„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Patrik og Snorri Másson sakaðir um karlrembu: „Þeim finnst þetta líka í Saudi-Arabíu“

Patrik og Snorri Másson sakaðir um karlrembu: „Þeim finnst þetta líka í Saudi-Arabíu“
Patrik og skoð­ana­bræð­urnir. Mynd: patreon-skjáskot

Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda og fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins er mjög hneiksl­aður á Patrik Atlasyni og Snorra Másson. Fjöldi manns eru sam­mála Ólafi, þar af nokkrir nafn­tog­aðir ein­stak­lingar.

Patrik Atlason tón­list­ar­maður fór um víðan völl í hlað­varps­þætti bræðr­anna Snorra og Bergþórs Mássona, Skoð­ana­bræður. Það sem helst vakti athygli voru gam­al­dags hug­myndir hans og þátta­stjórn­enda um kven­fólk.

Þegar talið barst að hlut­verki kynj­ana sagði Patrik: „Þetta er það sem kapí­tal­ism­inn og þessi stóru fé­lög vilja gera, að kon­ur verði „career-dri­ven“, sem er bara allt í lagi. Ég held að maður­inn eigi að vera „career-dri­ven“ og leggja alla sína orku í það og hún á að vera „nurt­ur­ing.“ Bætti hann svo við að inn­koma heim­il­is­ins gæti verið helm­ingi meiri ef karl­mað­ur­inn væri sá eini sem væri „career dri­ven“ aðil­inn í sam­band­inu, eða úti­vinn­andi.

„Ég held að þau vilji þetta því þau vilja hafa okk­ur bæði á hjól­un­um, en þá náum við styttra,“ sagði Pat­rik en fyrr í þætt­inum úskýrði hann að sá sem ákvað að bæði kynin ættu að vera á vinnu­mark­aði hafi aðeins haft sinn eigin gróða í huga.

„Það er mjög áhuga­vert að menn hafi gabbað alla út á vinnu­markað og kallað það svo frels­is­bylt­ingu,“ sagði Snorri þá og Bergþór bæt­ti við:

„Það er ógeðs­lega fyndið að ef þú hefðir sagt þetta fyrri kannski fjór­um árum þá yrði bara fer­ill­inn þinn bú­inn. Nú er fólk bara „já snilld“.“

„Þetta er bara mín skoðun og ég og kon­an mín sjá­um fram­tíð­ina þannig. Auðvitað þarf hún að hafa sinn til­gang og eitt­hvað en ég er the „go getter“ skil­uðu,“ seg­ir Pat­rik til að út­skýra betuur skoðun sína.

Snorri virð­ist taka undir skoðun Patriks er hann bætir við:

„Ég hugsa líka að all­ir karl­ar, óháð því að auð­vitað eru bara bæði kyn­in frá­bær í alls­kon­ar störf­um og mjög góð í alls­kon­ar drasli, en all­ir karl­ar myndu vilja geta haldið uppi heim­ili sínu án þess að kon­an þyrfti að vinna. Að sjálf­sögðu myndu þeir vilja það.[…] Það er æðsta tak­mark“.

Bergþór tók undir bróður sínum og sagði: „Já maður, hún eitt­hvað í Pila­tes,“ og Snorri bæt­ti við: „Hún get­ur stofnað kaffi­hús“.

Ekki eru allir sáttir við þessa afstöðu mann­anna en einn þeirra er Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda og fyrr­ver­andi rit­stjóri Frétta­blaðs­ins. Hann skrif­aði stutta en nokkuð hnit­mið­aða Facebook-færslu og hlekkj­aði frétt mbl.is um þátt­inn við.

„Gömlu­kallaraus í ungum mönnum. Og ég sem von­aði að remburnar hyrfu með minni kyn­slóð. Einhvers staðar mistókst okkur herfi­lega.“

Fjöl­margir aðilar skrif­uðu athuga­semdir við færsl­una, þar á meðal Svan­hildur Kon­ráðs­dóttir, for­stjóri Hörpu: „Er þetta ekki eitt­hvað súrt grín…?!“

Illugi Jök­uls­son rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður svar­aði Svan­hildi: „Nei þetta er alls ekki grín. Þetta er raun­veru­legt.“

Egill Helgason sjón­varps­maður er heldur stór­yrtur í sinni athuga­semd: „Þeim finnst þetta líka í Saudi-Arabíu.“

Atli Þór Fanndal beitti húmor í sinni athuga­semd: „Prófið að segja ráð um rekstur heim­ilis og sam­bands frá Prett­yboitjokkó þrisvar án þess að flissa…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hlaðvarp

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Írska lögreglan birti ekki mikilvæga vísbendingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trúlega upp í bíl
Innlenthlaðvarp

Írska lög­reglan birti ekki mik­il­væga vís­bend­ingu um hvarf Jóns Þrastar – Settist trú­lega upp í bíl

Upptaka sem írska lög­reglan Gadaí fann í mars 2019, bendir til þess að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf í Dyflinni rúmum mán­uði áður, hafi ekki horfið fót­gang­andi, heldur hafi hann verið tek­inn upp í bif­reið. Í þriðja þætti hlað­varps­ins Where is Jón? eða Hvar er Jón, sem er sam­starfs­verk­efni RÚV og RTÉ í Írlandi, koma fram upp­lýs­ingar um mynd­bands­upp­tökur sem...
Óútskýrð geimför og uppljóstrarinn – Birtu myndbönd af fljúgandi furðuhlutum yfir Íslandi
Menning

Óútskýrð geim­för og upp­ljóstr­ar­inn – Birtu mynd­bönd af fljúg­andi furðu­hlutum yfir Íslandi

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir félag­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áfram­hald­andi umræðu um fljúg­andi furðu­hluti. Í þætt­inum fóru strák­arnir yfir nokkrar nýjar frá­sagnir Íslend­inga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafn­leynd og tals­vert myndefni fylgdu frá­sögn­unum. Það sem vakti mestu athygl­ina voru mynd­bönd sem tekin voru í Njarðvík og Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Gunnlaugur segir heiminn vera að breytast: „Valdið er að færast í alþjóðlegar stofnanir“
Menning

Gunn­laugur segir heim­inn vera að breyt­ast: „Valdið er að fær­ast í alþjóð­legar stofn­anir“

Gunn­laugur Guð­munds­son stjörnu­spek­ingur segir stóran hluta af þján­ingu fólks stafa af remb­ingi við að passa inn í normið í stað þess að leyfa sér að vera ein­stak­lingur. Gunn­laugur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur tekið fólk í einka­tíma í meira en 40 ár og varð hug­fang­inn af stjörnu­speki aðeins 15 ára gam­all: „1973 gerði ég fyrsta stjörnu­kortið...
Birta myndbönd af dularfullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög vanmáttug gagnvart árás úr geimnum“
Menning

Birta mynd­bönd af dul­ar­fullum ljósum yfir Íslandi: „Erum mjög van­máttug gagn­vart árás úr geimnum“

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins sett­ust þeir niður kump­án­arnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríð­ar­legri aukn­ingu meintra til­fella fljúg­andi furðu­hluta. Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur til­fellum fjölgað alveg gríð­ar­lega þar sem venju­legt fólk seg­ist verða vitni af fljúg­andi furðu­hlutum eða UFO. Ferlið sem virt­ist hefj­ast með dul­ar­fullum hnetti...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins