„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Klassískir og hátíðlegir forréttir

Hátíð­legt er að bjóða upp á for­rétti áður en jólasteikin er borin á borðið. Hér höfum við upp­skriftir að þremur klass­ískum for­réttum úr til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans.

Klassískir og hátíðlegir forréttir
||

Laxat­artar með epla­skífum
fyrir 4-6

300 g reyktur lax, skor­inn í litla bita

200 g graf­inn lax, skor­inn í litla bita

2 skalot­laukar, fínt saxaðir

½ msk. ferskt dill, saxað

salt og pipar eftir smekk

1 grænt epli

2 msk. laxa- eða sil­unga­hrogn (má líka nota kav­íar)

Blandið báðum teg­undum af laxi, lauk og dilli saman, blandið 2 msk. af sós­unni út í. Látið bíða í eina klukku­stund. Sneiðið nokkrar mjög þunnar skífur af eplinu, gott er að nota mand­ólín. Setjið svo­lítið af tart­ar­blönd­unni á 4-6 diska og raðið epla­skífum, u.þ.b. 3 á hvern disk, ofan á hann. Skiptið því sem eftir er af tart­arnum á milli diskanna, ofan á eplin. Hellið sósu yfir tart­ar­inn og örlítið yfir eplin og í kring á diskinn. Skreytið með laxa­hrognum og fersku dilli.

Sósa

¾ dl góð olía

2 msk. sítrónu­safi

örlít­ill sykur

salt og pipar

Hrærið allt saman í skál.

Hvít­lauks­steiktir humar­halar
fyrir 4-6

Humar klikkar ekki.

Humar er afar ein­falt að elda og hann er nán­ast alltaf góður. Það eina sem þarf að gera er að klippa hann að framan og hreinsa görn­ina úr. Á jól­unum er skemmti­leg­ast að nota stóran gæða­humar og þá má áætla 2-4 á mann í for­rétt en fleiri ef þeir eru litlir, ef hum­ar­inn er lít­ill verður að elda hann skemur.

8 stórir humar­halar

4 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir

2-3 msk. smjör

1 dl stein­selja, söxuð

hvítur nýmal­aður pipar

sjáv­ar­salt

2 sítrónur

Bræðið smjörið á pönnu, bætið hvít­lauknum saman við og látið malla í u.þ.b. 30-40 sek­úndur. Bætið humar­höl­unum út í og steikið í 2-3 mín­útur eða þar til hal­arnir verða hvítir að lit. Sáldrið stein­selj­unni saman við og kryddið með pipar og salti og blandið öllu vel saman á pönn­unni. Setjið á diska og berið fram með sítrónu­bátum og góðu snittu­brauði.

Asp­as­súpa
fyrir 6

Asp­as­súpa er full­kom­inn for­réttur.

30 g smjör

3 msk. hveiti

12 dl græn­metis- eða kjúklinga­soð

2 asp­as­dósir (u.þ.b. 600 g sam­tals)

salt eftir smekk

pipar eftir smekk

2 dl rjómi, þeyttur

2 msk. söxuð stein­selja (má sleppa)

Bræðið smjör í potti, hrærið hveiti út í þar til úr verður smjör­bolla og þynnið síðan út með soð­inu. Byrjið að setja 1 dl af soð­inu og síðan smátt og smátt svo súpan verði vel sam­löguð og fari ekki í kekki, bætið soð­inu af asp­asnum út í í rest­ina. Sjóðið súp­una í 3-5 mín., bætið þá aspas út í og látið allt sjóða saman við vægan hita í 4-5 mín. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið súp­unni í diska og setjið rjómatopp á hvern disk. Fallegt er að skreyta ofan á með stein­selju.

Nota má ferskan aspas í súp­una í stað­inn fyrir aspas úr dós. Þá er neðsti hlut­inn af stöngl­inum flysjaður létt, asp­as­inn skor­inn í bita og soðin

Texti/Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir og Sigríður Björk Braga­dóttir
Myndir / Ljós­mynd­arar Birtíngs

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður