„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Súrbjór – bastarður bjórheimsins

Súr­bjórar er eitt­hvað sem allir ættu að smakka. Það er bara þannig. Þeir verða til fyrir til­stilli bakt­ería (lactobacillus, pedicoccolus o.f.) og villi­gerla (brettanomyces) sem eru óæski­legir í hef­bundnum bjórum og má því segja að þeir séu bastarðar bjór­heims­ins. Þegar þeir eru vel gerðir eru þetta hins vegar engir bastarðar, heldur áhuga­verð­ustu og marg­slungn­ustu bjórar sem fyrir finn­ast. Hér er létt yfir­ferð yfir helstu stíla.

Súrbjór – bastarður bjórheimsins

Lambic

Uprunn­inn og fram­leiddur í Pajotten­land, suð­vestan við Brussel, og í Brussel sjálfri. Lambic er eitt af marg­slungn­ari fyr­ir­bærum bjór­heims­ins og er fram­leiðslan eftir því. Þegar grunn­bjór­inn hefur verið brugg­aður er hann lát­inn standa yfir nótt í gríðar stórum og opnum körum (coolship) sem gerir það að verkum að villt ger (brettanomyces) og bakt­er­íur (lactobacillus og pediococcus) kom­ast í bjór­inn.

Lambic er eitt af marg­slungn­ari fyr­ir­bærum bjór­heims­ins og er fram­leiðslan eftir því.

Þessi þrenn­ing fær síðan að vinna sína vinnu í stórum eik­artunnum í marga mán­uði og stundum nokkur ár. Ungur lambic getur oft verið með ansi harka­lega sýru og er því oft blandað saman eins árs, tveggja ára og þriggja ára lambic til að búa til bjór sem er í betra jafn­vægi og kall­ast sá bjór Gueuze. Oft er líka bætt við heil­brigðum skammti af kirsu­berjum til þess að búa til Kriek en það er einnig not­ast við aðra ávexti eða blóm til að bragð­bæta. Óbragð­bættur lambic eða gueuze er ávalt sæmi­lega súr með marg­slung­inn og „fönkí“ ilm en bragð­bættur tekur hann auð­vitað bragð úr ávext­inum sem er bætt við.

Gose

Gose er bjór­stíll sem er upp­runn­inn í smá­bænum Goslar í þýska­landi. Sérkenni stíls­ins er að salt og kórí­ander er notað í fram­leiðsl­unni og er bjór­inn sýrður með lactobacillus sam­hliða venju­legri gerjun. Ávaxta­við­bætur hafa unnið á í vin­sældum, sér­stak­lega í Banda­ríkj­unum. Bjórinn er yfir­leitt í kringum 5%, afar frísk­andi, létt-súr og má finna keim af kórí­ander.

Berliner Weisse

Berliner Weisse er annar bjór­stíll sem er upp­runn­inn í Þýska­landi og var lengi vel vin­sæl­asti áfengi drykkur Berlínar. Bjórinn er oft­ast frekar lár í áfeng­is­pró­sentu (3-4%) og er hann yfir­leitt gerjaður með blöndu af geri og lactobacillus. Eins og með Gose hefur verið afar vin­sælt að bragð­bæta Berliner Wisse.

Flanders red/Ous bruin

Báðir þessir stílar eiga upp­runa sinn að rekja til flæmska hluta Belgíu og eiga það einnig sam­eig­in­legt að vera gerjaðir með blöndu af venju­legu geri og lactobacillus en einnig fær villt ger eins og brettanomyces að fljóta með. Flanders red fær dimmrauðan lit sinn frá malt­inu sem er notað og að sama skapi fær Oud Bruin sinn dökk-brúna lit frá malt­inu. Báðir bjórar spila svo­lítið á jafn­vægi sýru og sætu, ólíkt hinum frekar þurru Lambic eða Gueuze.

Umsjón / Eymar Plédel Jónsson og Dominique Plédel

Sjá einnig: Bjór og nokkur af mörgum and­litum hans

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bjór

Í höfuðið á blautasta bletti á Íslandi
Mannlífið

Í höf­uðið á blautasta bletti á Íslandi

Frum­kvöðla­starf­semi heldur áfram sem aldrei fyrr þrátt fyrir ástandið og eig­endur Smiðj­unnar brugg­húss í Vík í Mýrdal hafa þurft að bregð­ast við ástand­inu vegna heim­far­ald­urs­ins eins og aðrir. Hingað til hafa þau aðeins bruggað bjór sem seldur hefur verið á krana en kynna nú til leiks fjóra nýja dósa­bjóra. Þau von­ast eftir breyt­ingu á lögum til að mega selja þessa nýju afurð út úr húsi hjá sér.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður