„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hinn alræmdi Sveddi tönn: „Ég er nefnilega miklu meiri dópisti en dópsali“

Hinn alræmdi Sveddi tönn: „Ég er nefnilega miklu meiri dópisti en dópsali“
Myndin er sam­sett.

Sverrir Þór Gunn­ars­son eða Sveddi tönn var hand­tek­inn í gær í Brasilíu. Greint var frá umfangs­miklum aðgerðum lög­reglu í Brasil­ískum fjöl­miðlum.  Sverrir á að baki langan saka­feril, allt frá árinu 1988 en þá var hann aðeins sextán ára gam­all.

Stóra fíkniefnamálið

Brot Sverris voru fyrst um sinn minni­háttar fíkni­efna- og umferða­laga­brot. Árið 2000 var hann dæmdur í sjö og hálfs árs fang­elsi fyrir aðild sína í Stóra fíkni­efna­mál­inu en það er eitt þekktasta glæpa­mál Íslands. 19 manns voru ákærðir og 13 sak­felldir, Sverrir fékk næst­þyngsta dóm­inn.

„Nítján manns hafa verið ákærðir í þessum hluta málsins og hafa níu þeirra setið í gæslu­varð­haldi á Litla-Hrauni síðan í sept­em­ber. Þrettán aðrir verða ákærðir á næstu dögum í sam­bandi við þetta mál. Flestir hinna 19 hafa við­ur­kennt aðild að málinu, en hafa í dómsal borið vitni um mun minna magn inn­fluttra eit­ur­lyfja og færri ferðir en áður kom fram við lögreglu­yf­ir­heyrslur. Hinir ákærðu eru sak­aðir um að hafa nýtt sé aðstöðu Samskipa og flutt inn mikið magn eit­ur­lyfja frá Hollandi, Danmörku og Bandaríkjunum á árunum 1997 til 1999.“(DV, 8.júní, 2000)

Árið 2001 var tann­læknir dæmdur í tutt­ugu mán­aða fang­elsi fyrir pen­inga­þvott sem sagðir voru tengj­ast Sverri. Var þetta í fyrsta skiptið sem dómur féll í tengslum við pen­inga­þvott hér á landi.

Vændishús í Ármúla

Árið 2006 gerði lög­regla hús­leit í Ármúla en þar fannst mikið magn fíkni­efna, víagra töflur og létt­klæddar brasil­ískar konur. Húsnæðið var í eigu Sverris en aldrei var ákært í mál­inu.

„Starfs­menn fíkni­efna­deildar Lögregl­unnar í Reykjavík, með aðstoð víkinga­sveit­ar­innar, gerðu á dögunum húsleit á efri hæð húss í Ármúla. Þar er til húsa félagið Neðrihlíð en stjórnandi þess er Sverrir Þór Gunn­ars­son, betur þekktur sem Sveddi tönn. Við húsleit­ina fund­ust fíkni­efni og brasilískar stúlkur sem virt­ust hafa þann eina til­gang að selja karlmönnum líkama sinn. Enginn var settur í gæslu­varð­hald en DV hefur heim­ildir fyrir því að fíkni­efna­deildin hafi vaktað húsið um all­langt skeið. “ (DV, 7.apríl, 2006)

22 ár í fangelsi í Brasilíu

Ástandið á Sverri var ekki skárra árið 2012 þegar hann fékk 22 ára dóm í Brasilíu fyrir inn­flutn­ing á rúm­lega 50 þús­und e-töflum. Þangað hafði hann flúið frá Spáni en þar var hann dæmdur til 9 ára fang­els­is­vistar fyrir svipað brot. Viktoría Her­manns­dóttir tók við Sverri langt við­tal úr fang­els­inu sem birt var í DV þann 26.nóv­em­ber árið 2012. „Hann furðar sig á dómnum sem hann segir vera hneyksli. „Ég skal lofa ykkur því að ég verð kom­inn út innan árs, sýk aður. Ég fæ þessa með­ferð því ég hef jú gert ýmis­legt af mér. En ég neyði engan í eitt né neitt. Ég er dópisti, fíkni­efna­neyt­andi. Ég neyti fíkni­efna á hverjum ein­asta degi. Ég er nefni­lega miklu meiri dópisti en dópsali. Mér finnst voða gott að fá mér kók í nefið, ég er alveg sjúkur í þetta. En ég er ekki að hagn­ast á eit­ur­lyfjum.“

Sagan heldur áfram

Sverrir er nú orð­inn fimm­tugur og eftir 34 ára saka­feril seigl­ast hann áfram. Þann 12 apríl síð­ast­lið­inn var hann hand­tek­inn á ný í til­raunum brasil­ísku lög­regl­unnar til þess að upp­ræta glæpa­sam­tök sem sér­hæfa sig í pen­inga­þvætti og fíkni­efna­sölu. Um 250 lög­reglu­menn komu að aðgerð­unum, gerðar voru 49 hús­leitir og verð­mæti þeirra eigna sem lög­regla lagði hald á er metið á um fjóra millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegill

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um
InnlentBaksýnisspegill

Síðasti líf­láts­dóm­ur­inn á Íslandi – Setti rottu­eitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta. Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum sem...
Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Mannlífið

Paul Adal­steins­son reyndi að fjár­kúga með­limi kon­ungs­fjöl­skyld­unnar- Ráða­brugg lukku­ridd­ara

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka...
Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
InnlentBaksýnisspegill

Fimmtug prests­frú hjólaði hring­inn í kringum landið með tösku fulla af spari­kjólum.

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu. Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario...
Nemandi missti heyrn og fékk heilahristing: „Annar árásarmannanna virkur í hnefaleikafélagi“
InnlentBaksýnisspegill

Nemandi missti heyrn og fékk heila­hrist­ing: „Annar árás­armann­anna virkur í hnefa­leika­fé­lagi“

Árið 2009 var ráð­ist á 14. ára nem­anda Grunn­skól­ans í Sand­gerði. Ger­end­urnir voru tveir sam­nem­endur hans. Dreng­ur­inn hafði verið að spila við skóla­fé­laga sína þegar drengirnir tveir gengu upp að honum og réð­ust á hann. Dreng­ur­inn slas­að­ist alvar­lega. DV greindi frá mál­inu á sínum tíma: „Fjórtán ára nem­andi í Grunn­skóla Sand­gerðis slas­að­ist alvar­lega þegar tveir skóla­fé­lagar hans réð­ust á hann...
Lögregla kom upp um milljóna þýfi eftir tilkynningu um hnífsstungu: „Meðlimir í alræmdu þjófagengi“
InnlentBaksýnisspegill

Lögregla kom upp um millj­óna þýfi eftir til­kynn­ingu um hnífs­s­tungu: „Meðlimir í alræmdu þjófa­gengi“

Í mars árið 1995 fékk lög­regla til­kynn­ingu um hávaða og ölvun í kjall­ara­í­búð við Stang­ar­holt í Reykja­vík. Síðar var til­kynnt um hnífs­tungu í sömu íbúð. Til­kynn­ing um hnífstungu varð til þoss að lögreglan í Reykja­vik fann mikið af þýfi sem stolið hefur verið að und­anförnu. Talið er að verð­mæti þýfis­ins nemi milljónum. „Lögreglan í Reykjavík fékk til­kynn­ingu um mikil ólæti...
Morðið á Vesturgötu – Daníel fannst í rúminu með hendurnar bundnar fyrir aftan bak
Innlent

Morðið á Vest­ur­götu – Daníel fannst í rúm­inu með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak

Það var eitt mið­viku­dags­kvöld að maður nokkur bank­aði á dyr í Vest­ur­götu 22 í Reykja­vík. Spurði hann eftir einum íbúa húss­ins en sá var ekki við. Daníel Sím­on­ar­son, sem bjó í einni íbúð­inni í hús­inu, bauð hinum ókunn­uga manni inn og hófu þeir drykkju. Seinna um kvöldið fannst Daníel örendur í rúmi sínu, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þann...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins