„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fólskuleg líkamsárás í miðbænum – Karlmaður laminn í andlitið með meitli

Fólskuleg líkamsárás í miðbænum – Karlmaður laminn í andlitið með meitli
Bak­sýn­is­speg­ill um Meit­ils­málið. Myndin er sam­sett

Þrír piltar réð­ust á fimm menn á Lauga­vegi með þeim afleið­ingum að einn mann­anna hand­leggs­brotn­aði, annar rif­beins­brotn­aði og þriðji var lam­inn í and­litið með meitli og missti að sökum þess þrettán tennur. Drengirnir veitt­ust að mönnum vopn­aðir bar­eflum; rör­bútum, spýtum og meitli. Tveir árás­armann­anna voru 16 ára og sá þriðji 15 ára þegar atvikið átti sér stað, klukkan 10 mín­útur yfir sex, sunnu­dags­morg­un­inn 24. apríl 1994.

Í dag­bók lög­reglu sem birt­ist í Morg­un­blað­inu 26. apríl 1994 stóð:

„Alvar­leg­asta árás­ar­málið gerð­ist um kl. 06.10 á sunnu­dags­morgun þar sem þrír ungir menn réð­ust fyrst að tveimur á Lauga­vegi, annar þeirra hlaut hand­leggs­brot en hinn síðu­brotn­aði nokkru síðar og var sá þriðji fyrir árás af sömu mönnum, en sá var lam­inn í and­lit og brotn­uðu 13 tennur. Árás­ar­menn­irnir voru með bar­efli, prik, rör­bút og meitil, en hann var not­aður í and­lit þess sem tennur brotn­uðu í.“

Eftir árás­inu hlupu pilt­arnir af vett­vangi og niður á Hverf­is­götu þar sem aðrir veg­far­endur reyndu að hamla för þeirra og köll­uðu eftir aðstoð lög­reglu. Þá segir í annarri frétt í Morg­un­blað­inu, 26. apríl 1994:

„Þá hafði einn mann­anna, sem úrskurða í gæslu­varð­hald sökum pilt­arnir réð­ust á á Lauga­vegi, veitt þeim eft­ir­för og sló einn pilt­anna hann með meitli í and­litið, svo 13 tennur brotn­uðu. Manninum tókst samt sem áður að hafa árás­armann­inn undir og halda honum þar til lög­regla kom á stað­inn. Hinir pilta­mir tveir voru svo hand­teknir skammt frá.“ 

Skáskot úr Morg­un­blað­inu, þriðju­dag­inn 26. apríl, 1994. Bls 51.

Allir með afbrotasögu

Tveir pilt­anna voru úrskurð­aðir í gæslu­varð en sá yngsti sem var ein­ungis 15 ára gam­all var sendur á Ung­linga­heim­ili rík­is­ins og lát­inn laus eftir stutta við­veru.

Hinn 15 ára gamli hafði verið í hópi inn­brots­þjófa, sem réð­ust að manni í Breið­holti, en fórn­ar­lambið hafði komið að þeim við inn­brot.

Annar þeirra tveggja 16 ára var í hópi ung­linga, sem hafði gengið ber­serks­gang og framið mikil skemmd­ar­verk í nokkrum sum­ar­bú­stöðum við Með­al­fells­vatn árinu áður.

Þriðji pilt­ur­inn átti sögu um ýmis afbrota og hafði ekki hafið afplánun dóms sem hann hlaut vegna ann­arra brota. Var hann því laus vegna þess að áfrýj­un­ar­frestur til Hæsta­réttar var ekki lið­inn.

30 innbrot á 43 dögum

Mið­viku­dag­inn 27. apríl 1994 birist sam­an­tekt í DV á brotum pilts­ins. Þar kom fram að hann hafi hlotið dóm vegna inn­brota í 29 sölu­turna, mynd­banda­leigur og sendi­bíla­stöð. Hafði hann rænt miklum fjár­hæðum í inn­brot­unum og úr spila­kössum. Einn þeirra sem hann í lið­togi við aðra hafði sprengt í loft upp.

Pilt­ur­inn hlaut árs óskil­orðs­bundið fang­elsi en hann átti að baki sér tvo aðra skil­orðs­bundna dóma:

„Hér­aðs­dómur tók til­lit til ungs ald­urs pilts­ins og þess að hann ját­aði brot sín greið­lega. Á móti kom mik­ill fjöldi brota og að and­virði þess sem hann tók var yfir 800 þús­und krónur. Einnig það að hann stund­aði brot sín sem um atvinnu væri að ræða.“

DV 27. apríl 1994, bls 3.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegill

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um
InnlentBaksýnisspegill

Síðasti líf­láts­dóm­ur­inn á Íslandi – Setti rottu­eitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta. Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum sem...
Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Mannlífið

Paul Adal­steins­son reyndi að fjár­kúga með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar- Ráða­brugg lukku­ridd­ara

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka...
Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
InnlentBaksýnisspegill

Fimmtug prests­frú hjólaði hring­inn í kringum landið með tösku fulla af spari­kjólum.

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu. Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario...
Nemandi missti heyrn og fékk heilahristing: „Annar árásarmannanna virkur í hnefaleikafélagi“
InnlentBaksýnisspegill

Nemandi missti heyrn og fékk heila­hrist­ing: „Annar árás­armann­anna virkur í hnefa­leika­fé­lagi“

Árið 2009 var ráð­ist á 14. ára nem­anda Grunn­skól­ans í Sand­gerði. Ger­end­urnir voru tveir sam­nem­endur hans. Dreng­ur­inn hafði verið að spila við skóla­fé­laga sína þegar drengirnir tveir gengu upp að honum og réð­ust á hann. Dreng­ur­inn slas­að­ist alvar­lega. DV greindi frá mál­inu á sínum tíma: „Fjórtán ára nem­andi í Grunn­skóla Sand­gerðis slas­að­ist alvar­lega þegar tveir skóla­fé­lagar hans réð­ust á hann...
Lögregla kom upp um milljóna þýfi eftir tilkynningu um hnífsstungu: „Meðlimir í alræmdu þjófagengi“
InnlentBaksýnisspegill

Lögregla kom upp um millj­óna þýfi eftir til­kynn­ingu um hnífs­s­tungu: „Meðlimir í alræmdu þjófa­gengi“

Í mars árið 1995 fékk lög­regla til­kynn­ingu um hávaða og ölvun í kjall­ara­í­búð við Stang­ar­holt í Reykja­vík. Síðar var til­kynnt um hnífs­tungu í sömu íbúð. Til­kynn­ing um hnífstungu varð til þoss að lögreglan í Reykja­vik fann mikið af þýfi sem stolið hefur verið að und­anförnu. Talið er að verð­mæti þýfis­ins nemi milljónum. „Lögreglan í Reykjavík fékk til­kynn­ingu um mikil ólæti...
Morðið á Vesturgötu – Daníel fannst í rúminu með hendurnar bundnar fyrir aftan bak
Innlent

Morðið á Vest­ur­götu – Daníel fannst í rúm­inu með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak

Það var eitt mið­viku­dags­kvöld að maður nokkur bank­aði á dyr í Vest­ur­götu 22 í Reykja­vík. Spurði hann eftir einum íbúa húss­ins en sá var ekki við. Daníel Sím­on­ar­son, sem bjó í einni íbúð­inni í hús­inu, bauð hinum ókunn­uga manni inn og hófu þeir drykkju. Seinna um kvöldið fannst Daníel örendur í rúmi sínu, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins