Krist­jáns­dóttur, nágranna sinn frá Túngötu 5, sitja ofan í holu og kalla á börnin sín þrjú sem voru týnd. Hann leit betur í kringum sig og sá að þau voru nálægt póst­hús­inu, aðeins nokkra metra frá síma­klef­anum og bílnum þar sem Sigríður Rannveig var að krókna úr kulda.

Leitarhundarnir

Um hádeg­is­bil voru leit­ar­hund­arnir búnir að marka fjöl­marga staði þar sem búið var
að setja upp starfs­stöðvar og mest var leitað. Á þeim þurftu björg­un­ar­menn að moka
gíf­ur­legu magni af snjó sem var sein­legt, sér­stak­lega í ljósi þessi að snjó­flóðaýlar
tak­mörk­uðu fjöld­ann inni á svæð­inu.

Af þeim sökum fór Arnar Þór Stef­áns­son án aðstoð­ar­manns að Túngötu 4 með
leit­ar­hund­inn Hnotu, þar sem systr­anna Lindu Rutar Sig­ríð­ar­dóttur 5 ára og
Hrafn­hildar Krist­ínar Þor­steins­dóttur 16 mán­aða var saknað.

Aðkoman var í einu orði sagt hrika­leg, aðeins stóðu uppi endagaflarnir og lít­ill hlið­ar­veggur ofan til sem hall­aði inn í húsið, og steypu­styrkt­ar­járn héldu föstum við grunn­inn í einu horni. Rúm Lindu Rutar hafði staðið í horn­inu undir stórum glugga. Um leið og hund­ur­inn kom að hús­inu fór hann beint að þessum stað og ákvað Arnar Þór að moka aðeins undan
veggnum. Honum til mik­illar undr­unar var Linda Rut þar ótrú­lega vel á sig komin eftir
að hafa verið grafin í um það bil fimm klukku­stundir.

„Ég er sprelllifandi“

Í við­tali við dag­blað tíu árum eftir að snjó­flóðið féll sagð­ist Linda Rut muna eftir að
hafa vaknað og litið upp og séð ljós. Síðan hafi hún heyrt kallað: „Linda, ertu þarna?“ Svaraði hún þá: „Ég er sprell­lif­andi“. Eftir það var hún sett á sjúkra­börur og komið
undir lækn­is­hendur í hrað­frysti­hús­inu.

For­eldrar Lindu Rutar, Sigríður Rannveig Jóns­dóttir og Þor­steinn Örn Gestsson
sem björg­uð­ust með ótrú­legum hætti fyrr um morg­un­inn biðu frétta af dætrum sínum.

Þau höfðu verið flutt úr Shell­sjopp­unni skömmu eftir að stjórn­stöð var sett upp í
hrað­frysti­hús­inu. Af ókunnum ástæðum var Þor­steinn Örn fluttur í hrað­frysti­húsið en
Sigríður Rannveig á sjúkra­börum um borð í Fagranes. Þar var henni komið fyrir einni
í klefa og hún látin nær afskipta­laus, fyrir utan að gert var að fjöl­mörgum skurðum
víðs vegar um lík­amann.

Í hádeg­inu kom bróðir hennar um borð og sagði að mæðgurnar Bella Aðal­heiður og Petrea Vest­fjörð hefðu fund­ist látnar. Sagði hann henni einnig þá gleði­frétt að Linda Rut hefði fund­ist alheil í snjó­flóð­inu. Bætti hann svo við að verið væri að und­ir­búa að flytja hana úr Fagra­nes­inu yfir í hrað­frysti­húsið þar sem hún gæti hitt dóttur sína. Grét Sigríður Rannveig þá líkt og hún hafði aldrei áður gert um ævina. Skugga bar þó á tíð­indin þar sem enn átti eftir að finna Hrafn­hildi Kristínu litlu og afa hennar og ömmu.

„Mamma, mig dreymdi svo hroðalegan draum“

Það fyrsta sem Sigríður Rannveig sá þegar hún kom í sjúkra­rýmið var Linda Rut liggj­andi á borði. Þegar hún kom nær sá hún að dóttir hennar var snjó­hvít og helköld við­komu. Stuttu seinna sagði Linda Rut við móður sína: „Mamma, mig dreymdi svo hroða­legan draum. Það kom snjór inn um glugg­ann hjá mér og ég lá bara í rúm­inu. En svo komu menn­irnir og náðu í mig.“

Fljót­lega eftir hádegi fannst Hrafn­hildur Kristín Þor­steins­dóttur látin nálægt þeim stað
sem Linda Rut systir hennar hafði fund­ist á lífi um morg­un­inn. Hún hafði orðið 1 árs sept­em­ber árið á undan og var alnafna ömmu sinnar.“

Hægt er fræð­ast nánar um atburð­ina í bók hans Þrek­virki. Bókin prýðir fjölda mynda og er hægt að nálg­ast hana í helstu bóka­búðum og hjá höf­undi – sjá fés­bók­ar­tengil.

Heim­ildir:

Egill St. Fjeld­sted. 2021. Þrek­virki. Egill St. Fjeld­sted. Reykja­vík.

Ópr. Skýrsla Krist­jáns Bjarna Guð­munds­sonar.

Ópr. Skýrsla Krist­jáns Bjarna Guð­munds­sonar.

Viðtal. Höfundur við Berg­lindi Maríu Krist­jáns­dóttur, 22. sept­em­ber 2021. „Biðin var að buga okkur“. DV 21. jan­úar 1995, bls. 28–29.

Viðtal. Höfundur við Sigríði Rann­veigu Jóns­dóttur, 30. ágúst 2021. ,,Það eru lífin sem skipta öllu“. Morg­un­blaðið 19. jan­úar 1995, bls. 4.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegill

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um
InnlentBaksýnisspegill

Síðasti líf­láts­dóm­ur­inn á Íslandi – Setti rottu­eitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta. Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum sem...
Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Mannlífið

Paul Adal­steins­son reyndi að fjár­kúga með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar- Ráða­brugg lukku­ridd­ara

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka...
Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
InnlentBaksýnisspegill

Fimmtug prests­frú hjólaði hring­inn í kringum landið með tösku fulla af spari­kjólum.

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu. Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario...
Nemandi missti heyrn og fékk heilahristing: „Annar árásarmannanna virkur í hnefaleikafélagi“
InnlentBaksýnisspegill

Nemandi missti heyrn og fékk heila­hrist­ing: „Annar árás­armann­anna virkur í hnefa­leika­fé­lagi“

Árið 2009 var ráð­ist á 14. ára nem­anda Grunn­skól­ans í Sand­gerði. Ger­end­urnir voru tveir sam­nem­endur hans. Dreng­ur­inn hafði verið að spila við skóla­fé­laga sína þegar drengirnir tveir gengu upp að honum og réð­ust á hann. Dreng­ur­inn slas­að­ist alvar­lega. DV greindi frá mál­inu á sínum tíma: „Fjórtán ára nem­andi í Grunn­skóla Sand­gerðis slas­að­ist alvar­lega þegar tveir skóla­fé­lagar hans réð­ust á hann...
Lögregla kom upp um milljóna þýfi eftir tilkynningu um hnífsstungu: „Meðlimir í alræmdu þjófagengi“
InnlentBaksýnisspegill

Lögregla kom upp um millj­óna þýfi eftir til­kynn­ingu um hnífs­s­tungu: „Meðlimir í alræmdu þjófa­gengi“

Í mars árið 1995 fékk lög­regla til­kynn­ingu um hávaða og ölvun í kjall­ara­í­búð við Stang­ar­holt í Reykja­vík. Síðar var til­kynnt um hnífs­tungu í sömu íbúð. Til­kynn­ing um hnífstungu varð til þoss að lögreglan í Reykja­vik fann mikið af þýfi sem stolið hefur verið að und­anförnu. Talið er að verð­mæti þýfis­ins nemi milljónum. „Lögreglan í Reykjavík fékk til­kynn­ingu um mikil ólæti...
Morðið á Vesturgötu – Daníel fannst í rúminu með hendurnar bundnar fyrir aftan bak
Innlent

Morðið á Vest­ur­götu – Daníel fannst í rúm­inu með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak

Það var eitt mið­viku­dags­kvöld að maður nokkur bank­aði á dyr í Vest­ur­götu 22 í Reykja­vík. Spurði hann eftir einum íbúa húss­ins en sá var ekki við. Daníel Sím­on­ar­son, sem bjó í einni íbúð­inni í hús­inu, bauð hinum ókunn­uga manni inn og hófu þeir drykkju. Seinna um kvöldið fannst Daníel örendur í rúmi sínu, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins