„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jólalegt sætabrauð

Mikil hefð er fyrir epla-stru­del í Aust­ur­ríki og Þýska­landi og bjóða flest kaffi­hús upp á þetta dásam­lega sæta­brauð. Þunnt stökkt deig með krydd­aðri epla­fyll­ingu, borið fram með vanillusósu eða ís, getur ekki klikkað. Margir halda að erfitt sé að búa til stru­del en það er mik­ill mis­kiln­ingur og tekur ekki langan tíma. Þeir sem elska epli, kanil og vanillusósu ættu því ekki að láta þessa fram hjá sér fara.

Jólalegt sætabrauð
Epla-stru­del með vanillusósu sem Bergþóra Jóns­dóttir bak­aði fyrir Gest­gjafann. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Epla-strudel með vanillusósu

Deig
80 ml volgt vatn
15 g olía
½ tsk. edik
1/8 tsk. fínt borð­salt eða sjáv­ar­salt
145 g brauð­hveiti
½ tsk. olía til að pensla með deigið með

Hitið ofn­inn í 190°C. Blandið saman vatni, olíu, ediki og salt í stóra skál. Blandið hveit­inu saman við og hrærið. Bætið 1-2 msk. af hveiti saman við ef deigið loðir enn við hend­urnar. Hnoðið deigið þar til það verður silki­mjúkt og glans­andi. Búið til kúlu úr deig­inu og penslið með olíu og pakkið henni í plast og geymið í klst. við stofu­hita.

Fylling
3 msk. ósaltað smjör
80 g brauðrasp
65 g sykur
½ tsk. kanill
4 msk. rús­ínur
3 msk. romm eða volgt vatn
4 með­al­stór epli
1 msk. sítrónu­safi
1 msk. smjör

Bræðið smjör á pönnu og bætið brauðra­spi saman við, hrærið vel þar til raspið brúnast . Hrærið í allan tím­ann og fylgist með svo hann brenni ekki við. Takið af hit­anum og kælið. Blandið sykri og kanil saman og setjið saman við brauðra­spið, setjið til hliðar. Látið rús­ín­urnar liggja í rommi eða vatni í u.þ.b. 10 mín­útur. Flysjið eplin, fræ­hreinsið, skerið hvert epli til helm­inga og svo í þunnar sneiðar. Hellið sítrónusafa yfir svo epla­sneið­arnar verði ekki brúnar. Hellið vökv­anum af rús­ín­unum og setjið þær saman við eplin.
Fletjið deigið út á hveitist­ráð borð. Takið deigið upp með því að fara undir það með hönd­unum og lyfta því upp og teygja aðeins til, reynið að fá það eins þunnt og mögu­legt er, það á að vera um 35 cm á breidd og 45 cm á hæð. Penslið deigið með smjöri og dreifið brauð­mylsn­unni yfir helm­ing­inn af deig­inu og setjið epla­fyll­ing­una yfir hana. Rúllið upp og byrjið þar sem fyll­ingin er. Látið sam­skeytin snúa niður og bakið í 30 mín.

Vanillusósa
125 ml mjólk
125 g rjómi
25 g sykur
fræ úr ½ vanillu­stöng
1 egg
1 eggjarauða

Blandið mjólk, rjóma, sykri og fræjum úr vanillu­stöng saman í pott og hrærið saman við vægan hita. Takið af hell­unni. Pískið saman egg og eggjar­auðu í skál og hellið síðan vanill­urjóma­blönd­unni saman við og hitið yfir vatns­baði. Hrærið stöðugt í blönd­unni með písk og takið af hit­anum þegar sósan fer að þykkna, þá er hún til­búin. Þetta tekur u.þ.b 5-7 mín. Berið fram með epla­lengj­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður