Karen Kjartansdóttir bendir á misræmi í fréttaumfjöllun um fjöldaskotárásir og veltir fyrir sér af hverju Rickard Andersson, sem skaut 10 til bana í Örebro á dögunum, hafi ekki verið sagður hafa fylgt róttækri hugmyndafræði en hann heyrðist öskra á sýrlensk fórnarlömb sín um að fara aftur heim til sín.
Stjórnendaráðgjafinn Karen Kjartansdóttir skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hún talar um skotárás hins sænska Rickard Andersson í skóla í Örebro á dögunum og furðar sig á umfjöllum um málið. Tekur hún fram að þrátt fyrir að Andersson hafi heyrst kalla á sýrlensk fórnarlömb sín um að fara aftur heim til sín, sé ekki talið að hann hafi fylgt róttækri hugmyndafræði. Veltir hún að lokum fyrir sér ástæðunni fyrir því að samfélagsmiðillinn X sé „óvenju hljóðlátur“ um þessa mestu fjöldaskotárás í sögu Svíþjóðar.
Hér má lesa færsluna:
„Hinn sænski Andersson ræðst inn í skóla sem býður upp á grunn- og framhaldsskólanám, auk sænskukennslu fyrir innflytjendur. Á upptöku frá atvikinu heyrist öskrað á Sýrlendinga á milli skothvella: „Farið heim til ykkar.“ Hins vegar er tekið fram að ekki sé hægt að staðfesta að það hafi verið hann sem hrópaði þetta – eins og einhvert fórnarlambanna hafi fengið þá flugu í höfuðið að æpa slíkt. Ellefu manns láta lífið.
Andersson er sagður einrænn og ekkert bendi til þess að hann hafi fylgt róttækri hugmyndafræði. Trú hans hefur hvergi verið nefnd.X hefur verið óvenju hljóðlátt um mestu fjöldaskotárás í sögu Svíþjóðar. Kannski ættum við að giska á hvers vegna…“
Með færslunni lét Karen fylgja eftirfarandi mynd:



























Athugasemdir