„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hólmsteinn notar kannabis í lækningaskyni: „Það eina sem veitir mér frelsi yfir daginn“

Hólmsteinn notar kannabis í lækningaskyni: „Það eina sem veitir mér frelsi yfir daginn“

„Allir læknar sem ég hef talað við segja að úr því að þetta virkar fyrir mig þá skuli ég halda þessu áfram. Þetta sé það sem menn gera úti í heimi og það er að virka þar,“ segir Hólm­steinn Bjarni Birg­is­son sem glímt hefur við sjald­gæfa tauga­sjúk­dóma und­an­farin ár án þess að fá bót meina sinna hjá heil­brigð­is­starfs­mönnum. Prófuð hafa verið meira en tutt­ugu lyf til að lina verki og ein­kenni hjá Hólm­steini án árang­urs en það eina sem hefur hjálpað eru kanna­bis­ol­íur sem læknar mega ekki skrifa upp á. En þeir mæla samt með þeim. Þetta kemur fram í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, þar sem rætt er við Hólm­stein Bjarna um bar­áttu hans við sjúk­dóma sína, heil­brigð­is­kerfið og ráða­menn þjóð­ar­innar en Hólm­steinn er þeirrar skoð­unar að læknar eigi að hafa meira frelsi þegar kemur að kanna­bis­efnum í lækn­inga­skyni.

Hólm­steinn Bjarni er 44 ára mennt­aður mál­ari sem rak sitt eigið fyr­ir­tæki þegar hann fór að finna fyrir und­ar­legum ein­kennum fyrir rúmum tveimur árum. „Ég fór að finna fyrir stað­bundnum verkjum og fékk þreytuköst. Ég var alltaf að hugsa að þetta væri þessi kulnun sem allir voru að tala um. Ég var iðn­að­ar­maður, með fyr­ir­tæki og mikið að gera og hugs­aði bara að ég væri að ganga of langt og þyrfti að hvíla mig. Mér fannst þetta samt alltaf vera að aukast og versna og á end­anum var ég kom­inn í svefn­vesen,“ segir Hólm­steinn sem leit­aði til heim­il­is­læknis og var umsvifa­laust vísað áfram til tauga­læknis. „Ég var svo hepp­inn að lenda á mjög góðum tauga­lækni sem hefur hjálpað mér gríð­ar­lega mikið og hún var fljót að finna út hvað þetta væri.“ Hólm­steinn var greindur með það sem á ensku kall­ast small fiber og large fiber neuropathy auk slit­gigtar. Um er að ræða tauga­sjúk­dóma sem skyldir eru MS-sjúk­dómnum og Park­in­son.  

Frá grein­ingu hefur Hólm­steinn misst kraft í lík­am­anum, fengið hjart­slátta­trufl­anir, skert jafn­vægi, miklar svefn­trufl­anir, kyng­ing­ar­erf­ið­leika, ofsa­þreytu, heila­þoku auk þess sem hann hefur misst alla til­finn­ingu í tánum. „Þær eru eins og svampar framan á fót­unum og þegar ég labba um er það eins og að labba á legókubbum. Svo eru þungir verkir upp fæt­urnar og þegar ég er orð­inn þreyttur þá missi ég mátt í lík­am­anum, fæ bara sem­ents­lappir og hendur. Þetta nær líka í hend­urnar á mér og ég er kom­inn með svona til­finn­ingu í hend­urnar eins og ég sé alltaf í vett­lingum. Við erum að giska á það, ég og tauga­lækn­ir­inn minn, að ég eigi von­andi svona þrjú ár labbandi eftir, áður en ég þarf að setj­ast í hjóla­stól. Þessir sjúk­dómar munu svo taka mig þannig niður að ég enda með haus­inn í lagi en skrokk­inn ekki.“

Ábending frá bandarískum hjúkrunarfræðingi

Eins og áður segir þá hefur Hólm­steinn Bjarni fengið fleiri en tutt­ugu teg­undir lyfja, þar á meðal tvær teg­undir sem sér­stak­lega þurfti að panta erlendis frá. Um er að ræða mið­tauga­lyf, MS-lyf, Park­in­son­lyf, þung­lynd­is­lyf og allar teg­undir af mor­fín­skyldum lyfjum. Hann er þar með búinn að prófa öll lyf í svoköll­uðum lyfja­banka. „Ég fæ annað hvort allt það versta út úr lyfj­unum og verð fár­veikur eða þau gera ekki neitt. Og þessi lyf eru það sterk að ef þau hjálpa ekki þá sleppir maður þeim.“

Hólm­steinn seg­ist hafa rætt sín mál við banda­rískan hjúkr­un­ar­fræð­ing sem starfar hér á landi og hún hafi bent honum á að í heima­landi sínu væri oftar en ekki byrjað á að prófa kanna­bis því að það væri væg­asta úrræðið og ef það virk­aði ekki þá væri skoðað að gefa töflur. Hún sagði honum að mögu­lega gæti hrein og góð CBD olía gert eitt­hvað fyrir hann og Hólm­steinn beit á agnið. „Ég fór að leita að olíum fram og til baka og fyrstu tvær teg­und­irnar fannst mér ekki gera neitt. Eftir það fór ég að kom­ast í alvöru CBD olíu og þá fann ég strax mun. Verkirnir voru mýkri, þol­an­legir yfir dag­inn en ég var samt mikið verkj­aður. Svo fer ég að hitta ýmsa gúrúa í þessum kanna­bis­heimi á Íslandi og spyr ráða. Þá fæ ég að heyra að það þurfi að vera THC í olí­unni til að slá almenni­lega á verk­ina.“ 

Umrætt THC er virka efnið í kanna­bis­plönt­unni og það sem veldur vímu­á­hrifum. Vörur sem inni­halda THC eru ólög­legar á Íslandi. CBD olíur aftur á móti er hægt að kaupa í íslenskum versl­unum en það inni­heldur THC ein­göngu í snef­il­magni og veldur engum vímu­á­hrifum. Hólm­steinn varð sér úti um CBD olíu sem inni­hélt THC á svörtum mark­aði og segir að hún hafi slegið vel á verk­ina en aftur á móti hafi hann enn ekki getað sofið. „Svefninn frá grein­ingu versn­aði bara og versn­aði og ég var far­inn í það að sofa bara kannski þrjá tíma á sól­ar­hring. Ég vissi að ég væri að brenna kertið í báða enda þegar ég var orð­inn svefn­laus ofan í verk­ina. Fyrst próf­aði ég svefn­töflur og þær virk­uðu ekki fyrir mig. Þá sagði mér góð­hjörtuð kona innan Hamp­fé­lags­ins að það gæti verið snið­ugt að prófa RSO olí­una, hún gæti hjálpað með svefn­inn. Ég gerði það og þetta hefur alveg bjargað mér. Í fyrsta skipti frá grein­ingu fékk ég alveg sex tíma svefn sem var algjört himna­ríki.“

Aftur þurfti Hólm­steinn að leita á svarta mark­að­inn því RSO olía inni­heldur THC og er því ólög­leg hér á landi. „Hún kemur í svona sprautu og er eins og þykkt sýróp eða trjá­kvoða. Ég tek hana á kvöldin, svona klukku­tíma áður en ég fer að sofa og þá er talað um að taka eins og hálft hrís­grjón. Þetta er mjög lítið magn en þetta er líka mjög dýr vara og það hefur verið vesen að fá hana örugg­lega sem er mik­ill streitu­valdur hjá mér. Ég hef lent í því að vera lyfja­laus og það er hrika­legt því þá fer maður á byrj­un­ar­reit.“ 

Vill fá fund með heilbrigðisráðherra

Hólm­steinn Bjarni hefur enga til­raun gert til að fela notkun sína á kanna­bis í lækn­inga­skyni og ræðir hana við alla þá lækna sem hann hittir. „Ég hafði ekki notað kanna­bis áður. Ég kem úr sveit­inni, drakk bara landa og bjór og það var bara fínt. Þannig að ég vissi litið sem ekk­ert um þetta eða að hægt væri að nota þetta sem lækn­is­lyf eða að það hefði verið gert í fleiri þús­undir ára. Þetta hafði ég bara ekki hug­mynd um. Kannabis hefur mjög slæmt orð á sér en ef að gabapentin hefði virkað fyrir mig í upp­hafi þá sæti ég ekki hér. Þá hefði ég bara tekið það. Fyrir mér er kanna­bis lækn­is­lyf og þetta er það eina sem veitir mér frelsi yfir dag­inn til að geta farið um eins og staðan er í dag. Margir tauga­læknar sem ég hef rætt við hafa lært í Banda­ríkj­unum og vita vel að kanna­bis virkar vel. Samt heyr­ist lítið sem ekk­ert í þeim. En þau skilja mig, eru sam­mála mér og mæla með þessu. En þau geta ekki staðið upp og rétt mér þessi lyf. Ég mæti mjög góðu við­móti en það ger­ist ekk­ert og ég fæ engan sem fylgir mér og hjálpar mér. Það er það sem mig vantar. Ég er alveg týndur í kerf­inu.“

Hólm­steinn hefur reynt að ná eyrum þing­manna og von­ast til þess að geta fengið fund með Willum Þór Þórssyni, heil­brigð­is­ráð­herra. „Það er skrítið að vera í bar­áttu við kerfið en mæta vel­vild og að fólk vilji hjálpa mér en ég fái ein­fald­lega ekki lyfin mín. Það ger­ist ekk­ert í mínum málum og það hræðir mig. Þegar ég er lyfja­laus þá fer allt til hel­vítis og allur skrokk­ur­inn stoppar. Ég held að geð­heilsan fari þá mjög fljót­lega. Það eru engin önnur lyf sem hafa virkað, þetta virkar fyrir mig og því bind ég mig við það. Ég er því alveg til­bú­inn að vera tals­maður fyrir kanna­bis í lækn­inga­skyni. Eins og staðan er núna þá fékk ég þessa tvo þungu sjúk­dóma sem skellt var á mig og svo er mér bara óskað góðs gengis.“

Ætti að vera löglegt

Hann seg­ist telja að kanna­bis í lækn­inga­skyni ætti að vera lög­legt hér á landi enda gæti það hjálpað gríð­ar­lega mörgum. „Þetta er ekki töfra­lausn handa öllum en mér finnst að við ættum að fara svo­lítið fyrr í að prófa hreint CBD og kanna­bis­olíu áður en við förum að fikta í töfl­unum því margar þeirra, og þær sem ég átti að taka við þessum tauga­sjúk­dómum, fara mjög illa með skrokk­inn. Það er alveg tekið fram þegar smáa letrið er lesið. Það þarf að vera meiri umræða um þetta í þjóð­fé­lag­inu og hún ætti að vera í hönd­unum á læknum frekar en pen­inga­köllum,“ segir Hólm­steinn og bætir við að hann heyri hjá læknum að mun fleiri séu að nota kanna­bis sem lyf en fólk geri sér grein fyrir. „Ég myndi vilja sjá fleiri Íslend­inga sem eru að nota þetta standa upp og láta í sér heyra. Eins myndi ég vilja sjá þessa ráða­menn sem við eigum á þessu landi, hvort sem er í heil­brigð­is­geir­anum eða þing­heimum, lesa þetta yfir. Það er ekk­ert nýtt á nál­inni og það er ekk­ert nýtt undir sól­inni. Það er búið að nota kanna­bis sem lyf í þús­undir ára. Ef þeim finnst að það vanti rann­sóknir þá skulum við bara gera þær hér á landi. Hvers vegna erum við að flækja hlut­ina. Ef það er hægt að dæla í mig tutt­ugu teg­undum af lyfjum, fyrir tugi millj­óna, til að athuga hvað virkar af hverju ekki að prófa kanna­bis og við sjáum hvað setur. Ég hef nefni­lega trú á því og veit að þetta mun hjálpa gríð­ar­lega mörgum og myndi breyta þessu lyfja­ferli sem margir eru í. Þetta er orðið svo klikkað.” 

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan ásamt að Hamp­kastið má finna á öllum helstu streym­isveitum. Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Hólm­stein Bjarna. Mickael Omar Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel um frétta­skrif. Heima­síða Hamp­fé­lags­ins er hamp­felagid.is.  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlaðvarp

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Írska lögreglan birti ekki mikilvæga vísbendingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trúlega upp í bíl
Innlenthlaðvarp

Írska lög­reglan birti ekki mik­il­væga vís­bend­ingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trú­lega upp í bíl

Upptaka sem írska lög­reglan Gadaí fann í mars 2019, bendir til þess að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf í Dyflinni rúmum mán­uði áður, hafi ekki horfið fót­gang­andi, heldur hafi hann verið tek­inn upp í bif­reið. Í þriðja þætti hlað­varps­ins Where is Jón? eða Hvar er Jón, sem er sam­starfs­verk­efni RÚV og RTÉ í Írlandi, koma fram upp­lýs­ingar um mynd­bands­upp­tökur sem...
Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi
Menning

Óútskýrð geim­för og upp­ljóstr­ar­inn – Birtu mynd­bönd af fljúg­andi furðu­hlutum yfir Íslandi

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir félag­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­hald­andi umræðu um fljúg­andi furðu­hluti. Í þætt­inum fóru strák­arnir yfir nokkrar nýjar frá­sagnir Íslend­inga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafn­leynd og tals­vert myndefni fylgdu frá­sögn­unum. Það sem vakti mestu athygl­ina voru mynd­bönd sem tekin voru í Njarðvík og Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“
Menning

Gunn­laugur segir heim­inn vera að breyt­ast: „Valdið er að fær­ast í alþjóð­legar stofn­anir“

Gunn­laugur Guð­munds­son stjörnu­spek­ingur segir stóran hluta af þján­ingu fólks stafa af remb­ingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera ein­stak­lingur. Gunn­laugur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur tekið fólk í einka­tíma í meira en 40 ár og varð hug­fang­inn af stjörnu­speki aðeins 15 ára gam­all: „1973 gerði ég fyrsta stjörnu­kortið...
Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“
Menning

Birta mynd­bönd af dul­ar­fullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög van­máttug gagn­vart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta. Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins