„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Súkkulaðikleinuhringir með kaffikremi

Bakaðir kleinu­hringir eru fljót­legir og auð­veldir í bakstri en geta litið út eins og mikið hafi verið fyrir þeim haft með því að dýfa þeim ofan í krem og skreyta. Þeir eru góðir í kaffi­boðið og slá alltaf í gegn hjá yngri kyn­slóð­inni.

Súkkulaðikleinuhringir með kaffikremi
kleinu­hringur

Súkkulaði­kleinu­hringir
6 stórir kleinu­hringir

120 g hveiti
30 g kakó
½ tsk. mat­ar­sódi
½ tsk. salt
130 ml hrein ab-mjólk
100 g púð­ur­sykur
1 egg
1 tsk. vanillu­dropar
60 g ósaltað smjör, brætt

Hitið ofn­inn í 170°C. Hrærið saman hveiti, kakó, mat­ar­sóda og salt í stórri skál. Hrærið saman ab-mjólk, púð­ur­sykur, egg, vanillu og brætt smjör í annarri með­al­stórri skál. Búið til holu í miðju þurr­efn­anna og hellið síðan blautefn­unum ofan í. Blandið vel saman með sleikju en passið að hræra deigið ekki of mikið því þá verða kleinu­hringirnir of stífir og þéttir í sér. Setjið deigið ofan í sprautu­poka (einnig er hægt að nota Ziplock-poka). Klippið gat neðst á pok­ann (í horn­inu ef not­aður er Ziplock-poki) og skiptið deig­inu jafnt ofan í bök­un­ar­mótið. Einnig má nota tvær skeiðar til að fylla mótið. Bankið mót­inu ákveðið á borð­plöt­una til að losa um loft­bólur í deig­inu. Bakið í miðjum ofni í 10-12 mín­útur eða þar til kleinu­hringirnir hafa bak­ast í gegn. Setjið á grind og látið kólna í 10 mín­útur áður en þeim er hvolft úr mót­inu. Raðið kleinu­hringj­unum á grind­ina og látið kólna alveg.

Kaffi­krem
100 g rjóma­ostur, við stofu­hita
10 g kakó
2 msk. kaffi, sterkt
1 tsk. vanillu­dropar
100-150 g flór­sykur

Þeytið rjóma­ost­inn þar til hann er orð­inn alveg sléttur og laus við alla kekki. Hellið kakó­inu, kaff­inu og vanillu­drop­unum út í og blandið vel saman. Sigtið flór­syk­ur­inn í skál og hrærið saman við kremið smám saman eða þar til kremið er orðið ágæt­lega þykkt en þó seig­fljót­andi. Ef kremið er mjög þykkt þá má bæta við smá­vegis meira kaffi eða mjólk til að þynna það. Athugið að kannski þarf ekki að nota allan flór­syk­ur­inn til að ná réttri áferð.
Gott er að skreyta kleinu­hring­ina með súkkulað­ispæni og sigt­uðu kakói.

Umsjón/Nanna Teits­dóttir
Stílisti/Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir
Myndir/Aldís Páls­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bakstur

Ótakmarkað geymsluþol sé hún vökvuð með áfengi
Fólk

Ótak­markað geymslu­þol sé hún vökvuð með áfengi

Nanna Rögn­vald­ar­dóttir mat­reiðslu­bóka­höf­undur og mat­ar­gúrú er í köku­blaði Vikunnar að þessu sinni. Hún bakar til­vilj­ana­kennda ávaxta­köku sem eng­inn borðar nema hún sjálf. „Ég valdi þessa af því að ég held upp á hana og af því að hún er svo til­valin til að nýta ýmis­legt sem safn­ast upp; afganga úr pokum með þurrk­uðum ávöxtum og hnetum, eitt og annað sem...
Fólk

Dúnmjúka Engla­kakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019. Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin. „Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður