„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Að eltast við eltihrelli – I Am A Stalker á Netflix

Að eltast við eltihrelli – I Am A Stalker á Netflix

Upp á síðkastið hafa þætt­irnir I Am A Stalker á Netflix átt hug minn allan en það eru heim­ild­ar­þættir sem fjalla um svo­kall­aða elti­hrella. Má jafn­vel segja að ég sé kom­inn með þá á heil­ann. Svona til að vera í stíl við inni­hald þeirra.

Hver þáttur fjallar um einn elti­hrelli og mál hans. Tekið er við­tal við elti­hrell­inn sjálfan sem og fórn­ar­lömb hans og aðra sem tengj­ast mál­inu á ein­hvern hátt. Þá er einnig farið vel yfir hvert mál og stundum eru alvöru mynd­bands­upp­tökur frá mál­inu sýndar. Sem sagt, þetta eru afar vand­aðir þættir, mikið í þá lagt greini­lega og mikil rann­sókn­ar­vinna á bak­við hvern þátt.

Það sem mér finnst hins vegar áhuga­verð­asta við þætt­ina er inn­sýnin sem maður fær inn í huga elti­hrell­anna. Ekki mis­skilja mig, þeir eru gríð­ar­lega óhugn­an­legir og stór­hættu­legir en mikið hel­víti er heill­andi að skyggn­ast inn í huga þeirra. Svona utan frá að minnsta kosti.

Í einum þætt­inum var fjallað um mál manns sem hafði átt ægi­lega bágt en hann hafði fyrir algjöra slysni keyrt yfir son sinn og lést son­ur­inn. Fullur af sekt­ar­kennd fór hann að mis­nota eit­ur­lyf og áður en varði var hann far­inn að beita konu sína ofbeldi. Hún flúði með tveggja ára son þeirra í annað ríki í Banda­ríkj­unum og við tók hrotta­legur elti­hrella­tíma­bil sem end­aði á tja, ég ætla ekki að skemma neitt fyrir vænt­an­legan áhorf­anda. Þarna var ég búinn að fatta, að ég hélt, að mað­ur­inn hefði orðið svona illa bil­aður við að verða valdur að dauða sonar síns og sár­vor­kenndi honum. En svo kom annað í ljós, hann hafði elti­hrellt aðrar kærustur áður þannig að hann var búinn að vera bil­aður ansi lengi.

Í Banda­ríkj­unum ber­ast yfir þrjár millj­ónir til­kynn­inga á ári hverju um elti­hrella. Ekki veit ég töl­una hér á landi en ein­hvern veg­inn efast ég um að ástandið hér sé eitt­hvað mikið betra, svona miðað við höfða­tölu auð­vitað. Elti­hrella­mál hafa reglu­lega ratað í fjöl­miðla í gegnum tíð­ina en nú er algeng­ara að finna frá­sagnir af slíku á sam­fé­lags­miðl­unum og það sem maður hefur séð er alls ekk­ert svo ólíkt því sem sést í þessum þáttum. Þetta er saga af þrá­hyggju, eign­ar­halds­fíkn og algjöra veru­leikafirr­ingu, svo eitt­hvað sé nefnt. Og það er afar athygl­is­vert að horfa á. Svona utan frá að minnsta kosti.

Fjöl­miðlapist­ill þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem fæst ókeypis í Bónus og Hag­kaupum á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og nágrenni. Þá er einnig hægt að lesa blaðið í raf­rænni útgáfu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísitölufjölskylda í vanda
Innlentfjölmiðlapistill

Eitruð lítil pilla – Vísi­tölu­fjöl­skylda í vanda

Í lok febr­úar fór ég á frum­sýn­ingu Borg­ar­leik­húss­ins á rokksöng­leiknum Eitruð lítil pilla í leik­stjórn Álfrúnar Helgu Örn­ólfs­dóttur, en lögin í sýn­ing­unni eru öll eftir kanadísku söng­kon­una Alanis Moris­sette sem skaust upp á stjörnu­him­in­inn með látum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Söng­leik­ur­inn er sam­inn af þeim Alanis Moris­sette og Diablo Cody og var fyrst frum­sýndur á Broadway árið 2019 og...
Nýja YouTube-þráhyggjan mín
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Nýja YouTube-þrá­hyggjan mín

Ég er mik­ill YouTube-maður. Ég horfi á mynd­bönd á meðan ég elda, set í upp­þvotta­vél­ina, á meðan ég tann­bursta mig og sit á kló­sett­inu. Mætti segja að þetta sé orðið að vanda­máli hjá mér. Síð­ast­liðið árið hef ég mest­megnis horft á sönn erlend saka­mál, svokölluð „True Crime“-mynd­skeið, sem og drauga­mynd­bönd. Drauga­mynd­böndin eru hálf­ávana­bind­andi, en þar má sjá miss­ann­fær­andi mynd­bönd af...
Blaðamennska á Íslandi – Leyndarmálin sem ekki má segja frá
Innlentfjölmiðlapistill

Blaða­mennska á Íslandi – Leynd­ar­málin sem ekki má segja frá

Starf blaða­manns­ins er í senn skemmti­legt, strembið, spenn­andi, stressandi og að ein­hverju leyti lýj­andi. Það sem gerir starfið skemmti­legt er sú stað­reynd að engir tveir dagar eru eins, alltaf nýjar fréttir og þú veist ekk­ert hvernig dag­ur­inn verður. Í starf­inu fær maður einnig tæki­færi til að tala við hresst og skemmti­legt fólk, læra um ýmsa fróð­lega hluti og næra þannig...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins