„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vatican Girl – Hið dularfulla hvarf Emanuelu Orlando

Vatican Girl – Hið dularfulla hvarf Emanuelu Orlando

Eitt af því áhuga­verð­asta á Netflix nú um mundir, að mínu mati, eru heim­ild­ar­þætt­irnir Vatican Girl – The Disappearance of Emanuela Orlandi. Hin 15 ára Emanuela hvarf spor­laust í Vatikan-borg á brenn­andi heitum sum­ar­degi, 22. júní árið 1983, eftir að hafa sótt flautu­tíma. Hefur fjöl­skylda hennar leitað hennar stíft síðan.

Þætt­irnir og þetta dul­ar­fulla mál hefur allt og mætti helst líkja við skáld­sögu eftir Dan Brown. Það sem sveipar málið enn dul­ar­fyllri blæ en gengur og ger­ist í svip­uðum málum er sú stað­reynd að stelp­unni var rænt innan veggja Vatikans­ins en faðir hennar vann þar og fjöl­skyldan bjó þar öll. Þætt­irnir eru afar vel gerðir, útlitið, með­ferðin á efn­inu, við­tölin og heild­ar­myndin, til fyr­ir­myndar.

Þætt­irnir eru fjórir tals­ins og hver þáttur skilur mann eftir á barmi hengiflugs, eins og góðir heim­ild­ar­þættir eiga að gera, maður á að vilja meira. Fjöldi við­mæl­anda er mik­ill en í for­grunni er bróðir Emanuelu, Pietro Orlandi sem hefur hvað harð­ast leitað að systur sinni en þar má einnig sjá blaða­mann­inn Andrea Pur­gatori, lög­fræð­inga, lög­reglu­stjóra og fleiri sem komu að rann­sókn máls­ins.

Skoðaðar eru nokkrar kenn­ingar um hvarf Emanuelu og gæti hver þeirra verið mjög góð skáld­saga. Kenn­ing­arnar snú­ast meðal ann­ars um tengsl mann­ráns­ins við hryðju­verka­sam­tök, ítölsku mafí­una, morð­til­ræðið á Jóhann­esi Páli páfa árið 1981, hátt­sett­ann prest í Vatikan­inu og fleira í þeim dúr en það sem þær eiga allar sam­eig­in­legt er sú stað­reynd að þær benda allar til þess að Vatikanið viti meira en gefið hefur verið upp. Meira að segja virð­ist Francis páfi vita um afdrif hennar en ekki mun ég úskýra það frekar til að forð­ast að vera með Höskuld (e. spoiler).

Ég get ekki annað sagt en að það að Vatikanið gæti tengst mann­rán­inu á Emanuelu Orlandi komi mér akkurat ekk­ert á óvart því kaþ­ólska kirkjan er í raun, að mínu mati, skipu­leg glæp­a­starf­semi, ekk­ert ósvipuð Vís­inda­kirkj­unni þó af öðrum toga. Kaþólska kirkjan hefur að minnsta kosti um ára­tugaraðir tengst þús­undum barn­a­níðs­mála sem Vatikanið hefur hjálpað til við að þagga en allra nýjasta hneikslið snýr að prestum kirkj­unnar í Frakk­landi. Hvað varð um Emanuelu Orlandi? Ég er ekki alveg viss en ég vitna í þátt­inn og gam­alt ítalskt orða­til­tæki, „Sama hversu vel þú reynir að hylja leynd­ar­málið, kemur sann­leik­ur­inn ávalt á yfir­borðið að lokum.“

Fjöl­miðlapist­ill þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísitölufjölskylda í vanda
Innlentfjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísi­tölu­fjöl­skylda í vanda

Í lok febr­úar fór ég á frum­sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins á rokksöng­leiknum Eitruð lítil pilla í leik­stjórn Álfrúnar Helgu Örn­ólfs­dóttur, en lögin í sýn­ing­unni eru öll eftir kanadísku söng­kon­una Alanis Moris­sette sem skaust upp á stjörnu­him­in­inn með látum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Söng­leik­ur­inn er sam­inn af þeim Alanis Moris­sette og Diablo Cody og var fyrst frum­sýndur á Broadway árið 2019 og...
Nýja YouTube-þráhyggjan mín
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Nýja YouTube-þrá­hyggjan mín

Ég er mik­ill YouTube-maður. Ég horfi á mynd­bönd á meðan ég elda, set í upp­þvotta­vél­ina, á meðan ég tann­bursta mig og sit á kló­sett­inu. Mætti segja að þetta sé orðið að vanda­máli hjá mér. Síð­ast­liðið árið hef ég mest­megnis horft á sönn erlend saka­mál, svokölluð „True Crime“-mynd­skeið, sem og drauga­mynd­bönd. Drauga­mynd­böndin eru hálf­ávana­bind­andi, en þar má sjá miss­ann­fær­andi mynd­bönd af...
Blaðamennska á Íslandi – Leyndarmálin sem ekki má segja frá
Innlentfjölmiðlapistill

Blaða­mennska á Íslandi – Leynd­ar­málin sem ekki má segja frá

Starf blaða­manns­ins er í senn skemmti­legt, strembið, spenn­andi, stressandi og að ein­hverju leyti lýj­andi. Það sem gerir starfið skemmti­legt er sú stað­reynd að engir tveir dagar eru eins, alltaf nýjar fréttir og þú veist ekk­ert hvernig dag­ur­inn verður. Í starf­inu fær maður einnig tæki­færi til að tala við hresst og skemmti­legt fólk, læra um ýmsa fróð­lega hluti og næra þannig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins