„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Átján ára nektardansmær: „Leyfðu þeim að þukla sig að vild, bæði um brjóstin og milli fótanna“

Átján ára nektardansmær: „Leyfðu þeim að þukla sig að vild, bæði um brjóstin og milli fótanna“
Mynd/sam­sett skjá­skot tima­rit.is

Á tíunda ára­tug­inum átti sér stað bylgja innan skemmt­an­brans­ans á Íslandi. Nekt­ar­dans­staðir nutu mik­illa vin­sæla og virt­ist land­inn ekki fá nóg. Þegar ásóknin var sem mest voru til dæmis um átta slíkir staðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og áttu Akur­eyr­ingar metið miðað við höfða­tölu en þrír staðir voru starf­ræktir á Akureyri.

Þann 13. mars 1995 birt­ist grein í Helg­ar­póst­inum. Heim­ilda­maður lýsti fyrir blaða­manni aðbún­aði á starfs­að­stæðum kvenn­anna á nekt­ar­sýn­ingu á Café Bóhem.„Stúlk­urnar virt­ust frekar ungar og virt­ust ekki hafa neina stjórn á neinu. Þær gengu bara þægar á milli manna þegar þær voru orðnar naktar og leyfðu þeim að þukla sig að vild, bæði um brjóstin og milli fót­anna.“

Lýsing heim­ilda­manns­ins lík­ist einna helst starf­semi vænd­is­húss en í sam­tali við Helg­ar­póst­inn þvertók fram­kvæmda­stjóri stað­ar­ins, Guðjón Sverr­is­son, fyrir það og sagði það með öllu rangt.

800 króna aðgangs­eyrir var greiddur til að kom­ast inn á Café Bóhem og þetta umrædda kvöld greinir í frétt­inni að um 100 manns hafi verið á staðnum þá lýsti heim­ilda­mað­ur­inn aðstæðum þannig: „Um leið og stúlk­urnar, sem virt­ust mjög ungar, voru orðnar allsnaktar gengu þær á milli manna sem þukluðu þær að vild bæði um brjóstin og milli fót­anna og þegar ferð­inni var lokið milli ótal karl­manna í salnum klæddi stúlkan sig í nær­föt og sett­ist við borð í salnum og fylgd­ist með hinum þar til röðin kom aftur að henni en stað­ur­inn býður upp á sýn­ingar allt kvöldið með tíu til fimmtán mín­útna hléum inn á rnilli.

Heim­ilda­mað­ur­inn sagði í sam­tali við blaðið að honum hefði verið nóg boðið enda hefði hann fylgst með slíkum sýn­ingum erlendis og þær væru ein­fald­lega allt ann­ars eðlis en sýn­ing­arnar á Café Bóhem. Annar maður sem sá sýn­ing­una á föstu­dags­kvöldið, þegar nokkuð færri voru við­staddir, sagði í sam­tali við blaðið að menn hefðu mátt koma við stelp­urnar meðan þær gengu um sal­inn. Einnig hefðu þeir mátt ganga að þeim meðan á dans­inum stóð og stinga pen­ingum í sokka eða nær­buxur.“

Nektardansmær stígur fram

Þann 16. mars 1995 eða þremur dögum eftir birt­ingu fréttar Helg­ar­póst­ins birt­ist hjá sama miðli, nafn­laust við­tal við 18 ára stúlku sem hafði starfað sem dans­ari á staðnum í tvo mán­uði. „Mamma mín og pabbi eru brjáluð út í mig eftir frétt­ina sem birt­ist í PÓSTINUM. Þau vissu að ég væri að vinna þarna en ekki hvað ég væri að gera.“

Í við­tal­inu útskýrir hún aðstæður og vísar á bug lýs­ingum heim­ilda­manns­ins í fyrri frétt: „Það er ekki rétt að við leyfum þeim að þukla okkur að vild. Við látum þá ekk­ert káfa á okkur. Þeir fá aðeins að koma við brjóstin á okkur, en það telst varla káf. Ef þeir ger­ast of ágengir er okkur ráð­lagt að slá á hend­urnar á þeim. Auk þess að sýna eigum við í mesta lagi að setj­ast til borðs með þeim og athuga hvort þeir bjóði okkur í glas og svo­leiðis.“ Stúlkan segir hins vegar ekki nema fáeina karl­menn drukkna og ágenga, og aðeins einu sinni hefði hún þurft að henda karl­manni frá sér, en að öðru leyti gengi þetta vel. „En þetta er ekki drauma­starfið og maður fær heldur ekki góðan pen­ing fyrir að vinna þama. Það er bara rétt svo að maður geti lifað af þessu. Það sem bætir þetta þó upp er að stundum fáum við tips sem karl­arnir stinga í nær­bux­urnar okkar.“ Aðspurð sagði hún íslensku stúlk­unar ekki fara úr öllu, bara þá dönsku sem fýrir mán­uði bætt­ist í hóp­inn. Sú væri öllu reynd­ari en þær og hafi því kennt þeim tals­vert. „Við íslensku stelp­urnar viljum ekki fá slæmt orð á okkur, því reynum við að sleppa því að fara úr öllu.“ Hún stað­festi það sem fram kom í blað­inu á mánu­dag að sýn­ingar væru stans­lausar allt kvöldið með um það bil korters milli­bili og að aðeins ein stúlka sýndi í einu.

Úr því þú segir að þetta sé ekki drauma­starfið, hvað kom til að þú fórst að starfa sem nekt­ar­dans­mær á Café Bóhem?

„Mér datt þetta bara í hug þegar ég sá þetta aug­lýst enda hafði ég enga aðra vinnu. Ég tek það fram að ég hef aldrei unnið við svona áður. Ástæðan fyrir því að ég missti vinn­una mína sem ég var áður í var sú að ég datt og brotn­aði og þurfti því að vera lengi í gifsi og var þá til­kynnt að ég gæti ekki haldið vinn­unni. En um leið og ég fæ aðra vinnu hætti ég hér.“

Lögbann árið 2010

Lögbann var sett á nekt­ar­dans­staði á Íslandi 1. júlí 2010. RÚV fjall­aði um málið:

„Hinsti nekt­ar­dans­inn var stig­inn á nekt­ar­dans­staðnum Vegasi í gær. Lög sem banna nekt­ar­dans tóku gildi á mið­nætti en með þeim falla úr gildi und­an­þágur til að starf­rækja nekt­ar­dans­staði.

Nekt­ar­dans­staðir spruttu upp eins og gorkúlur víða um land seint á 10. ára­tugnum. Á tíma­bili voru starf­ræktir 8 slíkir staðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, 3 á Akureyri og 1 í Keflavík. Þeim hefur smám saman fækkað. Und­an­farin ár hefur þurft að sækja um sér­staka und­an­þágu frá lögum til að starf­rækja slíka staði en frá og með deg­inum í dag er ein­fald­lega bannað að gera út á nekt á skemmti­stöðum.

Eigendur nekt­ar­dans­staða hafa margir brugð­ist við nýju lög­unum með því að skipta um starf­semi. Á Vegas er til að mynda verið að umturna öllu. Staðnum verður breytt í bítla­bar og þar verða engar fáklæddar meyjar.

Þrátt fyrir laga­breyt­ing­una munu súlu­dans­sýn­ingar ekki hverfa með öllu. Dæmi eru um að menn ætli að halda sínu striki með örlitlum breyt­ingum þó.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegill

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um
InnlentBaksýnisspegill

Síðasti líf­láts­dóm­ur­inn á Íslandi – Setti rottu­eitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta. Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum sem...
Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Mannlífið

Paul Adal­steins­son reyndi að fjár­kúga með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar- Ráða­brugg lukku­ridd­ara

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka...
Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
InnlentBaksýnisspegill

Fimmtug prests­frú hjólaði hring­inn í kringum landið með tösku fulla af spari­kjólum.

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu. Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario...
Nemandi missti heyrn og fékk heilahristing: „Annar árásarmannanna virkur í hnefaleikafélagi“
InnlentBaksýnisspegill

Nemandi missti heyrn og fékk heila­hrist­ing: „Annar árás­armann­anna virkur í hnefa­leika­fé­lagi“

Árið 2009 var ráð­ist á 14. ára nem­anda Grunn­skól­ans í Sand­gerði. Ger­end­urnir voru tveir sam­nem­endur hans. Dreng­ur­inn hafði verið að spila við skóla­fé­laga sína þegar drengirnir tveir gengu upp að honum og réð­ust á hann. Dreng­ur­inn slas­að­ist alvar­lega. DV greindi frá mál­inu á sínum tíma: „Fjórtán ára nem­andi í Grunn­skóla Sand­gerðis slas­að­ist alvar­lega þegar tveir skóla­fé­lagar hans réð­ust á hann...
Lögregla kom upp um milljóna þýfi eftir tilkynningu um hnífsstungu: „Meðlimir í alræmdu þjófagengi“
InnlentBaksýnisspegill

Lögregla kom upp um millj­óna þýfi eftir til­kynn­ingu um hnífs­s­tungu: „Meðlimir í alræmdu þjófa­gengi“

Í mars árið 1995 fékk lög­regla til­kynn­ingu um hávaða og ölvun í kjall­ara­í­búð við Stang­ar­holt í Reykja­vík. Síðar var til­kynnt um hnífs­tungu í sömu íbúð. Til­kynn­ing um hnífstungu varð til þoss að lögreglan í Reykja­vik fann mikið af þýfi sem stolið hefur verið að und­anförnu. Talið er að verð­mæti þýfis­ins nemi milljónum. „Lögreglan í Reykjavík fékk til­kynn­ingu um mikil ólæti...
Morðið á Vesturgötu – Daníel fannst í rúminu með hendurnar bundnar fyrir aftan bak
Innlent

Morðið á Vest­ur­götu – Daníel fannst í rúm­inu með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak

Það var eitt mið­viku­dags­kvöld að maður nokkur bank­aði á dyr í Vest­ur­götu 22 í Reykja­vík. Spurði hann eftir einum íbúa húss­ins en sá var ekki við. Daníel Sím­on­ar­son, sem bjó í einni íbúð­inni í hús­inu, bauð hinum ókunn­uga manni inn og hófu þeir drykkju. Seinna um kvöldið fannst Daníel örendur í rúmi sínu, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins