„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Listin að láta sér leiðast

Listin að láta sér leiðast
Mynd/Envato Elements

Nú ætla ég að fá að tala eins og gam­all karl í þessum pistli, ekki að ég sé eitt­hvað sér­stak­lega ungur, er mið­aldra. Sem sagt, krakkar nú til dags … þetta er þannig pist­ill.

Ég er eins mikið „eítís“-barn og hugs­ast getur, þar sem ég fædd­ist árið 1980. Ég er að hluta til alinn upp í Tré­kyllis­vík, en þar fékk maður að vera í lausa­göngu frá morgni til kvölds. Okkur krökk­unum var hleypt út á morgn­ana á sumrin og svo var kallað á okkur í hádeg­is­mat. Eftir hádegi fórum við aftur út og komum aftur inn þegar kvöld­mat­ur­inn var til­bú­inn. Og hvað gerðum við úti? Allt sem barna­heil­unum gat dottið í hug. Við vorum nefni­lega það heppin að einu miðl­arnir sem þekkt­ust á þessum árum voru útvarpið og sjón­varpið. Engir sam­fé­lags­miðlar, engir snjall­símar, ekk­ert sem gat kaf­fært hug­ann. Ég við­ur­kenni að sumt sem við tókum okkur fyrir hendur er ekki prent­hæft, en margt af því var frá­bær vitn­is­burður um það sem fólki getur dottið í hug, þegar því leið­ist.

Í dag kunna krakkar ekki að láta sér leið­ast og það er alls ekki þeim sjálfum að kenna, heldur okkur for­eldr­unum og kannski sam­fé­lag­inu í heild líka. Börn verða sífellt yngri eig­endur snjall­síma, spjald­tölva, snjallúra og hvað þetta heitir allt. Frá því að þau eru smá­börn er afþr­ey­ingu skellt í and­litið á þeim, svo þau þurfi nú ekki að láta sér leið­ast, Guð forði þeim frá því! Vegna þess að þá gæti þeim dottið eitt­hvað frum­legt í hug. Nú er ég kannski að ýkja svo­lítið, börn fara alveg út að leika sér árið 2023, en þau taka samt yfir­leitt með sér snjall­sím­ana og ég hef oft séð krakka að „leik“ saman þar sem þeir standa eins og upp­vakn­ingar með augun föst í símunum sínum, jafn­vel að senda hvort öðru eitt­hvað ómissandi af TikTok. En já, þetta er auð­vitað ekki þeim að kenna. Sjálfur á ég dóttur sem er ansi háð sím­anum sínum, þótt hún sé að reyna sitt besta, greyið, við að minnka „neysl­una“. Oftar en ég get talið hefur hún kvartað í mér, að henni leið­ist og lætur það hljóma eins og ein­hvern skelfi­legan hlut, þján­ingu jafn­vel og ég hef alltaf svarað eins; „Gott“, því þá er hægt að æfa ímynd­un­ar­aflið sem ég veit að hún er stút­full af. Ég sjálfur er afar háður mínum síma, þrátt fyrir fla­um­rænt upp­eldi (e. ana­logue) og get því nákvæm­lega ekk­ert sagt, þannig séð, annað en að hvetja hana til að láta sím­ann frá sér reglu­lega og láta sér leið­ast, það er aldrei að vita hvaða snilld kemur út úr því.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísitölufjölskylda í vanda
Innlentfjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísi­tölu­fjöl­skylda í vanda

Í lok febr­úar fór ég á frum­sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins á rokksöng­leiknum Eitruð lítil pilla í leik­stjórn Álfrúnar Helgu Örn­ólfs­dóttur, en lögin í sýn­ing­unni eru öll eftir kanadísku söng­kon­una Alanis Moris­sette sem skaust upp á stjörnu­him­in­inn með látum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Söng­leik­ur­inn er sam­inn af þeim Alanis Moris­sette og Diablo Cody og var fyrst frum­sýndur á Broadway árið 2019 og...
Nýja YouTube-þráhyggjan mín
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Nýja YouTube-þrá­hyggjan mín

Ég er mik­ill YouTube-maður. Ég horfi á mynd­bönd á meðan ég elda, set í upp­þvotta­vél­ina, á meðan ég tann­bursta mig og sit á kló­sett­inu. Mætti segja að þetta sé orðið að vanda­máli hjá mér. Síð­ast­liðið árið hef ég mest­megnis horft á sönn erlend saka­mál, svokölluð „True Crime“-mynd­skeið, sem og drauga­mynd­bönd. Drauga­mynd­böndin eru hálf­ávana­bind­andi, en þar má sjá miss­ann­fær­andi mynd­bönd af...
Blaðamennska á Íslandi – Leyndarmálin sem ekki má segja frá
Innlentfjölmiðlapistill

Blaða­mennska á Íslandi – Leynd­ar­málin sem ekki má segja frá

Starf blaða­manns­ins er í senn skemmti­legt, strembið, spenn­andi, stressandi og að ein­hverju leyti lýj­andi. Það sem gerir starfið skemmti­legt er sú stað­reynd að engir tveir dagar eru eins, alltaf nýjar fréttir og þú veist ekk­ert hvernig dag­ur­inn verður. Í starf­inu fær maður einnig tæki­færi til að tala við hresst og skemmti­legt fólk, læra um ýmsa fróð­lega hluti og næra þannig...
Eitruð menning hinnar íslensku móður
Innlentfjölmiðlapistill

Eitruð menn­ing hinnar íslensku móður

Mér verður oft hugsað til þess hvernig for­feður okkar og -mæður fóru að því að ala upp börn án allrar aðstoðar frá nútíma­tækni. Spjald­tölvur, snjall­símar, sjón­varp og efn­isveitur. Mikill meiri­hluti for­eldra notar tæki til þess að fá augna­bliks­frið frá spurn­inga­flóði, gráti, væli og áreiti. Ég get stolt við­ur­kennt að vera í hópi þess­ara for­eldra. Ekki get ég talið þau skipti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins