„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jólabörn og jarðskjálftar

Jólabörn og jarðskjálftar
Blessuð jólin. Mynd: Pexels – Barry Potts

Í góðum málum

Jólabörn á öllum aldri eru í góðum málum um þessar stundir, enda stytt­ist óðfluga í hátíð ljóss og friðar. Úrvalið á alls konar jóla hefur sjaldan, ef nokkurn tím­ann, verið jafn mikið og einmitt nú. Allir tón­list­ar­menn og ömmur þeirra líka halda jólatón­leika og virð­ist vera upp­selt á þá alla. Meira að segja sumir sem sögð­ust aldrei ætla að halda jólatón­leika, eru farnir að halda slíka tón­leika en kalla það bara Þor­láks­messu­tón­leika. Kóng­ur­inn sjálfur, Bó Halldórs, byrj­aði auð­vitað á þessu brjál­æði og virð­ist hvergi nærri hættur, enda ku tón­leikar vera hans helsta tekju­lind.

Jóla­daga­tal æsku minnar sem inni­hélt aumt súkkulaði, heyrir nú nán­ast sög­unni til, því af hverju ætti maður að vilja fá súkkulaði þegar maður getur fengið legókalla, snyrti­vörur, titr­ara, húð­vörur og allt hitt? Og þau sem vilja koma sér í jóla­skap í gegnum kvik­mynd­irnar, þá flæða nú inn á Netflix dísætar og velgju­vekj­andi fjölda­fram­leiddar Hallmark-jóla­myndir sem allar eiga það sam­eig­in­legt að inni­halda algjör­lega óþekkta leik­ara og þunna sögu­þræði. En þær eru um jólin og það er nóg til að koma fólki í jóla­skapið og það er það eina sem skiptir máli.

Í slæmum málum

Grind­vík­ingar eru í frekar slæmum málum þessa dag­ana, það dylst engum. Ástæðan er að sjálf­sögðu aug­ljós, en íbúar heils bæj­ar­fé­lags eru nú á ver­gangi vegna mögu­legs eld­goss, flótta­fólk í eigin landi, eins og ein­hver orð­aði það. Reyndar flótta­fólk sem fær afar ríku­lega aðstoð í formi hús­næð­is­bóta, nið­ur­fell­ingu banka á vöxtum og verð­bóta af íbúða­lánum, tíma­bundið, og fleira en samt sem áður í afar slæmum málum, því neitar eng­inn.

Að þurfa að yfir­gefa bæinn sinn, heim­ili sitt og jafn­vel atvinnu, á einu auga­bragði er skelfi­legt, en móðir nátt­úra er ströng móðir sem ekki er hægt að þræta við, heldur neyð­umst við menn­irnir til að hlýða. En það er eitt sem er mögu­lega verra en að vera rif­inn upp með rótum og neyddur til að flytja inn á fjöl­skyldu­með­limi eða í ókunn­ugt leigu­hús­næði, nán­ast alls­laus, en það er nag­andi óvissan. Enn er ekki vitað hvort og þá hvenær mun gjósa, né hvar. Hvort kvikan komi upp í miðjum Grinda­vík­urbæ eða fyrir utan hann. En Grind­vík­ingar eru heppnir hvað eitt varðar: Á Íslandi býr sam­heldið fólk sem þrátt fyrir dag­legt nöldur og rifr­ildi á sam­fé­lags­miðlum, stendur við bakið á sam­löndum sínum í neyð. Það er eitt­hvað.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs en hægt er að nálg­ast vef­út­gáfu blaðs­ins með því að þrýsta á þennan hlekk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Endurkoma Gylfa og fall Bjarna
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

End­ur­koma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna...
Af geimverum og fórnarlömbum mansals
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af geim­verum og fórn­ar­lömbum mansals

Í góðum málum Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Tjaldurinn Tryggvi og gjaldþrota Selfoss
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Tjald­ur­inn Tryggvi og gjald­þrota Selfoss

Í góðum málum Aðdá­endur tjalds­ins Tryggva og spúsu hans, Tryggvínu, eru í þokka­lega góðum málum enda hefur parið snúið aftur í óðal sitt í Ármúl­anum. Fram undan eru því fjöl­margar fréttir hjá Mannlífi um sam­líf pars­ins, líkt og á síð­asta ári við fádæma vin­sældir. Það vill nefni­lega svo skemmti­lega til að óðal tjald­anna er á þaki Ísólar ehf., sem er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins