„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Karlinn sem gerði kraftaverkin – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld

Karlinn sem gerði kraftaverkin – Nýr hlaðvarpsþáttur Jóns Sigurðar væntanlegur í kvöld
Heilagur Custodio

Er til fólk sem getur veitt blindum sýn, læknað fólk af krabba­meini og ljáð löm­uðu fólki mátt í öllum lík­am­anum? Í Andalúsíu á Spáni trúa margir að svo sé og þess til sann­inda­merkis benda þeir á sögu heilags manns sem Custodio hét. Hann féll reyndar frá árið 1961 en langar biðraðir við gamlan bæna­stað hans, sem er lít­ill hellir, sanna að fólk telur hann enn vera að störfum því fólk sækir þann stað enn í dag til að fá bót meina sinna. 

Af krafta­verka­mann­inum fara ýmsar sögur, ekki aðeins manna á milli heldur hefur rit­höf­und­ur­inn Micheal Jacobs sagt frá honum í fræg­ustu bók sinni, The Factory of Light, eða Ljós­fa­brikkan. Þar segir, til dæmis, frá því þegar for­eldrar fóru með lamaðan dreng sinn og ætl­uðu að taka hús á Custodio en rák­ust á hann á förnum vegi. Án frek­ari við­kynn­ingar bað hann dreng­inn að koma niður af asnanum en for­eldrar sögðu mein­bugi á því og ætl­uðu að fara að útlysta fyrir honum sjúkra­sögu stráks. Custodio hlust­aði hins­vegar ekki á slíkt tal og skip­aði drengnum að koma niður af far­stkjót­anum. Loks lét dreng­ur­inn það eftir honum og, öllum til mik­illar undr­unar, stóð hann styrkum fótum loks þegar hann hafði jörð undir fótum og labb­aði alheil­brigður til næsta bæjar.

Jón Sigurður Eyj­ólfs­son, sem býr á þessu svæði, segir í hlað­varps­þætti sínum Rúntað á Rucio, að á flestum heim­ilum á svæð­inu finn­ist myndir af Heilögum Custodio, álíka þeim sem fólk hefur af dýrð­lingum sínum. Stundum eru þær á sér­stöku alt­ari. Til eru svo og fleiri krafta­verka­menn af þessu tagi sem enn eru sagðir veita líkn þrátt fyrir að hafa horfið yfir móð­una miklu. Jón Sigurður hefur látið reyna á lækn­ing­ar­mátt­inn í hell­inum en án árang­urs. Þó gerð­ist þar nokkuð sem gefur til kynna að sá gamli gæti enn verið að störfum en sagt verður frá því í þætt­inum.

Ekki kann Jón Sigurður sam­bæri­legar sögur frá Íslandi nema þá helst af Guðrúnu Sig­urð­ar­dóttur mið­ils sem sagði frá störfum sínum í bók­inni Birtan að handan, sem kom út árið 1986. Notaði hún mið­ils­hæfi­leika sína til að koma fjölda fólks til aðstoðar, en margir leit­uðu á náðir hennar á löngum ferli, og tók hún aldrei eyrir fyrir. Einnig skráði hún sögur Ragn­heiðar Brynj­ólfs­dóttur, bisk­ups­dóttur sem eign­að­ist barn í meinum á sautj­ándu öld, sem sagði miðl­inum raunir sínar sem svo eru skráðar í bók­inni. Custodio tók ekki heldur laun fyrir sín störf og enn síður barna­barn hans sem breytt hefur heim­ili krafta­verka­manns­ins í safn. Þangað fór Jón Sigurður og fékk bágt fyrir þegar hann dró upp pyngju sína að heim­sókn lok­inni. „Við viljum ekk­ert svona hér,“ sagði afa­barnið.

Sextándi hlað­varps­þáttur Jóns Sigurðar; Rúntað á Rucio birt­ist á vef Mannlífs í kvöld og má bóka það að þátt­ur­inn verður bráð­skemmti­legur að vanda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlaðvarp

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Írska lögreglan birti ekki mikilvæga vísbendingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trúlega upp í bíl
Innlenthlaðvarp

Írska lög­reglan birti ekki mik­il­væga vís­bend­ingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trú­lega upp í bíl

Upptaka sem írska lög­reglan Gadaí fann í mars 2019, bendir til þess að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf í Dyflinni rúmum mán­uði áður, hafi ekki horfið fót­gang­andi, heldur hafi hann verið tek­inn upp í bif­reið. Í þriðja þætti hlað­varps­ins Where is Jón? eða Hvar er Jón, sem er sam­starfs­verk­efni RÚV og RTÉ í Írlandi, koma fram upp­lýs­ingar um mynd­bands­upp­tökur sem...
Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi
Menning

Óútskýrð geim­för og upp­ljóstr­ar­inn – Birtu mynd­bönd af fljúg­andi furðu­hlutum yfir Íslandi

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir félag­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­hald­andi umræðu um fljúg­andi furðu­hluti. Í þætt­inum fóru strák­arnir yfir nokkrar nýjar frá­sagnir Íslend­inga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafn­leynd og tals­vert myndefni fylgdu frá­sögn­unum. Það sem vakti mestu athygl­ina voru mynd­bönd sem tekin voru í Njarðvík og Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“
Menning

Gunn­laugur segir heim­inn vera að breyt­ast: „Valdið er að fær­ast í alþjóð­legar stofn­anir“

Gunn­laugur Guð­munds­son stjörnu­spek­ingur segir stóran hluta af þján­ingu fólks stafa af remb­ingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera ein­stak­lingur. Gunn­laugur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur tekið fólk í einka­tíma í meira en 40 ár og varð hug­fang­inn af stjörnu­speki aðeins 15 ára gam­all: „1973 gerði ég fyrsta stjörnu­kortið...
Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“
Menning

Birta mynd­bönd af dul­ar­fullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög van­máttug gagn­vart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta. Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins