„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Endurkoma Gylfa og fall Bjarna

Endurkoma Gylfa og fall Bjarna

Í góðum málum

Gylfi Þór Sig­urðs­son er í stór­góðum málum þessi dægrin, því verður ekki neitað. Gylfi Þór er heldur betur kom­inn aftur með hvelli, eftir að hafa horfið af sjón­ar­svið­inu síð­ustu tvö árin vegna rann­sóknar lög­regl­unnar í Manchester, á meintu kyn­ferð­is­broti gegn barni. Málinu var að lokum vísað frá eins og þekkt er og hóf Gylfi fljót­lega að vinna að end­ur­komu. Það gerði hann meðal ann­ars með því að æfa með Val en svo fór að Gylfi var keyptur til Lyngby Boldklub í Danmörku. Á dög­unum lék Gylfi Þór fyrsta lands­leik sinn fyrir Íslands hönd í tvö ár, er Ísland gerði jafn­tefli við Lúx­em­borg í und­ankeppni EM 2024. Ísland sigr­aði svo Liechtenstein á afar sann­fær­andi hátt, 4-0, en þar kom Gylfi Þór, sá og sigr­aði en hann skor­aði tvö mörk í leiknum og varð þannig marka­hæsti leik­maður lands­liðs­ins frá upp­hafi, með 27 mörk. Gylfi Þór er sem sagt kom­inn aftur með látum.

Í slæmum málum

Bjarni Bene­dikts­son hefur átt betri daga, svo mikið er víst. Bjarni, sem gár­ungar hafa stundum kallað Teflon-Bjarna því ekk­ert fest­ist við hann, náði ekki að hrista af sér áfell­is­dóm umboðs­manns Alþingis, sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hefði verið óhæfur til að sam­þykkja sölu á hlut rík­iss­ins í Íslands­banka. Sá fjár­mála­ráð­herr­ann sæng sína upp reidda í ráðu­neyt­inu og til­kynnti afsögn sína á dramat­ískum blaða­manna­fundi. Þrátt fyrir að Bjarni hafi ekki fært sig mjög langt frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu, með því að skipta um sæti við Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, er ljóst að hann hefur beðið póli­tískan skaða. Og ekki mátti hann við því, þar sem fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hann gegnir for­mennsku í, hefur mælst í sögu­legu lág­marki mánuð eftir mánuð þetta árið. Segja mætti að Bjarni hafi náð að lenda á fót­unum en að hann hafi tognað á ökkla. Þarna missti hann næst­hæsta stól­inn við rík­is­stjórn­ar­borðið, sem fjár­mála­ráð­herra, og fór niður í þann þriðja stærsta. Nú er bara að bíða og sjá hvort þessi hróker­ing hjálpi flokknum eða gangi af honum dauðum, eins mikið og það er hægt.

Pistill þessi er úr nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem lesa má hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Í góðum málum / Í slæmum málum

Samsæriskenningar og menningarsvik Reykjavíkur
Skoðun

Brynjar Birgisson

Sam­sær­is­kenn­ingar og menn­ing­ar­svik Reykja­víkur

Í góðum málum Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir eru góðum málum. Aldrei hefur verið auð­veld­ara fyrir fólk að koma ein­hvers konar rugli á fram­færi og fá ein­hvern til að hlusta. Eitt af því sem hefur breyst við sam­sær­is­kenn­inga­smiði Íslands á 21. öld­inni er fólkið á bak við kenn­ing­arnar. Þetta voru yfir­leitt útúr­reyktir vinstri­s­inn­aðir mennt­skæl­ingar, sem fáir tóku mark á, að röfla um CIA og...
Af geimverum og fórnarlömbum mansals
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af geim­verum og fórn­ar­lömbum mansals

Í góðum málum Áhuga­fólk um sam­sær­is­kenn­ingar eru heldur betur í góðum málum þessi miss­erin. Fyrr í sumar stigu fram þrír svo­kall­aðir upp­ljóstr­arar, en meðal þeirra er fyrr­ver­andi starfs­maður hjá leyni­þjón­ustu banda­ríska flug­hers­ins, og sögðu eið­svarnir á Banda­ríkja­þingi, að yfir­völd Banda­ríkj­anna hefðu hylmt yfir ára­tuga­langa vit­neskju sína af heim­sóknum geim­vera til jarð­ar­innar. Sögðu þeir meðal ann­ars að bæði flug­för utan úr...
Af sólbrenndum táslumyndum og rennblautum borgarbúum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Af sól­brenndum táslu­myndum og renn­blautum borg­ar­búum

Í góðum málum Norð­lend­ingar og Aust­firð­ingar eru í góðum málum í sumar. Ástæðan er auð­vitað hita­bylgjan sem nú er í tíma­bund­inni pásu, svona rétt til að bjarga gróðr­inum um smá vatn að drekka. Þvílíka blíðan sem hefur leikið um fólk á Norður- og Aust­ur­landi það sem af er sumri. Og við sem búum í borg­inni eða ann­ars staðar á land­inu,...
Slúður og slæm meðferð á dýrum
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Slúður og slæm með­ferð á dýrum

Í góðum málum Fólk sem elskar gott slúður er í mjög góðum málum um þessar mundir. Nóg er af safa­ríkum sögu­sögnum og sann­indum um fræga og fal­lega fólkið á Íslandi, nú sem fyrr en síð­ustu vikur hafa verið ívið bita­stæð­ari en áður. Malaga-fang­inn Kleini byrj­aði með fit­ness-drottn­ing­unni Hafdísi Björgu en svo var það búið viku seinna. Eða hvað? Nokkrum dögum...
Tjaldurinn Tryggvi og gjaldþrota Selfoss
InnlentÍ góðum málum / Í slæmum málum

Tjald­ur­inn Tryggvi og gjald­þrota Selfoss

Í góðum málum Aðdá­endur tjalds­ins Tryggva og spúsu hans, Tryggvínu, eru í þokka­lega góðum málum enda hefur parið snúið aftur í óðal sitt í Ármúl­anum. Fram undan eru því fjöl­margar fréttir hjá Mannlífi um sam­líf pars­ins, líkt og á síð­asta ári við fádæma vin­sældir. Það vill nefni­lega svo skemmti­lega til að óðal tjald­anna er á þaki Ísólar ehf., sem er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins