„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Trúbadorinn sem Pinochet lét myrða

Trúbadorinn sem Pinochet lét myrða
Victor Jara

Einn fræg­asti tón­list­ar­maður sem Chile hefur alið, Victor Jara, fékk að þola ein­hvern þann ömur­leg­asta dauð­daga sem hægt er að hugsa sér. Fyrst voru mölv­aðir á honum fing­urnir, hann lát­inn hafa gítar og hlæj­andi lög­reglu­menn sögðu honum að syngja nú og spila. Sagt er að þrátt fyrir þján­ing­arnar hafi hann sungið að hætti vinstri­manna „Venceremos“ eða „Við munum vinna.“

Victor Jara

Það var þó ekk­ert útlit fyrir það á þess­ari stundu en Augusto Pinochet hafði gert valda­rán í Chile og Salvador Allende, frá­far­andi for­seti, hafði fallið fyrir eigin hendi í for­seta­höll­inni í Santiago áður en her­inn náði henni á sitt vald. Og nú vitum við að Pinochet var við völd, frá þessum hræði­legu dögum árið 1973, til árs­ins 1990 þegar hann flúði í frið­helg­ina sem Margrét Thacher hélt honum í Bret­landi. Þegar þetta nýja yfir­vald var búið að yfir­heyra Victors og skemmta sér með þján­ingar hans tók hers­höfð­ing­inn José Adolfo Paredes Márquez málin í sínar hendur og lék rúss­neska rúl­lettu á söngvaskáld­inu. Það er að segja, setti eina kúli í hylkið, lagði byssu­hlaupið við gagn­auga Victors og tók svo nokkrum sinnum í gikk­inn uns kúlan hljóp loks­ins af.

Þó yfir­völd í Chile hafi tekið af lífi um fjögur þús­und manns í valda­tíð Pinochets telja sumir að hann hafi verið góður for­seti og kalla hann frels­ara lands­ins þar sem efna­hag­ur­inn komst í gott lag í valda­tíð hans. Spænski lög­mað­ur­inn Baltazar Garzón reyndi hins­vegar ítrekað að fá hann fram­seldan og fann smugu í alþjóð­legum lögum sem gætu heim­ilað að láta rétta yfir honum en honum varð ekki kápan úr klæð­inu svo Pinochet dó frjáls maður árið 2006. Böð­ull­inn José Adolfo Paredes Márquez komst þó ekki undan en það var ekki fyrr en 2009 að hann var dæmdur fyrir ódæði sitt. Við rann­sókn máls­ins var lík söngvaskálds­ins grafið upp.

Í valdarán­inu árið 1973 breytti ein­ræð­is­stjórnin íþrótta­leik­vangi í fang­elsi þar sem þeir yfir­heyrðu, pynt­uðu og myrtu and­stæð­inga sína. Það var þar sem Victor Jara var tek­inn af lífi. En nú eru aðrir tímar í Chile, til allrar ham­ingju, og í dag ber þessi íþrótta­leik­vangur nafn hans.

Í þætt­inum Rúntað á Rucio fer Jón Sigurður Eyj­ólfs­son yfir þessa atburða­rás og fylgir söngvaskáld­inu Victori Jara og for­set­anum Salvador Allende í rauðan dauðan en einnig kemur Julian Assange við sögu. Hægt er að hlusta á þátt­inn hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlaðvarp

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Írska lögreglan birti ekki mikilvæga vísbendingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trúlega upp í bíl
Innlenthlaðvarp

Írska lög­reglan birti ekki mik­il­væga vís­bend­ingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trú­lega upp í bíl

Upptaka sem írska lög­reglan Gadaí fann í mars 2019, bendir til þess að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf í Dyflinni rúmum mán­uði áður, hafi ekki horfið fót­gang­andi, heldur hafi hann verið tek­inn upp í bif­reið. Í þriðja þætti hlað­varps­ins Where is Jón? eða Hvar er Jón, sem er sam­starfs­verk­efni RÚV og RTÉ í Írlandi, koma fram upp­lýs­ingar um mynd­bands­upp­tökur sem...
Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi
Menning

Óútskýrð geim­för og upp­ljóstr­ar­inn – Birtu mynd­bönd af fljúg­andi furðu­hlutum yfir Íslandi

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir félag­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­hald­andi umræðu um fljúg­andi furðu­hluti. Í þætt­inum fóru strák­arnir yfir nokkrar nýjar frá­sagnir Íslend­inga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafn­leynd og tals­vert myndefni fylgdu frá­sögn­unum. Það sem vakti mestu athygl­ina voru mynd­bönd sem tekin voru í Njarðvík og Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“
Menning

Gunn­laugur segir heim­inn vera að breyt­ast: „Valdið er að fær­ast í alþjóð­legar stofn­anir“

Gunn­laugur Guð­munds­son stjörnu­spek­ingur segir stóran hluta af þján­ingu fólks stafa af remb­ingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera ein­stak­lingur. Gunn­laugur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur tekið fólk í einka­tíma í meira en 40 ár og varð hug­fang­inn af stjörnu­speki aðeins 15 ára gam­all: „1973 gerði ég fyrsta stjörnu­kortið...
Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“
Menning

Birta mynd­bönd af dul­ar­fullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög van­máttug gagn­vart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta. Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins