„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Af geimverum og fórnarlömbum mansals

Af geimverum og fórnarlömbum mansals
Geim­verur. Mynd: Pexels – Miriam Espacio

Í góðum málum

Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr geimnum hefðu verið hald­fest af banda­ríska hernum, sem og lík geim­vera. Þannig að lík­urnar á að kenn­ingin um til­vist geim­vera og heim­sókn þeirra til jarð­ar­innar, eru orðnar nán­ast 100 pró­sent, það er að segja ef menn­irnir voru að segja satt.

Þá hljóp aldeilis á snærið hjá sam­sær­is­kenn­inga­fólki þegar Kári Stef­áns­son lét hafa eftir sér að eftir á að hyggja hefði verið betra að sleppa að bólu­setja fólk undir fimm­tugu. Tók Kári þó fram að bólu­setn­ing­arnar hefðu bjargað jafn­vel tugum millj­óna manna en að áhættan sem tekin var við notkun bólu­setn­ing­anna hefði valdið því að örlítið pró­sent þeirra sem fengu þær, þró­aði með sér bólgur í hjarta­vöðva og fleira í þeim dúr. Í yfir­lýs­ingu Kára eftir að við­tal við hann í hlað­varps­þætt­inum Skoð­ana­bræður olli mis­skiln­ingi fjöl­miðla, segir hann orð­rétt: „Miklar umræður hafa skap­ast um bólgu í hjarta­vöðva sem auka­verkun af bólu­setn­ingu. Það er rétt að bólu­setn­ing gegn veirunni þre­faldar hætt­una á henni en sýk­ingin sjálf átján­faldar hana þannig að bólu­setn­ingin veitir sexfalda vörn gegn bólg­unni.“ En unn­endur góðra sam­sær­is­kenn­inga sjá bara eitt út úr þessu öllu; bólu­setn­ing­arnar þre­falda hætt­una á bólgu í hjarta­vöðva.

Enn eitt dæmi um þau góðu mál sem sam­sær­is­kenn­inga­fólk er í þessa dag­ana er sú stað­reynd að glæ­nýr íslenskur hlað­varps­þáttur hefur nú litið dags­ins ljós, Álhatt­ur­inn, en þátt­ur­inn er með þeim vin­sæl­ustu á Íslandi í dag.

Í slæmum málum

Hæl­is­leit­endur á Íslandi eru í skíta­málum þessi dægrin, en ný útlend­inga­lög hafa haft skelfi­legar afleið­ingar fyrir það óláns­fólk sem hingað hefur ratað í leit að betra lífi, oft frá skelfi­legum aðstæðum í heima­land­inu eða öðrum löndum sem ekki vildu hýsa þau. Blessing Newton er þar á meðal, en hún flutti til Ítalíu frá heima­land­inu Nígeríu, hald­andi að hún væri komin með vinnu sem barn­fóstra. Á Ítalíu var hún hins vegar seld í man­sal og neydd í vændi. Blessing sótti um hæli hér á landi fyrir nokkrum árum, en nýverið var henni neitað og vegna nýju lag­anna hefur hún ásamt fjölda ann­arra hæl­is­leit­enda, misst rétt á allri aðstoð hins opin­bera og væri á göt­unni ef ekki væri fyrir góð­vild ókunn­ugra sem hýstu hana, en óvíst er þó hversu lengi það er í boði. Íslend­ingar máttu horfa á þá hryggð­ar­mynd sem blasti við í kvöld­fréttum Rík­is­út­varps­ins um dag­inn þegar Blessing og tveimur öðrum fórn­ar­lömbum mansals, var hent út á stétt en þær lágu í jörð­inni frá­vita af sorg.

En hver er lausnin að mati dóms­mála­ráð­herra? Flótta­manna­búðir eða það sem hún kallar fyr­ir­bærið; búsetu­úr­ræði með tak­mörk­unum. Tak­mark­an­irnar eru sjálf­sagt þær að fólki er haldið innan „úrræð­is­ins“ með skertu ferða­frelsi og tak­mark­aðri þjón­ustu í allt að nokkur ár áður en því er hent úr landi. Blessing og hin fórn­ar­lömb mansals sem end­uðu á göt­unni um dag­inn, verða þá lík­leg­ast send beint aftur í vændi á Ítalíu, í boði Katrínar Jak­obs­dóttur sem fer fyrir íslenskum yfir­völdum. Mikil verður þá skömmin þá og er hún ansi mikil nú þegar.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta blaði Mannlífs sem má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Endurkoma Gylfa og fall Bjarna
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

End­ur­koma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Tjaldurinn Tryggvi og gjaldþrota Selfoss
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Tjald­ur­inn Tryggvi og gjald­þrota Selfoss

Í góðum málum Aðdá­endur tjalds­ins Tryggva og spúsu hans, Tryggvínu, eru í þokka­lega góðum málum enda hefur parið snúið aftur í óðal sitt í Ármúl­anum. Fram undan eru því fjöl­margar fréttir hjá Mannlífi um sam­líf pars­ins, líkt og á síð­asta ári við fádæma vin­sældir. Það vill nefni­lega svo skemmti­lega til að óðal tjald­anna er á þaki Ísólar ehf., sem er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins